Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 106

Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 106
38 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR – Mest lesið Sirkus kemur á föstudögum! Nú færðu nýtt og litríkara Sirkus tímarit með Fréttablaðinu á föstudögum. Sirkus er blaðið sem flytur þér skemmtilegar fréttir af áhugaverðu fólki og sér til þess að þú vitir allt sem er að gerast um helgina. Auk þess fjallar blaðið á ferskan hátt um tísku, kvikmyndir, tónlist, lífsstíl og alls kyns fleira skemmtilegt. Föstudagar eru sirkusdagar Helgin í hnotskurn – ferskustu fréttirnar Hollywoodslúðrið og persónuleg viðtöl F í t o n / S Í A HANDBOLTI Fram tekur á móti Stjörnunni í Safamýri í kvöld klukkan 19 í leik meistara meist- aranna, en Fram er núverandi Íslandsmeistari og Stjarnan núverandi bikarmeistari. Þessi leikur markar upphaf handbolta- vertíðarinnar hjá körlunum en fyrstu leikirnir í DHL-deild karla eru 27. september. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Framara, var fullur til- hlökkunar fyrir leikinn í kvöld og sagði að leikurinn legðist vel í sig. „Við hlökkum bara til að byrja nýtt tímabil. Þetta er búinn að vera langur undirbúningur og þegar svo er vilja menn auðvitað fara að hefja leik. Það er komið hungur í leikmenn og alla sem að liðinu standa og þess vegna er bara tilhlökkunarefni að byrja þetta á þessum leik, meistarar meistaranna,“ sagði Guðmundur og bætti við að það kæmi í ljós í kvöld hvernig menn kæmu undan undirbúningstímabilinu. „Það eru ákveðnir leikmenn sem hafa átt við meiðsli að stríða og það hefur vissulega áhrif á undirbúninginn. Þetta er ákveðin eftirvænting, t.d. hjá þjálfurun- um, að sjá hvernig liðið er raun- verulega. Maður veit það ekki algjörlega fyrr en liðið spilar alvöru leiki,“ sagði Guðmundur en tveir leikmenn eru meiddir hjá Fram fyrir leikinn í kvöld, þeir Einar Ingi Hrafnsson og Jón Björgvin Pétursson. „Einar Ingi er búinn að vera meiddur í sjö vikur og það er auð- vitað ekki gott því við þurfum á öllum okkar mönnum að halda,“ sagði Guðmundur en Jón Björgvin meiddist illa á öxl síðasta vetur og hefur verið meiddur allt frá ára- mótum. Það var frekar þungt hljóðið í Sigurði Bjarnasyni, þjálfara Stjörnunnar, í gær þegar Frétta- blaðið náði tali af honum. „Ég er nú ekki sáttur við hvernig undirbúningurinn hefur gengið. Leikmenn eru mikið búnir að vera meiddir og það hefur sett strik í reikninginn hjá okkur,“ sagði Sigurður. Gunnar Ingi Jóhannsson og Tite Kalandadze verða ekki með Stjörnunni í kvöld og þá er enn óvíst hvort Roland Valur Eradze getur verið með vegna meiðsla. - dsd Karlalið Fram og Stjörnunnar keppa í kvöld um titilinn meistarar meistaranna: Mikið tilhlökkunarefni að hefja leik eftir langan undirbúning FRAM - STJARNAN Sigfús Sigfússon, leikstjórnandi Framara, reynir hér að brjótast í gegnum vörn Stjörnunnar í leik liðanna á síðustu leiktíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Mikil upplausn virðist ríkja í herbúðum þýska úrvals- deildarliðsins Schalke vegna deilu þýska landsliðsmannsins Gerald Asamoah við þjálfara liðs- ins, Mirko Slomka. Skiptast leik- menn liðsins í tvær fylkingar vegna ákvörðun Slomka að setja Asamoah úr leikmannahópi liðs- ins fyrir leik gegn Herthu Berlín um síðustu helgi. Þýska blaðið Bild greinir frá því að Asamoah hafi hnakkrifist við Slomko. „Ef ég spila ekki mun það hafa sínar afleiðingar,“ á Asamoah að hafa sagt við þjálfar- ann. Schalke tapaði leiknum, 2-0, en framkvæmdastjóri félagsins, Andres Müller, sagðist styðja ákvörðun þjálfarans. Sagði hann að hegðun Asamoah væri mjög skaðleg fyrir liðsanda félagsins. Asamoah var sjálfur fastur fyrir. „Ég veit ekki á hverju ég ætti að biðjast afsökunar. Ef refs- að yrði fyrir allt sem sagt er við þjálfarann í búningsklefanum þyrfti að dæma menn í leikbönn í hverri einustu viku.