Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 69

Fréttablaðið - 04.10.2006, Qupperneq 69
MIÐVIKUDAGUR 4. október 2006 33 Kvikmyndagerðamaðurinn Ari Alexander Ergis sýnir stuttmyndina sína Arab- ískar nætur á undan mynd Michaels Winterbottom, The Road to Guantanmo, laugardaginn 7. október klukkan tíu á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Mynd Ara er nokkuð sláandi en í forgrunni er aflífun Jacks Kensl- ey, bandarísks hermanns sem tek- inn var til fanga og afhausaður í beinni útsendingu á veraldarvefn- um. Íraksstríðið hefur verið gagn- rýnt töluvert að undanförnu en Ari segist ekki vera að taka afstöðu til þess með myndinni. „Ég finn jafnmikið til með Banda- ríkjamönnum, Írökum og svo þeim sem telja á sig ráðist. Arab- ískar nætur er kannski ekki beint gagnrýni á Íraksstríðið sem slíkt heldur á stríðsrekstur í heild sinni, samanber stríðið í Tsje- tsjeníu þar sem Rússar fara offari. Sagan endurtekur sig ein- faldlega aftur og aftur,“ segir Ari. „Ég notast við klippur af net- inu, svokallað snuff dót og blanda því saman við fréttamyndir,“ útskýrir Ari sem segist vera undir miklum áhrifum frá Tag der Frei- heit, mynd eftir Leni Riefenstahl sem gerð var eftir hina umdeildu kvikmynd, Sigur viljans. „Nasist- um fannst þýska vélin ekki vera sýnd nægilega mikið í Sigri vilj- ans og fannst því tilvalið að sýna styrk þýska stálsins enn frekar,“ segir Ari og bætir því jafnframt við að áhrifa Chaplins gæti einnig enda hafi hann gert The Great Dictator þar sem óspart hafi verið gert grín að áróðursaðferðum þriðja ríkisins. „Við sjáum þessa sömu hluti gerast hjá Bandaríkj- unum þar sem stórar og flottar þyrlur og flugvélar eru sýndar í fullri „action“.“ Ari segist hafa fylgst vel með gangi mála í Írak. „Myndin var frumsýnd á sunnudaginn og við vorum tilbúnir með hana á laugar- deginum. Þetta er afrakstur margra mán- aða vinnu og á Arnar Ívarsson sem sér um tölvugrafíkina alveg sérstakt hrós skilið sem og Þór Eldon en hann semur tónlistina,“ útskýrir Ari sem fannst tímasetn- ingin á sýningu myndarinnar eiga sérstaklega við nú þegar kvik- myndin um fangabúðirnar á Kúbu rataði á Alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðina í Reykjavík. „Kvikmynda- hátíðin á mikið hrós skilið fyrir að sýna þær myndir sem eflaust aldrei hefðu komið í bíó og gest- irnir tveir á mánudagskvöldið, þeir Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal, höfðu mikil áhrif á mig sem og aðra sem þarna voru staddir,“ segir Ari. freyrgigja@frettabladid.is Afhausun í beinni í stuttmynd Ara EKKI BEINT GEGN ÍRAK Mynd Ara Alexanders, Arabískar nætur, er nokkuð sláandi en leikstjórinn segir hana ekki beint gegn Íraksstríðinu sem slíku heldur stríðsrekstri í heild sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI OFBELDI OG DAUÐI Íraksstríðið hefur verið blóðugt og sársaukafullt en þegar hafa fimmtíu þúsund manns látist af völdum þess síðan innrásin hófst í mars 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Leikkonan ást- sæla Kate Wins- let hefur ákveðið að taka sér hlé frá kvikmyndum í bili til að sinna móðurhlutverk- inu. Winslet er gift leikstjóran- um Sam Mendes og eiga þau saman einn son en Winslet á einnig eina dótt- ur úr fyrra hjónabandi. Winslet