Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 110
20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR42
HRÓSIÐ FÆR …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 mál skips 6 sem 8 samkynhneigður
9 form 11 peninga 12 aumingi 14 ein-
kennis 16 rás 17 að 18 óðagot 20 sjó
21 auma.
LÓÐRÉTT
1 tilraunaupptaka 3 eftir hádegi 4
sárasótt 5 viður 7 lofaður 10 skítur 13
hola 15 vond 16 þjálfa 19 sælgæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 lest, 6 er, 8 hýr, 9 mót, 11
fé, 12 ómagi, 14 aðals, 16 æð, 17 til,
18 fum, 20 sæ, 21 arma.
LÓÐRÉTT: 1 demó, 3 eh, 4 sýfilis, 5 tré,
7 rómaður, 10 tað, 13 gat, 15 slæm, 16
æfa, 19 mm.
Svör við spurningum á bls. 8
1. Hilmar Örn Agnarsson.
2. 20 ára afmæli lagsins Ammæli.
3. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Ein ástsælasta sjónvarpskona landsins, Val-
gerður Matthíasdóttir, hefur ákveðið að
hætta með sjónvarpsþátt sinn Veggfóð-
ur sem hefur verið á dagskrá Stöðvar 2
undanfarið. Vala hefur um árabil frætt
Íslendinga um það nýjasta í hönnun og
innanhúsarkitektúr og því augljóst að
það verður sjónarsviptir af henni á
þeim vettvangi. „Ég er eiginlega búin að
ákveða að það sé komið nóg af svona
þáttum,“ svarar Vala. „Ég er
búin að vera með svona þátt í
sjö ár, fyrst á Skjá einum en
nú á Stöð 2,“ en Veggfóður
verður áfram á skjánum
fram í nóvember.
Valgerður hefur verið að í sjónvarpi ansi
lengi og segir að rauði þráðurinn hjá sér
hafi verið að hún sé alltaf reiðubúin að
breyta til. „Mér hefur alltaf þótt það
spennandi að kljást við ný verkefni og
nýjar sjónvarpsstöðvar,“ útskýrir
Vala. „Nú er bara kominn tími á nýja
hluti.“ - fgg
Vala Matt hætt í Veggfóðri
VALA MATT
Hefur ákveðið að segja skilið
við sjónvarpið og reyna
fyrir sér á nýjum vett-
vangi.
„Við erum bakhjarlar þessara tón-
leika og keyptum eina upp sem
verða á laugardaginn klukkan
fimm, þeir fyrstu í röð þriggja,“
útskýrir Hrannar Pétursson, upp-
lýsingafulltrúi Alcan-álversins í
Straumsvík. „Björgvin er náttúr-
lega einn af helstu sonum Hafnar-
fjarðar og svo skemmtilega vill til
að þegar álverið hóf framleiðslu á
áli árið 1969 var Björgvin
kjörinn Poppstjarna
Íslands,“ segir Hrannar.
Öllum starfsmönnum
álversins er boðið ásamt mökum
auk fyrrverandi starfsmönnum og
mökum þeirra á tónleika Björg-
vins og Sinfóníunnar en mikil eftir-
spurn hefur verið eftir miðum á
herlegheitin og þegar verið bætt
við þriðju tónleikunum sem verða
á sunnudeginum. Þá var helstu
viðskiptavinum Alcan einnig
boðið auk helstu birgja,
bæði hér heima og erlend-
is.
Aðspurður hvort
stór hópur af útlendum
gestum væri væntanlegur til
landsins til að berja goðið augum
sagði Hrannar svo ekki vera,
„Kannski tuttugu manns,“ sagði
hann. Hafnfirðingar verða fjöl-
mennir í Laugardalshöllinni á
laugardaginn því þeim gafst tæki-
færi á að vinna sér inn miða á
heimasíðu fyrirtækisins og reyndi
fjöldi bæjarbúa fyrir sér og
voru hinir heppnu dregnir út á
föstudaginn.
