Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 32
MARKAÐURINN 20. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá áramótum
Actavis 0% 30%
Alfesca 5% 23%
Atlantic Petroleum 1% 34%
Atorka Group 1% 0%
Avion Group 0% -28%
Bakkavör 7% 14%
Dagsbrún -6% -23%
FL Group 1% 8%
Glitnir 2% 16%
KB banki 4% 16%
Landsbankinn 2% 4%
Marel 5% 25%
Mosaic Fashions -2% -6%
Straumur 1% 7%
Össur 3% 8%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Danske Bank fjallar í nýrri
greiningu um íslenska hagkerfið
og fagnar þar kólnun í innlendri
eftirspurn og segir það góðar
fréttir.
„Nú er hægt að tala um að
verulega hafi hægt á innlendri
eftispurn á Íslandi,“ segir Lars
Christensen, sérfræðingur bank-
ans, og vísar til eigin árstíðar-
leiðréttra útreikninga um að eft-
irspurn hér hafi dregist saman
um sem nemi 15,9 prósent á
öðrum ársfjórðungi þessa árs.
„Þrátt fyrir snarpan samdrátt í
eftirspurn jókst vöxtur þjóðar-
framleiðslu milli ársfjórðunga
vegna öflugrar aukningar nettó-
útflutnings. Reyndar svo mjög
að útflutningurinn ýtti undir hag-
vöxt í fyrsta sinn í næstum tvö
ár,“ bætir hann við, en telur engu
að síður að hér á landi sé fyrir
dyrum langvinn og harkaleg leið-
rétting í hagkerfinu eftir löngu
tímabært aðhald. - óká
Jákvæðari tónn hjá
Danske Bank
Fjallar um snarpa kólnun eftirspurnar.
„Við erum hérna fulltrúar bank-
anna, Landsbankans, Glitnis og
Kaupþings, auk Seðlabankans,“
segir Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans,
sem staddur er í Singapúr á
sameiginlegum ársfundi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og Alþjóðabankans. „Hér
hittum við tugi ef ekki
hundruð bankamanna og
kynnum starfsemi okkar.“
Sigurjón segir ekki
virðast sem erfið umræða
um íslensku bankana frá
því fyrr á árinu hafi
smitast inn á árs-
fundinn nú. „Menn
eru mjög jákvæðir
út í Landsbankann og meðvit-
aðir um að bankinn sé kominn
yfir þetta ástand sem var og nú
verði þróunin sú að tryggingar-
álag á skuldabréf sem bankarnir
gefa út jafnt og þétt færast í
það horf sem það var, það
taki bara ákveðinn tíma.
Andrúmsloftið er gjör-
breytt frá því sem var
fyrir ekki lengri tíma
en hálfu ári,“ segir
hann. - óká
Gjörbreytt viðhorf
til íslensku bankanna
Fulltrúar íslensku viðskiptabankanna auk Seðlabankans
sækja ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.
SIGURJÓN Þ.
ÁRNASON
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
hefur hækkað um sautján prósent
síðustu sjö vikur. Vísitalan stóð í
5.259 stigum 27. júlí síðastliðinn
en var í rúmum 6.300 rétt fyrir
hádegi í gær.
Hækkunin er því farin að
nálgast þá sem varð fyrstu sjö
vikur ársins þegar úrvalsvísi-
talan hækkaði um rétt rúm
tuttugu prósent og náði að lokum
sögulegu hámarki; 6.925 stigum
hinn 15. febrúar. Þá höfðu raunar
farið á undan talsverðar hækkan-
ir í desembermánuði.
FL Group hefur hækkað
félaga mest síðan 27. júlí eða
um heil tuttugu og sex prósent.
Landsbankinn hefur hækkað
um tuttugu og þrjú prósent og
Bakkavör um rúm tuttugu. Þá
hafa Glitnir og KB banki hækk-
að um átján prósent hvor banki.
Dagsbrún hefur lækkað um tæp
sextán prósent og er eina félagið
í Kauphöllinni sem ekki hefur
hækkað undanfarnar sjö vikur.
Úrvalsvísitalan hefur nú hækkað
um tæp þrettán prósent frá ára-
mótum. - jsk
iCEX hefur hækkað um 17 prósent
Hækkun síðustu sjö vikna nálgast þá sem varð á fyrstu vikum ársins.
Dagsbrún er eina félagið sem hefur lækkað.
H Æ K K A N I R S Í Ð U S T U S J Ö V I K N A
Félag 27. júlí 20. ágúst Hækkun
1. FL Group 15,5 21,0 26%
2. Landsbankinn 20,3 26,5 23%
3. Bakkavör 46,5 48,2 20%
4.-5. Glitnir 16,5 20,2 18%
4.-5. KB Banki 710 865 18%
Úrvalsvísitalan 5.259 6.300 17%
*Tölfræðiupplýsingar: www.m5.is
Velta í hagkerfinu jókst um 22,4
prósent að nafnvirði í maí- og
júní miðað við sama tíma í fyrra.
Greiningardeild Glitnis segir
neyslu- og fjárfestingatengdar
atvinnugreinar hafa drifið hag-
kerfið áfram á tímabilinu og komi
það ekki á óvart.
