Fréttablaðið - 04.10.2006, Side 61

Fréttablaðið - 04.10.2006, Side 61
MIÐVIKUDAGUR 4. október 2006 25 MELASKÓLI: FAGNAR 60 ÁRA AFMÆLI SÍNU Mikið um dýrðir á morgun RAGNA OG SKÓLINN Melaskóli fagnar sextíu ára afmæli á fimmtudaginn með pomp og prakt. FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR MERKISATBURÐIR 1908 Þórhallur Bjarnarson vígður biskup á Íslandi. Hann gegndi embættinu til dauðadags 1916. 1925 Lesbók Morgunblaðsins kemur út í fyrsta sinn. Blaðið hafði þá verið gefið út í tólf ár. 1931 Fyrsta myndasagan um leynilögreglumanninn Dick Tracy er gefin út. 1940 Adolf Hitler og Benito Mussolini funda í Ölpunum. Hitler biður um stuðning Ítala í baráttunni við Breta. 1984 BSRB boðar til víðfrægs verkfalls. 1990 Þýska þingið kemur saman í fyrsta sinn eftir sameiningu Austurs- og Vesturs- Þýskalands. 1994 Nelson Mandela heimsækir Bill Clinton Bandaríkjaforseta í Hvíta húsið. Sovétmenn skutu Bandaríkjamönnum ref fyrir rass og gervitunglinu Spútník út í geim á þessum degi fyrir 49 árum. Bandaríkjamenn áttu bágt með að trúa að Sovétmönnum hefði tekist að skjóta gervitungli út í geim á undan sér og óttuðust auk þess að með þessu hefðu Sovétmenn náð forystu í vígbúnaðarkapphlaupinu. Með geimskotinu náðu Sovétmenn einnig pólitísku forskoti í að treysta tengsl sín við þróunarlönd í Afríku og Asíu. Dwight Eisenhower átti í vök að verjast heima fyrir þar sem andstæðingar hans í Demókrataflokknum tóku hann á beinið fyrir að dragast aftur úr kommúnistum í tæknivæðingunni. Eisenhower brást við með því að hraða geimáætlun Bandaríkj- anna og hinn 31. janúar árið 1958 var gervitunglinu Explorer I skotið á loft. Þar með var geimferðakapphlaup stórveldanna hafið og stóð til ársins 1975. Sovétmenn skákuðu Bandaríkjamönnum aftur á nýjan leik árið 1961 þegar Júrí Gagarín varð fyrsti maðurinn til að fara út í geim en Bandaríkjamenn svöruðu fyrir sig árið 1969 með því að lenda fyrstir á tunglinu. ÞETTA GERÐIST: 4. OKTÓBER 1957 Spútník fer á loft SHIVA Á FLOT Breskir hindúar ýta líkneski af gyðjunni Shiva út á fljótið Thames. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES AFMÆLI Heiðar Ástvaldsson danskennari er 70 ára. Jóhanna Sigurðardóttir alþingiskona er 64 ára. Kjartan Gunnarsson, fráfarandi framkv.stj. Sjálfstæðisflokksins, er 55 ára. Atli Rúnar Halldórsson almannateng- ill er 53 ára. Ólöf Rún Skúladóttir fréttakona er 45 ára. Róbert Wessman, for- stjóri Actavis, er 37 ára.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.