Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 21

Fréttablaðið - 20.09.2006, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 20. september 2006 21 BRÉF TIL BLAÐSINS AF NETINU Umræðan Líf í nýju landi Ég las nýlega grein um konu í blaðinu þar sem hún vildi vita hvert íslenska ríkisstjórnin stefndi varðandi málefni innflytjenda. Hún kom með marga góða punkta í greininni sem væri við hæfi að skoða vandlega. Í mörgum löndum í Evrópu í dag er Evrópusambandið ásamt ríkisstjórnum, sveitarfélög- um, félagasamtökum og almenningi að vinna hörðum höndum saman að því að kynna hugtakið ÞÁTTTAKA. Það er að segja að vekja almenning til umhugsunar á mikilvægi þess að hvetja og aðstoða alla í samfélaginu til að vera virkir þátttakendur óháð uppruna, trú, þjóðerni, kynþáttar, litarhætti, útliti o.s.frv. Þetta er nokkuð sem við verðum öll að gera okkur grein fyrir og vera meðvituð um. En sérstaklega ríkisstjórn- in. Við verðum að gera öllum kleift að vera með og í leiðinni að fjarlægja það sem heldur okkur í sundur þ.á m. fordóma, misskilning, óþarfa ótta, fáfræði, staðalmyndir, öfgahyggju, hatur o.s.frv. En þetta á að vera gagn- kvæmt. Ríkisstjórnin má ekki bíða of lengi fyrir hlutina að byrja að versna áður en þau grípa í taumana eins og hefur oft gerst erlendis. Það margborg- ar sig að gera ráðstafan- ir um leið og samfélagið er augljóslega byrjað að breytast. En þau sem ef til vil vilja leggja leið sína hingað eða eru nú þegar hérna þurfa líka að leggja sitt af mörk- um og sýna fúsleika til að vera með og það þýðir oft á tíðum hugar- farsbreytingar hjá þeim líka. Svo þurfa ráðamenn að gera sér grein fyrir þvi að í þessu samhengi er alltaf þörf fyrir samstarf við félagasamtök. Í dag er hægt að finna slíkt á Íslandi að nafni Ísland Panorama. Við verð- um að gera allt til að forðast það sem við höfum séð gerast í kring- um okkur og á öðrum stöðum álf- unnar. Við getum gert þetta vel ef við forðumst aðgerðarleysi og bregðumst við tímanlega og það er nú. Ísland er orðið stór partur af svokölluðu alþjóðlegu samfélagi þar sem fólk af mismunandi upp- runa þarf daglega að eiga í gagn- kvæmum samskiptum. Við þurf- um ekki að vera eitthvað hrædd eða fordómafull bara því að sumir eru öðruvísi að sjá. Og þau sem vilja koma þurfa að vera tilbúin fyrir breytingar í lífinu. Sýnum umburðarlyndi og gefum öllum tækifæri. Byggjum betra samfé- lag sem er öllum í hag og verum til fyrirmyndar. Ríkisstjórn og ráða- menn, ekki fresta nauðsynlegum aðgerðum endalaust. Framkvæm- um nú. Næsta ári er Evrópu árið fyrir „Jafnræði fyrir alla“ eða European Year of Equal Opportun- ities. Félagsmálaráðuneytið hyggst taka þátt og vonumst við til þess að þetta verði sýnt í verki. Við höfum engu að tapa og allt til að vinna. Höfundur er formaður Ísland Panorama samtakanna. Gagnkvæm virðing, jafnræði og breytilegt samfélag AKEEM CUJO OPPONG Umferðaröryggi, hvað er nú það? Sigurður Þórsson, bifreiðarstjóri í Neskaupstað, hneykslast á reglu- gerð. Ég ek svokölluðum „efnistrailer“, sem hefur verið ágætt til þessa. Nú er það búið vegna þess að einhver möppu- dýr í kerfinu smíðuðu reglugerð um stærð og þyngd ökutækja, sem er algjörlega glötuð. Hún gerir þessa stóru bíla alveg stórhættulega í akstri. Þar segir að frá miðju aftasta hjóls á bíl og í fremsta hjól eftirvagns skulu ekki vera minna en 3 metrar. Vegna þessa verður að breyta stól á bíl og færa allt að 65 sentimetra aftar á bílnum. Kemur hann þá nánast eingöngu á öftustu hásingu, sem veldur því að bíllinn verður allt of léttur að framan og lætur afskaplega illa að stjórn – fer jafnvel beint áfram í beygjum þegar hann er lestaður. Þessir bílar eru hannaðir og prófaðir á allan hátt hjá verksmiðjunum og gefið út hvað hver ás má bera. En þessir herramenn álíta sig betur í stakk búna en hönnuðina og leyfa sér að ógna vegfarendum með þessum aðgerðum, og ráðherra skrifar undir þetta. Ætla þeir að axla ábyrgðina ef það verður banaslys af þessu? Því ábyrgðin er þeirra. Skrítinn flokkur jong skrifar á skoðanasíður á visir.is. Samfylkingin studdi Kárahnjúka- virkjun. Það sást best á upptalningu Hallgríms Helgasonar í Lesbók Morgunblaðsins á þeim alþingis- mönnum sem greiddu atkvæði sitt með virkjuninni. Frábær grein Hall- gríms. Samfylkingin er mjög skrýtinn flokkur sem lagar sig að aðstæðum og andstæðingum hverju sinni. For- maðurinn núverandi sem átti að raka saman fylgi gerir það ekki vegna þess að allir sjá nema hörðustu stuðn- ingsmenn formannsins að hann var stórlega ofmetinn stjórnmálamaður og leiðtogi. Verst að sennilega verður Ingibjörg Sólrún forsætisráðherra á endanum. Við þurfum ekki að vera eitt- hvað hrædd eða fordómafull bara því að sumir eru öðruvísi að sjá. vaxtaauki! 10%
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.