Fréttablaðið - 04.10.2006, Page 2
2 4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Kristján, munt þú hætta við að
hætta við að hætta?
Ég býst við því að mig langi til að
halda áfram.
Kristján Finnbogason, markvörður KR-
inga til margra ára, sagði í Fréttablaðinu í
gær að hann væri að hugsa um að hætta
við að hætta knattspyrnuiðkun.
Konan sem
lést í
umferðar-
slysi á
Miklubraut
um helgina
hét Ragn-
heiður
Björnsdótt-
ir, til heimil-
is á
Kleppsvegi
126.
Ragnheið-
ur var á
gangi eftir brautinni þegar
hún varð fyrir bifreið á
austurleið. Talið er að hún hafi
látist samstundis.
Ragnheiður var fædd 10.
júní 1951 og því 55 ára þegar
hún lést. Hún lætur eftir sig
sambýlismann og uppkominn
son.
Lést í slysi
RAGNHEIÐUR
BJÖRNSDÓTTIR
DANMÖRK Nærri fimmtíu þúsund
Danir mótmæltu niðurskurði í
velferðarkerfinu víða um Dan-
mörku í gær. Óánægðir foreldrar,
starfsfólk opinberra stofnana og
nemendur söfnuðust saman á
Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn,
sem og á aðaltorgum margra ann-
arra borga Danmerkur, að því er
fram kom á fréttavef Politiken.
Fólkið var að mótmæla fyrir-
huguðum niðurskurði sveitarfé-
laganna, sem bitnar harðast á
börnum og gamalmennum.
Leikskólakennarar í Árósum
hafa verið í verkfalli vegna niður-
skurðarins í hátt í þrjár vikur og í
dag var flestum grunnskólum
Árósa lokað vegna mótmælanna.
Í Kaupmannahöfn var 415 af 540
dagheimilum lokað.
Niðurskurðurinn var ákveðinn
eftir að ljóst varð að sveitarfélög-
in mun skorta 932 milljónir
danskra króna á næsta ári, sem
samsvarar tæpum ellefu millj-
örðum íslenskra króna.
Meðal annars krefjast Danir
þess að ríkisstjórnin noti eitthvað
af þeim áætluðu 80 milljörðum
danskra króna, sem talið er að
verði afgangs í ríkiskassanum á
næsta ári, til að leiðrétta stöðuna.
Sveitarfélögum Danmerkur
fækkar úr 273 í 98 um áramótin.
- smk
50.000 Danir ganga gegn ákvörðunum stjórnarinnar:
Mótmæla velferðarniðurskurði
DANIR MÓTMÆLA Gríðarlegur fjöldi
Dana mótmælti aðgerðum ríkisstjórnar-
innar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDSPÍTALINN Rúmlega 700 millj-
óna króna halli er á rekstri Land-
spítala- háskólasjúkrahúss umfram
rekstraráætlun, samkvæmt upp-
gjöri fyrir fyrstu átta mánuði þessa
árs.
Þetta kemur fram í nýjum
stjórnunarupplýsingum sem LSH
hefur sent frá sér yfir rekstrar-
stöðu tímabilsins janúar til ágúst
2006. Hallinn eftir fyrstu sex mán-
uði ársins var 4,2 milljónir.
Þensla á vinnumarkaði og óhag-
stæð gengisþróun hefur leitt til
mun meiri kostnaðarhækkana en
gert var ráð fyrir í fjárlögum árs-
ins. Rekstrargjöld umfram rekstr-
aráætlun eru samtals 707 milljónir
króna eða 3,5 prósent. Launagjöld
eru 3,9 prósent umfram áætlun,
rekstrargjöld 2,5 prósent og kostn-
aður vegna S-merktra lyfja er 13,6
prósent umfram áætlun. Þá eru sér-
tekjur 7,5 prósent umfram áætlun.
„Rekstraráætlunin hefur ein-
faldlega ekki gengið upp,“ segir
Anna Lilja Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjárreiðna og upp-
lýsinga á LSH. „Starfsemi spítalans
yfir sumarmánuðina var talsvert
meiri en gert hafði verið ráð fyrir.
