Fréttablaðið - 27.09.2006, Blaðsíða 86
27. september 2006 MIÐOVIKUDAGUR38
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT
2 betl 6 belti 8 erta 9 nálægt 11 fyrir
hönd 12 teygjudýr 14 sívinnandi 16 í
röð 17 arinn 18 hætta 20 bardagi 21
uppspretta.
LÓÐRÉTT
1 fægja 3 ung 4 hætta við 5 samstæða
7 nagdýr 10 forskeyti 13 erfiði 15 tími
myrkurs 16 mælieining 19 ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 snap, 6 ól, 8 ýfa, 9 nær, 11
pr, 12 amaba, 14 iðinn, 16 mn, 17 stó,
18 ógn, 20 at, 21 lind.
LÓÐRÉTT: 1 bóna, 3 ný, 4 afpanta, 5
par, 7 læmingi, 10 rað, 13 bis, 15 nótt,
16 mól, 19 nn.
1. Sturla Böðvarsson
2. Þeir eru sjö
3. Í takt við tímann
[ VEISTU SVARIÐ? ]
svör við spurningum á bls. 8
Hjörleifur Valsson fiðluleikari fær
rúmlega þrjátíu ára gamlan draum
uppfylltan þegar honum verður
afhent Stradivarius-fiðla til afnota
í dag. Ekki skemmir fyrir að Hjör-
leifur átti afmæli í gær og varla
gat hann hugsað sér betri gjöf en
að fá lánaða fiðlu gerða af fiðlu-
smiðnum snjalla. Það er Ingunn
Wernersdóttir sem kaupir fiðluna
og fer fram opinber athöfn á skrif-
stofu hennar í dag þar sem Hjör-
leifur leyfir þessu merkilega
hljóðfæri að hljóma. „Þegar ég var
átta ára og var að bera út Moggann
var ég staðráðinn í að spila á Strad-
ivarius-fiðlu. Nú er sá draumur
loksins að rætast,“ sagði Hjörleif-
ur þegar Fréttablaðið náði tali af
honum.
Að sögn fiðluleikarans er þessi
mikli dýrgripur talinn vera smíð-
aður árið 1732 og á sér tvíbura
hjá rússenska ríkinu,
Greifann af Jusupov.
„Hún hefur verið í Frakklandi
síðustu fimmtíu árin og við erum
að fá vottorðin í hendurnar til að
finna út hvar hún hefur komið við,“
útskýrir Hjörleifur en fiðlan hefur
verið í nánast stöðugri spilun í
tæpar þrjár aldir. „Í henni er því
mikil saga,“ bætir Hjörleifur
við.
Allir helstu fiðlusnillingar
sögunnar hafa spilað á Stradi-
varius og nægir þar að nefna Yehu-
di Menuhin og Itzak Perlman. Hjör-
leifur vildi ekki gefa upp verðið á
fiðlunni en eftir því sem Frétta-
blaðið kemst næst þá eru Stradi-
varius-fiðlur flestar seldar á verð-
bilinu 1,5 milljónir til 6 milljónir
dollara. Telja má líklegt að fiðla
Hjörleifs sé metin á í kringum
þrjár milljónir dollara eða 210
milljónir íslenskra króna.
Þetta er fyrsta Stradivarius-fiðl-
an sem kemst í eigu Íslendings svo
vitað sé, en einhverjar sögusagnir
eru um að ein fiðla sé til hjá óþekkt-
um aðila. Hjörleifur segist enda
finna til mikillar ábyrgðar nú þegar
fiðlan er komin í hans ábyrgð, það
sé stórt fyrirtæki sem sjái um þetta
og hann verður að fylgja ströngum
skilmálum. „Ég mun passa hana
eins og sjáöldur auga míns en ég
verð líka að sýna að ég sé þess
verður að hafa hana og mitt hlut-
verk verður að láta fiðluna hljóma
fyrir fólkið.“ freyrgigja@frettabladid.is
HJÖRLEIFUR VALSSON: FÆR STRADIVARIUS-FIÐLU UPP Á 210 MILLJÓNIR
Fyrsta Stradivarius-fiðlan
í eigu Íslendings
HJÖRLEIFUR VALSSON Fær loksins draum sem hann hefur gengið með í maganum
frá átta ára aldri uppfylltan.
YEHUDI
MENUHIN
Lék á Khevenhüller-
fiðlu Stradivariusar
sem smíðuð var árið
1733.
„Það verður gaman að takast á við
þetta verk og Lolla á ábyggilega
eftir að brillera,“ segir Valdimar
Örn Flygenring leikari. Hann fer
með annað aðalhlutverkanna á
móti Ólafíu Hrönn Jónsdóttur í
leikgerð byggðri á skáldsögunni
Eymd, sem fer á fjalirnar á Nasa
við Austurvöll eftir áramót. Leik-
ritið er byggt á samnefndri
bók eftir bandaríska
spennusagnahöfundinn
Stephen King og hét
Mysery á frummálinu.
