Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 2
2 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Herinn heim fyrir helgi
Ísraelski herinn verður sendur heim
frá Líbanon áður en hið nýja ár
gyðinga rennur upp á föstudagskvöld.
Ákvörðunina um brottflutning liðsins
kynnti undirhershöfðinginn Dan
Halutz varnar- og utanríkismálanefnd
ísraelska þingsins í gær.
LÍBANON
STJÓRNMÁL Búist er við að niður-
stöður viðræðna Íslendinga og
Bandaríkjamanna um varnir
Íslands verði kynntar fyrir helgi.
Viðræðunefndir ríkjanna hittust
síðast á fundi í húsakynnum
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins í Washington á fimmtudag og
ræddu málin í um þrjár klukku-
stundir.
Mikil leynd hefur hvílt yfir við-
ræðunum og nefndarmenn og ráð-
herra varist allra frétta. Yfirlýs-
ingar og tilkynningar eftir fundi
nefndanna hafa jafnan verið var-
færnar en eftir fundinn á fimmtu-
dag kvað við nýjan tón. Í tilkynn-
ingu frá forsætisráðuneytinu
sagði að gert væri ráð fyrir að
samkomulag lægi fyrir fljótlega.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra sagðist í samtali við Frétta-
blaðið í gær enn vonast til að geta
skýrt frá niðurstöðunum fyrir
helgi. „Ég geri mér vonir um að
það dragi til tíðinda í þessari
viku,“ sagði Geir en tók jafnframt
fram að hann gæti ekki fullyrt um
það. Aðspurður svaraði Geir því
játandi að viðræðurnar hefðu þró-
ast í takt við væntingar sínar. „Já,
upp á síðkastið hafa þær gert það.
En auðvitað erum við að bregðast
við ákveðnum breytingum sem
við hefðum kosið að ekki hefðu
orðið.“
Stjórnvöld hafa legið undir
ámæli fyrir að upplýsa ekki
stjórnarandstöðuna og utanríkis-
málanefnd Alþingis um gang mála
í viðræðunum. Geir segir leyndina
hafa verið nauðsynlega og boðar
kynningu á málinu innan tíðar.
„Leyndin hefur verið nauðsynleg,
meðal annars vegna þess að við
þurfum að taka tillit til Banda-
ríkjamanna. Ég
greindi stjórnar-
andstöðunni frá
þessu í sumar og
ég mun eiga fund
með henni aftur
við fyrsta tæki-
færi og jafn-
framt utanríkismálanefnd áður en
málið verður gert opinbert.“
Geir segir ekki ljóst hvort við-
ræðunefndirnar þurfi að hittast á
ný.
Bandaríkjamenn tilkynntu um
brotthvarf varnarliðsins frá
Keflavíkurflug-
velli þann 15.
mars. Tveimur
vikum síðar hitt-
ust viðræðu-
nefndir ríkjanna
á fundi í Reykja-
vík og síðan hafa
verið haldnir fjórir fundir. Rætt
hefur verið jöfnum höndum um
varnir Íslands og yfirtöku Íslend-
inga á rekstri og viðhaldi Kefla-
víkurflugvallar. bjorn@frettabladid.is
Viðræðurnar þróast
í takt við vonir Geirs
Geir Haarde forsætisráðherra væntir þess að niðurstöður í viðræðum Íslendinga
og Bandaríkjamanna um varnir Íslands og viðskilnað Bandaríkjahers liggi fyrir í
þessari viku. Hann segir leyndina yfir viðræðunum hafa verið nauðsynlega.
GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra segir varnarviðræðurnar við Bandaríkjamenn hafa
þróast í takt við væntingar sínar.
FJÁRSVIK Öflun gagna og yfir-
heyrslur í fjársvikamáli fyrrum
starfsmanns Tryggingastofnunar
standa enn yfir hjá efnahags-
brotadeild Ríkislögreglustjóra.
Aflað er upplýsinga hjá á þriðja
tug manna til að kanna hvort þeir
tengist fjársvikamálinu eða ekki.
Talið er að starfsmaðurinn hafi
dregið að sér allt að sjötíu
milljónir króna.
