Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 92
20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR24
SOPHIA LOREN FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1934.
„Kjóll konu ætti að vera
eins og gaddavírsgirðing og
þjóna tilgangi sínum án
þess að skyggja á útsýnið.“
Ítalska leikkonan og þokkagyðjan
taldi sig vita sitthvað um fatatísku
kvenna þegar hún var upp á sitt besta.
MERKISATBURÐIR
451 Rómverjar sigra Atla
Húnakonung í orrustunni
við Chalon.
622 Spámaðurinn Múhameð
kemur til Medínu.
1932 Mahatma Gandhi
fer í hungurverkfall
til stuðnings hinum
stéttlausu.
1946 Fyrsta kvikmyndahátíðin í
Cannes hefst.
1951 Svissneskir karlar fella
tillögu um kosningarétt
kvenna í atkvæðagreiðslu.
1975 David Bowie kemur
laginu „Fame“ á
topp bandaríska
vinsældalistans. Þetta var
fyrsta lag hans sem komst
á topp listans.
1995 Ný brú yfir Jökulsá á
Dal er formlega tekin í
notkun.
„Elskan mín góða, við ætlum sko að halda
veislu í Ráðhúsinu,“ segir Elísa Wium,
framkvæmdastjóri Vímulausrar æsku -
foreldrasamtaka, sem fagna tuttugu ára
afmæli í dag.
Aðsetur Vímulausrar æsku er í For-
eldrahúsi við Vonarstræti en þar fer
fram margvísleg starfsemi á sviði vímu-
og forvarna. „Í Foreldrahúsi bjóðum við
upp á aðstoð við foreldra, unglinga og
börn,“ segir Elísa, sem hefur unnið fyrir
samtökin frá stofnun þeirra. „Við erum
líka með fjölskylduráðgjöf og foreldra-
síma, sem er opinn allan sólarhringinn.
Þá bjóðum við upp á meðferð fyrir ungt
fólk sem er nýkomið úr afvötnun og er
að fóta sig upp á nýtt edrú. Það getur
tekið frá sex mánuðum upp í tvö ár. Svo
koma til okkar foreldrar sem eiga börn á
götunni eða í meðferð.“
Elísa bætir við að samtökin einblíni
ekki á þá sem lent hafi í ógöngum, því
rík áhersla sé líka lögð á forvarnarstarf.
„Við gefum mikið út og höldum nám-
skeið þar sem við reynum að upplýsa
ungt fólk.“
Upphaf Vímulausrar æsku má rekja
til þess að hópur foreldra ákvað að setja
á laggirnar einhvers konar vímuvarnar-
samtök fyrir ungt fólk. „Þetta var fólk
úr SÁÁ og Lions og fleiri hreyfingum.
Til að byrja með fóru fjórir til Banda-
ríkjanna til að kynna sér farið var að
þar í landi, þetta var þegar Nancy Reag-
an var upp á sitt besta og að stússast í
þessu, og upp úr því voru þessi samtök
stofnuð.“
Elísa segir gífurlegan mun á ástand-
inu núna og fyrir tveimur áratugum. „Þá
sá maður krakkana með vodkaflöskur og
landa niður í bæ, sem sést kannski ekki
mikið lengur. En neyslan er orðin meiri;
eiturlyf voru vissulega komin til sögunn-
ar þá en framboðið af eiturlyfjum hefur
aldrei verið meira en í dag. Það er því
ekki vanþörf á sem mestu forvarnar-
starfi.“
Í tilefni afmælisins ætla þau hjá
Vímulausri æsku að gleyma sorg og sút
og efna til veglegrar veislu í ráðhúsi
Reykjavíkur. „Við ætlum að syngja og
hafa gaman,“ segir Elísa. „Ungliðahreyf-
ing Landsbjargar ætlar að kveikja á
blysum við Tjörnina og þetta verður
ábyggilega frábær stund.“
Veislan stendur yfir í Ráðhúsinu frá
klukkan 18.30 til 20.30 og eru allir vel-
komnir. bergsteinn@frettabladid.is
ELÍSA WIUM: FAGNAR TUTTUGU ÁRA AFMÆLI VÍMULAUSRAR ÆSKU
Vímulaus gleði við Tjörnina
Elísa Wium, framkvæmdastjóri Vímulausrar æsku, og Jórunn Magnúsdóttir.
„Fermingarsumarið byrjaði ég að
bera út póst í sumarafleysingum og
bar út í hverfi 104 í Reykjavík,“ segir
Ármann Reynisson rithöfundur.
