Fréttablaðið - 20.09.2006, Qupperneq 104

Fréttablaðið - 20.09.2006, Qupperneq 104
36 20. september 2006 MIÐVIKUDAGUR > Ólafur liggur undir feldi Ólafur Þórðarson knattspyrnuþjálfari liggur nú undir feldi og mun senn ákveða framtíð sína í knattspyrnunni. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið að hann væri að skoða sín mál en vildi ekki staðfesta hvort hann ætti í viðræðum við eitt eða fleiri félög. Hann staðfesti þó að hann hefði hafnað tilboði frá ÍR fyrir skömmu en hann hefur einnig verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Þrótti. Þá sagði hann einnig að til greina kæmi að hætta alfarið þjálfunarstörfum en yrði þá mikil eftirsjá að honum. Keflvíkingurinn Hörður Sveinsson, leikmaður Silkeborgar í Dan- mörku, varð fyrir því leiðinlega atviki í síðustu viku að vera skall- aður í andlitið af samherja sínum. Hörður sagði málið vera graf- ið og að atvikið hefði átt sér stað í hita leiksins. „Það var bara smá æsingur á æfingunni sem er búið að leysa. Þetta var bara leyst strax og ekkert vandamál,“ sagði Hörður í samtali við Fréttablaðið í gær. „Það var bara hasar á æfingunni og þetta var ekkert alvar- legt. Málið var svo bara afgreitt þannig að menn myndu ekkert tjá sig um þetta og málið yrði leyst innan félagsins. Mér semur mjög vel við þenn- an samherja minn utan vallar. Svona gerist bara í hita leiksins en þetta var auðvitað leiðinlegt atvik,“ sagði Hörð- ur, sem fékk blóðnasir og rispu á nefið við skallann. Hörður sagði í samtali við Fréttablaðið fyrr í þessum mánuði að hann væri mjög sáttur hjá Silkeborg og hann sagði að þetta atvik breytti engu þar um. „Þetta er bara til að krydda tilveruna. Það þýðir ekkert að erfa þetta, sérstaklega núna þegar við erum vonandi komnir á beinu brautina,“ sagði Hörður en Silkeborg sigraði Vejle 4-2 í síðasta leik. Hörður sagðist ekki finna fyrir pressu af stuðningsmönnum Silkeborgar þrátt fyrir að stigin hefðu ekki verið að skila sér í hús. „Þetta hefur verið ósköp þægilegt og við höfum alveg fengið að æfa í friði. Við erum búnir að vera óheppnir í þessum leikjum og alls ekkert mikið slakari en hin liðin. Nema kannski í leiknum á móti FC Kaupmannahöfn. Þeir eru með hrikalega sterkt lið,“ sagði Hörður og hann vildi ekki meina að umrætt atvik á æfingunni í síðustu viku hefði verið vegna gremju leikmanna með gengi liðsins. „Gremjan hefur verið furðulítil vegna þess að við höfum verið að spila vel, það vantar bara að fá síð- ustu sendinguna á réttan stað. Það er verið að vinna í þessu og við skoruðum nú fjögur mörk í síðasta leik. Það er bara vonandi að það opnist einhverjar flóðgáttir í kjölfarið.“ HÖRÐUR SVEINSSON: LENTI Í HELDUR LEIÐINLEGU ATVIKI Á ÆFINGU MEÐ SILKEBORG Í SÍÐUSTU VIKU Var skallaður af samherja á æfingu FÓTBOLTI Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er Guðjón Þórðar- son sterklega orðaður við ÍA sem næsti þjálfari liðsins en hann hefur lýst yfir áhuga á starfinu og segir aðila á Akranesi hafa komið að máli við sig um að þjálfa liðið. Ekki er þó búið að skrifa undir neina samninga og það er ekkert fast í hendi í knattspyrnuheimin- um fyrr en búið er að skrifa