Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 6
6 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR BANGKOK Yfirstjórn taílenska hersins fyrirskipaði skriðdreka- hermönnum í gær að umkringja stjórnarráðið og setti herlög í landinu. Stjórnarskrá Taílands var numin úr gildi og dagskrá sjón- varpsstöðva slitið. Á skjánum sáust einungis textaboð sem skip- uðu fólki að halda sig heima við og að nánari útskýringar kæmu von bráðar. Á sjónvarpsstöð hersins sást hins vegar mynd af konungs- hjónunum og spiluð „valdaráns- tónlist“, það er tónlist sem herinn hefur spilað í valdaránum fyrri tíma. Herinn tilkynnti seinna um kvöldið að stjórnartaumar væru nú í höndum „Ráðs um stjórn- sýslulegar umbætur“ og sór kon- ungi landsins hollustu. Ríkissjón- varpið birti svo yfirlýsingu frá Sondhi Boonyaratkalin yfirhers- höfðingja, þar sem hann skipaði öllum hermönnum að gefa sig samstundis fram við yfirmenn sína og halda síðan kyrru fyrir í herbúðum. Herinn hefði náð völd- um í Bangkok og nágrenni, án nokkurrar mótstöðu. Thaksin Shin- awatra forsætis- ráðherra var staddur í New York þar sem hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna í gærkvöldi, en ávarpi hans var flýtt um einn dag vegna valdaránsins. Shina- watra lýsti yfir neyðarástandi í Taílandi og leysti yfirhershöfð- ingjann frá störfum. Ólafur Jóhannesson kvik- myndagerðarmaður sagði í sam- tali við Fréttablaðið að nokkuð órólegt væri í borginni. „Ég var á leið út í tíu-ellefu verslun þegar ég var stoppaður á götunni og sendur aftur heim á hótel. Það voru allir hlaupandi í eina átt úti á götu, alveg eins og í bíómyndunum.“ Ólafur segir það hafa verið tíma- spursmál hvenær herinn tæki völdin í sínar hendur, því óánægjan í landinu hafi verið afar mikil og herinn sé vanur að grípa inn í atburðarás- ina þegar svo standi á. „Það hafa verið dagleg mót- mæli út af ýmsum spillingar- málum Thaksins,“ sagði Ólafur, „Herinn hefur leyst upp þing eitt- hvað um fjórtán sinnum á síðustu sextíu til sjötíu árum. „Vesturlanda- búarnir sem hafa verið hér lengur en ég eru á taugum og segja að nú gætu stúdentar farið út á götu að mótmæla. Það var víst mannfall í síðasta valdaráni.“ Friðsamlegt var þó í höfuðborginni þegar blað- ið fór í prentun í gærkvöldi. klemens@frettabladid.is Það voru allir hlaupandi í eina átt úti á götu, alveg eins og í bíómyndunum. ÓLAFUR JÓHANNESSON KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR. KJÖRKASSINN REYKJAVÍK, 15.–22. SEPTEMBER www.reykjavik.is EVRÓPSK SAMGÖNGU- VIKA LOFTSLAGSBREYTINGAR Reykjavíkurborg tekur nú, fjórða árið í röð, þátt í Evrópsku Samgöngu- vikunni. Þema Samgönguvikunnar í ár er loftslagsbreytingar og tekur dagskrá vikunnar mið af því. Leiðarljós Samgönguviku er hreint loft og lögð er áhersla á hvernig val á samgöngumáta hefur áhrif á umhverfi, heilsu og borgarbrag. Miðvikudagur 20. september 12.00 Borgarbragur og samgöngur. Hádegisfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Getum við breytt götumynd Reykjavíkur þannig að meira jafnræðis gæti á milli ólíkra samgöngumáta? Hvaða áhrif hafa samgöngur á borgarbrag? Frummælendur: Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi, Guðmundur Steingrímsson, blaðamaður og rithöfundur og Sigurður Guðmundsson skipulagsfræðingur. Fundarstjóri er Sigmar Guðmundsson. Fyrir utan Ráðhúsið sýna bílaumboð visthæfa og sparneytna bíla. Fimmtudagur 21. september 08.00 Hversu lengi ertu í skólann/vinnuna? Rannsókn á ferðahraða þriggja einstaklinga í Reykjavík – á hjóli, í bíl og í strætó. Lagt verður af stað kl. 08.00 frá þungamiðju Reykjavíkur sem miðast við Vogaskóla. Ferðinni er heitið að Háskóla Íslands og verður safnast saman að nýju við aðalinngang Háskólans. Rannsóknin er gerð til að kanna hentugleika allra samgöngumáta í borgarumhverfi á háannatíma. Föstudagur 22. september 08.30 Borgin í bítið – breytt loftslag í Reykjavík? Málþing í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hvaða áhrif geta loftslagsbreytingar haft á Reykjavík? Hvaða áhrif geta Reykvíkingar haft á loftslagsbreytingar? Frummælendur: Trausti Valsson, prófessor í skipulagsfræðum við Háskóla Íslands, Hjalti J. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Stefnumótunar og þróunar hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar og Guðrún Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða, Háskóla Íslands. Meira um dagskrá Samgönguviku á www.reykjavik.is TALSMENN HREINS LOFTS Reykjavíkurborg H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 3 4 9 STJÓRNMÁL Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, lætur af þing- mennsku í vor. Hún tilkynnti um ákvörðun sína á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í gær. Sólveig sagðist í samtali við Fréttablaðið í gær hafa verið í yfir tuttugu ár í stjórnmálum, fyrst í borgarmálum og svo á þingi, og það væri orðinn góður tími. „Ég hef aldrei litið svo á að þing- mennska væri ævistarf og finnst eðlilegt að það verði endurnýjun.