Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 20. september 2006 13
HÁSPENNULÍNUR Náttúruvaktin mót-
mælir harðlega þeim áætlunum
Landsnets að leggja háspennulínur
frá Hellisheiðarvirkjun vegna þeirr-
ar gríðarlegu sjónmengunar sem
þær munu valda.
Landsnet undirbýr nú fram-
kvæmdir við háspennulínur frá
fyrirhuguðum virkjunum á Ölkeldu-
hálsi og við Hverahlíð, og frá
Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi, að
Geithálsi í Reykjavík og Straums-
vík í Hafnarfirði. Mat á umhverfis-
áhrifum þessara framkvæmda er
að hefjast og gefst almenningi kost-
ur á að koma með athugasemdir við
drög að matsáætlun fram til 29.
september.
Ásta Þorleifsdóttir, sem situr í
stjórn Náttúruvaktarinnar, segir
óforsvaranlegt að hafa háspennu-
línur ofanjarðar svo nálægt þétt-
býli. „Landsneti ber skylda til að
bera saman kosti þess að leggja
háspennulínur í jörð eða ofanjarð-
ar.“ Ásta telur skammtíma gróða-
hyggju of ráðandi og að þegar litið
sé til lengri tíma sé alls óvíst að
ódýrara sé að leggja háspennulínur
ofanjarðar með tilheyrandi við-
haldskostnaði.
Í drögum að matsáætlun Lands-
nets, sem kynnt voru á sunnudag,
segir að kostnaður við jarðstrengi á
lægstu spennu sé sambærilegur við
loftlínu en hækki hratt með aukinni
spennu, einkum þegar komið er upp
fyrir 132 kílóvatta spennu. Af þeim
sökum sé ekki reiknað með jarðlínu
sem valkosti nema aðstæður verði
með þeim hætti að ekki sé um aðra
lausn að ræða. - sdg
HÁSPENNULÍNUR Möstur sem reist voru í sumar við bæinn Eyrarteig í Skriðdal í
Fljótsdalshéraði. MYND/SIGURÐUR ARNARSSON
Náttúruvaktin mótmælir áætlunum um að leggja háspennulínur ofanjarðar:
Sjónmengun af völdum háspennulína
UMHVERFISMÁL Fjölbrautaskólinn
við Ármúla er fyrsti framhalds-
skólinn sem hlýtur Grænfánann.
Skólinn er sá stærsti hér á landi
sem hefur tekið þátt í verkefninu.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
hefur sýnt fram á að nemendur og
starfsfólk skólans hafi viðhaldið
öflugu og markvissu starfi í þeim
tilgangi að vernda umhverfið og
hefur sett sér ný markmið til að
stefna að næstu tvö ár.
Grænfáninn er umhverfis-
merki sem nýtur virðingar í Evr-
ópu sem tákn um góða fræðslu og
umhverfisstefnu í skólum. - hs
Umhverfisstefna viðurkennd:
Grænfáninn til
Ármúlaskóla
DÓMSMÁL Héraðsdómur Norður-
lands eystra hefur dæmt mann til
að greiða 70.000 króna sekt til
ríkissjóðs vegna tveggja fíkni-
efnabrota. Maðurinn hefur
tvívegis áður hlotið dóma vegna
brota á fíkniefnalögum. Hann
játaði sök fyrir dómi en rauf
skilorð.
Dómara þótti þó við hæfi að
láta skilorðsdóminn standa áfram
og dæma sérstaklega fyrir þau
brot sem ákært var fyrir nú. - þsj
Dæmdur til að greiða sekt:
Tvívegis tekinn
með fíkniefni
Útlendingar hálshöggnir
Tveir menn, Bangladessi og Afgani,
voru nýlega gerðir höfðinu styttri með
sveðju fyrir allra augum í Riyadh-borg.
Bangladessinn hafði verið dæmdur
fyrir morð og Afganinn reyndi að
smygla heróíni inn í konungsríkið.
83 menn voru afhöfðaðir í landinu í
fyrra.
SÁDI-ARABÍA
BORGARBYGGÐ Opin samkeppni
verður haldin um nýtt byggðar-
merki fyrir hið sameinaða
sveitarfélag Borgarbyggðar.
Þetta var samþykkt á fundi
atvinnu- og markaðsnefndar í
síðustu viku. Merkið á að hafa
augljósa skírskotun til landa-
fræði, sögu, menningar, dýralífs
eða atvinnulífs svæðisins.
Peningaverðlaun eru í boði
fyrir þrjár bestu tillögurnar og
fær höfundur þeirrar álitlegustu
hundrað þúsund krónur. Skila-
frestur er til 8. nóvember og
verða úrslit kynnt á vef borgar-
byggðar hinn 19. nóvember. - þsj
Boðað til opinnar samkeppni:
Velja nýtt
byggðarmerki
LÓÐAMÁL Óvenjumikið hefur verið
um að byggingarlóðum hafi verið
skilað í Hafnarfirði upp á
síðkastið. Þannig var 68 lóðum
úthlutað í fyrstu úthlutun í
Áslandshverfi í vor og var fimm
skilað. Lilja Ólafsdóttir, fulltrúi
hjá Hafnarfjarðarbæ, segir að
venjulega sé einni til tveimur
lóðum skilað.
„Lóðarhafar þurfa ekki að gefa
upp neina ástæðu þegar þeir skila
inn lóðum og núna hefur aðeins
fleiri lóðum verið skilað vegna
þess að bankar eru búnir að loka
meira eða minna á lán, fólk hefur
gert aðrar ráðstafanir eða það
hefur ekki getað selt eldri eignir,“
segir hún.- ghs
Hafnarfjörður:
Lóðum skilað
HAFNARFJÖRÐUR Byggingarlóðum hefur
verið skilað í auknum mæli í Hafnarfirði.