Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 10
Slökkvum ljósin og
horfum á stjörnurnar
á morgun klukkan 22:00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
39
50
09
/2
00
6
GANGA FERÐAMANNAIÐNAÐARINS
Stúlkan klæddist þessum litríka bún-
ingi í göngu til heiðurs ferðamanna-
iðnaðinum í Peking, höfuðborg Kína.
Talið er að ferðamannastraumur til
landsins aukist um átta prósent á
árinu. NORDICPHOTOS/AFP
BIFRÖST Mikil ólga er á meðal
starfsfólks Háskólans á Bifröst
vegna stjórnunarhátta æðstu
manna og skipulagsbreytinga sem
hafa átt sér stað innan skólans að
undanförnu. Starfsmannafélag
skólans samþykkti nýverið álykt-
un um að óska eftir fundi með
stjórn skólans vegna þessa. Ein-
ungis þrír af 45 fundarmönnum
lögðust gegn ályktuninni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins beinist óánægjan fyrst
og fremst að stjórnun skólans í
rektorstíð Runólfs Ágústssonar.
Hann þykir ekki hafa aðlagað
stjórnunarstíl sinn nægilega vel
að stækkun skólans, en Háskólinn
á Bifröst hefur vaxið gífurlega
síðan hann tók við. Stjórnunar-
hættir Runólfs þóttu ganga mjög
vel þegar verið var að byggja Bif-
röst upp sem fyrirtæki og skóla.
Nú sé skólinn hins vegar af þeirri
stærðargráðu að persónulegur
stjórnunarstíll Runólfs virki ekki
í þessu umhverfi og að þörf sé á
faglegri og hlutlausari vinnu-
brögðum.
Sjálfur segist Runólfur ekki
hafa fundið fyrir því að ólga
starfsfólksins hafi beinst gegn
sinni persónu. „Við erum að gera
miklar skipulagsbreytingar í kjöl-
far stækkunar skólans. Slíkar
breytingar hafa alltaf ólgu í för
með sér. En ég upplifi þetta ekki
þannig að þetta beinist gegn minni
persónu.“
Runólfur telur óánægjuna
sprottna vegna sparnaðaraðgerða
og breytinga á skipulagi skólans
sem hafi átt sér stað að undan-
förnu en vildi ekki tjá sig um
hvort að stjórnunarhættir hans
væru óviðeigandi. „Ég kem mjög
lítið að daglegri stjórnun Bifrast-
ar í dag. Mitt hlutverk er að vinna
að stefnumótun og þróunarstarfi,
ekki daglegri stjórnun skólans.“
Hólmfríður Sveinsdóttir, for-
maður starfsmannafélags Háskól-
ans á Bifröst, segir það ekki rétt
að óánægjan snúist um sparnað-
araðgerðir og skipulagsbreyting-
ar. Að hennar sögn snýst ályktun-
in fyrst of fremst um það hvernig
ákvarðanir hafi verið teknar að
undanförnu varðandi stjórnskipu-
lag skólans og um ákveðnar reglu-
gerðarbreytingar sem hafi fært
akademíska mótun frá kennurum.
Bæði Runólfur og stjórnarfor-
maður skólans eru staddir erlend-
is og því er búist við að fundur
stjórnar og starfsmanna verði
ekki haldinn fyrr en í næstu viku.
thordur@frettabladid.is
Ólga meðal
starfsfólks
Næstum allir fastráðnir starfsmenn Háskólans á
Bifröst samþykktu nýverið gagnrýna ályktun um
stjórnunarhætti og breytingar á skipulagi skólans.
BIFRÖST Óánægja ríkir hjá starfsmönnum með stjórnunarhætti og breytingar á
skipulagi.
TAÍLAND, AP Talið er að fyrrverandi
forsætisráðherra Taílands, sem
steypt var af stóli í valdaráni
stjórnarhersins í síðustu viku,
hafi ekki verið ókunnugt með öllu
um það sem í vændum var. Óstað-
festar fregnir herma að Thaksin
Shinawatra hafi farið með 58 stór-
ar ferðatöskur með sér í ferð þá
sem hann var í þegar valdaránið
átti sér stað. Auk þess eiga 56
stórar ferðatöskur að hafa komið
með annarri vél örfáum dögum
fyrir valdaránið.
Thaksin fór fyrst til Finnlands
og þaðan til New York, en talið er
að hann sé nú staddur í Bretlandi,
þar sem hann á eign.
Finnsk yfirvöld höfðu enga
heimild til að gera tollleit í vélum
forsætisráðherrans, því Thaksin
naut friðhelgi meðan á dvölinni í
Helsinki stóð, kemur fram í
finnska blaðinu Helsingin
Sanomat.
Líklegt er að fyrrverandi
hershöfðingi muni fylla í skarð
Thaksins, kom fram í máli
yfirmanna hersins í gær, en strax
eftir valdaránið sagðist herinn
ekki ætla að halda völdum lengi.
Jafnframt var fjöldi almennra
borgara skipaður í ráðgjafastöð-
ur í gær.
Þótt valdaráninu hafi verið
fagnað mjög meðal Taílendinga,
hafa vestræn ríki gagnrýnt það.
- smk
Ferð fyrrverandi forsætisráðherra Taílands þykir grunsamleg:
Tók 114 ferðatöskur með í för
STAÐIÐ VÖRÐ Líklegt þykir að herinn
muni halda áfram völdum í Taílandi eftir
valdarán hersins í síðustu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Um 86 prósent starfs-
manna Reykjavíkurborgar eru
ánægðir í starfi að því er fram
kemur í viðhorfskönnun meðal
starfsmanna borgarinnar.
Í könnuninni var spurt um
atriði sem lúta að hæfni starfs-
manna, stjórnunarhætti og
starfsumhverfi.
Í könnuninni kemur einnig
fram að yfir níutíu prósent
starfsmanna eru tilbúnir til að
takast á við breyttar vinnuaðstæð-
ur og 85 prósent eru ánægðir með
samskipti við næsta yfirmann. Þá
telja yfir áttatíu prósent að taka
eigi tillit til árangurs og frammi-
stöðu við ákvörðun launa. - hs
Starfsmenn borgarinnar:
Vilja að árang-
ur ákvarði laun
NOREGUR Norskir gyðingar hafa
brugðist harkalega við ummælum
Miryam Shomrats, sendiherra
Ísraels í Noregi og á Íslandi, um
að norska konungsfjölskyldan
hafi ekki stutt gyðinga þegar
skotið var á samkunduhús
gyðinga í Osló nýverið.
Anne Sender, talskona norskra
gyðinga, segir ótækt að sendi-
herra Ísraels geri sig að forsvars-
konu norskra gyðinga. „Hún
hefur sjálfsagt fullan rétt á sínum
skoðunum, en hún getur ekki
talað fyrir okkar hönd,“ segir
Sender.
Shomrat bað Sender afsökunar
í gærmorgun. - smk
Sendiherra skammaður:
Norskir gyðingar
ekki einir á báti
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI