Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 34
MARKAÐURINN
Efnahagsmál Viðskiptahallinn
mun fara í 18,7 prósent í ár og
dragast svo hratt saman á næsta
ári. Þá mun hann mælast 11 pró-
sent af landsframleiðslu en fjög-
ur prósent árið 2008. Lækkun á
gengi krónunnar á þessu ári mun
hjálpa til við þessa þróun. Þetta
er meðal þess sem kom fram í
nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðu-
neytisins.
Merki eru um að tekið sé að
draga úr umsvifum á fasteigna-
markaði og í vexti einkaneyslu.
Því er gert ráð fyrir að hægi á
hagvexti og hann verði um 4,2
prósent í lok árs. Á næsta ári er
spáð samdrætti í fjárfestingu en
minni samdrætti í einkaneyslu.
Hagvöxtur á næsta ári mun mæl-
ast eitt prósent en 2,6 prósent
árið 2008.
Gert er ráð fyrir að verðbólgan
nú í ár verði 7,3 prósent í lok árs.
Mun hún svo svo síga hratt á
næsta ári og mælast 4,5 prósent
og svo 2,5 prósent árið 2008.
Í langtímaspá til ársins 2012
er gert ráð fyrir að hagkerfið
leiti jafnvægis og hagvöxtur í lok
tímabilsins nemi um þremur pró-
sentum, verðbólga rúmum tveim-
ur prósentum og viðskiptahalli
um tveimur prósentum af lands-
framleiðslu. Í spánni er ekki gert
ráð fyrir áframhaldandi stóriðju-
framkvæmdum heldur einungis
tekið tillit til þess sem búið er að
taka ákvörðun um. Aðrir óvissu-
þættir í þjóðhagsspánni varða
gengi krónunnar og aðstæður í
alþjóðlegu efnahagslífi. - hhs
4. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Breski fjárfestingasjóðurinn 3i,
sem sérhæfir sig í yfirtökum á
skráðum félögum, greindi frá því
að fjárfestingatekjur hans hefðu
fallið um þriðjung frá því í apríl
til loka ágúst miðað við sama
tímabil í fyrra.
Sjóðurinn seldi hollenska
drykkjaframleiðandann Refres-
co til FL Group, Vífilfells og
stjórnenda fyrr á árinu fyrir
fjörutíu milljarða króna.
Hlutabréf í 3i hafa hækkað
um tæp tíu prósent á árinu og er
félagið metið á um 600 millj-
arða króna. Fjárfestingasjóðir
sem 3i nýta eigin sjóði og lán til
að fjármagna yfirtökur í því
augnamiði að bæta rekstur
hinna yfirteknu félaga.
Venjulega líta sjóðir á verkefni
sem þessi til fimm ára. - eþa
Samdráttur
hjá 3i Group
Adolf Lundin, einn kunnasti
athafnamaður Svíþjóðar, lést
um helgina á 74. aldursári.
Banamein hans var lungna-
bólga. Hann byrjaði með tvær
hendur tómar en lætur eftir sig
viðskiptaveldi sem metið er á
800 milljarða króna.
Adolf hóf störf hjá Royal Dutch
Shell eftir verkfræðinám en
síðar stofnaði hann fyrirtæki
sem hófu að leita að olíu, gasi og
jarðmálmum. Talið er að auður
hans hafi tífaldast á síðasta ára-
tug vegna mikilla hækkana á
olíuverði.
Meðal helstu eigna Lundin-
fjölskyldunnar er stór hlutur
í olíuleitarfélaginu Tanganyika
þar sem Straumur-Burðarás er
einnig meðal stærstu hluthafa.
- eþa
ADOLF LUNDIN LÁTINN Olía og jarð-
málmar lögðu hornstein að við-
skiptaveldi Lundin-fjölskyldunnar.
Adolf Lundin allur
ÞORSTEINN
ÞORGEIRS-
SON
Skrifstofu-
stjóri efna-
hagsskrifstofu
kynnti nýja
þjóðhagsspá
í gær.
Hallinn dregst hratt saman
Danski Seðla-
bankinn býst
áfram við
áframhaldandi
framþróun í
færeyska hag-
kerfinu. „Eftir
nokkur sam-
dráttarár sýnir færeyska hag-
kerfið framfarir. Þetta sést sér-
staklega á hækkandi launum og
umbótum á vinnumarkaði.“
Hagvöxtur er drifinn áfram
af háu fiskverði og vaxandi fjár-
festingu í fasteignum.