Það þýddi að kaupa þurfti umtals-
verða yfirvinnu af starfsfólki spít-
alans. Kaup á hjúkrunarþjónustu
frá innlendum og erlendum verk-
takafyrirtækjum hefur aukist til
muna. Að auki hefur óhjákvæmileg
aukning í starfseminni kallað á
meiri mannafla. Þá hefur verið
mikill þrýstingur á hækkun launa
vegna þensluástands í landinu og
álags í starfseminni. Launakostnað-
ur á umræddum átta mánuðum er
rúmar 530 milljónir króna umfram
rekstraráætlun.“
Í stjórnunarupplýsingunum
kemur enn fremur fram, að komum
á dagdeildir spítalans hefur fjölg-
að, svo og komum á göngudeildir.
Hins vegar hefur legudögum fjölg-
að um nær 3.000 á þessum tíma,
sem skýrist af auknum fjölda mikið
veikra sjúklinga og einnig útskrift-
arvanda sem spítalinn hefur lengi
átt við að etja. Komum á slysa- og
bráðamóttökur LSH hefur fjölgað
ört á undanförnum árum og á þess-
um átta mánuðum alls um 4,1 pró-
sent.
Í stjórnunarupplýsingunum er
gerð grein fyrir stöðu biðlista. Í
mörgum sérgreinum er engin bið,
til að mynda í krabbameinslækn-
ingum. Í öðrum er nokkurra vikna
bið. Biðtíminn hefur hins vegar
ekki styst hjá þeim sem bíða eftir
gerviliðaaðgerðum, en þeir sem
þurfa í gerviliðaaðgerð á hné þurfa
að bíða í rúmt ár. jss@frettabladid.is
707 milljóna halli á
rekstri Landspítala
Enn eykst rekstrarhalli Landspítala - háskólasjúkrahúss. Eftir fyrstu sex mánuði
ársins var hann 4,2 milljónir en er nú 707 milljónir tveimur mánuðum síðar. Þar
vega þyngst aukin starfsemi, þensla á vinnumarkaði og óhagstæð gengisþróun.
VAXANDI REKSTRARHALLI Þrátt fyrir margs konar aðhaldsaðgerðir á Landspítala- háskólasjúkrahúsi á undanförnum árum er
rekstrarkostnaðurinn hundruð milljóna umfram áætlun.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
staðfest farbann yfir Jesus
Sainz, einum fimmmenninganna
sem sakaðir eru um að hafa
stolið vísindaniðurstöðum og
viðskiptaupplýsingum frá
Íslenskri erfðagreiningu.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi manninn í farbann 29.
september.
Sainz er fyrrverandi starfs-
maður ÍE og er sakaður um að
hafa, ásamt fjórum öðrum
fyrrum starfsmönnum, afritað
mikilvæg gögn af tölvum ÍE
fyrir Barnaspítalann í Fíladelfíu
í Bandaríkjunum, þar sem hinir
fjórir starfa nú. - sh
Mál Íslenskrar erfðagreiningar:
Farbann yfir
Sainz staðfest
LÖGREGLUMÁL Í hverri viku koma ein eða fleiri konur
af erlendu bergi brotnar í Alþjóðahúsið vegna
ofbeldis sem þær hafa orðið fyrir. Þessar konur eru
ýmist giftar eða í sambúð með íslenskum eða
erlendum mönnum, að sögn
Margrétar Steinarsdóttur, lögfræð-
ings Alþjóðahúss. Eiginmenn
tveggja þessara kvenna höfðu selt
þær í vændi.
Fréttablaðið greindi í gær frá
því að nítján konur voru í sambandi
við Stígamót á síðasta ári vegna
þess að þær höfðu verið seldar í
vændi og voru sumar að leita sér
aðstoðar við að komast undan dólgunum sem seldu
þær. Tvær pólskar stúlkur fóru úr landi í síðustu
viku eftir að lögreglan í Reykjavík hafði komist á
snoðir um að þær væru hingað komnar til að stunda
vændi.
„Andlegt ofbeldi, svo sem hótanir, er algengara
en líkamlegt ofbeldi hjá þeim konum sem hingað
leita undan ofbeldisverkum,“ segir Margrét og bætir
við að sumar þessara kvenna hafi unnið á nektar-
dansstað áður en þær leituðu til Alþjóðahúss. Hún
segir þær konur sem leitað hafa til Alþjóðahúss af
þessum sökum komnar frá hinum ýmsu Evrópulönd-
um, að Norðurlöndunum undanskildum.
