Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 8
8 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvað heitir organistinn í
Skálholti sem sagt hefur verið
upp?
2. Hvert er tilefni tónleika
Sykurmolanna í Laugardalshöll
17. nóvember?
3. Hver verður kynnir sjón-
varpsþátta sem sýndir verða á
undan Miss World keppninni?
SVÖR Á BLS. 42
PENINGAMARKAÐSSJÓÐURINN
14,0%
ávöxtun
Markmið Peningamarkaðssjóðsins er að skila jafnri ávöxtun með
fjárfestingum í skammtímaverðbréfum. Aðallega er fjárfest í
innlánum, skuldabréfum og víxlum skráðum í Kauphöll Íslands.
Meðaltími sjóðsins er mjög stuttur, innan við ár og því er ekki að
vænta mikilla sveiflna á gengi sjóðsins. Peningamarkaðssjóðurinn
skilaði 14,0% nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. ágúst–1. september
2006. Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4400 eða kíktu á
vefsíðuna okkar www.vsp.is.
Engin kaup- eða söluþóknun
Peningamarkaðssjóðurinn er rekinn af Rekstrarfélagi Sparisjóðanna hf. Verðbréfaþjónusta Sparisjóðanna hf. er
vörsluaðili sjóðsins. Peningamarkaðssjóðurinn er fjárfestingarsjóður sem starfar skv. lögum nr. 30/2003 um
verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Fjárfestingarsjóður telst vera áhættusamari fjárfesting en verðbréfasjóður skv.
lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjóðs er m.a. fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta leitt til minni
áhættudreifingar en í verðbréfasjóði. Frekari upplýsingar um sjóðinn má finna í útboðslýsingu og útdrætti
útboðslýsingar sem hægt er að nálgast á www.vsp.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra er bjartsýnn á að tíma-
bundin niðursveifla efnahagslífs-
ins snúist við von bráðar.
„Ég tel að það séu mjög góð
teikn á lofti núna, nýjustu verð-
bólgutölurnar benda til þess,“ sagði
Geir í samtali við Fréttablaðið í
gær. Hann benti á endurskoðaðar
hagvaxtartölur og lítið atvinnu-
leysi máli sínu til stuðnings og
sagði aðgerðir stjórnvalda frá því í
sumar vera að skila árangri. Geir
vildi þó ekki segja til um hvenær
hægt yrði að efna til opinberra
útboða á nýjan leik. „Það styttist í
það en við höfum ekki tekið nýja
ákvörðun um þau mál.“
Stýrivextir Seðlabanka hafa
hækkað stig af stigi undanfarin ár
og nema nú fjórtán prósentum.
Geir vildi ekkert gefa út á hækkan-
irnar, sagðist ekki tjá sig um
vaxtaákvarðanir bankans.
Spurður út í nýjan samanburð
á verðbólgu í ríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins, þar sem
Ísland trónir á toppnum, sagðist
Geir hafa áhyggjur af stöðunni.
„En við erum að vinna að því að
koma henni niður og ég tel allt
benda til þess að það muni takast
fyrir eða um mitt næsta ár. Ég tel
að verðbólgutölurnar sem við
munum sjá á næstum mánuðum
og upphafi næsta árs verði allt
aðrar en verið hefur á þessu
ári.“ - bþs
Forsætisráðherra segir góð teikn á lofti í efnahagsmálum og spáir lægri verðbólgu:
Verðbólgan niður á næsta ári
GEIR H. HAARDE Telur að stjórnvöldum
takist að koma verðbólgunni niður á
miðju næsta ári.
KIRKJUMÁL Tónlistarkonan Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Diddú, telur að
breytingar sem boðaðar hafa verið
á starfsskipulagi í Skálholti verði
til þess að draga til mikilla muna
úr tónlistarlífi í Skálholti og jafn-
vel leggja það í rúst.
„Ég hef haft einstaka ánægju
af því að starfa með Skálholts-
kórnum og lista-
fólki úr sveitun-
um í kring.
Starfið sem hefur
farið fram í Skál-
holti undir stjórn
Hilmars Arnar er
mjög göfugt. Þar
hefur mann-
gæska og kær-
leikur verið haft að leiðarljósi og
skilað sér í ómetanlegu starfi fyrir
íbúa í sveitinni. Ég held að það sé
verið að rústa tónlistarlífi heils
sveitarfélags
með því að segja
Hilmari Erni
upp störfum,“
sagði Sigrún.
Tónlistar-
maðurinn Magn-
ús Þór Jónsson,
Megas, sem
nokkrum sinn-
um hefur komið
fram í Skálholti
á tónleikum,
gagnrýnir vígslubiskupinn í Skál-
holti fyrir valdníðslu. „Mér finnst
þessar breytingar vera eins og
þær séu reiddar fram af einræðis-
herra sem vill sýna vald sitt án
þess að hugsa nokkuð út í afleið-
ingarnar,“ segir Megas og bætir
við að þetta muni skaða Þjóðkirkj-
una. „Þetta er auðvitað mikið högg
fyrir marga en þetta er enn meira
högg fyrir Þjóðkirkjuna.“
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu sagði stjórn Skál-
holts Hilmari Erni Agnarssyni
dómorganista upp störfum vegna
skipulagsbreytinga sem boðaðar
hafa verið í Skálholti. Breyting-
arnar hafa fallið í grýttan jarðveg
hjá heimamönn-
um en sóknar-
nefndar-
formaður
Skálholtssóknar,
Ingólfur Guðna-
son, segir stjórn
Skálholts hafa
farið á bak við
sóknarnefndirn-
ar í héraðinu með boðuðum breyt-
ingum. Því hefur Sigurður
Sigurðarson, vígslubiskup í Skál-
holti, neitað og sagt breytingarnar
hafa verið ræddar með sóknar-
nefndunum áður en þær komu til
framkvæmda.
