Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 20.09.2006, Blaðsíða 102
Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson hefur nú gagnrýnt Hollywood fyrir að setja of mikla pressu á leikkonur að vera of mjóar. Scarlett segir að kynþokki kvenna felist ekki í holdafari og að henni sjálfri finnist ekki fallegt að stelpur líti út eins og strákar, en svo virðist þegar stúlkur eru grindhoraðar. Scarlett segir jafnframt að tískubransinn og kvikmynda- heimurinn séu, með því að leggja áherslu á grannar leikkonur og fyrirsætur, að stuðla að átröskun meðal stúlkna. „Mér finnst Bandaríkjamenn búnir að tapa sér yfir í megrunaráætlanir í stað þess að hugsa frekar um heilbrigt líferni,“ segir Scarlett og bætir því við að hún muni aldrei fara í megrun sjálf enda ánægð með kvenlegan vöxt sinn og ávalar línur. Gagnrýnir Hollywood SCARLETT JOHANSSON Gagnrýnir útlits- dýrkun skemmtanabransans. Noel Gallagher, gítarleikari og aðallagasmiður Oasis, er orðinn hundleiður á að fara í blaðaviðtöl. Segir hann að litli bróðirinn Liam sleppi við allar slíkar skyldur. Jafnframt segist hann myndu hætta í sveitinni ef hann fengi ekki svona vel borgað. „Vegna þess hve ég er vingjarn- legur og Liam er algjör andstæða mín er ég alltaf látinn fara í viðtöl- in. Ég þarf að vinna frá ellefu á morgnana til fjögur á nóttunni og mér finnst það ömurlegt. Hann fær að labba um í sínum asnalegu fötum, rífa kjaft og detta í það,“ sagði Noel. „Ef ég fengi ekki svona mikið borgað myndi ég líklega ekki nenna þessu. Mér finnst það sjúklega skemmtilegt að koma fram á tónleikum en að fara í tón- leikaferð með krakkann okkar er enginn hægðarleikur.“ Oasis gefur út safnplötuna Stop the Clocks í nóvember næstkom- andi. Á plötunni eru lög á borð við Wonderwall og Live Forever. Leiður á viðtölum LIAM OG NOEL Noel Gallagher er orðinn þreyttur á því að Liam sleppi við öll blaðaviðtöl. Tónlistarmenn eru ósáttir við notk- un Morgunblaðsins á erlendu lagi í sjónvarpsauglýsingu. Forsvarsmenn Morgunblaðsins eru sáttir við útkom- una. „Já, síðasta vígið fallið. Ég held að þeir hjá Morgunblaðinu ættu að velta því fyrir sér hvort ekki sé rétt að skrifa bara blaðið á ensku,” segir Magnús Kjartansson, framkvæmdastjóri FTT – Félags tónskálda og textahöfunda. Urgur er í íslenskum tónlistarmönnum vegna þeirrar tilhneigingar íslenskra stór- fyrirtækja, sem hefur verið áberandi að undan- förnu, að nota engilsaxnesk lög til að auglýsa íslenskan varning sinn á íslenskum markaði. „Það er eins og ákveðin öfl í þjóðfélaginu geti ekki beðið eftir því að enska verði gerð að móðurmáli,“ segir Magnús. Hann segir steininn hafa tekið úr með Morgunblaðsauglýsing- unni sem hefur verið leikin í sjónvarpi að und- anförnu. Lag Davids Bowie er notað í auglýs- ingunni, en eins og Fréttablaðið greindi frá í gær spilar Todmobile lagið þó erfitt sé að greina á milli frum- útgáfunnar og útgáfu Todmobile. Er ályktunar að vænta frá FTT á næst- unni en Magnús talar um málið sem hið mesta hneyksli. Magnús bendir á að svo virðist sem skyn- villa sé í gangi hjá markaðsmönnum, ráðgjöf- um, auglýsingastofum og þá ekki síður stjórn- endum fyrirtækja sem þiggja þessi ráð. Þarna séu menn á mjög hálum ís. Hann nefnir til sög- unnar fleiri dæmi. Magnús vísar til þess að kominn virðist upp iðnaður á Íslandi þar sem tónlistarmenn hermi eftir erlendum lögum og breyti þá kannski takti til að komast upp með að nota þau í auglýsingum og þannig megi komast hjá því að greiða flutningsréttinn. En