Hrannar sagði mætinguna
hjá starfsmönnum fyrir-
tækisins aldrei hafa
verið meiri á neinn
viðburð og því greini-
legt að Björgvin
nýtur mikilla vin-
sælda meðal sveit-
unga sinna í álverinu. „Við höfum
verið að gera ýmislegt í tilefni af
fjörutíu ára afmæli okkar og það
er mikill spenningur og stemning
hjá starfsfólkinu,“
sagði Hrannar, sem
hafði þó ekki tekið
frá sæti á fremsta
bekk fyrir sjálfan
sig. „Ég verð þarna
í góðu stuði um miðj-
an sal.“ - fgg
Alcan keypti upp eina tónleika hjá Bó
HRANNAR PÉTURSSON Álverið
keypti upp eina tónleika hjá
Björgvini Halldórssyni og
Sinfóníuhljómsveit Íslands í
Laugardalshöll.
BJÖRGVIN HALL-
DÓRSSON Var kosinn
Poppstjarna Íslands
árið 1969, sama ár
og álframleiðsla
hófst í Straumsvík.
RANNVEIG RIST Forstjór-
inn verður örugglega
í góðu stuði meðal
starfsmannanna á
laugardaginn.
...Freyja Haraldsdóttir, sem
lætur fötlun sína ekki aftra sér
frá því að flytja fyrirlestra í
öllum framhaldsskólum
landsins undir yfirskriftinni
„Það eru forrétindi að lifa með
fötlun“.
„Bókin er helguð minningu þeirra
sem fórust,“ segir rithöfundurinn
og blaðamaðurinn Óttar Sveinsson
sem er þessa dagana að skrifa
þrettándu Útkalls-bók sína. Við-
fangsefni Óttars að þessu sinni er
flugslysið á Srí Lanka árið 1978.
Þá fórst Flugleiðavél sem var í
pílagrímaflugi á milli Mekka og
Indónesíu. Vélin fórst þegar hún
átti að millilenda á Srí Lanka. Alls
létust 175 farþegar frá Indónesíu
og átta Íslendingar sem voru í
áhöfn vélarinnar. Fimm Íslending-
ar komust hins vegar lífs af og 74
aðrir.
„Ég byggi bókina upp á samtöl-
um við þá sem komust af og sömu-
leiðis þá sem voru í áhöfninni sem
beið á Srí Lanka,“ segir Óttar, en
önnur Flugleiðaáhöfn átti að taka
við af hinni á Srí Lanka. Óttar
hefur einnig rætt við fjölda ann-
arra sem tengjast þessum atburði
á einn eða annan hátt.
Í bókinni Ísland í aldanna rás
eftir Illuga Jökulsson er greint frá
því að í fyrstu hafi verið talið að
slysið mætti rekja veðurs. Síðar
hafi orsakir slyssins verið raktar
til þess að aðflugstæki hafi verið
vitlaust stillt. Flugvélin var of lágt
á lofti í aðflugi af þessum sökum
og skall niður á kókoshnetuplant-
ekru einum og hálfum kílómetra
frá flugbrautinni. Vélin þeyttist
um 400 metra eftir jörðinni, brotn-
aði í þrennt og tveir af fjórum
hreyflum rifnuðu af. Eldur kvikn-
aði í nokkrum hlutum flaksins.
Eftir á var flakið svo illa útleikið
að með ólíkindum þótti að nokkur
skyldi hafa komist lífs af.