Vöxtur var mikill í fjárfest-
ingatengdum atvinnugreinum
á þessum tveimur mánuðum en
hann tengist að stórum hluta upp-
byggingu í stóriðju. Velta jókst
um 54% í byggingastarfsemi
og mannvirkjagerð en um 37%í
framleiðslu málma en það skýr-
ist af stækkun á verksmiðjunni á
Grundartanga og háu álverði.
Þá jókst áfram velta í greinum
sem tengjast einkaneyslu. Velta í
bílasölu jókst um 12% en í smá-
sölu um 11% auk þess sem vöxtur
var mikill í hótel- og veitinga-
húsarekstri eða 19%. Styður það
upplýsingar um aukin umsvif í
ferðaþjónustu í sumar.
Veltuaukningin á tímabil-
inu nam í heildina 22,4% og
er það nokkuð meira en búast
mátti við í ljósi talna um hag-
vöxt á öðrum fjórðungi ársins.
Greiningardeildin setur þann fyr-
irvara að stór hluti veltuaukning-
arinnar er í innflutningi og kemur
það til frádráttar í útreikningi á
landsframleiðslu. - jab
Velta umfram væntingar
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti
lífeyrissjóður landsins, var í 170. sæti yfir stærstu
lífeyrissjóði Evrópu um síðustu áramót samkvæmt
úttekt Investment & Pensions Europe (IPE), fag-
tímarits um lífeyrissjóði. Nær samantektin til eitt
þúsund stærstu lífeyrissjóða álfunnar.
Heildareignir LSR námu 227 milljörðum króna
í árslok 2005 og var ávöxtun síðasta árs sú besta í
sögu sjóðsins. Ætla má að LSR hafi hækkað um ein-
hver sæti á lista IPE þar sem eignir sjóðsins jukust
um þrjátíu milljarða á fyrri hluta ársins.
„Síðustu þrjú ár hafa verið mjög góð og útlit-
ið fyrir þetta ár er einnig gott,“ segir Haukur
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, og bendir
á að sjóðurinn hafi vaxið hraðar en aðrir íslenskir
lífeyrissjóðir á síðustu árum. „Eignasamsetningin
er dreifð þar sem rétt rúmur helmingur eigna er í
innlendum skuldabréfum og restin í innlendum og
erlendum hlutabréfum.“ Haukur segir að hækkun á
fyrri hluta ársins stafi meðal annars af gengisþró-
un krónunnar.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) og Gildi
lífeyrissjóður eru einnig ofarlega á lista IPE; LV í
269. sæti og Gildi einu sæti neðar. Eignir LV voru
191 milljarður króna sem er tíu milljörðum hærri
fjárhæð en heildareignir Gildis.
Almenni lífeyrissjóðurinn sat í 445. sæti en
alls komust sautján íslenskir lífeyrissjóðir inn á
lista IPE. Margt bendir til þess að íslensku sjóð-
irnir hækki enn frekar á næstu árum, enda er
mikil sjóðasöfnun í lífeyrissjóðakerfinu og stefnir í
ágæta raunávöxtun á árinu ef marka má milliupp-
gjör lífeyrissjóðanna.
Stærsti lífeyrissjóður Evrópu er ABP í Hollandi
með heildareignir upp á 186,9 milljarða evra í árs-
lok. ABP er því 56 sinnum stærri en LSR. Norski
ríkislífeyrissjóðurinn, sem að hluta til er gamli
Olíusjóðurinn, kemur næstur og sænsku ríkislíf-
eyrissjóðirnir AP Fonden sitja í þriðja sæti listans.
LSR í 170. sæti í Evrópu
Sautján íslenskir lífeyrissjóðir í hópi þúsund stærstu. ABP í
Hollandi er stærsti sjóður Evrópu, 56 sinnum stærri en LSR.
Nokkrir sparisjóðir hafa tekið
tæpa nítján milljarða króna í
óinnleystan gengishagnað vegna
skráningar Existu í Kauphöll
Íslands en sex sparisjóðir og
Sparisjóðabankinn eiga um
sautján prósent hlutafjár í félag-
inu. Til samanburðar högnuðust
sömu sparisjóðir um níu millj-
arða allt árið í fyrra.
Þessi óinnleysti gengishagn-
aður fæst út með því að reikna
út þann mun sem var á mark-
aðsvirði Existu í gær og eigin fé
félagsins í lok júní sem var um
143 milljarðar. Exista var metið á
254 milljarða króna í gær en bréf
félagsins hafa hækkað um níu
prósent frá útboðsgengi.
Gengishagnaður SPRON
er áætlaður um sjö milljarð-
ar króna, 5,1 milljarður hjá
Sparisjóðabankanum og yfir 3,4
milljarðar hjá Sparisjóðnum í
Keflavík.
Einhverjir sparisjóðir hafa
fært hlutabréfin í Existu til
bókar sem fjárfestingarhluta-
bréf þannig að gengishagnaður
hvers sparisjóðs kann að vera
meiri í sumum tilvikum.
- eþa
Sparisjóðir hagnast
verulega á Existu
Óinnleystur gengishagnaður 19 milljarðar króna.