Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 68
■■■■ { iðnaðarblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■28
Margir kvarta
undan tíma-
leysi og finnst
klukkustund-
irnar í sólar-
h r i n g n u m
aldrei nógu
margar. Góð
tímastjórnun er
mikilvæg fyrir alla, þó einkum þá
sem vinna sjálfsætt og þurfa að
stjórna sínum tíma algerlega sjálfir.
Starfsmennt Fræðslusetur bíður
upp á námskeið í tímastjórnun sem
hefst þann 26. október. Kennari er
Ingrid Kuhlman, þjálfari og ráðgjafi
hjá Þekkingarmiðlun. Á námskeið-
inu fá þátttakendur innsýn í hvernig
má verja tíma sínum dag hvern og
þeim kennt að forgangsraða verk-
efnum. Einnig eru kenndar aðferðir
við að takast á við truflanir og áreiti
af ýmsum toga. Tekin eru fyrir atriði
eins og algengir tímaþjófar, frest-
un, skipulagning og áætlanagerð,
fundir og fundarstjórn, að segja nei,
jákvætt hugarfar og sjálfsstjórn.
Nánari upplýsingar má finna á
www.smennt.is
Stjórnaðu
tíma þínum
Starfsmennt fræðslusetur
býður upp á námskeið í
tímastjórnun.
,,Auðvitað vonar maður að slíkt sé
raunin en það er ekkert sjálfgefið
að fólk haldi áfram í hönnun eftir
námið. Hins vegar virðist vera nóg
að gera fyrir þessa hönnuði,“ svar-
ar Óðinn. Hann er sammála því að
landslagið hafi breyst nokkuð að
undanförnu fyrir íslenska hönn-
uði og þakkar það fyrst og fremst
bættu námi í Listaháskóla Íslands.
Aðspurður um hvort ríkið þurfi að
styðja betur við bakið á upprenn-
andi hönnuðum er Óðinn ekkert
endilega hlyntur því. ,,Oft vill slíkt
verka letjandi nema að það sé því
meira aðhald og eins getur skapast
mikill klíkuskapur í kringum styrktar-
kerfi.“ Óðinn telur mikilvægara að
hönnuðum verði gert auðveldara
um vik varðandi markaðssetningu
og framleiðslu. ,,Það er umtalað að
þetta sé flöskuhálsinn, við þurfum
að komast inn á stærri markaði.“
Óðinn segir að verið sé að leggja
línurnar í rétta átt og því er mikil-
vægt að uppbygging haldi áfram á
sömu braut. Eitt af því sem Óðinn
nefnir sem dæmi að þurfi að stór-
bæta sé upplýsingaflæðið. ,,Nokkr-
ar tilraunir hafa verið gerðar til þess
að laga þetta en einhvern veginn
hafa tilraunirnar aldrei heppnast
sem skyldi. Smáatriði á borð við
upplýsingaflæði er það sem þarf að
laga og má auðveldlega gera með
litlu fjármagni. Þannig geta hönn-
uðir líka unnið sem ein heild en ekki
gegn hvor öðrum. Hins vegar verður
að passa upp á að skemma ekki
frumkvæði einstaklingsins.
Allar keppnir eru til dæmis
af hinu góða. Þær ýta undir
að hönnuðir hittist og er
hvatning til að halda
áfram að
þroskast sem hönnuðir.“
Enn sem komið er hefur ekki
mikið verið um útflutning á íslenskri
hönnun. Óðinn telur hins vegar að
möguleikarnir séu svo sannarlega
fyrir hendi og bendir á nágranna-
þjóðir okkar á Norðurlöndunum í
því samhengi. Allir verði hins vegar
að leggjast á eitt og sé hið ópinbera
ekki undanskilið í því samhengi.
,,Hins vegar þarf að passa sig á því
að þetta verði ekki einhvers konar
bákn sem einkennist af klíkuskap
og geri hlutina
einsleita. En það
er ekki spurn-
ing að hæfi-
leikarnir eru
hér á landi
til þess að
gera hönnun
að stærri iðn-
aði,“ segir Óðinn að
lokum. -sha
Möguleikarnir fyrir hendi
Íslensk hönnun hefur á undanförnum árum vaxið nokkuð ört. Listaháskólinn útskrifar
á hverri önn fleiri og fleiri nemendur og því gera menn sér vonir um að hönnun geti
orðið að stórum iðnaði hér á landi. En er möguleikarnir fyrir hendi? Fréttablaðið leit-
aði svara hjá Óðni Björgvinssyni vöruhönnuði.
Einfalt dæmi um
söluvæna hönnun
en frekari upplýsing-
ar um hönnun Óðins
má nálgast á odinn.
com. Óðinn Bolli Björgvinsson iðnhönnuður í einu verka sinna.
Dagana 27. og 28. september verða
haldin tvö námskeið í skartgripa-
gerð í versluninni Föndru á Dal-
vegi í Kópavogi. Á fyrra námskeið-
inu verður þátttakendum kennt að
gera hálsmen úr grófum glerperlum
og málmi og á seinna námskeið-
inu verður unnið með Swarovski-
kristalsperlur. Námskeiðin hefjast
klukkan 19.00 en allar frekari upp-
lýsingar um þau má fá á heimasíðu
Föndru, http://www.fondra.is eða í
síma 568-6500.
Sérstakir
skartgripir
Auðvelt er að búa til mjög fallega skartgripi
úr Swarovski-kristöllum.