Fréttablaðið - 04.10.2006, Page 67

Fréttablaðið - 04.10.2006, Page 67
MIÐVIKUDAGUR 4. október 2006 31 LEIKLIST SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR SITJI GUÐS ENGLAR Þjóðleikhúsið Höfundur: Guðrún Helgadóttir Leikgerð: Illugi Jökulsson Söngtextar: Þórarinn Eldjárn Leikarar Brynhildur Guðjónsdóttir/ Þórunn Erna Clausen/Baldur Trausti Hreinsson/Ragnheiður Steindórsdóttir/ Sigurður Skúlason/Darri Ingólfsson/ Hjálmar Hjálmarsson/Kjartan Guð- jónsson/Kristján Franklín Magnús/Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir/Nanna Kristín Magnúsdóttir. Tónlist Jóhann G. Jó- hannsson/Lýsing Hörður Ágústsson/ Búningar Þórunn Elísabet Sveins- dóttir/ Leikmynd Frosti Friðriksson/ Leikstjóri Sigurður Sigurjónsson. Barnasýning Þjóðleikhússins að þessu sinni er unnin upp úr hinum ástsælu bókum Guðrúnar Helgadóttur um stóru sjómannsfjölskylduna í Hafnarfirði – sem er nokkuð víst að flestir þekkja. Þær fjalla um hvunndaginn í hverfi fjölskyldunnar sem fer stöðugt vaxandi. En það er ein- mitt í hvunndeginum sem börnin mæta stórum örlögum, sjá líf kvikna, standa andspænis dauðanum, finna til samúðar með öðrum, sjá ástina blómstra á röng- um stöðum - en samt heldur lífið áfram; alltaf dagur eftir þennan dag. Það er nokkuð djarft að vinna leikgerð upp úr svo elskuðum bókum. Það hafa nánast allir lesið þær og þessir nánast allir eiga sér uppáhaldshluta og -atriði. Það er því hætt við að menn verði ósáttir við leikgerðina, finnist vanta hitt og þetta og öðru ofaukið. Auðvitað vantar sum af mínum uppáhaldsatriðum, en málið snýst ekki um það. Það er ekki verið að endursegja bækurnar þrjár. Aðalatriðið er að stærstu örlögin eru í leikgerðinni, karakterar sögunnar ljóslifandi og þráður- inn heillegur. Hún er því alveg prýðilega unnin. Það sem mestu skiptir er hversu vel hefur tekist með karaktersköpunina – og þar vega kannski afi og Abba þyngst. Sig- urður Skúlason var yndislegur í hlutverki hins orðljóta en kærleiksríka afa sem segist vera orðinn alger aumingi og ekki skemmdi Ragnheiður Steindórsdóttir fyrir í hlutverki ömmunnar sem er alger and- stæða hans. Ekki kom fram hvor lék Öbbu á frumsýningu, Tanja Líf Traustadóttir eða Þorbjörg Erna Mímisdóttir – en þessi litla títla var alger senuþjófur, svo dásamlega eðlileg. Heiða, stóra systir, var leikin af Brynhildi Guðjónsdóttur og þar var helsta brotalömin. Brynhildur er einfaldlega of gömul í hlutverkið. Það sést og hún átti greinilega í basli með að finna karakterinn sem hæfir aldri Heiðu. Látbragð var eins og hún væri átta ára og mann eiginlega sundlaði þegar hún átti orðið kærasta sem var að fara á sjóinn. Í hlutverkum ástföngnu foreldranna á heimilinu eru Þórunn Erna Clausen og Baldur Trausta- son og skiluðu sínu ágætlega, einkum því hvað þau eru sterkur grunnur að lífi þeirra barna sem allt verkið snýst um og veita þeim mikið öryggi. Önnur hlutverk í sýningunni eru minni – en unnin af sömu alúðinni. Það var að mestu leyti gaman að horfa á leikhópinn vinna. Leikmyndin er unnin inn í hringsviðið og snýst fram og til baka. Yfirleitt hefur mér fundist slíkt klúðurslegt – en í þessari sýningu gengur það upp. Leikmyndin er ekki of fyrirferðarmikil; í henni eru margar ágætar lausnir og