Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 99
MIÐVIKUDAGUR 20. september 2006 31
Myndlistarmaðurinn Ragnar
Kjartansson hefur tilkynnt með
formlegum hætti að verki hans
sem kennt er við stúku Hitlers sé
lokið og hann muni ekki, eins og
lýst hafði verið yfir, „eiga við né
endurbyggja“ verkið frekar.
Leifar af leikhússtúku Adolfs
Hitlers sem reist var í Admirals
Palast leikhúsinu í Berlin árið
1941 voru fluttar í húsakynni
Listasafns Reykjavíkur í Hafnar-
húsi þar sem Ragnar hugðist
fremja gjörning í tengslum við
rústirnar en hann vinnur iðulega
með sína eigin nærveru í verkum
sínum. „Nú þegar komið er að því
að hefja þennan gjörning hefur
efnið yfirtekið upphaflega áætlun
mína,“ segir í yfirlýsingu lista-
mannsins, sem líkti sigraðri stúk-
unni við verkið „Skipbrot vonar“
eftir Caspar David Friedrich.
„Efnið sem er í þessu verki er það
þungt og merkingarhlaðið að verk-
ið sjálft hefur borið listamanninn
Ragnar Kjartansson ofurliði. Ég
gefst upp fyrir efninu og andanum
í þessu verki.“
„Þetta er tignarleg uppgjöf,“
útskýrði Ragnar í viðtali og árétt-
aði einig að hann hafi áður upplif-
að þessa kennd. „Það er algengt að
verki sé lokið fyrr en maður held-
ur.“ Ragnar órar ekki fyrir hvort
aðrir gestir Hafnarhússins upplifi
verkið á líkan hátt en hann segir
það nú fullkomnað. Aðspurður um
hvenær hann skynjaði að verkinu
væri lokið segist Ragnar ekki geta
svarað því.
Ragnar kveðst munu halda sínu
striki, í bígerð er sýning í London
og um næstu helgi mun hann
fremja gjörning í tengslum við
afhendingu Sjónlistarorðunnar
ásamt Ásdísi Sif Gunnarsdóttur
en þeim viðburði verður sjónvarp-
að beint frá Akureyri næstkom-
andi föstudag.
„Ég tek líka þátt í norður-
evrópska tvíæringingnum Mom-
entum en þar er ég með verk sem
heitir Scandinavian Pain,“ útskýr-
ir Ragnar og segir það verk til
heiðurs svæðisbundnum tilfinn-
ingum sem skynja má í verkum
Strindbergs, Ibsens og skandin-
avískri black-metal tónlist. Ragn-
ar finnur bældri dramatík Skand-
inava heimili í hlöðu við norskan
fjörð þar sem leikið var tónverk
sem samið var í félagi við Ólaf
Björn Ólafsson en Ragnar hóf
einnig upp raust sína og söng í
hlöðukjallaranum á meðan á gjörn-
ingnum stóð.
Stúka Hitlers verður áfram til
sýnis í Hafnarhúsinu en verkið er
hluti samsýningarinnar Pakkhúss
postulanna sem stendur til 22.
október. - khh
RAGNAR KJARTANSSON LISTAMAÐUR
Gafst tígulega upp fyrir efniviði stúku
Hilters. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
HÚS SKANDINAVÍSKA SÁRSAUKANS Verk Ragnars á norður-evrópska tvíæringnum
hverfist um bælda dramatík. MYND/RAGNAR KJARTANSSON
Tíguleg uppgjöf fyrir efninu
Sjálfstætt lofthreinsi
og rakatæki
Hreinsar loftið í gegnum vatn og
gefur frá sér raka. Margar teg.
ilmefna Einnig lyktareyðir sem
fjarlægir t.d. tóbakslykt og
matarlykt
Hrein þjónusta ehf
Dalbraut 3, 105Rvk 897 2800 - 567 7773
nýttnýtt
enginn fi lter
frí heimsending
• HANDVERK OG LISTIR
• HEILSA OG ÚTLIT
• TÖLVUR OG REKSTUR
• TÓNLIST
• TUNGUMÁL
• SÖNGNÁM OG LEIKLIST
• NÁMSAÐSTOÐ
• MATUR OG NÆRING
• PRÓFAÁFANGAR
MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Í HAFNARFIRÐI
Námskeiðin að hefjast!
Innritun stendur yfi r á haustönn 2006. Nánari uppl. í síma 585-5860 og á
www.namsfl okkar.hafnarfjordur.is
TUNGUMÁL
Ísl. f. útlendinga
Réttritun/málfræði
Pólska
Rússneska
Spænska
Ítalska
Franska
Enska
Sænska
Danska
Norska
Þýska
HANDVERK
Vatnslitamálun
Tréútskurður
Tálgunámskeið
Skartgripagerð
Olíumálun
Eldsmíði
Skopmyndagerð
Leirmótun
Myndl. f. börn
Skrautritun
Mósaik
TÓNLIST
Munnharpa/Gítar
Bongotrommur
Trommur
Saxófónn
Hljómborð
Söngtextagerð
Gítar
Blokkfl auta
Fiðla
Harmonikka
Rafbassi
Að hlusta á klassík
Söngnám
TÖLVUR
Almennt tölvunám
Powerpoint
Autocad
Stafræn myndavél
After Effects
Tölvup./internet
Illustrator
Smáfyrirtæki/rekstur
HEILSA/ÚTLIT
Neglur
Stafaganga
Vöðvanudd
Svæðanudd
MATUR
Kaffi námskeið
Veislumatargerð
Tapas
F. saumaklúbbinn
F. matarklúbbinn
Danskt Smörrebröd
Austurlensk matargerð
Frönsk matargerð
Jólamatur
Fyrir heimavinnandi
Léttir réttir
SAUMAR/PRJÓN
Prjónað og þæft
Þæfi ng
Bútasaumur
Fatasaumur
Jólanámskeið
ÝMIS NÁMSKEIÐ
Hraðlestranámskeið
Sjálfsstyrking f. alla
Dagforeldranámsk.