erfitt sé að heyra mun. Þá sé auðveldara að eiga við fyrir- tæki sem hafi með höfundarréttinn að gera. Þau vilji gera sem mest úr því og veiti leyfi til að nota lög fyrir ekki svo mikinn pening. En erfiðara sé að eiga við hljómplötufyrirtæki ef nota eigi lag í upprunalegri útgáfu. Því sé sá leikur leikinn að herma bara eftir lögunum þannig að lítill munur heyrist. „Við ræddum þetta hér en á endanum fannst okkur lagið svo flott og passa það vel við slagorð herferðarinnar að við ákváðum að nota það,“ segir Unnur Ingibjörg Jónsdóttir, markaðsstjóri Morg- unblaðsins. „Við prófuðum að þýða texta lagsins en það kom afleitlega út. Í staðinn ákváðum við að láta þrjár íslenskar hljóm- sveitir flytja lagið og finnst það koma vel út. Meistari Bowie stendur einfaldlega alltaf fyrir sínu og við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð við auglýsingunni. Það má hins vegar vissulega skoða það í víðara samhengi hvort það sé orðið of mikið um þetta á Íslandi,“ segir Unnur. - jbg/hdm FTT fordæmir auglýsingu Moggans MAGNÚS KJARTANSSON Framkvæmdastjóri FTT segir að síðasta vígið sé fallið eftir að Morgun- blaðið notaði lag með erlendum texta í auglýsingu. Ályktunar er að vænta frá FTT um málið. UNNUR INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR Markaðsstjóri Morgun- blaðsins er sáttur við notkun á Bowie-laginu Changes í auglýsingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY IM G ES FRÉTTIR AF FÓLKI Nú er komið á hreint hver mun kynna Evrópsku MTV-verðlauna- hátíðna sem fer fram hjá nágrönn- um okkar í Kaupmannahöfn 2. nóvember. Það er popparinn Justin Timberlake en hann er einnig til- nefndur sem besti karkynsflytjand- inn og besti popparinn. „Ég er ótrú- lega spenntur og upp með mér yfir þessu vali. Mér finnst frábært að hátíðin skuli fara fram í Kaupmannhöfn, sem mér finnst vera æðisleg borg,“ segir Justin en hann er nýbúinn að gefa út plötu sem hefur fallið vel í kramið hjá gagnrýnendum. !óíbí.rk004 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 CLERKS 2 kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MY SUPER EX-GIRLFRIEND kl. 10 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 YOU, ME & DUPREE kl. 6 GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 6 TAKK FYRIR AÐ REYKJA THANK YOU FOR SMOKING CLERKS 2 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45, 8 og 10.15 SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 MY SUPER-EX GIRLFRIEND kl. 5.50, 8 og 10.10 LITTLE MAN kl. 3.50, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 B.I. 7 ÁRA GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 3.50 og 6 GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 4 ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 og 10.15 TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA KVIKMYNDAHÁTÍÐ VOLVER kl. 5.50 og 8 THREE BURIALS OF MELEQUIADES ESTRADA kl. 5.50 ENRON: THE SMARTEST GUYS IN THE ROOM kl. 8 LEONARD COHEN: Í M YOUR MAN kl. 6 og 10 FACTOTUM kl. 6 og 10.10 EMPIRE DV Heiðarleg, fróðleg og bráðskemmtileg mynd "BIÐIN VAR VEL ÞESS VIRÐI, OG SMITH KLIKKAR EKKI Í EINA MÍNÚTU. FYNDNASTA GAMANMYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU!" KVIKMYNDIR.IS sími 581 1281 • gitarskoli@gitarskoli.is Gítarnámskeið Einkatímar Heildarlausn fyrir snyrtinguna Lotus Professional Rekstrarvörur Sími 520 6666 sala@rv.is www.rv.is 3.9 82 kr. R V 62 15 E kuskápur Blár enMotion snertifrír skammtari Bl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.