Fréttablaðið - 04.10.2006, Side 8
8 4. október 2006 MIÐVIKUDAGURVEISTU SVARIÐ?VEISTU SVARIÐ?
1. Hversu marga stöðvaði
lögreglan í Reykjavík fyrir of
hraðan akstur um síðastliðna
helgi?
2. Með hvaða norska knatt-
spyrnufélagi hefur Viktor Bjarki
Arnarsson æft síðustu daga?
3. Hvað heitir félagið sem á
rúmlega 70 prósent í útgáfu-
félagi sem stendur að baki
blaðinu Ísafold?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
Sigþóra Gunnarsdóttir
Sölumaður í verslun RV
R
V
62
17
Höldum óhreinindum á mottunni
Úti- og innimottur fyrir íslenskar aðstæður
Á til
boð
i
í ok
tóbe
r 20
06
Úti-
og in
nimo
ttur
af ým
sum
ger
ðum
og s
tærð
um
…fjarlægir óhreinindi og vætu af skóm
…hindrar að gólfið innandyra verði hált
…heldur anddyrinu hreinu og snyrtilegu
gólfmottukerfið
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
3
40
42
08
/2
00
6 Verið velkomin á Nesjavelli
Orkuveita Reykjavíkur býður gestum og gangandi
að heimsækja Nesjavelli, kynna sér orkuverið
ásamt því hvernig staðið hefur verið að umhverfismálum
og aðgengi fyrir ferðamenn og gesti á Nesjavöllum.
Opið á Nesjavöllum í september og október:
Mánudaga til laugardaga er opið frá kl. 9:00–17:00.
LOKAÐ á sunnudögum.
Hvað veistu
um jarðvarmavirkjanir?
STJÓRNMÁL „Frumvarpið endurspeglar þann mikla
óstöðugleika og óöryggi sem er í efnahagslífi þjóðar-
innar,“ segir Jón Bjarnason, fulltrúi Vinstri grænna
í fjárlaganefnd, um fjárlagafrumvarpið sem kynnt
var á mánudag. Sem dæmi nefnir hann viðskipta-
hallann sem hann segir verða 80 milljörðum króna
hærri á þessu ári heldur en ráð var fyrir gert. „Þetta
sýnir ójafnvægið og 14 prósenta stýrivextir
undirstrika það enn frekar. Þetta er stórhættulegt
ástand.“ Jón segir ríkissjóð njóta gríðarlegra tekna
sökum þessa mikla viðskiptahalla sem fáist með
innflutnings- og vörugjöldum, tollum og virðisauka-
skatti. „Þetta er eins og heróínhagkerfið sem Andri
Snær talar um í Draumalandinu. Aðaltekjulindin er
sú sem þú vilt ekki hafa.“ Hann segist jafnframt
hafa vonast eftir ríkulegri framlögum til velferðar-
mála en ekki orðið að þeirri ósk sinni.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, horfir líka til teknanna af innflutningnum
og segir ekki hægt að treysta á þær sem varanlegar
tekjur til að bera uppi rekstur ríkissjóðs. Ekki síst
þess vegna gagnrýnir hann skattalækkanir um
áramót. „Við viljum efla menntun og fá góða
heilbrigðisþjónustu og í það þurfum við fjármuni. Ef
menn ætla að halda áfram að lækka skatta þá ætti
að gera það til að auka jöfnuð en ekki auka tekjur
þeirra sem mest hafa.“
Katrín Júlíusdóttir Samfylkingunni segir ekki
komið til móts við þá sem lægri hafi tekjurnar. „Það
er í raun ekkert gert til að leiðrétta þá misskiptingu
sem orðið hefur í samfélaginu af völdum þessarar
ríkisstjórnar.“ Hún gagnrýnir að vaxtabótakerfið sé
ekki lagað að þörfum fólks líkt og lofað hafði verið
og eins sé ekki tekið á rekstrarvanda ýmissa
stofnana - ekki síst framhaldsskólanna.
Katrín og Jón kalla aukin framlög til samgöngu-
mála ýmist blekkingarleik eða tilbúning. „Þetta er
minna en sem nemur niðurskurði í vegamálum á
undanförnum árum og því forkastanlegur blekking-
arleikur á kosningaári,“ segir Jón. Katrín segir þetta
tilbúning, aukningin nú sé vegna svikinna loforða.
Raunar nefnir hún frumvarpið í heild „frumvarp
svikinna loforða“. bjorn@frettabladid.is
Fjárlagafrumvarp
svikinna loforða
Stjórnarandstaðan segir hagsmuni hinna tekjulægri fyrir borð borna í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs. Vaxtabótakerfið sé ekki leiðrétt, skattalækkun gagnist tekju-
háum mest og aukin framlög til samgöngumála vegi ekki upp fyrri skerðingar.
