Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 82
34 27. september 2006 MIÐVIKUDAGUR LIÐ ÁRSINS 2006 4-4-2 Tryggvi Guðmundsson Ármann Smári Björnsson Guðmundur Sævarsson Jónas Guðni Sævarsson Bjarni Guðjónsson Gunnlaugur Jónsson Marel Jóhann Baldvinsson Ingvar Kale Viktor Bjarki Arnarsson Hólmar Örn Rúnarsson Tommy Nielsen BESTA MEÐALEINKUNN LEIK- MANNA Í LANDSBANKADEILDINNI: Til greina koma aðeins þeir sem léku að lágmarki 12 leiki. 1. Bjarni Guðjónsson, ÍA 6,94 2. Viktor B. Arnarsson, Víkingur 6,89 3. Ármann Smári Björnsson, FH 6,80 4. Tommy Nielsen, FH 6,75 5. Hólmar Rúnarsson, Keflavík 6,73 6. Jónas Sævarsson, Keflavík 6,72 7. Tryggvi Guðmundsson, FH 6,65 8. Marel Baldvinsson, Breiðabl. 6,62 9. Ingvar Þór Kale, Víkingur 6,61 10. Guðmundur Sævarsson, FH 6,60 11. Gunnlaugur Jónsson, KR 6,53 12-15. Höskuldur Eiríksson, Vík. 6,50 12.15. Birkir Sævarsson, Valur 6,50 12-15. Guðmund. Steinars., Kef 6,50 12-15. Bjarki Guðmundsson, ÍA 6,50 16-20. Ásgeir G. Ásgeirsson, FH 6,44 16-20. Jóhann Þórhallsson, Gri. 6,44 16-20. Eyjólfur Héðinsson, Fylkir 6,44 16-20. Daði Lárusson, FH 6,44 16-20. Kristján Finnbogason, KR 6,44 21. Óðinn Árnason, Grindavík 6,41 22. Grétar Sigurðsson, Víkingur 6,39 23. Barry Smith, Valur 6,38 24-25. Grétar Hjartarson, KR 6,38 24-25. Guðmundur Mete, Kef. 6,38 26-27. Óskar Hauks., Grind. 6,33 26-27. Peter Gravesen, Fylkir 6,33 28-29. Milos Glogovac, Víkingur 6,29 28-29. Sigurvin Ólafsson, FH 6,29 30. Atli Þórarinsson, Valur 6,28 31. Fjalar Þorgeirsson, Fylkir 6,27 32-33. Ragnar Sigurðsson, Fylk. 6,22 32-33. Kjartan Sturluson, Valur 6,22 34. Sigmundur Kristjánsson, KR 6,20 35. Guðjón Antoníusson, Kef. 6,17 36-38. Arnar Gunnlaugsson, ÍA 6,13 36-38. Baldur Sigurðsson, Kef. 6,13 36.38. Árni Guðmundsson, ÍA 6,13 LÆGSTA MEÐALEINKUNN: Lágmark 12 leikir spilaðir. Jón Guðbrandsson, Víkingur 4,56 Matt Garner, ÍBV 4,83 Pétur Runólfsson, ÍBV 5,00 Ólafur Páll Snorrason, FH 5,00 Bjarni Geir Viðarsson, ÍBV 5,12 Hrafn Davíðsson, ÍBV 5,14 Arnar Þór Úlfarsson, Fylkir 5,18 Magnús Þorsteinsson, Keflavík 5,21 Árni K. Gunnarsson, Breiðablik 5,22 Dalibor Pauletic, KR 5,29 Branislav Milicevic, Keflavík 5,36 Kristján Valdimarsson, Grindavik 5,42 Mario Cizmek, KR 5,46 Kristinn Hafliðason, Valur 5,47 Christian Christiansen, Fylkir 5,47 Kári Steinn Reynisson, ÍA 5,50 Pálmi Haraldsson, ÍA 5,50 Valur Úlfarsson, Víkingur 5,53 Óli Stefán Flóventsson, Grinda. 5,53 Jonah Long, ÍBV 5,56 Páll Hjarðar, ÍBV 5,57 BESTA MEÐALEINKUNN LIÐA: (Umferðir 1-18) 1. FH 6,14 2. Valur 6,06 3. Keflavík 6,05 4. Víkingur 5,91 5. ÍA 5,90 6. Grindavík 5,87 7. Fylkir 5,78 8. KR 5,77 9. Breiðablik 5,76 10. ÍBV 5,31 (Umferðir 1-9) 1. FH 6,24 2. Keflavík 6,02 3. Víkingur 6,00 4. Grindavík 5,92 5. Valur 5,87 6. Fylkir 5,86 7. Breiðablik 5,60 8. ÍBV 5,40 9. KR 5,39 10. ÍA 5,38 (Umferðir 10-18) 1. ÍA 6,44 2. Valur 6,26 3. KR 6,17 4. Keflavík 6,07 5. FH 6,04 6. Breiðablik 5,92 7-8. Víkingur 5,82 7-8. Grindavík 5,82 9. Fylkir 5,70 10. ÍBV 5,22 BESTA MEÐALEINKUNN DÓMARA: Inni í meðaltalinu er einkunnagjöf Jóhannesar Valgeirssonar fyrir tvo hálfleika sem hann dæmdi og ein- kunn dómaranna sem leystu hann af í síðari hálfleikjunum eftir að hann meiddist (Magnús og Garðar). 1. Kristinn Jakobsson (12 leikir) 7,25 2. Einar Örn Daníelsson (5 leikir) 6,8 3. Jóhannes Valgeirs. (12 leikir) 6,58 4. Garðar Hinriksson (16 leikir) 6,375 5. Ólafur Ragnarsson (12 leikir) 6,25 6, Egill Markússon (11 leikir) 6,09 7. Magnús Þórisson (6 leikir) 5,83 8. Erlendur Eiríksson (10 leikir) 5,5 9. Eyjólfur Kristinsson (8 leikir) 5,25 LANDSBANKADEILDIN FÓTBOLTI Það vakti mikla athygli þegar bræðurnir Bjarni og Þórður Guðjónssynir sneru heim úr atvinnumennsku í vetur og gengu í raðir uppeldisfélags síns, ÍA. Með þeirra komu voru gerðar miklar væntingar til liðsins sem það stóð að lokum engan veginn undir. ÍA tapaði fimm fyrstu leikj- um sínum í deildinni og var aðeins með sex stig eftir fyrri hluta móts- ins og í verulega vondum málum. Allt annað var að sjá til ÍA-liðsins seinni hlutann og spilamennska liðsins þá bjargaði því að lokum frá falli. Það var ekki síst að þakka góðum leik Bjarna Guðjónssonar sem var í raun eini leikmaður ÍA sem lék vel nánast allt sumarið og var mjög stöðugur í leik sínum. „Gaman að heyra þetta. Ef ég man rétt þá var ég líka bestur í deildinni fyrir mótið samkvæmt könnun sem þið voruð með þannig að þetta er ánægjulegt,“ sagði Bjarni kátur en ætli hann hafi verið ánægður með sumarið hjá sjálfum sér? „Nei, ég hefði nú getað spilað betur. Annars var tímabilið þannig að ég byrjaði í vörninni, svo var ég færður upp á miðjuna og spilaði tvær mismun- andi stöður þar. Mér hefur aldrei fundist mjög gáfulegt að færa menn mikið til í stöðum þótt þeir geti spilað þær. Það er ekki hægt að ná því besta út úr mönnum þannig. Mér fannst minn leikur batna mikið þegar ég var kominn í fasta stöðu á miðjunni.“ Rétt að skipta um þjálfara Tímabilið hjá ÍA var eins og svart og hvítt en ef menn skoða töfluna hér til hliðar þá sést að ÍA var með lægstu meðaleinkunnina eftir fyrri hlutann en þá bestu í síðari hlutan- um. Það segir í raun allt sem segja þarf um spilamennskuna. „Það er algjör synd að mótið sé búið núna því við vorum rétt að byrja. Byrjunin hjá okkur var skelfileg og ekki síst í ljósi þess að þetta lið fór inn í mótið með það markmið að vinna það,“ sagði Bjarni en telur hann að það hafi verið nauðsynlegt að skipta um þjálfara á miðju tímabili eins og ÍA gerði? „Já, ég tel það. Annars er ég ekki talsmaður þess að skipta um þjálfara ef eitthvað klikkar. Óli vissi það líka sjálfur að hann var kominn á tíma með þetta lið.“ Leiðinlegur fótbolti Bjarni hefur verið atvinnumaður erlendis í fjölda ára og margt hefur breyst á þeim árum síðan hann fór utan. Hvað ætli honum finnist um fótboltann sem er spil- aður á Íslandi í dag? „Það er fullt af góðum leik- mönnum hér en sökin á því hversu mikið var um varnarleik í sumar liggur að stóru leyti hjá þjálfurun- um. Það er leiðindafótbolti spilað- ur hjá stærstum hluta, ef ekki öllum liðunum sem við spilum við. Kannski vorum við sekir um það sama í byrjun en eftir að tvíbur- arnir taka við og það kemur meiri léttleiki í liðið förum við að spila meiri fótbolta. Við förum í útileiki sem lið í fallsæti og andstæðing- urinn pakkar í vörn gegn okkur sem er alveg ótrúlegt. Að stærst- um hluta var spilaður leiðinlegur fótbolti í Landsbankadeildinni að mínu mati,“ sagði Bjarni ákveð- inn og bætti við: „Við sýndum í seinni hluta mótsins að það er hægt að ná árangri með því að spila fótbolta.“ Þegar Bjarni sneri heim síð- asta vetur sagðist hann vera alkominn heim og því hefði hann lagt alla frekari atvinnumanna- drauma á hilluna. Hann stendur við þær yfirlýsingar þó að litlu hefði mátt muna í sumar að hann tæki freistandi tilboði. Tilboð frá Katar „Ég fékk tilboð fyrir tímabilið og svo aftur í sumar. Tilboðið sem kom fyrir mótið kom frá Katar og var nokkuð spennandi enda fínir peningar í boði. Það var margt óljóst samt og ég hefði þurft að fara út strax daginn eftir að tilboð- ið kom. ÍA tók tilboðinu og hefði grætt ágætlega á því að selja mig. Ég ákvað samt að sleppa því á end- anum en ef ég hefði haft meiri tíma til að hugsa mig um hefði ég sennilega farið og komið svo bara aftur heim,“ sagði Bjarni sem hyggur á háskólanám