Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 21
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Vilhjálmur Þorsteinsson hefur síðustu
ár verið að læra myndlist í Myndlista-
skólanum í Reykjavík. Hann mælir með
skólanum fyrir alla.
Vilhjálmur byrjaði fyrir fjórum árum að taka
stök kvöldnámskeið í Myndlistaskólanum.
„Ég tók þetta tiltölulega skipulega og byrjaði
í teikningu 1 sem er svona grunnnámskeið í
teikningu með blýanti og hélt svo áfram yfir í
módelteikningu, litafræði, portrettteikningu
og olíumálun,“ segir hann.
Síðasta vetur var Vilhjálmur í fullu námi í
fornámsdeild Myndlistaskólans. „Í fornám-
inu lærum við meðal annars listasögu, alveg
frá hellamálverkum til nútímans og vinnum
skrifleg verkefni sem felast yfirleitt í því að
fara á sýningu og skrifa um hana eða taka
fyrir einhvern ákveðinn listamann. Við erum
í skólanum alla daga frá níu til fjögur eða
lengur og það er mjög gaman að vera í skólan-
um heilu dagana og vikurnar, niðursokkinn í
það sem maður er að gera.“
Þeir sem fara í fornámið í Myndlistaskól-
anum geta fengið einingarnar metnar inn í
framhaldsskóla. „Margir sem eru í fornám-
inu eru að undirbúa sig fyrir listaháskóla og
eru að byggja upp möppu með verkum og æfa
sig og þjálfa. Flestir sem voru með mér í bekk
sóttu um í Listaháskólanum og komust nánast
allir inn í hann í haust. Ég er á svolítið öðrum
stað í lífinu og eldri en flestir sem voru með
mér og var að taka þetta meira fyrir sjálfan
mig sem svona sjálfsrækt.“
Vilhjálmur segist líka aðeins hafa verið að
læra ljósmyndun og á photoshop í Myndlista-
skólanum. „Ég hef eiginlega prófað allt sem
skólinn hefur upp á að bjóða nema keramik-
ið,“ segir hann og hlær. „Í skólanum er líka
kennt umbrot og vídeógerð svo námskeiðin
eru ansi fjölbreytt. Kennararnir eru mjög
góðir en þeir eru yfirleitt starfandi listamenn
og gaman að kynnast þeim.“
Í vetur ætlar Vilhjálmur að taka að minnsta
kosti eitt námskeið í Myndlistaskólanum. „Ég
er ekki alveg búinn að velja námskeið en það
er líklegast að ég fari í einhverja olíumálun.
Það er mjög gaman að vera í skólanum og
virkilega góð reynsla sem ég get alveg mælt
með fyrir þá sem hafa einhvern áhuga á þessu
sviði,“ segir hann. emilia@frettabladid.is
Myndlist sem sjálfsrækt
Vilhjálmur hóf nám í myndlist fyrir fjórum árum með því að taka stök kvöldnámskeið. FRÉTTABLAÐIÐ/
Nýr kortavefur um Ísland,
www.map24.is, hefur verið
opnaður. Þar verður hægt að
fletta upp heimilisföngum,
finna hótel og bóka gistingu og
fá leiðarvísi á milli staða o.s.frv.
Loftmyndir ehf. og MapSolute
standa að vefnum sem verður
öllum opinn. Nánar um opnun
vefsins á www.ferdamalastofa.
is.
Niðurstöður á rannsókn sem
gerð var á íslenskri mannauðs-
stjórnun verða kynntar á
morgunverðarfundi í dag kl.
08.30 í Háskólanum í Reykjavík
og lýkur kl. 10.00. Hér er á ferð
stærsta rannsókn af þessu tagi
sem framkvæmd hefur verið á
Íslandi. Ókeypis er á fundinn
en sætafjöldi takmarkaður. Sjá
www.hr.is.
Nýr sýningarsalur verður opn-
aður í húsakynnum Bílaþings
Heklu á Laugavegi 174 í þessari
viku. Nánari upplýsingar á
heimasíðu fyrirtækisins, www.
hekla.is.
ALLT HITT
[NÁM BÍLAR FERÐIR]
REYNSLUAKSTUR SUBARU LEGACY
Líklega bestu kaupin í dag
BÍLAR 4
Á SLÓÐUM ÍSLENDINGA
Guðlaugur Arason leiðir fróð-
leiksfúsa Íslendinga á slóðir
forfeðranna í Kaupmanna-
höfn FERÐIR 5
FRAMTÍÐ TOP
GEAR ÞÁTT-
ANNA EKKI
LJÓS.
Richard Ham-
mond, einn af
stjórnendum
bresku Top
Gear bílaþátt-
anna, er loksins
á batavegi.
Hammond
hlaut alvarlega
höfuð- og
heilaáverka
fyrir viku þegar
þotuhreyfilsbíll
sem hann ók
fór margar
veltur eftir að dekk sprakk á um það bil 450 kílómetra hraða.
Samkvæmt Jeremy Clarkson, sem kallar Hammond yfirleitt
Hamstur, er hann smám saman að líkjast sjálfum sér og komst til
meðvitundar rúmum sólarhring eftir slysið. Óvissu gætir þó með
framhaldið þar sem höfuðáverkarnir gætu haft varanleg áhrif.
Á sama tíma er framtíð Top Gear þáttanna óljós en ekkert verður
ákveðið um næstu seríu fyrr en Hammond verður rólfær.
Hamsturinn á batavegi
Hamsturinn er smám saman að líkjast sjálfum
sér en er enn þungt haldinn.
Heimild: Almanak Háskólans
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
27. september, 270. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.24 13.19 19.12
Akureyri 7.09 13.03 18.56