undir. Það veit Guðjón líka en hann sagði í viðtali við nafna sinn Guð- mundsson á Sýn um síðustu helgi að hann væri ekki á vonarvöl þó hann fengi ekki starfið hjá ÍA og að það væru fleiri kostir í stöð- unni. Fréttablaðið fór á stúfana og skoðaði hvaða aðra möguleika Guðjón á hér á landi. Fréttablaðið gefur sér að FH, KR. Valur, Keflavík og ÍBV komi hreinlega ekki til greina. Þrjú fyrstu liðin eru með þjálfara, Keflavík fer klárlega ekki aftur í samstarf við Guðjón og svo verð- ur að teljast mjög ólíklegt að hann fari til ÍBV í 1. deildinni. Að mati Fréttablaðsins koma þar af leiðandi átta lið til greina hér á landi sem gætu mögulega ráðið Guðjón í vinnu - Breiðablik, Fylkir, Grindavík, Víkingur, Fram, HK, Þróttur og Stjarnan. Forráðamenn Breiðabliks sögðu að það væri pólitískur vilji af hálfu félagsins og Ólafs Kristjánssonar um að gera nýjan samning. Sama þótt liðið félli. Þegar spurt var hvort félagið hefði áhuga á Guðjón Þórðarsyni var svarið klárt nei. Fylkismenn eru með samning við Leif Garðarsson sem rennur ekki út fyrr en eftir tvö ár og hann verður virtur að sögn Harðar Antonssonar, formanns meistara- flokksráðs Fylkis. Hjá nýliðum HK fengust þau svör að þar væri enginn áhugi á að skoða þjálfaraskipti og verður því að teljast ansi líklegt að Gunn- ar Guðmundsson haldi áfram með liðið. Þróttur hefur samkvæmt heimildum blaðsins engan áhuga á Guðjóni en félagið hefur verið í viðræðum við Ólaf Þórðarson, fyrrum þjálfara ÍA. Nokkra athygli vekur að Grindavík vill ekki loka á þann möguleika að semja við Guðjón, sem var kominn langleiðina til félagsins á sínum tíma en tók u- beygju við Bláa lónið á elleftu stundu og samdi við Keflavík. Sú ákvörðun fór ekki vel í þá aðila sem voru tilbúnir að greiða laun Guðjóns og spurning hvort þeir séu til í að setja pening í Guðjón í dag. Ákveðið óvissuástand er í her- búðum Stjörnunnar þar sem Bjarni Benediktsson er að láta af formennsku í knattspyrnudeild- inni og ekki er enn ljóst hver tekur við af honum. Jörundur Áki Sveinsson hefur þjálfað liðið síð- ustu ár en ekki liggur fyrir hvort hann muni gera það áfram. Það er því ekki hægt að afskrifa Stjörn- una en oft hafa fundist peningar fyrir íþróttalífið í bænum þegar á þarf að halda. Róbert Agnarsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings, sagði að félagið væri með þjálfara og væri ánægt með hann. Magnús Gylfason á tvö ár eftir af núver- andi samningi við félagið en samn- ingurinn er væntanlega uppsegjan- legur af beggja hálfu í lok móts. Aðspurður vildi Róbert ekki neita því að félagið hefði áhuga á Guð- jóni. Undir stjórn Ásgeirs Elíasson- ar vann Fram 1. deildina í sumar en þrátt fyrir það er Ásgeir ekki öruggur um stöðu sína. Samning- ur Ásgeirs við Fram er með endur- skoðunarákvæði að loknu hverju tímabili og að sögn Finnbjörns Agnarssonar, formanns Fótbolta- félags Reykjavíkur, er stjórnin að skoða framhaldið en hann var ekki til í að slá því föstu að Ásgeir yrði áfram við stjórnvölinn. Aðspurður hvort félagið hefði áhuga á Guðjóni Þórðarsyni svar- aði Finnbjörn: „Hvaða lið hefur ekki áhuga á Guðjóni Þórðar- syni?