Fréttablaðið - 04.10.2006, Síða 26
[ ]
Sumarferðir bjóða nú þriðja
árið í röð upp á skemmtileg
lífsstílsnámskeið undir leiðsögn
Bjargeyjar Aðalsteinsdóttur.
Þetta árið fara námskeiðin
fram í sólinni á Kanaríeyjum.
Nú fá Íslendingar tækifæri til að
flétta saman uppbyggilegum nám-
skeiðum og afslöppun á suðlægum
slóðum en Sumarferðir bjóða upp
á þrenns konar námskeið á Kanarí-
eyjum í vetur. „Þessi námskeið
hafa notið mikilla vinsælda enda
hefur orðið mikil vakning í þjóð-
félaginu að hugsa um líkama og
sál,“ segir Bjargey Aðalsteinsdótt-
ir íþróttafræðingur, einn af leið-
beinendum námskeiðanna. „Þetta
eru alls þrjú námskeið; Nýr og
betri lífsstíll sem er haldið 17. til
24. október, Nýr og betri dans sem
er haldið 24. til 31. október og
síðan Ný og betri kona sem fer
fram dagana 15. til 21. febrúar.“
Allar ferðirnar miða að því að
blanda saman leik og vinnu. „Nýr
og betri lífsstíll er námskeið kennt
af mér og Sóley Jóhannsdóttur
danskennara og er námskeið fyrir
konur á aldrinum 25 til 65 ára,“
segir Bjargey. „Námskeiðið er hald-
ið á eyjunni Lanzarote og er aðal-
markmiðið að hafa fræðandi fyrir-
lestra, um streitu, hjartað, næringu
og annað, í bland við skemmtilega
leikfimi. Námskeiðið hentar öllum
og er kjörið fyrir þá sem vilja taka
nýja og heilbrigðari stefnu í lífinu.
Námskeiðið Nýr og betri dans er
fyrir pör og hjón sem vilja styrkja
sambandið enn frekar. Á námskeið-
inu kenna Jói og Thea úr Dans-
smiðjunni dans, ég kenni jóga og
slökun og saman vinna pörin að
verkefni til að styrkja sambandið
og auka rómantíkina. Pörin eru
ekki látin standa upp og tala um sín
einkamál heldur eru verkefnin
unnin í einrúmi.“
Bjargey segir þriðja námskeið-
ið, Ný og betri kona, hafa átt hvað
mestum vinsældum að gegna.
„Þessi námskeið hafa alveg slegið
í gegn. Við dveljum á Tenerife í
eina viku og tökum Dale Carnegie
námskeiðið á þeim tíma. Eftir
hádegi er frjáls tími. Konurnar
hafa komið heim úr þessari ferð
bæði afslappaðar, sjálfsöruggar
og auðvitað sólbrúnar,“ segir
Bjargey og hlær.
Enn eru laus sæti á námskeiðið
Nýr og betri lífsstíll, biðlisti er á
paranámskeiðið og bókanir eru
hafnar á Dale Carnegie námskeið-
ið. Þær sem vilja freista gæfunnar
geta fylgst með Bjargeyju og
Sóleyju í Íslandi í bítið í næstu
viku þar sem tvær heppnar konur
fá gefins ferð til Kanaríeyja á
þetta vinsæla námskeið.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin má finna á sumarferdir.is.
johannas@frettabladid.is
Fræðsla, afslöppun
og sólríkar strendur
Ætli fólk sér á annað borð að taka þátt í námskeiði þá er ekki úr vegi að gera það
með stæl og halda á suðlægar slóðir með glósubók og sólarolíu.
Sóley Jóhannsdóttir danskennari og Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur leiðbeina á lífstílssnámskeiðum sem haldin verða á
Kanaríeyjum á vegum Sumarferða. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Fjölbreyttar gönguferðir í fjalllendi á Spáni eru í
boði með íslenskri leiðsögn.
Hjónin Ingibjörg Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðingur
og Rúnar Karlsson tölvunarfræðingur bjóða upp á
leiðsögn í fjallgöngum um fagurt landsvæði fyrir
ofan Costa Blanca á Spáni. Þau eru í góðu sambandi
við eigendur lítilla fjallahótela og veitingastaða sem
þekkt eru fyrir gæði og í litlum þorpum á svæðinu er
ýmis þjónusta í boði svo sem pínulítið bankaútibú,
matvöruverslun í minni kantinum, barir og veitinga-
hús, án þess þó að fórnað sé þeirri fegurð og friðsæld
sem einkennir þorpin.
Hitastigið að hausti og vetri er svipað og á góðum
sumardögum á Íslandi, meðalhiti í febrúar er um 14
gráður og í fjallshlíðunum vex fjölbreyttur gróður.
Fólk getur sérpantað gönguferðir fyrir hópa en einn-
ig eru þau hjón
með ferðir
ákveðna daga. Til
dæmis eru laus
pláss í þriggja
skóa ferð dagana
12.-19. október.
Þátttakendur
þurfa að koma
sér sjálfir á stað-
inn en beint flug
til Alicante er á
vegum margra ferðaskrifstofa. Þau Ingibjörg og
Rúnar hafa tekið þátt í rekstri hótels á þessu svæði
síðustu ár en hafa nú snúið sér alfarið að gönguferð-
unum sem nánari upplýsingar eru um á www.gongufri.
com og ganga@gongufri.com
Göngur í hálendi Spánar
Sumir stígarnir eru sex hundruð ára
gamlar þjóðleiðir frá tímum Mára.
GB ferðir bjóða gott úrval af
skíðaferðum í vetur og glæsi-
lega ferð til Aspen um jólin.
Þeir sem hafa hug á að komast úr
jólastressinu og njóta sín á skíðum
á einu besta skíðasvæði veraldar
ættu að kynna sér jólaferð GB
ferða til Aspen í Colorado. Gist
verður í tíu nætur frá 19. til 29.
desember á fimm stjörnu hótelinu
Aspen Meadows og fá gestir
aðgang að heilsulind hótelsins og
að sjálfsögðu fylgja skíðapassar
með verðinu. Í Aspen er gott snjó-
brettasvæði, brekkur sem henta
öllum getustigum, sérlega gott
færi og auk þess er Aspen ákaf-
lega fjölskyldu- og jólavænn stað-
ur.
Takmarkað sætaframboð er í
þessa ferð.
Einnig bjóða GB ferðir skíða-
mönnum ferðir til St. Moritz í
Sviss í febrúar og mars. Upplýs-
ingar um báða þessa áfangastaði
má finna á gbferdir.is. - jóa
Skíðað um jólin
St. Moritz í Sviss er glæsilegt skíðasvæði í suðurhluta Alpanna.
Árstíðin er runnin upp þegar allra veðra er von. Því
er gott að pakka niður húfu, trefli og auka sokkum hvort
sem er í langar eða stuttar ferðir.
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA
Heimagisting á besta stað í bænum.
Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
�������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
��
��
�
���� ����������
Kúba �������
����������
�����������
�����������
�����������
����
�������������������������
�������������������������
����������������
������������������������
���������������
��������������������������������
����������������������������
�������������
�����������
�������������������������������
������������������������������������
������������������������������
���������
�����������
���������������������
�����������������
�
���������������
����
�
����������������