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
JÓN
BJARNASON
LÖGREGLUMÁL Tæplega þrítug barnshafandi kona var
stöðvuð við reglubundið eftirlit tollvarða aðfaranótt
síðastliðins sunnudags með 122 karton af sígarettum í
fórum sínum. Sígaretturnar voru faldar í tveimur
troðfullum ferðatöskum en mjög óvenjulegt er að
gerðar séu tilraunir til að smygla viðlíka magni af
þess konar varningi með flugi hingað til lands.
Konan, sem var komin sex mánuði á leið, var að
koma með flugvél Iceland Express frá Alicante á
Spáni þegar hún var stöðvuð. Hún var handtekin eftir
að tollverðir fundu sígaretturnar og yfirheyrð
morguninn eftir. Henni var sleppt að þeim loknum en
málið er áfram í rannsókn hjá lögreglunni á Keflavík-
urflugvelli.
Sígaretturnar voru af ýmsum velþekktum
tegundum sem allar bjóðast til sölu á Íslandi. Verð á
pakka af þannig sígarettum er vanalega í kringum
580 krónur og því ljóst að varningurinn er nokkuð
verðmætur, eða rúmlega 700.000 króna virði.
Viðurlög við því að flytja vörur til landsins frá
útlöndum og tollfrjálsum svæðum með ólöglegum
hætti eða án þess að gera tollayfirvöldum grein fyrir
þeim eru fjársektir eða fangelsi í allt að tvö ár. - þsj
Kona á þrítugsaldri var stöðvuð af tollvörðum með umtalsvert magn af tóbaki:
Barnshafandi með 122 karton
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Konan var með mikið magn af
sígarettum í tveim troðfullum ferðatöskum.
BYGGÐAÞRÓUN Sigríður Finsen,
formaður Samtaka sveitarfélaga
á Vesturlandi og forseti bæjar-
stjórnar í Grundarfirði, segir að
sú mynd sem dregin hafi verið
upp af Vesturlandi í grein Frétta-
blaðsins í gær lýsi því ekki sem
raunverulega sé að gerast í lands-
hlutanum.
„Mikill viðsnúningur varð
fyrir tíu árum og hefur íbúum
fjölgað jafnt og þétt upp frá því
eftir nokkra fækkun,“ segir hún.
„Atvinnulíf stendur í miklum
blóma eins og sést meðal annars á
því að nýverið var tekin í notkun
stækkun á álverinu við Grundar-
tanga,“ segir hún.
„Gífurlegur viðsnúningur
hefur orðið eftir að Hvalfjarðar-
göngin komu og uppbygging
hefur verið í kringum vaxandi
sumarbústaðabyggð á svæðinu,“
segir Sigríður.
Þá hafi uppgangur Viðskipta-
háskólans á Bifröst átt þátt í að
breyta ímynd Vesturlands í heild
og sveitarfélög á Snæfellsnesi
hafi haldið sínu striki án þess að
stóla að miklu leyti á sjávarút-
veginn.
„Kenningarnar sem notaðar
eru henta ef til vill ekki nógu vel
til þess að varpa ljósi á það sem
átt hefur sér stað á Vesturlandi
undanfarinn áratug. Til að mynda
segir þéttleiki byggðar í Borgar-
byggð ekki til um það að þar er að
myndast öflugur og vaxandi
byggðarkjarni sem er að festa sig
í sessi. Þá eru meðalmánaðartekj-
ur ekki nógu marktækar fyrir
ráðstöfunarfé því á mörgum stöð-
um er mikið um einkahlutafélög
þar sem fólk greiðir sér laun eftir
forskrift skattstjóra og tekur laun
út sem fjármagnstekjur,“ bendir
hún á. - sda
Byggðaþróun á Vesturlandi:
Kenningar sem not-
aðar eru eiga ekki við
SLYS Fernt var flutt á slysadeild á
mánudaginn. Fjögurra ára stúlka
brenndist á hálsi og herðum á
meðan hún var í baði. Hún hafði
átt við blöndunartækin án þess að
faðir hennar yrði þess var með
þessum afleiðingum. Brunasár
hennar voru þó minniháttar.
Þá féll maður úr bifreið og hlaut
skurð á höfuðið við það.
Annar datt fram fyrir sig þegar
hann var á göngu og meiddist
sömuleiðis á höfði. Að endingu datt
kona á níræðisaldri fram fyrir sig.
Hún kvartaði undan eymslum í öxl
og var að sögn lögreglu komið
undir læknishendur. - þsj
Fjögurra ára stúlka á slysadeild:
Brenndist á
hálsi og baki
SIGRÍÐUR FINSEN Segir að mikil upp-
bygging hafi átt sér stað á Vesturlandi
undanfarinn áratug.
BYGGÐAÞRÓUN