tók þessa ákvörðun eftir að hafa verið við tökur á kvik- myndinni Little Children þar sem hún var í hlutverki móður sem á í erfiðleikum með börn sín. „Ég áttaði mig á því við tökurnar hversu mikilvægt það er að sam- band foreldra og barna sé í lagi og nú ætla ég að einbeita mér að því með börnunum mínum,“ segir hin breska leikkona Kate Winslet. Tekur sér frí KATE WINSLET Ætlar að taka sér hlé frá kvikmynd- um til að einbeita sér að barnaupp- eldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS Leikarinn George Clooney vill gera slúðurblaðamenn og ljósmyndara ringlaða. Hann segist vilja fara á stefnumót með karlmanni, helst leikaranum Leon- ardo DiCaprio til að koma í veg fyrir að slúðurblöðin fái að vita hvern hann sé í raun og veru að hitta. Þetta segir hann í viðtali við bandaríska tímaritið Vanity Fair. George Clooney er mjög þekkt- ur hjartaknúsari og verið kenndur við margar frægar leikkonur í gegnum tíðina en er á lausu þessa stundina. Gabbar blöðin GEORGE CLOONEY [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN Regina Spektor er fædd í Moskvu en flutti til Bronx-hverfisins í New York með fjölskyldu sinni þegar hún var átta ára. Hún hefur verið áberandi í jaðarþjóðlagasenu New York-borgar undanfarin ár. Begin to Hope er hennar fjórða plata, en sú fyrsta sem hún gerir fyrir stórt plötufyrirtæki. Hinar þrjár fyrstu 11-11 (2001), Songs (2002) og Sovi- et Kitch (2004) gaf hún út sjálf. Hún vakti nokkra athygli þegar hún söng lagið Modern Girls and Old-Fashioned Men með The Strokes, en hún hefur spilað mikið með þeim á tónleikum. Regina er klassískt menntaður píanóleikari. Tónlistin hennar er í grunninn sérviskulegt píanópopp með persónulegum og skrautleg- um textum og minnir oft svolítið á Tori Amos eða Fionu Apple. Það má segja að henni hafi vaxið ásmegin með hverri plötu. Í byrj- un var hún fyrst og fremst efni- leg, en með Begin to Hope hefur hún náð að gera plötu sem er létt- leikandi og auðmelt, en líka áhuga- verð. Útsetningarnar eru oft skemmtilegar og lagasmíðarnar eru flottar. Það eru nokkur lög á plötunni sem gætu vel náð vin- sældum, þ.á m. Fidelity, Samson, Hotel Song og On the Radio sem hefur heyrst töluvert á íslenskum útvarpsstöðvum að undanförnu. Regina hefur flotta rödd sem minnir mann stundum á Emilíönu Torrini, en hún beitir henni oft grallaralega. Textarnir eru skemmtilegir og eiga stóran þátt í því að skapa Reginu þá sérstöðu sem hún hefur. Á heildina litið er hér á ferðinni litrík og skemmtileg plata frá tón- listarkonu sem maður verður að reikna með í framtíðinni. Trausti Júlíusson Litrík og skemmtileg REGINA SPEKTOR BEGIN TO HOPE Niðurstaða: Með Begin to Hope hefur Reginu Spektor tekist að búa til plötu sem er poppuð og léttleikandi, en líka sérviskuleg og áhugaverð. Lindsay Lohan skellti sér á stefnu- mót með Keanu Reeves í vikunni. Leikkonan unga og hjartaknúsar- inn Keanu sáust yfirgefa Teddy‘s Lounge í Los Angeles um helgina og þótti viðstöddum sem afar vel færi á með þeim. Lindsay er nýhætt með kærastanum Harry Morton og segja illa tungur að stefnumótið með Keanu hafi bara verið til að gera hann afbrýðis- saman. Á deit með Keanu LINDSAY Hefnir sín á kærastanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.