Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 31
Kjörin batna | Nokkuð skörp lækkunarhrina hefur verið á tryggingarálagi skuldabréfa bankanna á erlendum mörkuðum. Lækkaði álagið um tíu punkta yfir línuna á einni viku. Meiri krónubréf | Talsverður kippur hefur komist í útgáfu krónubréfa á síðustu mánuðum og hafa alls verið gefin út krónubréf fyrir 45 milljarða króna frá miðj- um júlí. Minni vanskil | Hlutfall vanskila sem hafa staðið lengur en einn mánuð af útlánum á öðrum árs- fjórðungi 2006 var 0,6 prósent en var 1,1 prósent á öðrum ársfjórð- ungi í fyrra. Hækkar vexti | Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um fimmtíu punkta og standa þeir nú í fjórtán prósentum. Hækkunin var sú sautjánda í röð. Góð byrjun | Viðskipti með hluta- bréf í Exista hófust í Kauphöll Íslands á föstudag og námu við- skipti með bréf í Existu á fyrsta degi samtals 668 milljónum króna. Hægist á | Á öðrum ársfjórðungi 2006 var 2,75 prósenta hagvöxtur hér á landi. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um sjö prósent en hafa ekki vaxið hægar síðan á fjórða fjórðungi 2003. Hækka ekki | Actavis hefur ákveðið að hækka ekki tilboð sitt í króatíska lyfjafyrirtækið Pliva og jafnar því ekki hækkun tilboðs Pliva upp í 820 kúnur á hlut. Samþykkja samruna | Stefnt er að sameiningu Eglu og Fjárfestingafélagsins Vendingar, að stærstum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa. Fjárfestingarstofa Íslands Útrásin eykur áhuga fjárfesta 12 Sterling Horfir fram á veginn 12 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 20. september 2006 – 36. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 F R É T T I R V I K U N N A R Alþjóðaviðskipti Húmor er ekkert grín 12-13 Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, segist lítið geta tjáð sig um það hvort FL Group, eigendur félagsins, skoði sameiningu við önnur lággjaldaflugfélög eða þann möguleika að skrá félagið í kaup- höll. FL Group er auðvitað fjár- festingafélag og hljóti að skoða alla kosti. Báðir kostir hljóti að koma til greina, enda er eigandi Sterling, FL Group, fjárfestingafélag þegar allt kemur til alls. „Við erum ekkert að vinna í því að sameinast öðrum félögum í dag, en maður getur aldrei kastað slíkum tæki- færum frá sér. Ég hef oft vaknað á morgnana og spurt sjálfan mig hvers vegna í ósköpunum við sam- einuðumst Maersk. Þegar upp er staðið þá sé ég að það var auðvitað rétt ákvörðun.“ Gríðarlegur tími hefur farið í það að samþætta rekstur Sterlings og Maersk Air en nú er ár liðið frá því félögin voru sameinuð. Félagið skilaði hagnaði á öðrum ársfjórðungi eftir samfelldan hallarekstur í gegnum tíðina, en tap á fyrri hluta ársins nam 1,8 milljarði króna. „Árið 2006 stefnir í hagnað sem í reynd er ótrúleg- ur árangur á einu ári. Þetta var margfalt betra en þessi félög hafa gert nokkru sinni áður. Ég held að menn hafi verið búnir að gleyma því hjá Maersk að það hafi verið til plús í tölvunum.“ Þrátt fyrir þetta er það mat Almars að fátt hafi unnið með félaginu. „Við höfum verið að reka fyrirtæki og sameina á sama tíma, við höfum því miður lent í deilum við stóran hluta starfsfólksins og olíuverð er 70-80 prósent hærra en á síðasta ári.“ Á sama tíma hafi frábært sumar í Danmörku, ófriður fyrir botni Miðjarðarhafs, skopmyndamálið og fuglaflensan tvímælalaust haft áhrif. - eþa / sjá bls. 10 Sterling stefnir að hagnaði Forstjóri Sterling segir að stefnt sé að hagnaði á árinu 2006. Félagið eigi ekki í viðræðum við önnur lággjaldaflugfélag þessa stundina. Fólkið í landinu er ósammála stefnu íslenskra stjórnvalda í Evrópumálum, segir Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, í aðsendri grein. Með stefnu sinni í Evrópumálum og skattlagningu matvæla séu stjórnvöld í raun að segja Íslendingum að þeim henti best að búa við háa vexti og hátt matvælaverð. Sveinn vitnar í könnun sem Samtök iðnaðarins létu gera þar sem fram kom að meirihluti kjós- enda allra flokka vill ganga til viðræðna um ESB-aðild. Þá var meirihluti í öllum flokkum nema Vinstrihreyfingunni - grænu framboði fylgjandi því að taka upp evru í stað íslensku krónunnar. Sveinn telur jafnframt að Íslendingar gætu