Þrátt fyrir aukinn innflutn-
ing skipa og hækkandi olíuverð
var viðskiptajöfnuður jákvæður
á síðasta ári. Á síðasta ári nam
halli á fjárlögum tveimur pró-
sentum af landsframleiðslu en
spár Danska Seðlabankans gera
ráð fyrir því að ríkisfjármálin
verði í jafnvægi árið 2006. - eþa
Hagkerfið í
Færeyjum vex
FRÁ ÞÓRSHÖFN
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Lending hagkerfisins eftir hagvaxtarskeið síðustu
þriggja ára verður nokkuð mjúk. Íbúar höfuðborg-
arsvæðisins munu þó finna meira fyrir áhrifum
samdráttar í landsframleiðslunni en aðrir lands-
búar sökum þess að þjónustugeirinn mun finna
töluvert fyrir minni neyslu. Því má búast við því að
framboð á störfum á höfuðborgarsvæðinu minnki
töluvert. Þetta er meðal þess sem fram kom á
morgunverðarfundi Greiningardeildar KB banka
í gærmorgun þar sem hagspá og sýn deildarinnar
á þróun efnahagsmála á næstu misserum voru
kynntar.
Í spánni er gert ráð fyrir að þjóðarútgjöld muni
dragast verulega saman á næstu tveimur árum.
0,2 prósenta samdráttur verði á landsframleiðslu
á næsta ári en hagvöxtur upp á 3,1 prósent árið
2008. Í máli Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns
Greiningardeildar KB banka, kom fram að það sýni
sveigjanleika íslenska hagkerfisins, sem hefur
vaxið um tuttugu prósent á síðustu þremur árum,
að áhrifin verði ekki meiri eftir svo mikinn vöxt.
Greiningardeildin spáir því að verðbólga muni
verða í kringum átta prósent í ár og ganga svo
hratt niður á næsta ári. Lækkandi olíuverð, kólnun
á fasteignamarkaði og samdráttur í þjóðarútgjöld-
um munu stuðli að þessu, auk þess sem innflutn-
ingur á erlendu vinnuafli heldur launaskriði í
skefjum.
Viðskiptahallinn, sem spáð er að verði um átján
prósent af landsframleiðslunni í ár, mun minnka
hratt og mælast 8,5 prósent á næsta ári og í kring-
um þrjú prósent árið 2008.
Mesti óvissuþátturinn í spánni er þróun gengis
íslensku krónunnar. Er gert ráð fyrir að hún muni
haldast nokkuð sterk næstu mánuði en allar líkur
séu á að hún muni taka dýfu innan tólf mánaða.
Dýpt hagsveiflunnar muni að verulegu leyti ráðast
af gengisþróun krónunnar sem hefur úrslitaáhrif á
væntingar, verðbólgu og vaxtaaðhald.
RÝNT Í EFNAHAGSHORFURNAR Greiningardeild KB banka kynnti í gær sýn sína á þróun efnahagsmála á næstu misserum.
Lendingin verður mismjúk
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu munu finna mest fyrir áhrifum
samdráttar í hagkerfinu. Í nýrri efnahagsspá KB banka er
gert ráð fyrir 0,2 prósenta samdrætti í hagvexti á næsta ári.
Verð á eldislaxi hefur lækkað
talsvert á Evrópumarkaði frá því
í sumar. Síðustu vikurnar hefur
verðið lækkað um 26-27 prósent.
Fiskifréttir hafa eftir norsku
vefsíðunni Kynt.no að verð á eld-
islaxi hafi í síðustu viku verið
að jafnaði 27,43 norskar krónur
á kíló eða um 293,50 íslenskar
krónur. Það er 25,5 króna lækkun
á milli vikna.
Verð á eldislaxinum fór hæst
í 44,50 krónur á kíló að meðal-
tali um hvítasunnuna síðustu en
síðan þá hefur verðið lækkað um
38 prósent. - jab
Laxaverðið
lækkar
Hlutfall útlendinga af heildar-
vinnuafli er nú 5,5 prósent og
hefur það nær þrefaldast frá
árinu 1998. Á morgunverðarfundi
KB banka í gær, þar sem sýn
bankans á þróun efnahagsmála
á næstu misserum var kynnt,
kom fram að innflutningur fólks
hafi orðið til þess að breyta
gríðarlegri aukningu í heildar-
eftirspurn í hagkerfinu í hagvöxt
sem líklega hefði ella sprungið
út mun fyrr með verðbólgu. Þeir
stuðli þar að auki að því að verð-
bólga muni ganga hratt niður á
árinu 2007.
Í spá KB banka kemur fram
að hætta er nú á að atvinnuleysi
aukist töluvert á næstu tveimur
árum. Ýmislegt hafi breyst frá
síðustu niðursveiflu. Ísland sé
nú til að mynda hluti af samevr-
ópskum vinnumarkaði og margir
erlendir starfsmenn hafi verið
hér nógu lengi til að öðlast ýmis
félagsleg réttindi. Stöðvun á
aðflutningi eða jafnvel fráflutn-
ingur fólks muni nú hugsanlega
ekki duga til þess að halda aftur
af atvinnuleysi líkt og þá. - hhs
Halda aftur
af verðbólgu
�
��
��
��
�
�
��
��
��
��
��
Hlutabréfasjóðir
50%
Skuldabréfasjóðir
50%
Sparnaður eftir
þínum nótum
Hefðbundna safnið –19,14% ávöxtun
Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 01.01. 2006 til 01.10. 2006.