“ Frank Rost, markmaður liðs- ins og einn fimm meðlima í leik- mannaráði félagsins, sagði að ráðið væri klofið í afstöðu sinni til málsins og að þrír meðmilimir væru andsnúnir ákvörðun þjálf- arans. „Hvað mig varðar er hann enn góður liðsfélagi,“ sagði Rost. Schalke situr í sjötta sæti deildarinnar eftir tapið um helg- ina. - esá GERALD ASAMOAH Hér í slag gegn leikmanni Nancy í leik með Schalke í UEFA-bikarkeppninni í síðasta mánuði. NORDIC PHOTOS/BONGARTS Deila veldur titringi í herbúðum Schalke: Schalke klofið vegna deilu Asamoah FÓTBOLTI Nilton Mendes, leikmað- ur FC Shakhtyor Karagandy í Kasakstan, lést á æfingu liðsins á mánudaginn. Leikmaðurinn fékk hjartaáfall á miðri æfingu en hann var einungis 30 ára gamall. Nilton var mjög vinsæll í Kasakstan en þar hefur hann leikið frá árinu 1999. Nilton var kjörinn besti leikmaður deildar- innar árið 2000. - dsd Sorgarsaga frá Kasakstan: Leikmaður lést FÓTBOLTI Andreas Isaksson, aðal- markvörður sænska landsliðsins, verður ekki með Svíþjóð þegar það mætir Íslandi og Spáni í undan- keppni EM í næsta mánuði. Isaks- son meiddist á æfingu með Manchester City á sunnudag og skaðaði þar krossbönd í hné og verður hann 6-8 vikur að ná sér. Isaksson hefur ekkert getað spilað í haust vegna meiðsla og stóð Rami Shaaban, markvörður Fredrikstad í Noregi, í marki Svía gegn Liechtenstein fyrr í mánuðinum. Félagi Isaksson hjá City, varnarmaðurinn Hatem Trabelsi, verður einnig frá á næstunni vegna meiðsla. - esá Markvörðurinn Andreas Isaksson meiddur: Spilar ekki gegn Íslandi FÓTBOLTI Glenn Roeder, stjóri Newcastle, segir að skurðlæknir- inn sem framkvæmdi aðgerðina á Shay Given á mánudag hafi líkt meiðslum markvarðarins írska við þau sem gerast helst eftir árekstur bíla. Given lenti í samstuði við Marlon Harewood, leikmann West Ham, í leik liðanna um helgina og var fluttur á sjúkrahús með mikla verki í kviðarholinu. Í ljós kom að maginn hafi rifnað og gekkst Given undir aðgerð vegna þess á mánudagsmorgun. „Skurðlæknirinn sagði að hann hafi aldrei séð neitt þessu líkt í gegnum fótboltann,“ sagði Roeder. Fyrstu fregnir herma að Given verði frá í sex vikur. - esá Meiðsli Shay Given: Eins og eftir bílaárekstur SHAY GIVEN Var fluttur á sjúkrahús eftir samstuðið við Harewood. FORMÚLA Tyrkland mun aftur halda Formúlu 1 keppni á næsta ári en mótshaldarar voru sektaðir þess í stað um 350 milljónir króna fyrir að leyfa Mehmet Ali Talat að afhenda sigurlaunin að móti loknu. Talat er forseti þess hluta Kýpurs sem Tyrkir búa á en Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna ekki tilvist þess lands, einungis ríkisstjórnina í gríska hluta Kýpurs. Átjan keppnir verða á næsta ári, einni meira en í ár. Belgíski kappaksturinn verður aftur á dagskrá en búist var við að keppnin á Imola-brautinni í San Marínó yrði í hættu en nú er útlit fyrir að því móti verði bjargað. - esá Formúla 1: Áfram í Tyrk- landi FÓTBOLTI Randy Lerner, banda- rískur milljarðamæringur, hefur nú keypt 89,69 prósenta hlut í Aston Villa. Það þýðir að Doug Ellis, stjórnarformaður Aston Villa til margra ára, hefur nú látið af störfum. Ljóst er að margir stuðningsmenn Aston Villa munu fagna þessum fregnum enda Ellis mjög umdeildur í starfi. Það er jafnframt búist við því að Lerner kaupi afganginn af hlutabréfun- um á næstu dögum. Doug Ellis hefur tvisvar starfað sem stjórnarformaður Aston Villa, fyrst á árunum 1968 til 1975 og tók svo aftur við félaginu 1982, en hefur nú verið keyptur út af Lerner. Doug Ellis er 82 ára gamall. - dsd Aston Villa: Doug Ellis læt- ur af störfum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.