Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 20. september 2006 21
BRÉF TIL BLAÐSINS
AF NETINU
Umræðan
Líf í nýju landi
Ég las nýlega grein um konu í blaðinu þar sem hún vildi vita
hvert íslenska ríkisstjórnin stefndi
varðandi málefni innflytjenda. Hún
kom með marga góða punkta í
greininni sem væri við hæfi að
skoða vandlega. Í mörgum löndum í
Evrópu í dag er Evrópusambandið
ásamt ríkisstjórnum, sveitarfélög-
um, félagasamtökum og almenningi
að vinna hörðum höndum saman að
því að kynna hugtakið ÞÁTTTAKA.
Það er að segja að vekja almenning
til umhugsunar á mikilvægi þess að
hvetja og aðstoða alla í samfélaginu
til að vera virkir þátttakendur óháð
uppruna, trú, þjóðerni,
kynþáttar, litarhætti,
útliti o.s.frv.
Þetta er nokkuð sem
við verðum öll að gera
okkur grein fyrir og
vera meðvituð um. En
sérstaklega ríkisstjórn-
in. Við verðum að gera
öllum kleift að vera með
og í leiðinni að fjarlægja
það sem heldur okkur í
sundur þ.á m. fordóma,
misskilning, óþarfa ótta,
fáfræði, staðalmyndir,
öfgahyggju, hatur
o.s.frv. En þetta á að vera gagn-
kvæmt. Ríkisstjórnin má ekki bíða
of lengi fyrir hlutina að byrja að
versna áður en þau grípa í taumana
eins og hefur oft gerst
erlendis. Það margborg-
ar sig að gera ráðstafan-
ir um leið og samfélagið
er augljóslega byrjað að
breytast. En þau sem ef
til vil vilja leggja leið
sína hingað eða eru nú
þegar hérna þurfa líka
að leggja sitt af mörk-
um og sýna fúsleika til
að vera með og það
þýðir oft á tíðum hugar-
farsbreytingar hjá þeim
líka.
Svo þurfa ráðamenn
að gera sér grein fyrir þvi að í
þessu samhengi er alltaf þörf fyrir
samstarf við félagasamtök. Í dag
er hægt að finna slíkt á Íslandi að
nafni Ísland Panorama. Við verð-
um að gera allt til að forðast það
sem við höfum séð gerast í kring-
um okkur og á öðrum stöðum álf-
unnar. Við getum gert þetta vel ef
við forðumst aðgerðarleysi og
bregðumst við tímanlega og það er
nú. Ísland er orðið stór partur af
svokölluðu alþjóðlegu samfélagi
þar sem fólk af mismunandi upp-
runa þarf daglega að eiga í gagn-
kvæmum samskiptum. Við þurf-
um ekki að vera eitthvað hrædd
eða fordómafull bara því að sumir
eru öðruvísi að sjá. Og þau sem
vilja koma þurfa að vera tilbúin
fyrir breytingar í lífinu. Sýnum
umburðarlyndi og gefum öllum
tækifæri. Byggjum betra samfé-
lag sem er öllum í hag og verum til
fyrirmyndar. Ríkisstjórn og ráða-
menn, ekki fresta nauðsynlegum
aðgerðum endalaust. Framkvæm-
um nú. Næsta ári er Evrópu árið
fyrir „Jafnræði fyrir alla“ eða
European Year of Equal Opportun-
ities. Félagsmálaráðuneytið hyggst
taka þátt og vonumst við til þess að
þetta verði sýnt í verki. Við höfum
engu að tapa og allt til að vinna.
Höfundur er formaður Ísland
Panorama samtakanna.
Gagnkvæm virðing, jafnræði og breytilegt samfélag
AKEEM CUJO OPPONG
Umferðaröryggi, hvað er nú
það?
Sigurður Þórsson, bifreiðarstjóri í
Neskaupstað, hneykslast á reglu-
gerð.
Ég ek svokölluðum „efnistrailer“, sem
hefur verið ágætt til þessa. Nú er það
búið vegna þess að einhver möppu-
dýr í kerfinu smíðuðu reglugerð um
stærð og þyngd ökutækja, sem er
algjörlega glötuð. Hún gerir þessa
stóru bíla alveg stórhættulega í akstri.
Þar segir að frá miðju aftasta hjóls á
bíl og í fremsta hjól eftirvagns skulu
ekki vera minna en 3 metrar. Vegna
þessa verður að breyta stól á bíl
og færa allt að 65 sentimetra aftar
á bílnum. Kemur hann þá nánast
eingöngu á öftustu hásingu, sem
veldur því að bíllinn verður allt of
léttur að framan og lætur afskaplega
illa að stjórn – fer jafnvel beint áfram
í beygjum þegar hann er lestaður.
Þessir bílar eru hannaðir og prófaðir
á allan hátt hjá verksmiðjunum og
gefið út hvað hver ás má bera. En
þessir herramenn álíta sig betur í
stakk búna en hönnuðina og leyfa sér
að ógna vegfarendum með þessum
aðgerðum, og ráðherra skrifar undir
þetta. Ætla þeir að axla ábyrgðina ef
það verður banaslys af þessu? Því
ábyrgðin er þeirra.
Skrítinn flokkur
jong skrifar á skoðanasíður á visir.is.
Samfylkingin studdi Kárahnjúka-
virkjun. Það sást best á upptalningu
Hallgríms Helgasonar í Lesbók
Morgunblaðsins á þeim alþingis-
mönnum sem greiddu atkvæði sitt
með virkjuninni. Frábær grein Hall-
gríms. Samfylkingin er mjög skrýtinn
flokkur sem lagar sig að aðstæðum
og andstæðingum hverju sinni. For-
maðurinn núverandi sem átti að raka
saman fylgi gerir það ekki vegna þess
að allir sjá nema hörðustu stuðn-
ingsmenn formannsins að hann var
stórlega ofmetinn stjórnmálamaður
og leiðtogi. Verst að sennilega verður
Ingibjörg Sólrún forsætisráðherra á
endanum.
Við þurfum ekki að vera eitt-
hvað hrædd eða fordómafull
bara því að sumir eru öðruvísi
að sjá.
vaxtaauki!
10%