Óhætt er að fullyrða að bók
Óttars eigi eftir að vekja mikla
athygli þegar hún kemur út í byrj-
un nóvember, enda muna margir
eftir flugslysinu á Srí Lanka. „Það
er auðvitað mismunandi hvernig
fólk man eftir þessu. Því er hins
vegar ekki að neita að margir
sem ég hef rætt við af þessu til-
efni muna vel hvar þeir voru
staddir þegar fréttir af slysinu
bárust, rétt eins og með 11. sept-
ember, morðið á Kennedy og
fleiri atburði,“ segir Óttar Sveins-
son. hdm@frettabladid.is
ÓTTAR SVEINSSON: NÝ ÚTKALLSBÓK VÆNTANLEG FYRIR JÓLIN
Flugslysið á Srí Lanka
efniviður nýrrar bókar
ÓTTAR SVEINSSON Næsta umfjöllunarefni hans í Útkalls-bókaflokknum er flugslysið á
Srí Lanka árið 1978 þegar átta Íslendingar létu lífið og fimm komust af. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓRNARLÖMBIN FLUTT HEIM Lík átta Íslendinga voru flutt heim eftir flugslysið á
Srí Lanka. Í bók Óttars er rætt við þá sem komust af og ýmsa sem tengjast þessum
atburði.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kristján Kristjánsson, áður kenndur
við Kastljós, hefur tekið til óspilltra
málanna sem fjölmiðlafulltrúi hjá FL
Group, þótt blekið sé vart þornað á
ráðningarsamningnum. Hans fyrsta
útspil var að tilkynna endurkomu
Sykurmolanna í Laugardagshöll-
inni 17. nóvember, í tilefni af því
að tuttugu ár eru liðin frá útgáfu
lagsins Ammæli. Aðkoma Kristjáns
að tónleikunum er sú að „FL Group
hefur ákveðið að styðja myndarlega
við bakið á Sykurmolunum, enda
má með nokkrum sanni segja að
Sykurmolarnir og útgáfufyrirtæki
þeirra, Smekkleysa, hafi beint
og óbeint verið undanfari
útrásar íslenskra fyrirtækja,“
eins og segir í tilkynningu
frá fjölmiðlafulltrúanum.
Spurning hvort
Einar Bárðar-
son megi
fara að
passa sig?
Ýmissa grasa kennir í jólabókaflóð-
inu í á og meðal þess sem skolar á
fjörur landsmanna er bókin Indján-
inn eftir Jón Gnarr í útgáfu
Eddu. Bókinni er lýst sem
„skáldaðri ævisögu“, sögð
vera einlægum nótum
og byggir víst á æsku-
minningum Jóns
sjálfs, sem tekur
sér líka skáldaleyfi
og fléttar við
frásögnina.
Gamanmyndin Borat með breska
háðfuglinum Sacha Baron Cohen,
betur þekktum sem Ali G, sló
hressilega í gegn á kvikmynda-
hátíðinni í Totonto fyrir skömmu.
Myndin verður frumsýnd á Íslandi í
byrjun nóvember en þar sem eintak
af myndinni er komið til landsins
tóku nokkrir helstu forkólfarnir í
bíóbransanum forskot á sæluna og
horfðu á myndina í Smárabíói í gær.
Nokkrir gestir fengu að fljóta með
og njóta herlegheitanna og bar þar
nokkuð á lykilmönnum úr hnakka-
landsliðinu með Sigvalda Kaldalóns
í broddi fylkingar. Sveppi var einnig
í salnum og hló dátt að fíflagang-
inum í Borat og sjálf þjóðhetj-
an Magni mætti galvaskur.
Á leið sinni út úr Smáralind
var hann eltur af ungum og
áköfum aðdáendum sínum
og eins og við var að
búast gaf rokkstjarnan
geðprúða sér tíma tíl
að gefa himinlifandi
krökkunum eiginhand-
aráritun. - bs/þþ
����
�����������
���������
������� �����
�������������� �����
����������������� ����
���������� �������
������������� ���
���������� ���
���������
����
�����������
���������
������� �����
�������������� �����
����������������� ����
���������� �������
������������� ���
���������� ���
���������
�
�����������
���������
��� � �
���� � ��� ��
����������������� ����
���������� ������
������������� ���
���������� ���
���������