“ henry@frettabladid.is Hvaða kosti á Guðjón Þórðarson? Guðjón Þórðarson sagðist í sjónvarpsviðtali um helgina ekki vera á vonarvöl fengi hann ekki vinnu hjá ÍA, fleiri kostir væru í stöðunni. Samkvæmt úttekt Fréttablaðsins eru aðeins fjórir mögulegir kostir í stöðunni hjá Guðjóni fyrir utan ÍA. Ekki er samt víst að öll þessi félög muni leita eftir hans kröftum. HVAÐA LIÐ ÞJÁLFAR HANN? Guðjón Þórðarson er kominn heim og ætlar að þjálfa lið hér á landi næsta sumar. ÍA er líklegt en ef það gengur ekki upp virðist Guðjón eiga fjóra möguleika í stöðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mögulegur áhugi á Guðjóni: Fram Grindavík Stjarnan Víkingur Ólíklegt að reyni við Guðjón: Breiðablik FH Fylkir HK ÍBV Keflavík Valur Þróttur FÓTBOLTI Þegar stundarfjórðung- ur var liðinn af leik Brann og Sandefjord í norsku úrvalsdeild- inni um helgina varð Kristján Örn Sigurðsson fyrir olnboga- skoti andstæðingsins og nefbrotnaði við höggið. Hann kláraði engu að síður leikinn og af því var læknir liðsins, Ola Jösendal, ekki hrifinn. „Það var ekki gott að sjá til þeirra. Það væri engu líkara að þeir hefðu lent í götuslagsmálum,“ sagði Jösendal en annar leikmaður Brann, Erlend Hanstveit, lék með lausa framtönn í leiknum eftir samstuð við leikmann. Hann sagði að hann væri hræddur leikmannanna vegna en þeir eru óneitanlega mikil hörkutól. Sjálfur sá Kristján ekkert athugavert við þetta. „Ég fann ekki fyrir neinum sársauka eða varð var við neitt annað vandamál,“ sagði Kristján við Bergens Tidende. - esá Læknir Brann í Noregi: Ósáttur við að Kristján spilaði FÓTBOLTI Vefmiðillinn Soccernet vakti athygli á því í gær að FH væri fyrsta liðið sem væri búið að tryggja sér þátttökurétt í forkeppni Meistaradeildarinnar sem hefst á næsta ári. Riðlakeppnin í núverandi móti er rétt nýhafin. FH tók þátt í forkeppninni nú í sumar, rétt eins og í fyrra, en féll úr leik í 2. umferð fyrir pólska liðinu Legia Varsjá. FH mun því þurfa að bíða í ansi langan tíma eftir því að spila á ný í Meistaradeildinni og þessi bið vekur nokkra athygli hjá erlendum félögum. - esá Íslandsmeistarar FH: Fyrstir í Meist- aradeildina FÓTBOLTI Á spjallsíðu ÍA var fyrir tveim dögum sett í gang skoðana- könnun á meðal stuðningsmanna liðsins um hvort þeir vildu fá Guð- jón Þórðarson sem þjálfara eða halda tvíburunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssonum áfram. Um kvöldmatarleytið í gær höfðu aðeins tíu stuðningsmenn félagsins kosið. Sjö gáfu Arnari og Bjarka sitt atkvæði, Guðjón fékk tvö en einn vill hvorugan þessara kosta. Stuðningsmennirnir ræða málið einnig á síðunni og þá kemur í ljós að ekki eru allir jafn hrifnir af því að fá Guðjón aftur upp á Akranes en yfirveguðustu stuðn- ingsmennirnir vilja geyma umræðuna fram yfir næstu helgi og benda á að mikilvægast sé að styðja liðið um næstu helgi og tryggja um leið sætið í Lands- bankadeildinni endanlega. - hbg Kosning um Arnar og Bjarka eða Guðjón Þórðarson: Skoðanalausir Skagamenn? TVÍBURARNIR VINSÆLIR Fleiri Skaga- menn vilja að þeir haldi áfram en að Guðjón taki við, samkvæmt skoðana- könnun á heimasíðu ÍA. sport@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.