Fréttablaðið - 05.10.2006, Qupperneq 12
12 5. október 2006 FIMMTUDAGUR
MENNING Þrír hlutu styrki úr Minn-
ingarsjóði frú Stefaníu Guðmunds-
dóttur sem veittir voru fyrir leik-
árið 2005 til 2006 á mánudagskvöld.
Grétar Reynisson leiktjaldahönn-
uður, Baltasar Kormákur leikstjóri
og Gunnar Eyjólfsson leikari hlutu
allir 400 þúsund króna styrk.
Frú Stefanía, sem er talin hafa
verið einn stórbrotnasti sviðslista-
maður Íslands á fyrri hluta 20.
aldar, hefði orðið 130 ára á þessu
ári. „Því var ákveðið veita þeim 25
leiklistarmönnum sem hlotið hafa
styrk úr sjóðnum minjagrip sem
við köllum Stefaníustjakann,“ segir
Kjartan Borg, formaður stjórnar
sjóðsins. - sdg
Minningarsjóður Frú Stefaníu veitir þrjá 400 þúsund króna styrki:
Leiklistarfólk hlýtur stuðning
GRÉTAR REYNISSON, GUNNAR EYJÓLFSSON OG BALTASAR KORMÁKUR Þremenning-
arnir hlutu styrki fyrir vinnu sína við uppsetningu á Pétri Gaut.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Samfylkingin
í Reykjavík lagði það til á fundi
borgarstjórnar í gær að borgar-
stjóri myndi hefja viðræður um
flutning á málefnum aldraðra,
fatlaðra og heilsugæslu frá ríki til
borgarinnar.
Björk Vilhelmsdóttir borgar-
fulltrúi segir að almennur vilji sé
meðal sveitarstjórnarfólks að
flytja verkefni frá ríki til
sveitarfélaga. Flutningur á
málum aldraðra sé einnig á
stefnuskrá félags eldri borgara.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri lagði til að tillögunni
yrði vísað til stjórnkerfisnefndar.
- ss
Samfylkingin í Reykjavík:
Nærþjónusta til
borgarinnar
FLÓÐ Í FRAKKLANDI Vegfarandi veður
vatnið á götu í bænum Ramberviller
í Vogesa-fjöllum í Austur-Frakklandi í
gær. Mikil úrkoma hefur verið á þess-
um slóðum að undanförnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
SUÐUR-KÓREA, AP Nágrannar Norð-
ur-Kóreu héldu í gær áfram að
bregðast harkalega við yfirlýsingu
ríkisstjórnar kommúnistaríkisins á
þriðjudag um að tilraunir með
kjarnorkuvopn yrðu gerðar á næst-
unni.
Kínverjar og Bandaríkjamenn
hvöttu til stillingar, en Japanar fóru
fram á snögg og ákveðin viðbrögð
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
sem fundaði í gær fyrir lokuðum
dyrum um fyrirætlanir Norður-
Kóreu.
Fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá
SÞ hvatti í gær til þess að aðildar-
lönd öryggisráðsins hittust „til að
þróa samhangandi stefnu sem sann-
færir þá um að það sé ekki í þeirra
þágu að prófa kjarnorkuvopn“.
Fastafulltrúi Kína, Wang Guang-
ya, sagðist telja að áframhaldandi
samningaviðræður fimm stórþjóða
við Norður-Kóreu, sem hafa verið
árangurslitlar undanfarið, væri
betri lausn heldur en að öryggis-
ráðið gangi í málið.
Nýr forsætisráðherra Japans,
Shinzo Abe, sagði hins vegar að
þjóð sín gæti „hreint ekki sætt sig
við“ kjarnorkuvopnatilraunir
nágrannaþjóðar sinnar, og studdu
Frakkar Japana í umleitun eftir
skjótum viðbrögðum öryggisráðs-
ins.
Norður-Kóreumenn, sem hafa
löngum sagst eiga kjarnavopn, hafa
hingað til ekki prófað þau svo að
vitað sé. Í tilkynningunni sem utan-
ríkisráðuneyti Norður-Kóreu sendi
frá sér sagði að tilraunirnar yrðu
gerðar á öruggum stað undir
strangri stjórn vísindamanna.
Tilraunirnar munu verða gerðar
í þeim tilgangi að styrkja varnir
landsins gegn því sem kallað var
aukinn fjandskapur Bandaríkj-
anna.
Bandaríkin og Kína eru meðal
fimm þjóða heims sem viðurkenna
opinberlega að eiga kjarnorkuvopn.
Hinar eru Frakkland, Rússland og
Bretland. Einnig þykir ljóst að Pak-
istan og Indland eigi kjarnorku-
vopn, og grunur leikur á að Ísrael
og Norður-Kórea búi einnig yfir
kjarnorkuvopnum. smk@frettabladid.is
Brugðist við hótun-
um Norður-Kóreu
Kína og Bandaríkin vilja að farið verði með gát að Norður-Kóreu, en Japanar
vilja tafarlaus afskipti Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Norður-Kóreumenn
ætla að prófa kjarnavopn á næstunni, en engin dagsetning hefur verið tilkynnt.
FYRIRÆTLUNUM NORÐUR-KÓREU MÓTMÆLT Suður-
Kóreumenn mótmæltu opinberlega í gær fyrirætlunum
nágrannaþjóðar sinnar, Norður-Kóreu, um að prófa
kjarnorkuvopn. Ríkisstjórn Norður-Kóreu hefur ekki
gefið upp hvenær fyrirhugaðar tilraunir muni fara fram,
en lofar að þær verði gerðar undir ströngu eftirliti vís-
indamanna við öruggar aðstæður. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
WASHINGTON, AP Tekið er að hitna
undir Denis Hastert, leiðtoga
repúblikana í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings, vegna gagnrýni eigin
flokksmanna á hvernig hann hefur
tekið á hneykslismáli þingmanns-
ins Marks Foley.
Foley, sem sagði skyndilega af
sér þingmennsku í lok síðustu
viku, hefur innritast á meðferðar-
stofnun fyrir áfengissjúklinga.
Hann sætir lögreglurannsókn
vegna tölvusamskipta við vika-
pilta á Bandaríkjaþingi. Foley
hafði sent piltunum, sem eru á
unglingsaldri, ýmis dónaleg skila-
boð.
„Ég trúi því fastlega að ég sé
áfengissjúklingur og hef fallist á
nauðsyn þess að gangast þegar í
stað undir meðferð við áfengis-
sýki og öðrum hegðunarvand-
kvæðum,“ sagði Foley í yfirlýs-
ingu, sem hann sendi frá sér á
mánudag.
„Ég iðrast
sárt og tek á mig
fulla ábyrgð á
þeim skaða sem
ég hef valdið,“
sagði einnig í
yfirlýsingunni.
Demókratar
á þinginu segja
að flokksfélagar
Foleys hafi hugs-
anlega vitað af
athæfinu mánuðum saman án þess
að gera neitt í málinu. Þess í stað
hafi Hastert, sem er þingforseti
fulltrúadeildarinnar, lagt allt kapp
á að halda málinu leyndu svo repú-
blikanar tapi ekki þingsætinu í
kosningum í nóvember. - gb/aa
Hneyksli skekur Repúblikanaflokkinn í Bandaríkjunum:
Segir af sér og fer
í áfengismeðferð
MARK FOLEY