lært ýmislegt af þróun matvöruverðs í Svíþjóð. Þar hafi matvælaverð einungis hækkað um fimm prósent síðustu fimmtán ár, meðan neysluverðs- vísitalan hafi hækkað um 35 pró- sent. -jsk Nánar í Iðnaðarblaði Fólkið ósammála stjórnvöldum Síðumúli 16-18, 105 Reykjavík ı s: 545 4400 fax: 545 4401 ı www.gutenberg.is samstarf sem skapar verðmæti Forsvarsmenn Mosaic Fashion segja ekkert liggja fyrir um það hvort stefnt verði að tvöfaldri skráningu félagsins. Mail on Sunday sagði frá því að félag- ið stefndi að því að skrá félag- ið einnig á markaði í Bretlandi á næsta ári. Mosaic er skráð í Kauphöll Íslands. Fulltrúar Mosaic segja full mikið hafa verið lesið í orð for- stjóra félagsins, Dereks Lovelock, þar sem hann útilokaði ekki tvö- falda skráningu félagsins. Eftir kaup á Rubicon hefur félagið náð stærð sem gæti hentað slíkri skráningu, en engin ákvörðun liggur fyrir. Talið er einnig að kaup OMX á Kauphöllinni kunni að draga úr líkum á skráningu félagsins í London. -hh Erlend skráning ekki ákveðin Óli Kristján Ármannsson skrifar OMX, sem rekur kauphallir á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum, og Eignarhaldsfélagið Verðbréfaþing hf., sem á Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráningu Íslands, hafa undirritað vilja- yfirlýsingu um kaup OMX á eignarhaldsfélaginu Verðbréfaþingi hf. Formleg undirritun samkomulags um kaupin á að verða í lok október og stefnt að því að sam- einingin taki gildi um áramót og íslensk fyrirtæki verði þá hluti af Norræna listanum. Hluthöfum í eignarhaldsfélaginu Verðbréfaþingi hf. býðst að fá nýútgefna 2,07 milljón hluti í OMX í skiptum fyrir hlut sinn, að verðmæti 2.450 milljónir króna. Að auki fá hluthafar greitt handbært fé og verðbréf í eigu Verðbréfaþings að verðmæti 570 milljónir króna. Kauphöllin og Verðbréfaskráning Íslands lúta eftir sem áður íslenskum lögum og eftirliti íslenskra yfirvalda. Þá eru kaupin meðal annars háð áreiðan- leikakönnun, undirritun samnings um sameiningu, samþykki eftirlitsstofnana og samþykki aukaaðal- fundar OMX. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar segir það sem snýr að skráðum fyrirtækjum, ramma um upplýsingagjöf, markaðinn og grundvallaratriði ekki breytast svo mjög þar sem þegar hafi verið sam- ræmd viðskiptakerfi og reglur kauphallaraðila. Hann hins vegar fagnar tækifærinu til að taka þátt í frekari samþættingu verðbréfamarkaða á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum og segir þetta bæði skráðum fyrirtækjum og fjárfestum til góðs, skráð fyrirtæki verði sýnilegri og fleiri erlendir aðilar taki þátt á íslenskum markaði og auki þannig seljanleikann. „Þarna liggja tækifæri og jafnframt ljóst að auðveld- ara ætti að vera að fá erlenda greiningaraðila til að fjalla um íslensk fyrirtæki, sem verið hefur erfitt hingað til.“ Þá segir Þórður sóknarfæri felast í því að auðveldara verði að fá erlenda banka og viðskipta- stofnanir til að eiga viðskipti hér, auk þess sem kaup íslenskra fjárfesta erlendis verði auðveldari. Þórður segir helsta áhyggjuefnið hafa verið hvern- ig minni fyrirtækjum myndi reiða af og segir þau þurfa að huga vel að sínum málum. „Ég held hins vegar að þau þurfi ekki að týnast í fjöldanum þótt auðvitað sé það dálítið undir þeim sjálfum komið,“ segir hann en fyrirtæki eru flokkuð eftir stærð í þrjá flokka. „Þau fara á lista sem mjög margir horfa á, en hann er auðvitað langur. Þess vegna þurfa þau að hafa fyrir því að vekja á sér athygli. Þetta er því ákveðin áskorun fyrir þau, en alls ekki hægt að gefa sér að lífið verði þeim erfiðara, heldur tel ég þvert á móti að þarna séu aukin tækifæri fyrir þau líka. Jukku Ruuska, forstjóri kauphallararms OMX, segir félagið ánægt með að dýpka samstarfið enn frekar og bjóði það íslenska markaðinn velkominn inn í OMX. „Við erum að skapa samþættan norrænan markað til að auka viðskipti milli Norðurlandanna og gera hann meira aðlaðandi í augum erlendra fjár- festa,“ segir hann. Sjá einnig síðu 4 Sameinast OMX Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um kaup OMX kauphall- anna á Kauphöll Íslands. Sameining verður um áramót.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.