Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 4
4 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ 19.9.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
122,6211
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
70,01 70,35
131,66 132,38
88,58 89,08
11,871 11,941
10,706 10,77
9,662 9,718
0,5954 0,5988
103,37 103,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
DÓMSMÁL Átján ára piltur hefur
verið dæmdur í tólf mánaða fang-
elsi fyrir að ráðast að föður sínum
með hnífi. Héraðsdómur Reykjavík-
ur felldi dóminn í gær og eru níu
mánuðir dómsins skilorðsbundnir
til fimm ára.
Málavextir eru þeir að pilturinn
réðist á föður sinn á veitingahúsinu
Kaffisetrinu aðfaranótt 17. júní síð-
astliðins í kjölfar deilna um fjöl-
skyldumál. Feðgarnir höfðu fyrr um
kvöldið lent í átökum á heimili sínu
með þeim afleiðingum að báðir
hlutu minniháttar áverka. Stuttu
síðar hélt rifrildi þeirra áfram á
fyrrnefndum veitingastað og bar
vitnum saman um að faðirinn hafi
egnt son sinn meðal annars með því
að kalla hann ítrekað „aumingja“.
Við það missti pilturinn endan-
lega stjórn á sér, greip til hnífs og
stakk föður sinn í hægri síðu.
Pilturinn viðurkenndi við yfir-
heyrslu hjá lögreglu að hafa ætlað
sér að drepa föður sinn en hann dró
þann vitnisburð til baka fyrir
dómi.
Hnífurinn, sem var rúmlega 16
sentimetra langur, stakkst um 10
til 15 sentimetra inn í síðu föður-
ins, í gegnum lifrarblað og skadd-
aði hægra nýra. Í vottorði læknis
kom fram að faðirinn hefði vafa-
laust látist ef hann hefði ekki kom-
ist undir læknishendur. Sagði í
vottorðinu að hundaheppni hefði
ráðið því að ekki fór verr. - þsj
Ungur maður dæmdur í Héraðsdómi fyrir að stinga föður sinn:
Hundaheppni að ekki fór verr
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Átján ára
piltur hefur verið dæmdur fyrir stórfellda
líkamsárás.
Framboðsfrestur vegna próf-
kjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
rann ekki út í gær, líkt og stóð í
blaðinu í gær. Hins vegar rann út
framboðsfrestur til kjörnefndar Varðar
- fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
LÍFEYRISMÁL Búist er við að í dag
skýrist hvað verður um skerðingu
fjórtán lífeyrissjóða á lífeyris-
greiðslum til öryrkja. Skerðingin
nemur allt að tugum þúsunda
króna á manninn og skipta þeir
nokkrum þúsundum sem verða
fyrir henni.
Kristján Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, sagði í
gær að allt benti til þess að skerð-
ingunni verði haldið til streitu þar
sem framkvæmdinni verði ekki
frestað lengur. Hann bjóst við að
málið færi í framhaldinu fyrir
dómstóla.
„Málið hefur verið til skoðunar
og langur aðdragandi verið að
þessu þannig að við erum ekki að
hrapa að neinu. Það hefur verið til
skoðunar að reyna að mæta óskum
Öryrkjabandalagsins eins og kost-
ur er en það er því miður ekki
hægt. Skerðingunni verður ekki
frestað lengur eins og staðan er í
dag,“ sagði hann.
Kristján telur að Öryrkja-
bandalagið, ÖBÍ, fari með skerð-
inguna fyrir dómstóla og reki þá
innheimtumál gagnvart lífeyris-
sjóðunum. „Öryrkjabandalagið
hefur því miður haldið á þessu
þannig gagnvart lífeyrissjóðun-
um. Það er því ekkert annað í far-
vatninu en málaferli,“ segir hann
og vonar að ÖBÍ fái gjafsókn og
flýtimeðferð.
Kristján segir að lífeyris-
sjóðirnir séu knúnir til að fara
þessa leið. „Þetta er ekki óskastað-
an okkar. Við höfum fulla samúð
með þessu fólki sem hefur ekki úr
stóru fjármunum að spila og auð-
vitað er maður dapur yfir því að
þurfa að hrifsa einhverja smáaura
af fátæku fólki. Það er ömurleg
staða.“
Kristján segir það gefa auga
leið að ríkið verði að koma til móts
við öryrkjana í gegnum Trygg-
ingastofnun og bæta þeim þann
tekjumissi sem þeir verða fyrir.
Fjallað verður um skerðinguna
í dag í efnahags- og viðskipta-
nefnd Alþingis, miðstjórn ASÍ og á
stjórnarfundi hjá Gildi, stærsta
lífeyrissjóðnum. Vilhjálmur Egils-
son, varaformaður Gildis, sagði í
gær málið vera rætt frá öllum
hliðum en engin niðurstaða lægi
fyrir.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands-
ins, sagði mörg álitamál og margt
flókið í málinu. „Menn eru að
skoða þessi mál,“ sagði hann í
gær. ghs@frettabladid.is
Útlit fyrir að lífeyrir
öryrkja verði skertur
Búist er við vaxandi átökum milli Öryrkjabandalagsins og lífeyrissjóðanna
vegna skerðingar á lífeyrisgreiðslum til öryrkja. Fundað verður um málið í dag.