vinnur með leikurunum í stað þess að þvælast fyrir þeim. Búning- ar eru fallegir og ekki laust við að maður fylltist fortíðarþrá. Svona voru fötin þegar ég var lítil þótt það væri áratug og hálfum betur frá tíma sögunnar. Allir strákar áttu peysur eins og þær sem Heiða prjónar á bræður sína. Þá breyttist ekki tískan á hálfs mánaðar fresti. Leikstjórinn hefur farið þá leið að laða fram karakter hvers og eins, hvort sem er í litlum eða stórum hlutverkum. Það er enginn í sýningunni bara að fara með textann sinn og fyrir bragðið er sýningin bæði lifandi og skemmtileg. Englar hvunndagsins Bjarni Bernharður, ljóðskáld og myndlistarmaður, hefur sent frá sér ljóðabókina Vélgöltinn þar sem hann gerir upp við örlagaríka atburði úr fortíð sinni. Þetta er tólfta ljóðabók Bjarna sem hefur verið afkastamikill á síðustu árum. „Ég hef gefið út eina bók á ári frá árinu 2002,“ segir Bjarni. „Ég hef verið að gera líf mitt upp í ljóðum og sé fram á að sá hringur fari að lokast,“ segir Bjarni sem telur sig þó örugglega þurfa tvær bækur til viðbótar áður en hann lýkur þessu uppgjöri. Bjarni hyggst einnig gera lífi sínu betri skil í skáldævisögu sem hann segist vera kominn vel á veg með. „Þetta er skáldsaga sem byggir á sjálfsævisögulegum grunni,“ segir Bjarni sem eyðir drjúgum tíma í skriftir á milli þess sem hann sinnir myndlistinni. „Ég er nú svo lánsamur að þetta hefur ekkert þvælst hvort fyrir öðru og á meðan ég sinni ritstörf- um læt ég málverkin eiga sig og öfugt.“ Bjarni er með málverka- sýningu í gangi í 12 Tónum þessa dagana en annars eiga ljóðin hug hans allan um þessar mundir. „Ég er alltaf að semja ljóð en svo er ég líka að ganga frá ljóða- safni með úrvali úr síðustu tíu bókum mínum. Elstu ljóðin mín hafa mörg hver verið illfáanleg lengi og ég held að helst megi finna þau í fornbókabúðinni hans Braga Kristjónssonar.“ Bjarni er vanur því að selja ljóð sín í Austurstræti og það verður engin breyting þar á þannig að fólk getur nálgast Vélgöltinn þar, auk þess sem bókin verður seld í bókaverslunum. - þþ Fortíðin gerð upp í ljóðum BJARNI BERNHARÐUR Yrkir og málar á víxl. Hann var að senda frá sér sína tólftu ljóðabók og vinnur jafnframt að skáldævisögu sinni. Fagnefnd Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar hefur úthlutað styrkjum í síðari styrkja- lotu ársins. CIA.IS styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýn- ingarhalds erlendis en á árinu hafa slíkir styrkir hlotnast fjöru- tíu listamönnum. Í fagnefnd Kynningarmiðstöðv- arinnar sitja Dr. Christian Schoen, forstöðumaður Kynningarmið- stöðvarinnar og formaður nefnd- arinnar, Helgi Þorgils Friðjóns- son, myndlistarmaður og fulltrúi SÍM, og Hafþór Yngvason, for- stöðumaður Listasafns Reykjavík- ur. Gestir nefndarinnar að þessu sinni voru listfræðingarnir Lauf- ey Helgadóttir og Jón Proppé. Miðstöðinni bárust 24 umsóknir að þessu sinni og voru 7 styrkir veittir í 3 flokkum. Ferða- og dvalarstyrk að upp- hæð 200.000 hlaut Ólafur Árni Ólafsson vegna dvalar í vinnustof- unum Kuenstlerhaus Bethanien, í Berlín í Þýskalandi. Ólafi Árna hefur verið boðin dvöl í Kuenst- lerhaus Bethanien, einni af stærstu og virtustu alþjóðlegu vinnustofum sinnar tegundar í Evrópu. Ólafur Árni er búsettur