Hörður Áskelsson, söngmála-
stjóri Þjóðkirkjunnar, vann
greinargerð um tónlistarlífið í
Skálholti fyrir skömmu en hann
var einn þeirra sem beðnir voru
um að koma með tillögur að skipu-
lagsbreytingum í Skálholti. „Mér
var falið það sem fagmanni að
gera úttekt á stöðu mála fyrir þá
sem eru í stjórn Skálholts, og
skoða tónlistarlífið í Skálholti út
frá tónlistarstefnu Þjóðkirkjunn-
ar. Ég legg það til að starfið í Skál-
holti verði enn öflugra, fyrir þá
fjármuni sem Þjóðkirkjan er að
setja í þetta starf, því þetta er eina
starfið við íslenska kirkju sem
Þjóðkirkjan borgar fyrir en ekki
sóknirnar sjálfar. Ég legg það til
að sá sem stýrir tónlistarlífi í Skál-
holti fái meira svigrúm til þess að
starfa sem kirkjutónlistarmaður
að eflingu staðarins sem æðsta
kirkjutónlistarstaðar á Íslandi,“
segir Hörður og leggur áherslu á
að hann hafi ekki komið að skipu-
lagsbreytingunum með neinum
hætti.
Karl Sigurbjörnsson, biskup
Íslands, fundar í dag með kirkju-
ráði Skálholtskirkju vegna máls-
ins. Ekki náðist í biskup í gær.
magnush@frettabladid.is
Diddú og Megas gagnrýna
stjórn Skálholts harkalega
Diddú og Megas, sem hafa reglulega haldið tónleika í Skálholtskirkju, segja tónlistarlífið í Skálholti í upp-
námi vegna uppsagnar dómorganistans. Biskup Íslands fundar í dag með kirkjuráði Skálholtskirkju.
SIGRÚN
HJÁLMTÝSDÓTTIR MEGAS FLYTUR PASSÍUSÁLMANA Í SKÁLHOLTSKIRKJU Megas gagnrýnir stjórn Skál-
holts harkalega fyrir að segja Hilmari Erni Agnarssyni dómorganista upp störfum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMFERÐ Mikil umferðarteppa
myndaðist í Ártúnsbrekku í
Reykjavík í gær í kjölfar
umferðarslyss sem varð skömmu
fyrir hádegi.
Vörubíll með tengivagn, sem
var að flytja rúðugler, valt með
þeim afleiðingum að glerið
dreifðist um götuna og því var
ákveðið að loka Miklubraut frá
Grensásvegi til austurs og upp í
Ártúnsbrekku. Gatan var lokuð í
um þrjár klukkustundir og
mynduðust miklar bílaraðir á
þeim vegum þangað sem umferð-
inni var beint. Engan sakaði í
óhappinu. - shá
Óhapp í Ártúnsbrekku:
Biðraðir í þrjár
klukkustundir
TUTTUGU TONN AF GLERI Mikil hætta
skapaðist þegar glerið féll af flutninga-
bílnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DANMÖRK Víða í Danmörku eru
fjölmennar mótmælaaðgerðir í
undirbúningi. Mikil óánægja
ríkir í landinu með nauman
fjárhag sveitarfélaga, sem hafa
tekið á sig aukin verkefni frá
ríkinu en skortir fé til að sinna
grunnþáttum í velferðarþjónust-
unni eins og leikskólum, grunn-
skólum og umönnun aldraðra svo
vel þyki.
Í gær mótmæltu íbúar í
Árósum með því að loka fyrir
inngang allra leikskóla þar í borg.
Fjölmiðlar skýrðu frá því að víðar
væru fjölmennar mótmæla-
aðgerðir í aðsigi á vegum danska
Alþýðusambandsins. - gb
Danir búa sig undir mótmæli:
Óánægja með
aðhaldsaðgerðir
Nýjar refsiaðgerðir
Stjórnvöld í Japan og Ástralíu sam-
þykktu í gær nýjar refsiaðgerðir gegn
Norður-Kóreu vegna flugskeytatil-
rauna í júlí. Kínversk stjórnvöld lýstu
óánægju sinni með þessar refsi-
aðgerðir og segja þær eingöngu gera
deilurnar um meint kjarnorkuáform
Norður-Kóreu enn erfiðari.
NORÐUR-KÓREA
Mér finnst þessar breyt-
ingar vera eins og þær
séu reiddar fram af einræðisherra
sem vill sýna vald sitt án þess að
hugsa nokkuð út í afleiðingarnar.
MEGAS
TÓNLISTARMAÐUR