“ Sólveig var í borgarstjórnar- flokki Sjálfstæðisflokksins 1986- 1990 og var þá jafnframt vara- þingmaður. Hún tók fast sæti á Alþingi 1. febrúar 1991. Sólveig gegndi formennsku í allsherjar- og utanríkismálanefndum þings- ins, hún var dóms- og kirkjumála- ráðherra 1999-2003 og er nú forseti Alþingis. Hún segist hafa verið heppin að fá að gegna miklum trúnaðarstörfum um ævina og fengið tækifæri til að fylgja pólit- ískum áherslum sínum eftir. Sólveigu er umhugað um fram- gang kvenna í stjórnmálum og hvetur konur til að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. „Ég hef farið í gegnum fimm prófkjör og þó það geti verið harður slagur er þetta lýðræðisleg aðferð. Það virðist stundum erfið- ara fyrir konur en karla að koma sér á framfæri en það er engu að kvíða og ég hvet konur til að gefa kost á sér.“ - bþs Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, hættir í stjórnmálum í vor eftir sextán ár á þingi: Hvetur konur til framboðs SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR Segist aldrei hafa litið svo á að þingmennska væri ævistarf. Herinn í Taílandi framdi valdarán Forsætisráðherrann lýsti yfir neyðarástandi frá New York og leysti yfirhershöfð- ingjann frá störfum. Svo mikil óánægja er með forsætisráðherrann að valda- ránið var einungis tímaspursmál, segir Ólafur Jóhannesson, sem er í Taílandi. TAÍLENSKIR HERMENN UMKRINGJA STJÓRNARRÁÐSHÚSIÐ Herinn hóf valdarán í Taílandi í gær, meðan Thaksin Shinawatra, forsætis- ráðherra landsins, var í New York á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Herinn náði valdi á helstu stjórnarbyggingum og sjónvarpsstöð- um og lýsti yfir stuðningi við konung ríkisins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 550 5600 Hringdu ef blaðið berst ekki - mest lesið SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Kofi Annan flutti í gær síðustu opnunar- ræðu sína við upphaf Allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna í New York, því næsta haust verður nýr framkvæmdastjóri tekinn við af honum. Annan dró í ræðu sinni upp dökka mynd af ástandi heims- málanna. Hagstjórnin væri rang- lát, glundroði væri ríkjandi og almenn fyrirlitning á mannréttind- um og lögum. Hann hvatti ríki heims til þess að taka höndum saman og vinna að einingu í alþjóða- samfélaginu. Hann sagði enn fremur að á meðan Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna væri ófært um að binda enda á átök Ísraels og Palestínumanna „myndi virðing fyrir Sameinuðu þjóðunum halda áfram að dvína“. Meðan Annan flutti ræðu sína bárust þau tíðindi frá Taílandi að herinn hefði gert stjórnarbyltingu og steypt Thaksin Shinawatra for- sætisráðherra af stóli. Thaksin var staddur í salnum og fékk að skipta við Svartfjallaland á ræðutíma, þannig að hann gat flutt ræðu sína í gærkvöld til þess að komast heim til Taílands degi fyrr en til stóð. Einna mesta athygli vakti þó ræða George W. Bush Bandaríkja- forseta, sem beindi meðal annars máli sínu að Írönum og hvatti þá til að hætta kjarnorkuáformum sínum. Hann varði einnig stefnu sína í mál- efnum Mið-Austurlanda. - gb ÍRANSKA NEFNDIN HLÝÐIR Á BUSH Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, lét ekki sjá sig í salnum meðan Banda- ríkjaforseti flutti ræðu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Leiðtogar aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna funda í New York: Átök í Palestínu grafa undan SÞ Tekur þú strætó? Já 29% Nei 71% SPURNING DAGSINS Í DAG: Horfir þú á NFS? Segðu skoðun þína á visir.is LÖGREGLUFRÉTT Allt að fimmtíu unglingar fylgdust með slagsmál- um tveggja pilta fyrir utan Háskólabíó um helgina. Mynd- bandi, sem sýnir slagsmálin, hefur verið dreift á netinu en þau voru skipulögð og auglýst þar í síðustu viku. Ruv.is sagði frá. Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík var hún ekki boðuð á staðinn. Lögreglan hefur haft spurnir af því að netið sé notað til að auglýsa slagsmál, en þá eigi hópar í hlut. Lögreglan hefur brugðist við slíku en yfirleitt hefur ekkert orðið úr átökum þrátt fyrir að auglýst sé á netinu og með smáskilaboðum. - shá Slagsmálamyndbandi dreift: Slagsmál aug- lýst á netinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.