í Amsterdam ásamt konu sinni Libiu Peres de Siles de Castro, en þau hafa starfað saman í myndlist síðastliðin tíu ár. Útgáfustyrk að upphæð 200.000 kr. hlutu annars vegar ljósmynd- arinn Spessi vegna útgáfu ljós- myndabókarinnar „Locations“, Spessi hefur tekið myndirnar í bókina víða á Íslandi þar sem manngert umhverfi blandast nátt- úrunni. Spessi starfar sem ljós- myndari og myndlistarmaður hér á landi og erlendis. Hins vegar Sequences-hátíðin vegna útgáfu DVD með skrásetningum frá við- burðum hátíðarinnar. Sequences- hátíðin er alþjóðleg myndlistarhá- tíð með áherslu á tímatengda miðla sem haldin verður í Reykja- vík 13.-28. október næstkomandi. Eftir hátíðina er ætlunin að gefa út DVD disk með upplýsingum um hátíðina til dreifingar erlendis. Verkefnastyrki að upphæð 200.000 hlutu Finnbogi Pétursson og Rúrí. Finnbogi hlaut þau vegna hljóðinnsetningar í Land Founda- tion í Chiang Mai í Taílandi. Finn- bogi mun gera hljóð-innsetningu, taka þátt í verkefnavinnu og halda fyrirlestra í listaháskólanum í Chiang Mai í Taílandi og Rúrí vegna þátttöku í Paris Photo 2006 þar sem hún verður í nóvember- mánuði. Verkefnastyrki að upphæð 100.000 hlutu Steingrímur Eyfjörð vegna þátttöku sinnar í „Dream- lands Burn“, norrænni nútíma- listasýningu í Kunsthalle Buda- pest í Ungverjalandi og Kling & bang gallerí sem fær styrk vegna þátttöku í Art Brussels Contemp- orary listamessunni, þar sem kynntir verða ungir upprennandi listamenn. Önnur úthlutun CIA ÓLAFUR ÁRNI ÓLAFSSON MYNDLISTAR- MAÐUR Fær styrk til vinnustofudvalar í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FINNBOGI PÉTURSSON Hlýtur verkefna- styrk vegna sýningar í Thaílandi. Sýningin „Ef þú giftist“, um brúð- kaup og brúðkaupssiði, sem nú stendur yfir í Minjasafni Akureyr- ar, hefur verið framlengd til 19. nóvember vegna góðrar aðsóknar. Efni sýningarinnar byggir á brúðkaupssýningunni „Í eina sæng, íslenskir brúðkaupssiðir“, sem sett var upp í Bogasal Þjóð- minjasafns Íslands árið 2004. Fjall- að er um trúlofunar- og brúðkaups- siði fyrr og nú, veislur, gjafir og klæðnað, og ungbarnaumönnun. Auk þess spannar hún þróun klæðnaðar og ljósmyndahefðar frá því á seinni hluta 19. aldar fram til dagsins í dag. Sýningin er sam- vinnuverkefni Minjasafnsins á Akureyri og Þjóðminjasafns Íslands. Önnur söfn, fjölmargir einstaklingar og starfandi ljós- myndarar á Akureyri hafa einnig lagt hönd á plóginn til að skapa þessa skemmtilegu og fræðandi sýningu, til dæmis með því að lána þangað muni og myndir. Safnið verður opið allar helgar frá 14-16 fram til 19. nóvember og eftir samkomulagi. Við sýningar- lok verður dregið úr veglegum vinningum sem fjöldamörg fyrir- tæki hafa látið safninu í té vegna lukkupottsins „Heppin/n í ástum“. Í honum eru nöfn þeirra sem leigt hafa Minjasafnskirkjuna og Lauf- áskirkju til athafna árið 2006. Minjasafn Akureyrar er stað- sett við Aðalstræti 58 en nánari upplýsingar um sýninguna má finna á www.akmus.is. Ævarandi rómantík BRÚÐHJÓNIN GUÐRÚN RAGNARS OG GEIR BORG GANGA Í ÞAÐ HEILAGA Í Minjasafni Akureyrar má kynnast brúð- arsiðum fyrr og nú en sýningin „Ef þú giftist“ hefur nú verið framlengd. MYND/HALLGRÍMUR EINARSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.