Formaður Starfsgreinasambandsins býst við að málið fari dómstólaleiðina.
SKERÐING YFIRVOFANDI Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis fjallar í dag um
skerðingu lífeyissjóða. Greiðslurnar eiga að skerðast 1. nóvember og verði þeim ekki
frestað eða aflýst fá þúsundir öryrkja allt að tugum þúsunda minna í vasann.
BAGDAD, AP Kúrdískur öryggis-
gæslumaður, sem ber vitni í máli
Saddams Hussein, sýndi réttinum
brunaför í gær. Áverkana segist
hann hafa fengið í efnavopnaárás
sem gerð hafi verið á þorp sitt
árið 1988.
Kúrdinn lýsti tveimur gerðum
sprengna sem fallið hefðu og
afleiðingum sprengjuregnsins á
sig og sína, en hann leitaði síðar
læknishjálpar í Íran. Annað vitni
lýsti bágbornum aðstæðum í
fangabúðum, reknum af hersveit-
um Husseins.
Sækjendur í málinu halda því
fram að Saddam Hussein, ásamt
sex öðrum mönnum, sé ábyrgur
fyrir þjóðarmorði á 180.000
Kúrdum á síðustu árum níunda
áratugarins.- kóþ
Seinna dómsmál Husseins:
Kúrdar bera
harðræði vitni
SADDAM HUSSEIN Fyrrverandi forseti
Íraks var þögull í dómsalnum í gær og
hripaði niður minnispunkta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVÍÞJÓÐ, AP Fredrik Reinfeldt,
verðandi forsætisráðherra
Svíþjóðar og formaður Hægri-
flokksins, fékk í gær formlega í
hendur umboð til stjórnarmynd-
unar. Lýsti hann því yfir að hann
myndi mynda samsteypustjórn
borgaralegu flokkanna fjögurra,
sem gengu til kosninga með
sameiginlega stefnuskrá og
yfirlýstan vilja til stjórnarsam-
starfs.
Ráðherralisti nýrrar stjórnar á
að liggja fyrir er þingið kemur
saman 3. október. Maud Olofsson,
formaður Miðflokksins sem með
tíu prósenta fylgi er næststærsti
flokkurinn í borgaralega banda-
laginu, sagðist ætlast til að
helmingur ráðherranna yrði
konur. - aa
Stjórnarmyndun í Svíþjóð:
Helmingur ráð-
herra konur
UMBOÐIÐ AFHENT Fredrik Reinfeldt,
verðandi forsætisráðherra, og Björn von
Sydow, forseti sænska þingsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Við höfum fulla samúð
með þessu fólki sem
hefur ekki úr stórum fjármunum
að spila og auðvit-
að er maður dapur
yfir því að þurfa
að hrifsa einhverja
smáaura af fátæku
fólki. Það er ömur-
leg staða.
KRISTJÁN GUNNARSSON
FORMAÐUR STARFSGREINASAMBANDSINS
Trésmiðja gjaldþrota
Stjórn Trésmiðju Fljótsdalshéraðs
hefur ákveðið að leggja fram beiðni
í dag til sýslumannsins á Seyðisfirði
um að félagið verði tekið til gjald-
þrotaskipta. Öllum 30 starfsmönnum
fyrirtækisins var sagt upp störfum um
miðjan ágúst síðastliðinn.
GJALDÞROT
LÖGREGLUMÁL Húsleit var gerð á
fimm heimilum víðsvegar um
landið í gærmorgun vegna
ábendinga frá Interpol um
niðurhal og vörslu á barnaklámi.
Lögreglan í Reykjavík, Kópavogi, á
Selfossi og Ísafirði lögðu hald á
töluvert af tölvum, tölvudiskum og
öðrum tengdum búnaði sem gæti
hjálpað til við rannsókn málsins.
Í Reykjavík var farið inn á tvö
heimili, en á eitt á hinum stöðun-
um. Hinir grunuðu voru teknir til
yfirheyrslu en sleppt að þeim
loknum. Ekki liggur fyrir hvort
tengsl séu á milli málanna.
Búnaðurinn verður rannsakaður í
Reykjavík. - þsj
Húsleitir víðsvegar um landið:
Grunsemdir
um barnaklám
����������������������������������
�������������
��������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
����������������
���������������
����������������
����������������
����������������
���������������
���������������
�����������
���������������
��������������
�����������
���������������
���������������
���������������
��������������
�����������
����������
��������������������
�������������������������
������������� ��� ����
�����������������������
��� ������ ��������������
����� ��������������
�� ���� �� � ���������
������������������ ��
������������������
���������� ������ ��
�������������� ��
��������� �����������
��������� �����������
������ ��
���������������
��������������
�������������������������
���������������������
�� �������������������� ��
���� �� ������� ����
������� ������������ �� ���
��� �����������
����� �����������������
�������������������
����� ����������������
�������������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
��
�
� �
�
�
��
��
��
�
��
��
�
�
�
�
��
�� ��
��
��
�� ��
�
��
�
�
�
����