Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 105
MIÐVIKUDAGUR 20. september 2006 37
FÓTBOLTI Gabriel Heinze gæti
leikið á nýjan leik með Manchest-
er United eftir um árs hlé vegna
meiðsla. Heinze sleit krossbönd í
hné í leik gegn Villarreal í
Meistaradeildinni í fyrra. Hann
lék þó með Argentínu á HM í
sumar og í nokkrum leikjum með
United á undirbúningstímabilinu
en hingað til hefur Alex Ferguson
ekki treyst sér til að nota hann í
deildinni. Ólíklegt er að Heinze
verði með United gegn Reading
um helgina en hann gæti vel
komið við sögu í næstu leikjum
eftir það.
Alan Smith er einnig á
batavegi en Ryan Giggs verður
frá í tvær vikur hið minnsta og Ji-
Sung Park fram í desember. - esá
Gabriel Heinze að koma til:
Heinze með í
næstu viku?
FÓTBOLTI Franski landsliðsmaður-
inn Patrick Vieira sagði í samtali
við franska blaðið L`Equipe að
hann vildi ljúka ferlinum hjá
núverandi félagi sínu, Inter á
Ítalíu. Hann lék lengi með
Arsenal og var orðaður við
Manchester United í sumar en
var seldur frá Juventus til Inter.
„Tilboð Inter var hagstæðast
fyrir mig í sumar og félagið er
ekki síður heillandi. Ég mun
nánast örugglega ljúka ferlinum
hér í Mílanó.“ - esá
Patrick Vieira:
Vill klára feril-
inn hjá Inter
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Íslands, KSÍ, sendi ÍR bréf í gær
þar sem fram kemur að samband-
ið hafi gert mistök er það gaf út
keppnisleyfi fyrir Berglindi
Magnúsdóttur en hún lék í marki
ÍR í umspilsleikjunum gegn Þór/
KA sem ÍR vann. Keppnisleyfið er
kallað til baka þar sem Berglind
hafði leikið með tveim félögum
fyrr um sumarið en ólöglegt er að
leika með fleiri en tveim félögum
á einu tímabili. Það var því ekki
ÍR sem gerði mistök heldur KSÍ
er það veitti keppnisleyfið.
Spurning hvaða áhrif þetta
hefur en Þór/KA hefur kært
rimmunna vegna þess að Berg-
lind stóð í markinu. Málið er á
borði KSÍ og úrskurður ekki
kominn en er væntanlegur
fljótlega. - hbg
Kæra Þórs/KA:
KSÍ viðurkenn-
ir mistök
FÓTBOLTI Ólafur Kristjánsson mun
að öllum líkindum halda áfram að
þjálfa lið Breiðabliks og breytir
þá engu hvort liðið fellur úr
Landsbankadeildinni eða ekki.
„Það er pólitískur vilji fyrir
því hjá báðum aðilum að hann
haldi áfram,“ sagði Einar
Kristján Jónsson, formaður
knattspyrnudeildar Breiðabliks,
við Fréttablaðið í gær. „Við erum
mjög ánægðir með störf Ólafs og
viljum gjarna að hann haldi
áfram að vinna fyrir okkur.“ - hbg
Karlalið Breiðabliks:
Ólafur væntan-
lega áfram
ÓLAFUR KRISTJÁNSSON Líklega áfram í
Kópavogi.
FÓTBOLTI Aganefnd KSÍ dæmdi í
gær sjö leikmenn Landsbanka-
deildar karla í leikbann og þeir
missa því allir af leikjum sinna
liða í lokaumferðinni.
Breiðablik er í mikilli fall-
baráttu og ekki hjálpar það til að
þrír leikmenn liðsins verða í banni
í lokaumferðinni en það eru þeir
Guðmann Þórisson, Nenad Zivan-
ovic og Olgeir Sigurgeirsson.
Sigmundur Kristjánsson leik-
maður KR, Barry Smith, leikmað-
ur Vals, og Andri Ólafsson, leik-
maður ÍBV, voru allir dæmdir í
bann vegna of margra gulra
spjalda og þá var David Hannah,
leikmaður Grindavíkur, dæmdur í
bann vegna rauða spjaldsins sem
hann fékk í leik liðsins gegn KR
um síðustu helgi. - dsd
Aganefnd KSÍ fundaði í gær og dæmdi menn í bann fyrir lokaumferðina:
Þrír Blikar í banni í lokaumferðinni
ÞRÍR BLIKAR Í BANN Guðmann Þóris-
son fagnar hér marki fyrr í sumar en
hann er einn þriggja leikmanna Breiða-
bliks sem dæmdir voru í leikbann.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
HANDBOLTI Handboltavertíðin
hófst formlega í gærkvöldi þegar
ÍBV og Haukar mættust í Meist-
arakeppni HSÍ í Vestmannaeyjum.
ÍBV er núverandi Íslandsmeistari
en Haukar unnu bikarkeppnina
síðasta vetur.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á liðunum í sumar og þá aðallega
hjá ÍBV, sem teflir fram nýju liði
undir stjórn nýliðans Einars Jóns-
sonar.
Einar á nokkuð í land með að
gera ÍBV að meistarakandidötum,
eins og búast mátti við þar sem
hann er með nýtt lið í höndunum,
því stúlkurnar hans höfðu í gær
ekki roð við Haukunum, sem unnu
örugglega, 24-33.
Jafnræði var með liðunum rétt
í upphafi leiks en getumunur lið-
anna kom fljótlega í ljós og þá fór
að draga í sundur með liðunum.
Sanngjarn níu marka sigur stað-
reynd þegar upp var staðið og
ljóst að Haukar verða sterkir.
ÍBV tók á móti Haukum í Meistarakeppni HSÍ í Eyjum í gær:
Öruggur sigur hjá Haukum
gegn ÍBV í Vestmannaeyjum
HAUKAR FÖGNUÐU Haukastúlkur voru aldrei í vandræðum með ÍBV í gær.