Jón H. B. Snorrason saksókn-
ari segir að bankareikningar hafi
verið frystir, hald lagt á peninga
og verðmæti svo sem fasteignir
og bíla. „Við stefnum að því að
ljúka þessu fyrir áramót,“ segir
Jón H. B. Snorrason. - ghs
Fjárdrátturinn hjá TR:
Hald lagt á bíla
og fasteignir
JÓN H. B. SNORRASON „Við keppumst
við að ljúka þess eins fljótt og hægt er,“
segir Jón H. B. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
�������������� ����
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
MENNTAMÁL Fimmtán grunnskóla-
kennurum í Reykjavík er gert að
endurgreiða ofgreidd laun frá
árinu 2004. Mannlegum mistökum
starfsmanns borgarinnar er um að
kenna. Upphæðirnar nema frá
tugum þúsunda en þeir sem verst
verða úti þurfa að greiða á annað
hundrað þúsund króna.
Ingunn Gísladóttir, starfs-
mannastjóri menntasviðs Reykja-
víkurborgar, segir ofgreiðsluna
tilkomna í kennaraverkfallinu
haustið 2004. „Það var samið við
kennara um fyrirframgreiðslu
sem kæmi til frádráttar næstu
mánaðamót á eftir. Um síðustu
mánaðamót kom í ljós að þessi
greiðsla var ekki tekin til baka.“
Ingunn segir að um mannleg
mistök sé að ræða. „Ég geri mér
fullkomlega grein fyrir að þetta er
afskaplega óheppilegt.“ Spurð
hvort ekki hafi komið til greina að
borgin bæri kostnaðinn vegna
þessara mistaka segir Ingunn að
engar heimildir séu fyrir slíku.
„Ábyrgðin er líka að hluta til hjá
starfsmanninum sem tekur við
greiðslunni.“
Ólafur Loftsson, formaður
Félags grunnskólakennara, segir
kennara hafa leitað til félagsins
vegna málsins og búið sé að koma
mótmælum til borgaryfirvalda
vegna þess. „Þeir kennarar sem
tóku við þessum launum í góðri
trú gátu ekki vitað að þeir hefðu
fengið ofgreitt. Á þeim forsendum
finnst okkur afar ósanngjarnt að
krefjast endurgreiðslu á þennan
hátt núna.“ Ólafur segir að leitað
verði til borgarinnar um lausn
málsins en ef það skili ekki árangri
þá muni lögfræðingur félagsins fá
málið til umfjöllunar. - shá
Fyrir mistök fékk hópur grunnskólakennara ofgreidd laun í verkfallinu árið 2004:
Kennarar krafnir um endurgreiðslu launa
VERKFALL 2004 Kennarar eru nú krafðir um ofgreidd laun frá 2004 vegna mistaka
starfsmanns Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
VIÐSKIPTI Skrifað hefur verið
undir viljayfirlýsingu um kaup
OMX kauphallanna á Eignar-
haldsfélaginu Verðbréfaþingi hf.
sem á Kauphöll Íslands. Verðið
nemur rúmum þremur milljörð-
um króna.
Ganga á frá kaupunum í næsta
mánuði og samkeyra kauphallirn-
ar frá áramótum. Við sameining-
una breytast aðstæður fyrirtækja
sem hér eru skráð á markað, þau
verða sýnilegri og líklegt að
erlend fjárfesting aukist. Þá má
búast við að erlendar greiningar-
deildir taki að sýna íslenskum
fyrirtækjum áhuga og fjalli um
þau með reglulegum hætti.
- óká/Sjá Markaðinn
Íslensk fyrirtæki skráð á OMX:
Kauphöllin seld
á þrjá milljarða
KAUPHÖLL ÍSLANDS Stefnt er að því að
Kauphöllin verði hluti af OMX, sem á
kauphallir Norðurlandanna og í Eystra-
saltsríkjunum.
KYNFERÐISOFBELDI Karlmaður á
sextugsaldri, búsettur í Reykja-
vík, hefur verið kærður fyrir
kynferðislegt ofbeldi gagnvart
börnum.
