Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 100
20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR32
Oprah Winfrey sem forseti?
Kannski fjarlægur möguleiki en
þó ekki. Reynsla af afþreyingar-
iðnaðinum er ekki talin vera löst-
ur á þeim sem vilja bjóða sig fram
til forsetaembættis í Bandaríkjun-
um. Ronald Reagan var jú sem
kunnugt er leikari í Hollywood
áður en hann sneri sér að stjórn-
málunum og Arnold Schwarzen-
egger var vanari því að sprengja
upp vélmenni úr framtíðinni en að
stjórna Kaliforníu.
Nú er á kreiki orðrómur umað
sjónvarpskonan Oprah Winfrey
ætli að blanda sér í slaginn þar
vestra þegar þjóðin kýs sér næsta
forseta. George W. Bush er á sínu
síðasta kjörtímabili og ef marka
má skoðanakannanir má telja lík-
legt að demókrati verði í Hvíta
húsinu næst. Þeldökkir kjósendur
eru ennfremur orðnir langþreytt-
ir á því að sjá hvíta miðaldra karl-
menn stjórna landinu og vilja fá
svartan forseta næst sem standi
vörð um réttindi þeirra.
Fjaðrafokið hófst þegar við-
skiptamaðurinn Patrick Crowe til-
kynnti um bók sína, Oprah for
President: Run Oprah Run. Sjón-
varpskonan og talsmenn hennar
hafa vísað þessu öllu á bug og
krafist þess að hætt verði við bók-
ina og vefsíðu tengda henni með
þeim formerkjum að þessi mála-
tilbúnaður gæti verið meiðandi
fyrir orðspor Opruh og frama
hennar. Fjölmiðlar í Bandaríkjun-
um velta hins vegar vöngum yfir
þessum viðbrögðum sjónvarps-
konunnar og telja þau vera hálf
fáranleg. „Ef Oprah myndi lýsa
því yfir að ég ætti að bjóða mig
fram til forseta Bandaríkjanna
ætti ég þá að hóta henni lögsókn?“
spyr höfundur bókarinnar í viðtali
við New York Post. - fgg
Oprah Winfrey í Hvíta húsið
OPRAH WINFREY Hefur verið orðuð við forsetaframboð í Bandaríkjunum. Hún vísar
orðróminum á bug. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
Sýning hönnunarteymisins Three
as Four vekur ávallt mikla athygli
á tískuvikunni í New York og var
sýningin nú engin undantekning á
því. Eins og nafnið gefur til kynna
er hönnuðirnir þrír einstaklingar
en þau Abi og Ange eru af ísra-
elsku bergi brotin og Gabi er frá
Palestínu og sem teymi koma þau
sterk inn með ferskan blæ inn í
bandaríska tísku. Merkið hefur
verið til síðan árið 2000 en gekk þá
undir nafninu As Four. Fyrir rúm-
lega ári gekk einn liðsmaður úr
teyminu og til varð merkið Three
as Four.
Sýning Three as Four fyrir
sumarið 2007 var listfengin, litrík
og skemmtileg. Munsturgleðin
var allsráðandi með fallegum
geómetrískum formum og sögðu
hönnuðirnir að þau hefðu verið
heilt ár að undirbúa munstrin og
koma þeim yfir á efnin. Stuttir
kjólar úr silkiefnum, niðurmjóar
munstraðar buxur með háu mitti
og víðir jakkar voru lykilflíkurnar
í sýningunni ásamt leggings-
buxum með ísaumaðri blúndu sem
vöktu mikla athygli. Það er einnig
greinilegt að hönnuðirnir voru
með innblástur frá sjónvarpsþátt-
unum á borð við „Battlestar Gal-
actica“ því sumar flíkurnar vori
eins og hálfgerðir geimfarabún-
ingar. alfrun@frettabladid.is
Ferskur blær í tískuvikuna
HÖNNUNARTEYMIÐ Abi, Ange og Gabi uppskáru mikið lófatak í enda sýningarinnar. STUTTUR Kjóll með frábæru munstri í
víðu sniði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
BLÁR Mismunandi tónar af bláum er hér
blandað saman með glæsilegum árangri.
BLÖÐRUSNIÐ Fjólublár kjóll með léttu
sniði.
