Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 22
5. október 2006 FIMMTUDAGUR22
Meðaltekjur á Norðurlandi vestra
eru lægri en nokkurs staðar ann-
ars staðar á landinu. Meðaltekjur í
landshlutanum eru 250 þúsund
krónur á mánuði, en það er fjórð-
ungi undir landsmeðaltali.
Lægstu tekjur landshlutans og
jafnframt landsins alls eru í
Skagabyggð. Meðaltekjur í sveit-
arfélaginu eru vel ríflega helm-
ingi lægri en meðaltekjur á land-
inu, eða 133 þúsund krónur á
mánuði, miðað við 327 þúsund á
landinu öllu. Meðaltekjur í Skaga-
byggð eru jafnframt lægstu með-
altekjur af öllum sveitarfélögum
í landinu. Fjögurra mánuða með-
altekjur í Skagabyggð samsvara
einum mánaðartekjum á Seltjarn-
arnesi, þar sem meðaltekjur eru
hæstar á landinu, 535 þúsund
krónur.
Hæstu meðaltekjur á Norður-
landi vestra eru í Höfðahreppi, en
þær eru samt sem áður tíu pró-
sentum undir landsmeðaltali.
Fermetraverð eingöngu lægra
á Vestfjörðum
Íbúðaverð á Norðurlandi vestra er
næstlægst af öllum landshlutum,
eða 69 þúsund krónur fermetrinn
að meðaltali, ef miðað er við kaup-
verð íbúðahúsnæðis árið 2005 þar
sem fjöldi kaupsamninga er þrjá-
tíu eða fleiri. Hafa þarf þó þann
fyrirvara á að tölurnar eru einfalt
meðaltal kaupverðs. Eignir eru
mismunandi eftir svæðum og
skekkir það verðsamanburð milli
þeirra. Einungis á Vestfjörðum
var húsnæðisverð lægra.
150 fermetra íbúðarhúsnæði á
Norðurlandi vestra kostar sam-
kvæmt þessu rúmar tíu milljónir.
Fermetraverð í Sveitarfélaginu
Skagafirði er eilítið hærra; rúmar
80 þúsund krónur fermetrinn. 150
fermetra íbúð þar kostar því um
tólf milljónir. Til samanburðar má
nefna að jafnstór íbúð á höfuð-
borgarsvæðinu kostar um 29 millj-
ónir. Íbúi á Norðurlandi vestra,
utan Skagafjarðar, sem selur 150
fermetra íbúðarhúsnæði sitt og
flytur á höfuðborgarsvæðið getur
því keypt 54 fermetra íbúð fyrir
andvirðið.
Fjöldi kaupsamninga á síðasta
ári á hverja þúsund íbúa segir til
um hreyfingu á eignum en hæfi-
leg hreyfing á eignum er gott
merki um heilbrigðan fasteigna-
markað. Meðaltalið fyrir landið
allt var rétt undir 45 samningum á
hverja þúsund íbúa. Í öllum sveit-
arfélögum á Norðurlandi vestra
var óeðlilega lítil hreyfing á eign-
um og lítið um kaup og sölu. Í
helmingi sveitarfélaganna voru
tveir eða færri kaupsamningar
gerðir á síðasta ári.
Allt að tveir fimmtu farnir
Íbúum á Norðurlandi vestra hefur
fækkað um 13 prósent á síðasta
aldarfjórðungi. Í einungis einum
öðrum landshluta hefur fólks-
fækkunin verið meiri, það er á
Vestfjörðum.
Mest hefur fækkað í Skaga-
byggð, þar sem tveir af hverjum
fimm hafa flust á brott á tímabil-
inu, og litlu færri í Húnavatns-
hreppi og Akrahreppi. Fjórði hver
íbúi hefur flutt úr Húnaþingi
vestra á sama tímabili.