Fuglaskoðun
Töfrabragðanámskeið
Vestur-Íslendingar
Listasaga
Goðafræði
Leiklist börn/ungl.
Fluguköst
Portfolio
Ísl. lækningajurtir
Garðhönnun
Matjurtagarðurinn
Dýr/atferli og hegðun
Hláturjóga
Fluguhnýtingar
PRÓFAÁFANGAR
Íslenska 102, 202
Spænska 103,203,403
Stærðfræði 102, 202
Námsaðstoð f.10.bekk
FRUMSÝND 22.09.06
V
in
ni
ng
ar
v
er
ð
a
af
he
nd
ir
h
já
B
T
S
m
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í S
M
S
k
lú
b
b
. 9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
9.
HV
ER
VI
NN
UR
!
SE
ND
U S
MS
JA
FC
K
Á
NÚ
ME
RIÐ
19
00
ÞÚ
GÆ
TIR
UN
NIÐ
M
IÐA
!
Vin
nin
ga
r e
ru
mið
ar
fyr
ir 2
,
·
DV
D m
ynd
ir o
g m
arg
t fl
eir
a
MOBILE
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SEPTEMBER
17 18 19 20 21 22 23
Miðvikudagur
■ ■ KVIKMYNDIR
20.00 Stjórnmálaskor Háskóla
Íslands sýnir heimildarmynd um
hvernig konur geta leitað réttar síns
í Íran. Í myndinni Divorce Iranian
Style er fylgst með konum í Íran,
sem sækjast eftir lögskilnaði við
eiginmenn sína. Myndin veitir afar
góða innsýn í íranskt samfélag, um
réttarfarið þar og stöðu kvenna.
Aðgangur er öllum heimill en nem-
endur hafa forgang.
■ ■ FYRIRLESTRAR
20.00 Má bjóða þér sjálflýsandi
svín? Dr. Þorvarður Árnason,
forstöðumaður Háskólaseturs á
Hornafirði og Dr. Einar Mäntylä,
plöntusameindaerfðafræðing kafa
ofan í umræðuna um erfðabreytt
matvæli í Vísindakaffi á vegum
Rannís. Kaffistofa Listasafns
Reykjavíkur, Hafnarhúsi
■ ■ SÝNINGAR
09.00 Listvinafélag Hallgríms-
kirkju stendur að sýningu á verkum
Hafliða Hallgrímssonar. Tólf mynd-
verk hans eru nú til sýnis í fordyri
kirkjunnar, sýningin stendur til 23.
október.
10.00 Á sýningunni Pakkhúsi
postulanna sem stendur yfir
í Listasafni Reykjavikur,
Hafnarhúsi, sýna ellefu listamenn
verk af ólíkum togi. Sýningarstjórar
eru Daníel Karl Björnsson og
Huginn Þór Arason.
11.00 Sigurbjörn Kristinsson
sýnir abstraktmálverk í Boganum.
Sýningin heitir einfaldlega kompósís-
jónir en hún stendur til 5. nóvember.
11.00 Listamennirnir Anna
Eyjólfsdóttir, Jessica Stockholder,
Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí og
Þórdís Alda Sigurðardóttir sýna
verk sín á samsýningunni Mega vott
sem nú stendur yfir í Hafnarborg.
Sýningin er opin milli 11-17 en hún
stendur til 2. október.
13.00 Myndlistamaðurinn Iain
Sharpe sýnir í galleríi Animu við
Ingólfsstræti. Sýningin er opin frá
13-17 og stendur til 7. október.
13.00 Ragnheiður Jónsdóttir og
Harpa Árnadóttir sýna verk sín í
Listasafni ASÍ. Ragnheiður sýnir
stórar kolateikningar í Ásmundarsal
en Harpa sýnir tvær innsetningar.
13.00 Sýning á íslensku hand-
verki og listiðnaði á vegum
Handverks og hönnunar stendur
yfir í Bíósalnum í Duushúsunum
í Reykjanesbæ. Sýningin er opin
alla daga kl. 13-17.30 og stendur til
24. sept.
13.00 Sýning á íslensku handverki
og listiðnaði á vegum Handverks og
hönnunar stendur yfir í Bíósalnum
í Duushúsunum í Reykjanesbæ.
Sýningin er opin alla daga kl. 13-
17.30 og stendur til 24. sept.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
12.00 Yfirlitssýningu á ljósmynd-
um Andrésar Kolbeinssonar í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur í
Grófarhúsi lýkur um næstu helgi.
Myndir Andrésar frá árunum 1952-
65 birta nýja sýn á ört vaxandi borg.
Sýningin er opin milli 12-19 virka
daga en 13-17 um helgar.
hvar@frettabladid.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI