Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 27. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Bandaríski hagfræðingurinn Michael E.
Porter er væntanlegur til landsins í næstu
viku og mun halda tvo fyrirlestra meðan á
dvöl hans stendur. Fyrri fyrirlesturinn verð-
ur á ráðstefnu á Hótel Nordica að morgni
2. október en þar mun hann kynna í fyrsta
sinn niðurstöður nýrrar rannsóknar um
samkeppnishæfni Íslands. Í hádeginu tekur
Porter svo við heiðurdoktorsnafnbót við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands í
Hátíðasal Aðalbyggingar Háskólans. Að því
loknu mun Porter flytja seinni fyrirlestur
sinn í Háskólabíói og ber hann heitið „What
is strategy?“
Heimsókn Porters er svo sannarlega hval-
reki á fjörur jafnt stjórnenda fyrirtækja sem
og hag- og viðskiptafræðinga og áhugamanna
en hann er með virtustu hagfræðingum í
heimi og af mörgum talinn fremsti hugsuður
heims á sviði stefnumótunar og stjórnunar.
Porter hefur fengið fjölda virtra viðurkenn-
inga fyrir störf sín og var kosinn einn helsti
og áhrifamesti hugsuður viðskiptalífsins
undir lok síðasta árs. Til samanburðar var Bill
Gates, stofnandi og stjórnarformaður banda-
ríska hugbúnaðarrisans Microsoft, í öðru sæti
listans sem náði yfir 50 helstu stjórnendur og
hugsuði í viðskiptalífinu um allan heim.
SÉRFRÆÐINGUR Í STEFNUMÓTUN
Michael E. Porter fæddist árið 1947. Hann
lauk B.E.S. gráðu með láði í geimtækni og
vélaverkfræði frá Princeton University árið
1969 og var í kjölfarið valinn í tvö heið-
ursmannafélög háskólastúdenta við skólana.
Tveimur árum síðar lauk hann svo M.B.A.
prófi frá Harvard Business School og hlaut
doktorsgráðu í viðskiptahagfræði frá Harvard
háskóla árið 1973.
Hann gegnir prófessorsstöðu við Harvard
Business School en árið 2001 komu skólinn og
Harvard háskóli á fót stofnun stefnumótunar
og samkeppnishæfni (Institute for Strategy
and Competitiveness ) til að efla starf hans.
Þetta mun vera það lengsta sem nokkur próf-
essor kemst í Harvard og sýnir vel hversu
hátt hann er metinn í fræðasamfélaginu í
Bandaríkjunum.
Stofnun Porters hefur boðið viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands til samstarfs
um kennslu í rekstrarhagfræði á meistara-
stigi með sérstakri áherslu á samkeppnis-
hæfni fyrirtækja og þjóða (Microeconomics of
Competitiveness) og er það nú í undirbúningi.
Porter hefur sleitulítið starfað á sviði hag-
fræði frá upphafi ferils síns en aðalsvið hans
er stefnumótun fyrirtækja, samkeppnisað-
ferðir og samkeppnishæfni og efnahagsleg
þróun þjóða um allan heim. Þá hefur hann
samhliða því verið ráðgjafi um stefnumótun
hjá mörgum af fremstu fyrirtækjum í heima-
landi sínu og hjá ýmsum alþjóðlegum fyrir-
tækjum. En auk þessa þá er hann einnig aðal
stefnuráðgjafi bandaríska hafnaboltaliðsins
Boston Red Sox sem keppir í atvinnumanna-
deildinni vestra.
AFKASTAMIKILL OG VIRTUR HÖFUNDUR
Samhliða starfi sínu sem prófessor í Harvard
hefur Porter skrifað 17 bækur og yfir 125
greinar, sem margar hverjar hafa verið
kenndar í stefnumótun víða um heim, þar
á meðal hér á landi. Þrjár bækur hans um
stefnumótun og samkeppnishæfni skipa hins
vegar stærstan sess í höfundarverki Porters
en þær skutu honum upp á stjörnuhimininn á
sviði stefnumótunar.
Fyrsta bókin, Competitive Strategy:
Techniques for Analyzing Industries and
Competitors, kom út árið 1980. Hún hefur
verið prentuð 63 sinnum og þýdd á 19 tungu-
mál. Þar fjallaði Porter um samkeppniskrafta-
greininguna svokölluðu, sem tekur á þeim
öflum sem fyrirtæki þurfa að kljást við í
umhverfi sínu.