„Ég get ekki ímyndað mér hvað
þessi maður taldi sig eiga sökótt
við mig. Hann á að hafa sagt að ég
hafi gert grín að sér í þættinum
Blautt malbik á föstudagskvöldið,“
segir rapparinn og útvarpsmaður-
inn Halldór Halldórsson, eða Dóri
DNA eins og hann er oftast kallað-
ur. Sú undarlega uppákoma átti sér
stað um miðjan dag á laugardag að
maður vopnaður hnífi ruddist inn í
hljóðver útvarpsstöðvarinnar X-
ins 977 og heimtaði að ná tali af
Dóra DNA. Þegar þetta gerðist var
Egill „Gillzenegger“ Einarsson í
hljóðverinu með þáttinn Með‘ann
harðan.
„Ég var nú ekki á staðnum en
mér skilst að Egill og félagar hafi
náð að róa manninn niður,“ segir
Frosti Logason, dagskrárstjóri X-
ins 977. „Þessi maður hafði uppi
ógnandi tilburði við starfsfólk
okkar og hótaði meðal annars að
rústa stúdíóinu okkar. Hann fór
reyndar á brott án þess að rústa
neinu, hann gerði víst ekki meira
en að stinga hnífnum í útsendingar-
borðið okkar,“ segir Frosti enn
fremur.
Hvorki Frosti né Dóri DNA
segjast vita hvað manninum gekk
nákvæmlega til með þessu uppá-
tæki. „Maður veit náttúrlega
hvernig þessir rapparar eru,
sífellt skjótandi og stingandi
hvern annan,“ segir
Frosti á léttum
nótum. Hann viður-
kennir þó að starfs-
fólki X-ins hafi ekki
staðið á sama og
öryggisráðstafanir á
stöðinni hafi þegar
verið efldar. „Svona
lagað gerist ekki aftur,“
segir Frosti.-
hdm
Hnífamaður ruddist inn í stúdíó X-ins
DÓRI DNA Rapparinn knái hefur
ekki hugmynd um af hverju maður
vopnaður hnífi ruddist inn á X-ið um
helgina í leit að honum.
FROSTI LOGASON
Segir að uppá-
koma eins og
varð um helgina
muni ekki endur-
taka sig.
Leikarinn Brad Pitt er hugsanlega
að fara að taka hlutverk Tom
Cruise í framhaldsmyndinni Miss-
ion Impossible en verið er að undir-
búa tökur á fjórðu myndinni. Pitt
hefur verið boðið aðalhlutverkið í
myndunum og mun það vera annar
karakter en Cruise lék í fyrri
myndum. Ethan Hunt, karakter-
inn sem Cruise lék í fyrri mynd-
um, mun ekki koma við sögu í
fjórðu myndinni. Paramount-kvik-
myndafyrirtækið sagði nýlega
upp samningi sínum við Cruise og
mun nú vera búið að bjóða Brad
Pitt háa peningasummu ef hann
tekur að sér að leika í myndinni.
Tekur við af
Cruise
BRAD PITT Er hugsanlega að fara að taka
við af Tom Cruise í fjórðu Mission Impossi-
ble-myndinni.
Leikkonan Kate Hudson fór ásamt
ástmanni sínum, Owen Wilson, til
Hawaii á dögunum. Þetta þykir
skrítið þar sem ekki er langt síðan
fréttir bárust af því að Kate væri
að reyna að lappa upp á hjónaband
sitt og rokkarans Chris Robinson.
Leikkonan unga fór frá eigin-
manni sínum í sumar og gaf út
yfirlýsingar þess efnis að þau
væri að skilja. Strax fór orðrómur
af stað um að hún og Wilson væru
par en þau leika saman í myndinni
„You, Me and Dupree“ sem var
frumsýnd í sumar.
Saman á
Hawaii
HUDSON OG WILSON Fóru saman til
Hawaii aðeins nokkrum dögum eftir að
Kate reyndi að lappa upp á hjónaband sitt
og Chris Robinson. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
JARÐLITIR Eins og
sjá má er mikið
lagt í munstrið á
þessum kjól.
HNÉBUXUR
Buxur með klauf
í ljósgráum lit við
topp úr silki.
HÁAR OG ÞRÖNGAR
Frábærar munstraðar
buxur með háu mitti
eins og munu greini-
lega slá í gegn næsta
sumar.
EIN STUTT OG EIN
LÖNG Ætli við
förum að klippa
aðra skálmina á
buxunum okkar fyrir
næsta sumar en
ekki báðar eins og
tíðkast hefur?
KÁPA Stuttar buxur í
brjáluðu munstri við
venjulegan hvítan bol
og svarta víða kápu.
MUSSA Þessi
fallega flík mundi
sóma sér vel
bæði yfir buxur
og við háa hæla.
Margnota og
skemmtileg flík.