„Með þessu starfi öðlaðist ég skipu-
lagshæfileika sem hafa gagnast mér
alla ævi. Það var auðvitað lykilatrði
að fara skipulega um hverfið til þess
að ljúka vinnunni tímanlega en ég
fór eina ferð fyrir hádegi og aðra
eftir,“ segir Ármann og bætir því við
að þarna hafi hann í raun lært að
skipuleggja sig.
„Annað sem nýttist mér vel er að
ég skoðaði vel myndirnar á póstkort-
unum sem fólki bárust og þannig
kynntist ég ótrúlegustu stöðum úti
um allan heim þannig að póstkortin
styrktu þekktingu mína í landafræði.
Þá hitti ég mikið af elskulegu og
áhugaverðu fólki í gegnum starfið og
þeirra þekktastur var Gunnar
Gunnarsson skáld. Maður fór nú með
heilu kílóin til hans nánast á hverjum
degi og ég byrjaði yfirleitt hjá honum
enda bjó hann nálægt pósthúsinu.“
Ármann var bréfberi í fimm sumur
og síðari hluta tímabilsins bar hann
út í Vesturbænum, miðbænum og
Hlíðunum. „Þetta var hollt og gott og
ég kynntist Reykjavík vel og í dag er
ég ákaflega ánægður með að hafa
fengið tækifæri til að vera bréfberi
og ber mikla virðingu fyrir því fólki
sem sinnir þessu starfi samviskusam-
lega. Ég hvet ungt fólk til að fá sér
svona störf á sumrin og þá er blað-
burður af sama meiði. Þetta er góður
skóli fyrir framtíðina.“
ÁRMANN REYNISSON Byrjaði ungur að vinna sem bréfberi og segir starfið hafa gagnast sér
vel á lífsleiðinni.
Á þessum degi árið 1519 lagði
portúgalski siglingafræðingurinn
Ferdinand Magellan úr höfn á Spáni
í leit að nýrri siglingaleið til Indónes-
íu. Fimm skip voru í föruneytinu og
töldu áhafnirnar alls um 270 manns.
Magellan sigldi til Vestur-Afríku og
þaðan til Brasilíu þar sem hann leit-
aði árangurslaust meðfram strand-
lengju Suður-Ameríku að sundi sem
leiddi til Kyrrahafsins.
Hann fann loksins sundið 21. okt-
óber 1520 og hefur það verið kennt
við Magellan síðan. Það tók 38 daga
að sigla um það og Magellan grét
gleðitárum þegar sást til úthafs-
ins aftur. Hann var fyrsti evrópski
landkönnuðurinn til að sigla til
Kyrrahafsins beint frá Atlantshafinu.
Skipin sigldu áfram en vistir voru
litlar og skipverjar illa haldnir
þegar þeir náðu til eyjarinnar
Guam í marsbyrjun 1521. Stuttu
síðar áðu þeir á eyjunni Cebu,
en þar lét Magellan lífið í orrustu
við innfædda.
Eftir dauða hans héldu
leiðangursmenn áfram á
tveimur skipum og fylltu þau
af kryddi. Annað skipið reyndi
að sigla aftur yfir Kyrrahafið en
mistókst. Hitt skipið, Vittoria,
sigldi yfir Indlandshaf og fyrir
Góðrarvonarhöfða áður en það
komst í spænska höfn hinn 6.
september 1522 og varð þar
með fyrsta skipið til að sigla
hringinn í kringum hnöttinn.
ÞETTA GERÐIST: 20. SEPTEMBER 1519
Magellan leggur úr höfn
FERDINAND MAGELLAN
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Gyða Einarsdóttir
Miðvangi 41, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Hringbraut föstudaginn 15. sept.
Ólafur Guðbjörnsson
Guðbjörn Ólafsson Ásta María Janthanam
Anna Elísabet Ólafsdóttir Kristján Sigurmundsson
Ólafur Rúnar Ólafsson Oddný Kristinsdóttir
Helgi Þór Ólafsson Ingibjörg Jóhannesdóttir
Einar Örn Kristinson Áslaug Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ásta Vilmundardóttir
Álfaskeiði 86, Hafnarfirði,
sem lést á líknardeild Landakotsspítala 14. sept.
sl. verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 21. september kl. 13.00.
Vilmundur Guðmundsson
Steinar Ingvi Guðmundsson Bergþóra Helgadóttir
Ingigerður G. Guðmundsdóttir Ingvar Snæbjörnsson
Hafdís Gerður Guðmundsdóttir Einar Óli Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
FYRSTA STARFIÐ: ÁRMANN REYNISSON RITHÖFUNDUR
Lærdómsríkur bréfburður
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.