Raunfækkunin á Norðurlandi
vestra er þó mun meiri ef miðað
er við meðalfjölgun á landsvísu,
sem er 31 prósent. Ef íbúum í
landshlutanum hefði fjölgað í sam-
ræmi við landsmeðaltal ættu þeir
að vera þriðjungi fleiri en þeir eru
nú, tæplega tíu þúsund í stað um
7.500.
Ef eingöngu er horft til síðasta
áratugar kemur í ljós að einn af
hverjum tíu íbúum á Norðurlandi
vestra hefur flust á brott að með-
altali. Í Blönduósbæ og Höfða-
hreppi er hlutfallið hæst, þar sem
fimmti hver íbúi er farinn.
MEÐALMÁNAÐARTEKJUR
ÁRIÐ 2005
Norðurland vestra 250.393 kr.
Sveitarf. Skagafjörður 255.655 kr.
Húnaþing vestra 223.394 kr.
Blönduósbær 256.157 kr.
Höfðahreppur 294.403 kr.
Skagabyggð 133.236 kr.
Húnavatnshreppur 194.187 kr.
Akrahreppur 188.818 kr.
Höfuðborgarsvæðið 353.724 kr.
Landið allt 326.782 kr.
Meðaltekjur á Norðurlandi vestra eru fjórðungi
undir landsmeðaltali. Hvergi á landinu eru lægri
tekjur að meðaltali. Íbúðaverð er lægra í aðeins
einum landshluta.
Öll sveitarfélögin á úreldingarlista
Ef kenningar tveggja bandarískra landfræðinga um framtíðarhorfur sveitarfélaga eru heimfærðar á Norðurland
vestra má setja öll sveitarfélög landshlutans á úreldingarlista.*
Viðmiðunarmörk: 1 2 3 4 5 6
Sveitarfélag:
Íbúar eru
helmingi færri
nú en fyrir
aldarfjórðungi
Íbúum hefur
fækkað um tíu
prósent eða meira
á síðasta áratug
Þéttleiki
byggðar er
innan við tvo
íbúa á km2
Meðalaldur
er 38 ár eða
hærri
Meðalmánaðar-
tekjur eru 10%
undir lands-
meðaltali
Fjöldi kaupsamn.
vegna íb.húsn.
2005 er undir
landsmeðaltali**
Sveitarfélagið Skagafjörður nei -1% nei -8% já 0,99 nei 36,5 já -22% já 27,0
Húnaþing vestra nei -25% já -16% já 0,47 nei 37,5 já -32% já 16,6
Blönduósbær nei -14% já -18% nei 4,99 já 39,3 já -22% já 23,3
Höfðahreppur nei -16% já -18% nei 11,0 nei 33,2 já -10% já 33,0
Skagabyggð nei -39% nei +3% já 0,20 já 39,2 já -59% já -
Húnavatnshreppur nei -34% já -10% já 0,12 nei 35,8 já -41% já 4,25
Akrahreppur nei -30% nei -7% já 0,17 nei 37,4 já -42% já -
**Fjöldi kaupsamninga á hverja 1.000 íbúa. Landsmeðaltal er 44,8.
Viðmiðunarmörkin sex má sjá í töflunni og hafa verið heimfærð upp á íslenskar aðstæður.
Samkvæmt þessu eru öll sjö sveitarfélög Norðurlands vestra í útrýmingarhættu: Sveitarfélagið Skagafjörður,
Húnaþing vestra, Blönduósbær, Höfðahreppur, Skagabyggð, Húnavatnshreppur og Akrahreppur.
*Kenningar hjónanna Deborah og Frank Popper voru settar fram í lok níunda áratugarins og miðuðust að því að meta framtíðarhorfur til-
tekinna sveitarfélaga á sléttunum miklu í miðjum Bandaríkjunum. Þær fólust í því að setja fram sex viðmiðunarmörk sem gæfu vísbendingu
um að sveitarfélag ætti sér ekki viðreisnar von. Ef sveitarfélagið uppfyllti tvö eða fleiri skilyrði gat það talist á góðri leið með að fara í eyði.
Þetta er sjötta greinin af átta í
greinaflokki Fréttablaðsins um
byggðaþróun. Á morgun verður
fjallað um Norðurland eystra.