í janúar. Þegar Bjarni spilaði sem atvinnumaður átti hann oftar en ekki fast sæti í íslenska landslið- inu. Hann hefur fá tækifæri feng- ið síðustu misseri og gerir ekki ráð fyrir því að fá þau á næstunni þótt hann sé meira en til í að spila fyrir Ísland á ný. Hef metnað fyrir landsliðinu „Ég hef að sjálfsögðu metnað fyrir landsliðinu. Ég sagði þegar ég var atvinnumaður, og breyti því ekki núna, að það sé ekki að ástæðulausu að menn eru að spila á Íslandi. Flestir sem eru að spila hér heima eru að reyna að komast út. Það liggur því í augum uppi að þeir sem eru úti eru betri en flest- ir sem spila hér heima og eiga að vera valdir fyrstir í landsliðið. Ég er ekki að svekkja mig á því að vera ekki valinn í landsliðið eins og þegar ég spilaði úti en ef ég verð valinn mun ég gera allt til þess að halda mér í liðinu,“ sagði Bjarni en hann telur sig ekki geta gert kröfu um sæti í landsliðs- hópnum og á ekki sérstaklega von á kalli í hópinn. „Ég er samt meira en tilbúinn ef kallið kemur.“ henry@frettabladid.is Þjálfarar í Landsbankadeildinni láta lið sín spila leiðindafótbolta Skagamaðurinn Bjarni Guðjónsson var besti leikmaður Landsbankadeildarinnar í sumar að mati íþrótta- fréttamanna Fréttablaðsins. Í ítarlegu viðtali við Fréttablaðið segir Bjarni að boltinn í deildinni hafi valdið sér vonbrigðum og upplýsir að litlu hefði mátt muna að hann færi til Katar fyrir tímabilið. FRÁBÆRT TÍMABIL Viktor Bjarki Arnars- son lék næstbest allra í sumar að mati Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA MAÐUR MEÐ SKOÐANIR Besti leikmaður Landsbankadeildarinnar í sumar að mati Fréttablaðsins er Skagamaðurinn Bjarni Guðjónsson. Hann liggur ekki á skoðunum sínum um íslenska boltann. FRETTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI KR-ingurinn Kristinn Jakobsson er besti dómari Lands- bankadeildarinnar sumarið 2006 að mati Fréttablaðsins. Kristinn átti enn og aftur mjög gott tímabil og það kemur varla fyrir að hann eigi slæman leik lengur. Hann var mjög stöðugur og góður allt sum- arið og er vel að því kominn að vera dómari ársins. Þrátt fyrir stöðuga velgengni með flautuna er ekki að sjá á Kristni að hann sé að gefa eftir heldur þvert á móti virðist hann sífellt verða betri með hverju árinu. Annars voru margir dómarar að standa sig mjög vel í sumar eftir frekar erfiða byrjun þar sem sauð upp úr. Garðar Örn Hinriks- son var klárlega sá dómari sem tók mestu framförum en stórmun- ur var á honum fyrri og seinni hluta mótsins. Jóhannes Valgeirs- son og Ólafur Ragnarsson voru einnig mjög traustir. - hbg Besti dómari Landsbankadeildarinnar: Kristinn er kóngur- inn með flautuna KRISTINN JAKOBSSON Fær meiri sam- keppni en áður en er samt enn besti dómari landsins. FÓTBOLTI Það þarf ekki að koma sérstak- lega á óvart að Íslandsmeistarar FH eigi flesta fulltrúa í liði ársins hjá Fréttablað- inu en alls eru fjórir FH-ingar í liðinu og þar af þrír varnarmenn sem allir fóru á kostum rétt eins og Tryggvi Guðmunds- son sem var prímusmótorinn í sóknarleik Íslandsmeistaranna. Víkingur á tvo fulltrúa en Viktor Bjarki Arnarsson fór lengstum á kostum með liðinu og markvörðurinn Ingvar Kale kom liðinu oft til bjargar með frábærri mark- vörslu. Tveir vinnusamir miðjumenn koma frá Keflavík og KR-ingurinn Gunnlaugur Jónsson fær sæti en hann lék mjög vel seinni hluta tímabilsins fyrir KR. Að sjálfsögðu er markakóngurinn Marel Baldvinsson einnig í liðinu ásamt sjálfum leikmanni ársins að mati Frétta- blaðsins, Bjarna Guðjónssyni. - hbg Lið ársins í Landsbankadeild karla 2006 hjá Fréttablaðinu: Fjórir FH-ingar í liði ársins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.