Fréttablaðið - 04.10.2006, Side 78
4. október 2006 MIÐVIKUDAGUR42
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 93 ökumenn.
2 Lilleström.
3 Hjálmur.
LÁRÉTT
2 skvetta 6 holskrúfa 8 neðan 9 veitt eftir-
för 11 guð 12 fugl 14 góð lykt 16 karlkyn 17
arinn 18 for 20 frá 21 fimur.
LÓÐRÉTT
1 á kökur 3 tveir eins 4 úða 5 herma 7
hrekkur 10 að 13 skilaboð 15 skott 16 kóf
19 slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 gusa, 6 ró, 8 upp, 9 elt, 11 ra, 12
meisa, 14 ilmur, 16 kk, 17 stó, 18 aur, 20
af, 21 frár.
LÓÐRÉTT: 1 krem, 3 uu, 4 sprauta, 5 apa,
7 óleikur, 10 til, 13 sms, 15 rófa, 16 kaf,
19 rá.
Gerður Kristný rithöfundur stóð
í stórræðum í sumar og skóp
hvorki meira né minna en nýtt
löggjafarþing. „Alþingi hafði
samband við mig og bað mig um
að skrifa handrit að skólaþingi
fyrir nemendur í 9. og 10. bekk,
sem fer vonandi í gang næsta
haust,“ segir Gerður.
Þingið er að norrænni fyrir-
mynd og er skipulagt þannig að
unglingarnir mæta í húsnæði
sem er eftirlíking af Alþingi og
bregða sér í hlutverk þingmanna.
„Ég hafði þann starfa að semja
drög að fjórum uppistöðuflokk-
um, 56 þingmönnum og frum-
vörpum sem þeir bítast um. Ég
vann með nefnd á vegum Alþing-
is og við gættum þess að frum-
vörpin væru tímalaus en jafn-
framt áhugaverð og hefðu erindi,
ekki mál sem verða útjöskuð
strax.“
Skemmtilegast fannst Gerði
hins vegar að semja bréf, blogg-
síður, tölvupósta og símtöl þing-
manna sem og lobbíastanna og
almennings sem vill hafa áhrif á
störf þingsins. „Það var sér í lagi
skemmtilegt að bregða sér í hlut-
verk kverúlanta sem vilja her-
skyldu á Íslandi svo að þjóðin
geti gengið í takt á 17. júní.“
Hún segir þessa reynslu hafa
verið alla hina lærdómsríkasta
og rökrétt að nýta hana enn
betur. „Nú langar mig að stofna
minn eigin stjórnmálaflokk og
hafa í kringum mig her kverúl-
anta,“ segir Gerður Kristný, sem
sendir brátt frá sér barnabókina
Land hinna týndu sokka.
Vill stofna eigin stjórnmálaflokk
GERÐUR KRISTNÝ Samdi skólaþing fyrir
nemendur í 9. og 10. bekk.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR BOGI
Inga Lind Karlsdóttir, sem verið
hefur ein aðalsprautan í dægur-
málaþættinum Ísland í dag,
hefur ákveðið að segja skilið við
þáttinn og Stöð 2. Inga sagði í
samtali við Fréttablaðið að hún
væri ekki að fara í neinu fússi en
viðurkenndi að breytingar innan
fyrirtækisins hefðu sitthvað
með það að segja en eins og
kunnugt er var fréttastöðinni
NFS lokað fyrir skemmstu með
miklum breytingum. „Eitt og
annað hefur breyst að undan-
förnu sem hefur orðið til þess að
ég hef ákveðið að segja mig frá
þessu verkefni,“ sagði sjón-
varpskonan.
Inga Lind sagðist ekki vera á
förum samstundis, hún væri enn
með nokkur mál ókláruð. „Ég
læt mig ekki bara hverfa á stund-
inni,“ sagði Inga en vildi ógjarn-
an gefa upp hvað hún ætlaði að
taka sér fyrir hendur. „Það eru
nokkur mál sem ég ætla að skoða
í rólegheitunum,“ útskýrði Inga
og sagðist ekki vera komin með
nóg af sjónvarpsmennsku. „Það
eru hins vegar ákveðin tímamót
í mínu lífi. Ég hef verið að taka
viðtöl í sjónvarpi og stýra sjón-
varpsþáttum í fjögur ár og
fannst bara tímabært að breyta
um umhverfi.“ - fgg
Hef ekki sagt mitt síðasta í sjónvarpi
INGA LIND Stendur á tímamótum og er
hætt á Stöð 2 eftir fjögurra ára starf.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ALÞINGISMENNIRNIR: TAKA Á ÞVÍ Í RÆKTINNI
Fjölmargir í kosningaátaki
... fær Unnur Linda Konráðs-
dóttir fyrir að taka slaginn, í
bókstaflegum skilningi, og fara
til Taílands til að nema
bardagaíþróttina Muay thai.
Fréttamaðurinn Páll Benediktsson
gekk í hjónaband um síðustu
helgi. Páll gekk að eiga unnustu
sína, Birnu Björg Berndsen, við
látlausa athöfn í heimahúsi.
Til að fagna þessum
stóráfanga í lífi sínu
dveljast hjónakornin nú á
sólarströnd en Páll er
væntanlegur á skjáinn
aftur innan tíðar.