Framleiðslufyrir-
tækið Studio 4 setur
verkið á svið en
Jóhann Sigurðarson, sem er einn
af eigendum fyrirtækisins, ætlar
jafnframt að leikstýra verkinu og
var Davíð Þór Jónsson fenginn
til að þýða leikgerðina. Æfing-
ar standa yfir um þessar
mundir og segir Valdimar þær
ganga vel. „Þetta á ábyggi-
lega eftir að verða dásamlega
hræðilegt,“ segir hann og
hlær.
Eymd er spennu-
tryllir af bestu
gerð og segir frá
rithöfundi sem
er bjargað og
hjúkrað af
konu eftir að hafa lent í bílslysi. Í
ljós kemur að hún er mikill aðdá-
andi hans en því miður ekki með
öllum mjalla og hann áttar sig
senn á að hann er í rauninni
gísl. Víðfræg kvikmynd var
gerð eftir bókinn árið 1990,
með James Caan og Kathy
Bates í aðalhlutverki en
hún fékk meðal ann-
ars Óskarsverð-
laun fyrir leik
sinn. -bs
Dásamlega hræðileg Eymd á Nasa
VALDIMAR ÖRN
FLYGENRING
ÓLAFÍA HRÖNN
JÓNSDÓTTIR
Guðlaugur Jónsson hárgreiðslu-
meistari – gjarnan kallaður Gulli
í Nikk – tekur lífinu með stóískri
ró eftir að hann var flæmdur úr
Vonarstræti, þar sem hárgreiðslu-
stofa hans var til húsa. Gulli taldi
á sínum tíma ekki loku fyrir það
skotið að hann myndi leita að
öðru húsnæði, sem vitaskuld yrði
á svipuðum slóðum því hann vill
ógjarnan fara úr miðbænum. Í
samtali við Fréttablaðið sagðist
hann þó ekki enn búinn
að finna neitt sem
jafnast á við Nikk.
Hinir fjölmörgu fasta-
gestir hans hljóta því
að krossleggja fingur
áfram nema þeir
geti samið við
Gulla um að fara í
húsvitjanir. - bs
Bandaríska Hollywood-stjarnan Brend-
an Fraser er stödd hér á landi ásamt
tökuliði myndarinnar Journey 3-D.
Myndin verður tekin að hluta til
hér á landi og er hópurinn að svip-
ast um eftir hentugum tökustöð-
um.
Fraser, sem sló í gegn í myndum á
borð við George of the Jungle og
The Mummy, fer með aðalhlutverk-
ið í myndinni ásamt hinni íslensku
Anitu Briem. Ekki er vitað hvort
hún sé stödd á landinu en ef
svo er ekki mun hún lík-
lega slást í hópinn bráð-
lega. Helga María Reyk-
dal, framkvæmdastjóri
True North, sem hefur
veg og vanda af komu
hópsins til landsins,
segir sennilegt að
tökur fari fram í
næstu viku og að
hópurinn sem
staddur er á
landinu vegna myndarinnar sé nokkuð
stór.
Kvikmyndin Journey 3 -D er byggð á
bókinni Leyndardómar Snæfellsjökuls
eftir franska vísindaskáldsagnahöfund-
inn Jules Verne. Ekki er vitað hvaða
tökustaðir verða fyrir valinu en eðli
málsins samkvæmt má telja líklegt að
hópurinn geri sér ferð vestur á Snæ-
fellsnes til að ná góðum myndum af
jöklinum.
- fgg
Leikarinn Brendan Fraser á Íslandi
KATHY BATES
Fékk Óskarsverð-
laun fyrir leik
sinn í myndinni
Eymd.
Vasa
línan
Fer vel í veski
ANITA BRIEM Leikur eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Journey 3-D.
BRENDAN FRASER Kom til landsins á mánudagskvöldið og verður hér í nokkra daga.
... fær Gunnar Friðriksson,
hamborgarakóngur á Ólsen
Ólsen í Keflavík, sem lætur
ekki brotthvarf Kanans hafa
áhrif á sig og eykur umsvifin ef
eitthvað er.
Magni Ásgeirsson og kona hans,
Eyrún Huld, þurfa ekki að kvíða
fyrir svefnleysi eftir að rokkstjarn-
an er snúin aftur heim. Ein þeirra
verslana sem hétu á söngvarann
vegna góðs árangurs í Rockstar:
Supernova var Gæði og mýkt á
Grensásvegi. Hjónakorn- in
fengu afhent dúnsængur
og kodda frá verslun-
inni en eigendurnir
höfðu heitið þessu
á söngvarann ef
hann kæmist í
úrslitaþáttinn.
Útvarpsstöðin X-ið 977 er í mikilli
útrás ef svo má að orði komast
og eru Frosti Logason og félagar
kokhraustir í fréttatilkynningu sem
þeir sendu frá sér vegna þess að
nú næst stöðin út fyrir höfuðborg-
arsvæðið. „X-ið 977 hefur hafið
útsendingar á Akureyri á tíðninni
90,9, í Vestmannaeyjum á
tíðninni 90,4 og á Ísafirði
á tíðninni 90,5. Það er ekki
spurning að búsetuskil-
yrði á þessum stöðum
hafa batnað gífurlega
við þessi tíðindi,” segir í
fréttatilkynningunni. - fgg
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4