Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 18
4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR18
Húsnæðisverð á Vestfjörðum er
það lægsta sem þekkist á landinu.
Meðalverð á fermetra í landshlut-
anum er rúmlega þrefalt lægra en
meðaltal á landsvísu og í því sveit-
arfélagi þar sem fermetraverðið
er lægst, í Vesturbyggð, kostar
fermetrinn um 22 þúsund krónur.
Það er tífalt lægra en fermetra-
verð á Seltjarnarnesi.
Ættu að vera fjórtán þúsund
Þriðji hver Vestfirðingur hefur
flust á brott á síðasta aldarfjórð-
ungi og hefur hvergi á landinu
fækkað jafnmikið í neinum lands-
hluta. Ef Vestfirðingum hefði
fjölgað í samræmi við landsmeð-
altal væru þeir tvöfalt fleiri nú en
þeir eru í raun. Þeir væru um fjór-
tán þúsund í stað sjö þúsund og
fleiri en á öllu Vesturlandi.
Allt að 70 prósent farin
Á árunum 1980 til 2005 fækkaði
Vestfirðingum um 28 prósent en
um sextán prósent á síðasta ára-
tug. Til samanburðar hefur Íslend-
ingum fjölgað um 31 prósent á síð-
asta aldarfjórðungi. Mest hefur
fækkunin orðið í Árneshreppi, þar
sem sjö af hverjum tíu íbúum hafa
flust í burtu á síðasta aldarfjórð-
ungi. Minnst hefur fækkað á
Tálknafirði, en á móti kemur, að
þar er hlutfall útlendinga hæst í
landshlutanum, eða einn á móti
tíu. Fjöldi útlendinga í landshlut-
anum er rétt yfir meðaltali, eða
sex prósent.
Íbúðaverð rúmur þriðjungur af
meðalverði
Meðalverð í landshlutanum öllum
er rúmar 51 þúsund krónur á fer-
metrann ef miðað er við kaupverð
íbúðarhúsnæðis árið 2005 þar sem
fjöldi kaupsamninga er þrjátíu
eða fleiri. Hafa þarf þó þann fyrir-
vara á að tölurnar eru einfalt með-
altal kaupverðs. Eignir eru mis-
munandi eftir svæðum og skekkir
það verðsamanburð milli þeirra.
Munur á hæsta og lægsta fer-
metraverði í landshlutanum er
þrefaldur en hæsta verð er í Ísa-
fjarðarbæ, þar sem fermetrinn er
á 61 þúsund krónur. 150 fermetra
íbúðarhúsnæði kostar samkvæmt
þessu rúmar þrjár milljónir í Vest-
urbyggð en rúmar níu milljónir í
Ísafjarðarbæ. Til samanburðar
má nefna að jafnstór íbúð á höfuð-
borgarsvæðinu kostar um 29 millj-
ónir. Íbúi í Vesturbyggð sem selur
150 fermetra íbúðarhúsnæði sitt
og flytur á höfuðborgarsvæðið
getur því í mesta lagi keypt bíl-
skúr fyrir andvirðið.
Fjöldi kaupsamninga á síðasta
ári á hverja þúsund íbúa segir til
um hreyfingu á eignum en hæfi-
leg hreyfing á eignum er gott
merki um heilbrigðan fasteigna-
markað. Meðaltalið fyrir landið
allt var rétt undir 45 samningum á
hverja þúsund íbúa. Í öllum sveit-
arfélögum á Vestfjörðum, að und-
anskildum Súðavíkurhreppi, var
óeðlilega lítil hreyfing á eignum
og lítið um kaup og sölu.
Tekjur undir landsmeðaltali
Meðaltekjur á Vestfjörðum voru
fjórtán prósentum undir lands-
meðaltali á síðasta ári. Lægstar
voru þær í Bæjarhreppi, eða um
183 þúsund á mánuði, sem er næst-
um helmingur af meðaltekjum á
landinu öllu. Hæstu mánaðartekj-
urnar voru í Kaldrananeshreppi,
tæp 450 þúsund, sem samsvarar
því einum og hálfum mánaðartekj-
um í Bæjarhreppi.