Flóttinn af landsbyggðinni SIGRÍÐUR DÖGG AUÐUNSDÓTTIR
sda@frettabladid.is
Hvergi lægri tekjur
KAUPVERÐ ÍBÚÐARHÚSNÆÐIS Á
NORÐURLANDI VESTRA ÁRIÐ 2005*
200
175
150
125
100
75
50
25
0
*Meðalverð á fermetra í sveitarfélögum þar sem kaup-
samningar eru 30 eða fleiri.
Norðurland
vestra
Landið allt Höfuðborgar-
svæðið
192.671
69.014
161.000
KO
R
T
B
IR
T
M
EÐ
L
EY
FI
L
A
N
D
M
Æ
LI
N
G
A
ÍS
LA
N
D
S
Hvammstangi
NORÐURLAND VESTRA
Norðurland vestra nær frá Hrútafjarðarbotni til
vesturs, að miðjum Tröllaskaga til austurs og er um
12.600 ferkílómetrar að stærð, um 12 prósent lands-
ins. Íbúafjöldi er um 7.500 sem samsvarar tæpum
þremur prósentum allra íbúa í landinu.
Meðaltekjur á Norðurlandi vestra árið 2005
voru 77% af landsmeðaltali.
23% vantar upp á að meðaltekjur
á Norðurlandi vestra nái landsmeðaltali
eða 76.389 kr. á mánuði.
77%
23%
Blönduós
Skagaströnd
Sauðárkrókur
Varmahlíð
Hofsós
MANNFJÖLDAÞRÓUN Á
NORÐURLANDI VESTRA 1988–2005
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
-5%
-10%
-15%
1991 1993 1995 1997 1999 2001 2003 20051988
+32,1%
+19,1%
-14,3%
■ Höfuðborgarsvæðið
■ Landið allt
■ Norðurland vestra
MANNFJÖLDAÞRÓUN OG MEÐALTEKJUR Á NORÐURLANDI VESTRA
+20%
+10%
0%
-10%
-20%
-30%
-40%
-50%
-60%
■ Mannfjöldaþróun á Norðurlandi vestra miðað við landsmeðaltal 1988-2005
■ Meðaltekjur á Norðurlandi vestra árið 2005 miðað við landsmeðaltal
Skagafjörður
Húnaþing
vestra Blönduósbær Höfðahreppur Skagabyggð
Húnavatns-
hreppur Akrahreppur
Höfuðborgar-
svæðið
Mannfjöldaþróun Norðurlandi vestra
-24%
-43%
-34% -36%
-54%
-49% -47%
+18%
-22%
-32%
-22%
-10%
-59%
-41% -42%
+8%
Meðaltekjur Norðurlandi vestra
Sveitarfélagið Skagafjörður
Íbúar: 4.110. Fjöldi á km2: 0,99. Meðal-
tekjur: 255.655 kr. Atvinnuleysi: 1%
Blönduósbær
Íbúar: 903. Fjöldi á km2: 4,99. Meðal-
tekjur: 256.157 kr. Atvinnuleysi: 1,7%
Höfðahreppur
Íbúar: 545. Fjöldi á km2: 11,04. Meðal-
tekjur: 294.403 kr. Atvinnuleysi: 2,9%
Húnaþing vestra
Íbúar: 1173. Fjöldi á km2 : 0,47. Meðal-
tekjur: 223.394 kr. Atvinnuleysi: 1,5%
Skagabyggð
Íbúar: 99. Fjöldi á km2: 0,2. Meðal-
tekjur: 133.236 kr. Atvinnuleysi: 1,5%
Húnavatnshreppur
Íbúar: 471. Fjöldi á km2: 0,12. Meðal-
tekjur: 194.187 kr. Atvinnuleysi: 0,8%
Akrahreppur
Íbúar: 225. Fjöldi á km2: 0,17. Meðal-
tekjur: 188.818 kr. Atvinnuleysi: 0,1%