„Til mín hafa komið tvær konur
sem eru að skilja við eiginmenn
sem hafa beitt þær ofbeldi en þær
höfðu kynnst mönnunum á nektar-
dansstað. Fleiri stúlkur sem unnið
hafa á svona stöðum hafa komið til
mín. Þær hafa komið vegna atriða
sem sýna að þær virðast ekki geta
ráðið eigin örlögum og eru þar af
leiðandi ekki í góðri stöðu. Ein
stúlka er til dæmis í stórum skuldum á eigin
mælikvarða eftir að hafa unnið á nektarstað, en ég
sé ekki betur en að staðurinn eigi að greiða þær
upphæðir. En það er alltof mikið um að konur komi
til mín af því að þær eru í ofbeldissamböndum.“
Margrét segir að stúlkurnar leiti sér ekki
aðstoðar fyrr en þær séu hættar að vinna á nektar-
stöðunum, en hafi ílengst eftir það á landinu af
einhverjum ástæðum. jss@frettabladid.is
Ein eða fleiri erlendar konur leita sér aðstoðar í viku hverri:
Í Alþjóðahús vegna ofbeldis
LÖGREGLUMÁL Ísþjófur lét á sér
kræla í austurbæ Reykjavíkur í
fyrrinótt. Hann braust inn í
flutningabíl og hafði með sér á
brott nokkurt magn af hinum
ýmsu ístegundum. Auk ísþjófsins
bíræfna var tilkynnt um tvö
önnur innbrot í borginni.
Þá setti maður sig í samband
við lögreglu þar sem hann fann
ekki bílinn sinn. Hann taldi þó
ekki að bílnum hefði verið stolið
heldur væri hann einfaldlega
týndur. Lögregla benti honum á
að leita af sér allan grun. - þsj
Þrjú innbrot tilkynnt í fyrrinótt:
Ísþjófur gengur
laus í Reykjavík
RÉTTINDI Rhuhel Ahmed og Asif
Iqbal, sem sátu í Guantanamo-
fangabúðunum á Kúbu í tvö ár,
fullyrða að ekki færri en þrír
menn hafi verið myrtir þar, þótt
bandarísk yfirvöld hafi haldið
fram að um sjálfsvíg hafi verið að
ræða. Nær útilokað hafi verið að
fremja sjálfsvíg vegna mikillar
öryggisgæslu. Þá segjast þeir vita
til þess að vörður hafi gengið í
skrokk á geðsjúkum manni.
Ahmed og Iqbal eru hér á landi
í tengslum við sýningu kvikmynd-
arinnar Leiðin til Guantanamo, og
kom þetta fram í pallborðsum-
ræðum um fangabúðirnar í Iðnó í
gær. - sh
Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal:
Þremur föngum
var ráðinn bani
FRJÁLSIR ÚR BÚÐUNUM Ahmed og Iqbal
tóku þátt í pallborðsumræðum í Iðnó
í gær.
SVÍÞJÓÐ Sænski herforinginn
Tony Stigsson er ógn við öryggi
þjóðar sinnar. Þessu hélt
yfirmaður sænskra varnarmála,
Håkan Syrén, fram í samtali við
blaðamenn sænska blaðsins
Dagens Nyheter.
Stigsson, sem áður var einn
æðsti maður sænska hersins,
hneykslaði Svía þegar hann var
dæmdur fyrir ofbeldi gegn
eiginkonu sinni í fyrra.
Ekki bætti úr skák þegar
fram kom að hann hafði notað
netið til að óska eftir félögum í
hópkynlíf og að við lögreglu-
rannsókn á heimili hans fundust
300 leyniskjöl hersins sem og
klámmynd sem Stigsson hafði
leikið í.
Varnarmálaráðuneytið hefur
nú hert eftirlit sitt með starfs-
fólki til muna. - smk
Herforingi í kynlífshneyksli:
Talinn ógna
öryggi Svía
það er alltof mikið um
að konur komi til mín
af því að þær eru í ofbeldissam-
böndum.
MARGRÉT STEINARSDÓTTIR
LÖGFRÆÐINGUR