Atvinnuleysi var yfir meðaltali
í sex sveitarfélögum af tíu á Vest-
fjörðum, mest í Árneshreppi, þar
sem það var rúm átta prósent á
síðasta ári.
Hvergi lægra húsnæðisverð
Flóttinn af landsbyggðinni SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR
sda@frettabladid.is
Þetta er fimmta greinin af átta í
greinaflokki Fréttablaðsins um
byggðaþróun. Á morgun verður
fjallað um Norðurland vestra.
MEÐALMÁNAÐARTEKJUR
ÁRIÐ 2005
Vestfirðir 281.626 kr.
Bolungarvíkurkaupst. 343.005 kr.
Ísafjarðarbær 286.819 kr.
Reykhólahreppur 225.100 kr.
Tálknafjarðarhreppur 243.738 kr.
Vesturbyggð 235.976 kr.
Súðavíkurhreppur 259.291 kr.
Árneshreppur 198.499 kr.
Kaldrananeshreppur 447.096 kr.
Bæjarhreppur 182.820 kr.
Strandabyggð 264.477 kr.
Höfuðborgarsvæðið 353.724 kr.
Landið allt 326.782 kr.
Meðaltekjur á Vesturlandi árið 2005 voru
86% af landsmeðaltali
14% vantar upp á að meðaltekjur
á Vesturlandi nái landsmeðaltali eða
45.156 kr. á mánuði
Fermetraverð á hús-
næði á Vestfjörðum er
það lægsta á landinu.
Þriðji hver Vestfirðing-
ur hefur flutt í burtu á
síðasta aldarfjórðungi
og hefur hvergi á land-
inu orðið meiri fólks-
fækkun.
KORT BIRT MEÐ LEYFI LANDMÆLINGA ÍSLANDS
Bolungarvík
VESTFIRÐIR
Vestfirðir markast af Gilsfirði til vesturs og
Hrútafjarðarbotni til austurs og er um 9.400
ferkílómetrar að stærð, um níu prósent lands-
ins. Íbúafjöldi er um 7.500, sem samsvarar
tæpum þremur prósentum allra íbúa í landinu.
ÍsafjörðurFlateyri
Suðureyri
Þingeyri
Bíldudalur
Tálknafjörður
Patreksfjörður
KróksfjarðarnesReykhólar
Hólmavík
Reykjanes
Hnífsdalur
Drangsnes
Brjánslækur
Flatey
Súðavík
Ísafjarðarbær
Íbúar: 4.109. Fjöldi á km2: 1,71. Meðal-
tekjur: 286.819 kr. Atvinnuleysi: 1,2%
Reykhólahreppur
Íbúar: 255. Fjöldi á km2: 0,23. Meðal-
tekjur: 225.100 kr. Atvinnuleysi: 0,4%
Tálknafjarðarhreppur
Íbúar: 297. Fjöldi á km2: 1,65. Meðal-
tekjur: 243.738 kr. Atvinnuleysi: 1,5%
Vesturbyggð
Íbúar: 965. Fjöldi á km2: 0,72. Meðal-
tekjur: 235.976 kr. Atvinnuleysi: 3,3%
Súðavíkurhreppur
Íbúar: 235. Fjöldi á km2: 0,31. Meðal-
tekjur: 259.291 kr. Atvinnuleysi: 4,3%
Árneshreppur
Íbúar: 50. Fjöldi á km2: 0,07. Meðal-
tekjur: 198.499 kr. Atvinnuleysi: 8,1%
Kaldrananeshreppur
Íbúar: 112. Fjöldi á km2: 0,24. Meðal-
tekjur: 447.096 kr. Atvinnuleysi: 4,3%
Bæjarhreppur
Íbúar: 105. Fjöldi á km2: 0,21. Meðal-
tekjur: 182.820 kr. Atvinnuleysi: 4,7%
Strandabyggð
Íbúar: 500. Fjöldi á km2: 0,27. Meðal-
tekjur: 264.477 kr. Atvinnuleysi: 2,9%
Bolungarvíkurkaupstaður
Íbúar: 918. Fjöldi á km2: 8,27. Meðal-
tekjur: 343.005 kr. Atvinnuleysi: 2%
KAUPVERÐ ÍBÚÐARHÚSNÆÐIS
Á VESTFJÖRÐUM ÁRIÐ 2005*
200
175
150
125
100
75
50
25
0
*Meðalverð á fermetra eftir sveitarfélögum þar sem kaup-
samningar eru 30 eða fleiri.