Hin bókin er Competitive Advantage:
Creating and Sustaining Superior Performance,
sem kom út fimm
árum síðar, og hefur
hún verið prentuð 38
sinnum. Þriðja bókin,
The Competitive
Advantage of
Nations, kom svo út
fyrir sextán árum
en hvati hennar
var þegar Ronald
Reagan, fyrrum for-
seta Bandaríkjanna,
skipaði hann í nefnd
sína um samkeppn-
ishæfni iðnaðarins
árið 1983. Bókin
varð síðan upphaf-
ið að vangaveltum
hans sem snúa að
að samkeppnishæfni
og efnahagslegri
þróun. Í bókinni er
varpað fram nýrri
kenningu um sam-
keppni þjóða, ríkja
og svæða og upp-
sprettu efnahags-
legrar velmegunar
þeirra. Henni var
fylgt eftir með yfir-
gripsmikilli röð bóka
um áhrif staðsetn-
ingar á samkeppni
með áherslu á hlutverk þyrpinga. Þessar
kenningar hafa haft mikil áhrif á stefnumótun
efnahagsmála um allan heim.
Porter mun vera með átjándu bók sína í
smíðum og er hann sagður stefna að því að
ljúka henni á þessu ári.
MICHAEL E. PORTER Á RÁÐSTEFNU Á
INDLANDI Prófessor Porter er eftirsóttur
fyrirlesari um stefnumótun og samkeppn-
ishæfni víða um heim. Hann hefur hlotið
viðurkenningar fyrir störf sín og skipar eina
virðingarverðustu stöðuna innan Harvard
háskóla.
NORDICPHOTOS/AFP
Hugsuður viðskiptalífsins ræðir um samkeppnishæfni
Michael E. Porter, prófessor við Harvard háskóla í Bandaríkjunum, flytur tvo fyrirlestra á Hótel Nordica og í
Háskólabói um samkeppnishæfni Íslands og stefnumótun og samkeppnisaðferðir í víðara samhengi í næstu
viku á vegum Capacent. Margir hafa lengi beðið komu Porters hingað til lands en hann þykir einn merkasti
hugsuður viðskiptalífsins um stefnumótun fyrirtækja og samkeppnismál. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson leit
yfir feril Porters og leitaði til nokkurra einstaklinga sem hafa kynnt sér hugmyndir hans.
Hannes Smárason, forstjóri
FL Group, komst í fyrstu
bók Michaels E. Porter um
samkeppniskraftagrein-
inguna frá 1980 í kring-
um 1988 þegar hann var
við nám í MIT í Boston í
Bandaríkjunum.
„Mér fannst hugmyndir
hans mjög áhugaverðar og
það má segja að þótt þetta
séu engin raunvísindi þá
er þarna ákveðin skipulögð
hugsun um það hvernig
greina má samkeppnisum-
hverfið og möguleika fyr-
irtækja til að ná árangri,“
segir Hannes enda hægt að
beita greiningu Porters á
flesta þætti í fyrirtækja-
rekstri.
Hannes segir bókina
hafa haft töluverð áhrif á
sig. „Þetta ýtti undir þann
áhuga sem ég hafði á við-
skiptum og hjálpaði til
við að leggja grunninn að
ákveðinni rökhugsun um
það hvernig maður greinir
tækifærin á samkeppnis-
markaði. Þá getur maður
notað hana til sjá hvar fyr-
irtæki er statt hverju sinni
og hvernig málum er hátt-
að gagnvart bæði birgjum
og viðskiptavinum,“ segir
hann og bætir við að grein-
ingin sé mikilvæg fyrir
stjórnendur enda geti þeir
beitt henni til að sjá hvern-
ig fyrirtæki þeirra stendur
sig í samkeppni við önnur
félög. - jab
HANNES SMÁRASON Forstjóri FL
Group segir að hægt sé að nota sam-
keppniskraftagreiningu Michaels E.
Porter til að greina tækifærin á sam-
keppnismarkaði. MARKAÐURINN/E.ÓL.
Ýtti undir áhuga á viðskiptum
2 . O K T Ó B E R 2 0 0 6
D A G S K R Á P O R T E R S
Hótel Nordica: kl. 7:30-11:00
Fyrirlestur: Samkeppnishæfni Íslands
Hátíðasalur Háskóla Íslands: kl. 12:15– 13:00
Heiðursdoktorsnafnbót
Háskólabíó: kl. 14-15
Fyrirlesturinn: What is strategy?