Leikkonurnar í kvenfélaginu Garpi
eru með eindæmum frjósamar um
þessar mundir. Þær María Heba
Þorkelsdóttir og Esther Talía
Casey eiga báðar von á stúlkum,
Esther síðar í mánuðinum en María
í desember. Af þessum sökum
verður leikritið Gunnlaðarsaga
einungis sýnt út október í
Hafnarfjarðarleikhúsinu og því
fækkar tækifærum fyrir áhugasama
til að sjá þessa áhugaverðu sýningu.
Frjósemin kemur þó ekki í veg fyrir
að kvenfélagskonurnar kynnu að
vera á leið með verkið út fyrir
landsteinana. Að minnsta
kosti heyrist því hvíslað að
breskur leikhússtjóri sé á
leið hingað til landsins
til að sjá sýninguna og
kvenfélagskonur neita
því ekki að þær hafi
verið í sambandi við
erlend leikhús um
möguleika á utanför á
næsta ári.
Einhverjum matargestum á
Thorvaldsen Bar svelgdist á um
helgina þegar vægast sagt opinská
kynlífsatriði bar fyrir augu þeirra
á sjónvarpsskjám staðarins.
Ekki var þó um það að ræða
að klámmynd hefði fyrir mistök
verið sett af stað í sjónvarpskerfi
veitingastaðarins heldur var
um innslag um Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðina í Reykjavík
að ræða en meistaranemar í
blaða- og fréttamennsku við HÍ og
kvikmyndanemar í Borgarholtsskóla
útbúa í sameiningu dagleg innslög
frá hátíðinni. Innslögin eru svo sýnd
á vef hátíðarinnar www.riff.is og
í upplýsingamiðstöð hátíðarinnar
á Thorvaldsen. Innslagið sem
sjokkeraði siðprúða gesti staðarins
fjallaði um hina mjög svo opinskáu
kynlífsmynd Shortbus og var því
eðli málsins samkvæmt í grófari
kantinum. Sýning innslagsins var
stöðvuð snarlega á Thorvaldsen
en forvitnir geta enn skoðað það
á vefnum. Þá má geta þess að
myndin Shortbus verður sýnd í
Tjarnarbíó á föstudaginn. - hdm/þþ
FRÉTTIR AF FÓLKI
Í hönd fer kosningavetur hjá
alþingismönnum, þingkosningar
verða í maí og má reikna með hat-
rammri baráttu milli flokka sem
og flokksmanna enda prófkjör á
næsta leiti. Þingmenn mega ekki
vera gráir og guggnir í augum
kjósenda og samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins eru þingmenn-
irnir því margir hverjir orðnir
fastagestir á líkamsræktar-
stöðvunum.
Að sögn Björn Leifssonar,
eiganda Lauga, hafa þing-
menn lengi verið fastagest-
ir hjá honum en Björn
gladdist yfir þeim fregn-
um ef þingmenn ætluðu að
taka líkamsræktina enn
fastari tökum. Hann sagði
enda líkamsræktina prýð-
isgóðan stað fyrir þing-
menn. „Hérna geta þeir jú
lyft lóðum, hlaupið og rætt
málin við kjósendur sína,“
sagði Björn sem taldi það
mjög gott fyrir
þingmenn
að
slíta
daginn í sundur með hvers kyns
hreyfingu. „Þeir geta þá afstress-
ast á miðjum degi,“ útskýrir hann
en sagði að sömu æfingar giltu
um þá og aðra. „Þeir eru jú gerðir
úr sama efnivið.“
Að sögn Gunnars Steins Páls-
sonar almannatengils er ekki
nauðsynlegt fyrir þingmenn að
fara í líkamsrækt
upp á atkvæða-
fjöldann. „En
það skemmir ábyggilega ekki
fyrir,“ segir hann. „Stundum
getur það eflaust hjálpað til en
þetta gildir auðvitað ekki bara
fyrir þingmenn heldur alla,“ segir
Gunnar Steinn. Hvort líkams-
ræktarstöðvarnar væru góður
fundarstaður við kjósendur sagði
Gunnar Steinn að þetta væri
ábyggilega ekki fljótlegasta leið-
in til að nálgast þá. „Og örugglega
ekki sú auðveldasta,“ sagði hann
og hló. Bætti því síðan við að
hann hefði aldrei í sínu
starfi sem ráðgjafi
prófkjörsskjól-
stæðinga sinna
mælt sérstak-
lega með lík-
amsrækt eða
gert hana að
einhverju
úrslitaatkvæði.
„Auðvitað skipt-
ir útlitið í heild
sinni miklu máli
og líkamsræktin
er hverjum manni
holl í þeim efnum.“
freyrgigja@fretta-
bladid.is
ÞORGERÐUR KATRÍN
Stundar líkamsrækt af
miklum þrótti og mætir
snemma á morgnana.
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR Tekur
vel á því í Laugum.
GEIR HAARDE Þykir taka
sig vel út í líkamsræktinni.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Hefur verið
fastagestur í Laugum um nokkurt
skeið og herma heimildir blaðsins að
kappinn sé jafnframt farinn að hljóla.
BJÖRN LEIFSSON Ánægður
að sjá þingmennina púla í
líkamsræktinni.
GUNNAR STEINN Sagði
hverjum manni hollt
að hreyfa sig, ekki bara
þingmönnum.
Líka fyrir þig;
lífið, fréttirnar
og fjörið á ensku
*G
al
lu
p
O
kt
ó
b
er
2
00
5
Mest
lesna
tímaritið
*