Bolungarvík Ísafjarðarbær Vesturbyggð Höfuð-
borgarsv.
Landið allt 161.000 192.671
Vestfirðir 51.411
21.821
41.354
61.206
86%
14%
MANNFJÖLDAÞRÓUN
Á VESTFJÖRÐUM 1988–2005
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
-20%
-25%
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 20051988
+32,1%
+19,1%
-25,3%
■ Höfuðborgarsvæðið
■ Landið allt
■ Vestfirðir
Öll nema eitt á úreldingarlista
Ef kenningar tveggja bandarískra landfræðinga um framtíðarhorfur sveitarfélaga eru heimfærðar á Vestfirði má
setja öll sveitarfélög landshlutans á úreldingarlista, nema eitt*.
Viðmiðunarmörk: 1 2 3 4 5 6
Sveitarfélag:
Íbúar eru
helmingi færri
nú en fyrir
aldarfjórðungi
Íbúum hefur
fækkað um tíu
prósent eða meira
á síðasta áratug
Þéttleiki
byggðar er
innan við tvo
íbúa á km2
Meðalaldur
er 38 ár eða
hærri
Meðalmánaðar-
tekjur eru 10%
undir lands-
meðaltali
Fjöldi kaupsamn.
vegna íb.húsn.
2005 er undir
landsmeðaltali**
Bolungarvíkurkaupstaður nei -27% já -15% nei 8,27 nei 35,2 nei +5% nei 46,9
Ísafjarðarbær nei -19% já -11% já 1,71 nei 35,2 já -12% já 31,6
Reykhólahreppur nei -39% já -27% já 0,23 já 40,6 já -31% já -
Tálknafjarðarhreppur nei -13% nei -9% já 1,72 nei 33,0 já -25% já 40,4
Vesturbyggð nei -43% já -28% já 0,72 nei 36,8 já -28% já 35,2
Súðavíkurhreppur nei -41% já -17% já 0,31 nei 34,7 já -21% nei 76,6
Árneshreppur já -72% já -43% já 0,07 já 41,6 já -39% já -
Kaldrananeshreppur nei -42% já -23% já 0,24 já 38,3 nei +37% já 8,9
Bæjarhreppur nei -43% nei -2% já 0,21 já 40,7 já -44% já 9,5
Strandabyggð nei -29% já -27% já 0,27 nei 35,3 já -19% já 10,0
**Fjöldi kaupsamninga á hverja 1.000 íbúa. Landsmeðaltal er 44,8.
Viðmiðunarmörkin sex má sjá í töflunni og hafa þau verið heimfærð upp á íslenskar aðstæður.
Samkvæmt þessu eru átta af níu sveitarfélögum Vestfjarða í útrýmingarhættu: Ísafjarðarbær, Reykhólahreppur,
Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Bæjarhreppur og
Strandabyggð. Einungis Bolungarvíkurkaupstaður getur horft til framtíðar með nokkurri bjartsýni.
*Kenningar hjónanna Deborah og Frank Popper voru settar fram í lok níunda áratugarins og miðuðust að því að meta framtíðarhorfur til-
tekinna sveitarfélaga á sléttunum miklu í miðjum Bandaríkjunum. Þær fólust í því að setja fram sex viðmiðunarmörk sem gæfu vísbendingu
um að sveitarfélag ætti sér ekki viðreisnar von. Ef sveitarfélagið uppfyllti tvö eða fleiri skilyrði gat það talist á góðri leið með að fara í eyði.