Fréttablaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.08.2006, Blaðsíða 26
[ ] Sparar pláss og sameinar lykil- atriði út við hjól. Rafrásaheilarnir hjá Siemens VDO eru duglegir að finna sér eitthvað til dundurs. Nú eru þeir að fást við kerfi sem sameinar drifrás, stýr- ingu, dempara og bremsur og verð- ur staðsett inni í hjólum bifreiða. Kerfið er kallað eCorner, sem ætla má að standi fyrir þátt raf- magns í því að beygja bílnum, og felst meðal annars í því að skipta út hefðbundnum hreyfanlegum hlutum í bílum, eins og kúplings- barka, fyrir rafmagnsvíra. Grúskararnir hjá VDO Siemens verða þó að halda vel á spöðunum, því kollegar þeirra hjá Mitsubishi eru einnig að vinna að svipuðu kerfi sem þegar hefur verið sett í nokkra hugmyndabíla. Enn einn kostur þess háttar útbúnaðar er að hönnuðir bíla eru ekki lengur bundnir af hefðbundinni uppbygg- ingu sem núverandi búnaður kall- ar á. Stefnuljós eru mikilvæg hjálpartæki í umferðinni. Verum tillit- söm og komum í veg fyrir misskilning með því að nota stefnuljós. Nýjasta mótorsportið á Íslandi hentar jafnt fullorðnum mótor- hjólamönnum, fimm ára krökk- um og fimmtugum konum. Við fyrstu sýn virðast mini-moto- hjólin vera hálfgerður brandari, fullorðið fólk sem brunar eftir braut á alltof litlum mótorhjólum sem líta út fyrir að vera smíðuð fyrir fjögurra ára börn. Krist- mundur Birgisson segir að þau séu þó að minnsta kosti jafn skemmtileg og stærri mótorhjól. „Ég á Hondu CBR 1000-hjól líka, það er ekkert síðra að fara út á litla kvikindinu,“ segir Krist- mundur. Til að gefa einhverja hug- mynd um hversu lítil mini-moto- hjólin eru, þá eru aðeins 40 cm frá götu upp í sæti. Þau vega 23 kg með fullan tank af bensíni og kom- ast upp í 60 km hraða. Þau eru ætluð í keppni og eru því á slétt- um, mjúkum dekkjum með mikið veggrip. Vélarnar eru 49 rúm- sentimetra tvígengisvélar sem toga 4,5 Nm á 15.000 snúningum. „Maður þarf enga reynslu af öðrum hjólum til að ráða við þessi. Það getur auðvitað ekki gert annað en að hjálpa, en er ekki nauðsyn- legt. Við höfum verið að hjóla niðri við Klettagarða og allir sem hafa komið þangað og viljað prófa hafa fengið að prófa, meira að segja fimmtugar konur sem höfðu gaman af,“ segir Kristmundur sem flutti sjálfur inn fyrsta hjólið fyrir um það bil ári. „Þá lenti ég í veseni við tollinn því hjólið var ekki með fastanúm- eri og því ekki hægt að skrá það. Ég hafði samband við framleið- andann og bað hann um að setja fastanúmer á þau og síðan hefur innflutningurinn gengið vel.“ Kristmundur byrjaði í mótor- sportinu á stórum amerískum bílum í kringum 1986 og segir mini-moto-hjólin skemmtilegri að mörgu leyti. „Þetta er líka miklu ódýrara og tekur mikið minna pláss í skúrnum. Svo er hægt að henda hjólinu í skottið og fara með það hvert sem er.“ Í sumar verða haldin tvö mót fyrir mini-moto en næsta sumar verður haldin mótaröð undir merkjum GP-Ísland. Til þess að vera löglegur í keppni þarf öku- maður að vera 12 ára eða eldri. Kristmundur segir þó að börn frá 5 ára aldri ráði vel við hjólin. Og það þarf ekki að kosta mjög mikið að byrja í sportinu. „Hjólin kosta 69.000 kr. í vefverslun okkar á fingrafar.is,“ segir Kristmundur. „Svo þarf að vera í góðum galla eða með góðar hlífar og með þokkalegan hjálm. Maður kemst af með 100.000 krónur sem er ekki mikið í mótorsporti.“ Kristmundur og félagar hjóla flest góðviðriskvöld á milli Sindra og vélaverkstæðis Heklu í Kletta- görðum. Áhugasömum er bent á að leggja leið sína þangað til að prófa. einareli@frettabladid.is Vegur aðeins 23 kíló Fimm ára mótorhjólatöffari, Óðinn Kristjánsson, fékk að hjóla í fyrsta sinn fyrir tveimur vikum og hefur vart fengist til að stoppa síðan. Kristmundur Birgisson (til vinstri) og Kristj- án Hafliðason við mini-moto-hjólin sín. Kristmundur segir ekkert síðra að hjóla á þeim en stórum og kraftmiklum hjólum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Rafrænt drifkerfi Svona lítur hluti af eCorner kerfinu út. Fyrir- ferðin ætti ekki að þvælast fyrir neinum. Þegar betur er gáð er eCorner flókið og fullkomið kerfi. Með því að nota rafmagnsvíra í stað öxla og kapla aukast möguleikar í bifreiðahönnun. • SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR • BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA ALLT Á EINUM STAÐ SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.