Mál mannsins kom inn á borð
til Barnaverndarnefndar Reykja-
víkur síðastliðinn föstudag og
óskuðu forsvarsmenn nefndarinn-
ar í kjölfarið eftir því að lögregl-
an í Reykjavík hæfi rannsókn á
málinu. Að sögn Bjarnþórs
Aðalsteinssonar, fulltrúa í
ofbeldisbrotadeild lögreglunnar í
Reykjavík, er rannsókn málsins á
frumstigi. Hugsanleg fórnarlömb
í málinu eru fleiri en eitt en fjöldi
þeirra er meðal þess sem
lögreglan rannsakar nú.
Lögreglan verst frekari frétta
af málinu. - mh
Karlmaður á sextugsaldri:
Kærður fyrir
kynferðisofbeldi
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á
Egilsstöðum hefur verið kærður
til lögreglu fyrir að skjóta
heimiliskött nágranna síns í
bakgarði eigandans í vor.
Kristinn
Kristmunds-
son, eigandi
kattarins, sem
hét Didda og
var af
síamskyni,
segir aðkom-
una hafa verið
ljóta því læðan
hafi skriðið
helsærð úr
bakgarðinum inn í íbúðarhúsið þar
sem henni blæddi út. Kristinn
hefur fengið staðfest hjá dýra-
lækni og lögreglu að kötturinn hafi
verið skotinn. Hann segir verknað-
inn enn alvarlegri fyrir þá sök að
ungt barn var í garðinum stuttu
áður en dýrið var skotið. shá
Egilsstaðir:
Skaut kött
nágrannans
LÆÐAN DIDDA
LÖGREGLUMÁL Tveir piltar um tví-
tugt og sextán ára stúlka voru
handtekin í gær vegna gruns um
innbrot í félagsheimilið Árnes en
þaðan var stolið fartölvum, flat-
skjá, skjávarpa og töluverðu af
áfengi. Lögreglan á Selfossi hand-
tók ungmennin og við leit í bifreið
þeirra fannst þýfi úr innbrotinu í
Árnesi.
Þremenningarnir voru teknir
til yfirheyrslu og kom í ljós að þau
höfðu stolið bílnum á Húsavík
aðfaranótt sunnudagsins. Þau tóku
stefnuna suður og að sögn lögregl-
unnar eru þau grunuð um að hafa
brotist inn í að minnsta fjóra
sumarbústaði í Borgarfirði auk
þess að valda skemmdum. Þá fann
lögregla tæki og tól til fíkniefna-
neyslu í fyrrnefndum bústöðum.
Lögreglan í Borgarnesi útilokar
ekki að þremenningarnir hafi
brotist inn í fleiri sumarbústaði
því iðulega berist ekki tilkynn-
ingar um slíkt fyrr en eigendur
komi að bústöðum sínum.
Lögreglan í Reykjavík hafði
lýst eftir stúlkunni. Hún er ólög-
ráða og hafði strokið að heiman.
Piltarnir tveir eru búsettir á
höfuðborgarsvæðinu. Þeir eiga að
baki sakaferil, hafa verið teknir
við innbrot og brotið fíkniefnalög.
Þá staðfestir lögreglan í Kópa-
vogi að piltarnir liggi undir grun
um að hafa framið afbrot í Kópa-
vogi. Samstarf verði milli lög-
regluembættanna við lausn þeirra
mála. - þsj
Tveir piltar og stúlka grunuð um fjölda innbrota:
Tekin á stolnum bíl
fullum af þýfi
Ég geri mér vonir um
að það dragi til tíðinda
í þessari viku.
GEIR H. HAARDE
FORSÆTISRÁÐHERRA
Kolbrún, finnst þér Sykurmol-
arnir góðir?
„Mér finnst þeir mjög góðir en ég vil
halda þeim frá kaffinu mínu.“
Sykurmolarnir hafa tilkynnt að þeir ætli
að halda afmælistónleika í Laugardags-
höll. Kolbrún Ýr Einarsdóttir er kaffiþjónn
í Kaffitári í Kringlunni.