Fréttablaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 12
12 16. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
ÚTS
ÚTSA
LA
ÚT
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
ÚTS
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ALA ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
SALA ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ALA ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
SALA ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚT
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
KABÚL, AP Seinustu dagar hafa
verið afar blóðugir í Afganistan.
Að minnsta kosti átján létu lífið á
mánudag, þar af tólf meintir upp-
reisnarmenn talíbana. Einn þeirra
lést þegar hann sprengdi sjálfan
sig í loft upp og særði sex
afganska hermenn og einn
almennan borgara. Einnig særð-
ust fjórir franskir NATO-liðar í
sprengingu í Kabúl á mánudag,
ásamt þremur almennum borgur-
um.
Á sunnudaginn létust tuttugu
og fjórir meintir uppreisnarmenn
og fimm úr herliði Afgana, en á
laugardaginn særðust tuttugu
óbreyttir borgarar í sprengju-
árás, þeirra á meðal voru konur
og börn.
Önnur sprengja sprakk nærri
hermönnum NATO-sveitanna,
sem voru staddir við skrifstofu
Sameinuðu þjóðanna í Kabúl á
mánduag, en engan sakaði.
Ofbeldisalda ríður nú yfir
Afganistan en hópar uppreisnar-
manna eru úr röðum talíbana og
eru átökin undanfarið þau verstu
síðan talíbanastjórninni var
steypt árið 2001. Verst hefur
ástandið verið í suðurhéruðum
landsins, sérstaklega í Helmand-
héraði, en tiltölulega sjaldséð
hefur verið að ráðist sé á NATO-
liða í Kabúl. - rsg / - kóþ
Óöldin í Afganistan síðustu daga:
Tugir manna falla í árásum
FRANSKIR HERMENN GÆTA SPRENGJU-
STAÐARINS Í FYRRADAG Tvær sprengjur,
festar við reiðhjól, sprungu nálægt her-
mönnum NATO í Kabúl fyrr í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Það má með sanni
segja að Myracle Lakenya sé
slysabarn og mikið kraftaverka-
barn, eins og nafn hennar gefur til
kynna. Hún fæddist nefnilega
eftir að móðir hennar lenti í bíl-
slysi og sat föst fótbrotin og ein í
bílnum sem hálfmaraði í kafi úti í
skurði.
Þegar Kenyetta Biggs, 21 árs
gömul móðir telpunnar frá Flórída
í Bandaríkjunum, fann fyrir fyrstu
hríðaverkjunum snemma á sunnu-
dag, settist hún inn í bíl sinn og
ætlaði að aka á næsta sjúkrahús.
Ekki fór þó betur en svo að hún
missti stjórn á bílnum í einni hríð-
inni með þeim afleiðingum að bíll-
inn endasentist út í vatnsfylltan
skurð.
Biggs fótbrotnaði í slysinu og
hvorki komst út úr bílnum né gat
kallað eftir hjálp, á meðan hríðirn-
ar ágerðust.
Um klukkutíma eftir að slysið
varð var lögregluþjónninn Stephen
Maxwell á leið til vinnu þegar
hann kom auga á höfuð Biggs í háu
grasi við veginn. Hún hafði klifrað
hálfa leið út úr bílnum í leit að
aðstoð. Nýfædd telpan lá í fram-
sæti bílsins.
Maxwell og öðrum lögreglu-
þjóni tókst að losa Biggs úr bíln-
um og koma henni og dótturinni á
sjúkrahús.
Faðir Biggs, Kenneth Biggs,
sagði dóttur sína ekki hafa til-
kynnt fjölskyldunni um þungun-
ina og taldi hana líklega hafa ótt-
ast reiði þeirra. En hún þyrfti
ekkert að óttast af þeirra hálfu
nú. - smk
Þunguð kona ók út í skurð og fæddi dóttur:
Fæddist eftir bílslys
KRAFTAVERKABARN Nýfædda telpan sést
hér í faðmi lögregluþjónsins sem bjargaði
henni og móður hennar úr bílflaki sem
maraði í kafi eftir bílslys meðan móðirin
fæddi telpuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Nítján ára piltur var
handtekinn í verslun Lyfja og heilsu
í Álfabakka í fyrrinótt þar sem
hann hafði brotist inn og var að
athafna sig í leyfisleysi. Lögreglu
hafði borist tilkynning um manninn
inni í versluninni og var hann grip-
inn glóðvolgur á vettvangi.
Sami piltur var handtekinn sól-
arhring áður fyrir innbrot í tvö apó-
tek, meðal annars þessa sömu versl-
un Lyfja og heilsu. Pilturinn mun
vera lögreglu kunnur fyrir æði
margt misjafnt.
Að sögn varðstjóra lögreglu
mun þurfa fleiri brot til en þetta til
að lögbrjótur fari í síbrotagæslu.
- sh
Braust aftur inn í apótek:
Tekinn aftur í
sömu verslun
TITRANDI ENDUR Þessi fullorðinsleikföng
fyrir svefn- eða baðherbergið fást á Rue
du Marche Saint Honore í París, og kostar
hver önd litlar 20 evrur, eða um 1800
íslenskar krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
WORLD CLASS Á SELTJARNARNESI Hús World Class mun tengjast sundlauginni á Seltjarnar-
nesi. Hér má sjá teikningu af húsinu eftir Funkis ehf. arkitekta.
HÚSBYGGING Framkvæmdir við
fyrirhugaða líkamsræktarstöð
World Class á Seltjarnarnesi hefj-
ast að öllum líkindum um næstu
áramót ef allt gengur að óskum,
að sögn Björns Leifssonar fram-
kvæmdastjóra World Class.
Hönnun hússins er vel á veg
komin en að sögn Ara Lúðvíksson-
ar hjá Funkis ehf. arkitektum,
sem sáu um hönnun hússins, var
gott útsýni af byggingarstað haft í
fyrirrúmi við teikningu þess.
Deiliskipulag fyrir íþrótta-
svæðið í kringum sundlaugina
hefur verið í vinnslu hjá bæjar-
stjórn að undanförnu, en stjórn
Seltjarnarness undirritaði vilja-
yfirlýsingu um samstarf við Þrek,
fyrirtæki Björns Leifssonar, um
byggingu hússins á því svæði.
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi segist
hafa orðið var við töluverða eftir-
væntingu á meðal bæjarbúa vegna
uppbyggingarinnar á íþrótta-
svæðinu við Sundlaug Seltjarnar-
ness.
Húsið mun rísa við anddyri
sundlaugarinnar og mun tengjast
henni, líkt og í Laugum við Laug-
ardalslaug. Nýbyggingin verður
fjórtán til fimmtán hundruð fer-
metrar og vonast Björn Leifsson,
framkvæmdarstjóri World Class,
til þess að stöðin verði opnuð í
september á næsta ári ef allt
gengur að óskum. - æþe
Bygging hefst
um áramótin
World Class undirbýr byggingu líkamsræktarstöðv-
ar á Seltjarnarnesi sem mun tengjast sundlauginni.