Fréttablaðið - 05.10.2006, Qupperneq 26
5. október 2006 FIMMTUDAGUR26
hagur heimilanna
Í Markinu, Ármúla er enn hægt að fá hjól á niðursettu verði þó að langt sé
liðið á september. Rúnar Theodórsson, verslunarstjóri Marksins, segir hægt
að fá þokkaleg hjól undir 30 þúsund krónum. „Annars er fólk í auknum mæli
farið að kaupa dýrari og vandaðri hjól.“ Rúnar segist ekki kunna skýringuna
á þeirri þróun en að hún geti verið tilkomin vegna þess að fólk hafi meira
á milli handanna eða því að fólk sé farið að nota reiðhjól meira sem sam-
göngutæki.
„Algengasta reiðhjólið sem við erum að selja er þriggja gíra kvenreiðhjól með fótbremsu en verð þeirra á tilboði er
23.920 krónur. Þá erum við með vönduð comfort hjól á 39.600 krónur. Hefðbundin fjallahjól kosta 34.700 með afslætti
en kostuðu áður 46 þúsund krónur. Þá er hægt að fá nagladekk undir reiðhjól af ýmsum gerðum og kosta þau um 4.600
krónur.“ Rúnar segir það færast í aukana að fólk hjóli allan ársins hring enda sé það vel hægt.
■ Inga Jóna Þórðardóttir, formaður
stjórnar LR, er hætt að nota hreinslög
á gler og spegla og segir heitt vatn gera
meira gagn.
Mér finnst langbest
að nota heitt vatn til
að hreinsa gler og
spegla. Mér fannst
glerhreinsivökvinn
alltaf skilja eftir sig
ský svo ég hætti að
nota hann.“ Inga Jóna segir hreinsiefni
ofnotuð og stillir þeim í hóf hvort sem
um er að ræða gólfsápu eða annað sem
hún notar við almenn heimilisþrif.
„Þegar ég þurrka af nota ég gömul
handklæði og annað sem til fellur. Ég er
alin upp við nýtni og gömul handklæði
virka alveg jafn vel til afþurrkunar og
aðrar tuskur.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
VATN Á GLER OG SPEGLA
„Verstu kaup sem maður gerir eru iðulega bíla-
kaup, vegna þess hve fljótt þeir falla í verði. Ég
hef átt þá nokkra um ævina en kaupi iðulega
nýlega bíla til að sleppa við viðgerðarkostnað.“
Hildur segir önnur slæm kaup sem hún hafi
gert hafi verið á meðan hún starfaði
sem flugfreyja. „Það var alltaf mjög
freistandi að kaupa fatnað erlendis
og stundum keypti ég flíkur án
þess að máta þær. „Þegar upp var
staðið átti ég föt sem ég notaði
ekki vegna þess að þau pössuðu
ekki eða liturinn fór mér ekki. Þá
eru ótalin dressin sem hentuðu
ekki íslenskri veðráttu eins og
suttbuxnadress sem ég keypti
mér.“
Hildur segir að með árunum
hafi hún lært að vera skyn-
söm í fatavali og tekur gæðin fram yfir magnið
í þeim efnum. „Ég horfi sérstaklega í gæðin við
kaup á yfirhöfnum og skóm. Ég eltist ekki mikið
við tískustrauma en reyni að kaupa föt sem nýt-
ast til lengri tíma.
Þegar talið berst að bestu kaupunum segir
Hildur þau líklega felast í góðum fríum
með fjölskyldunni. „Um síðustu jól
fórum við fjölskyldan saman til Flór-
ída og þetta var frábær afslöppun
fyrir okkur öll. Í fríinu spöruðum
við líka innkaup í mat og öðru sem
tilheyrir þessum árstíma.“
Hildur segir litla skynsemi felast
í því að gera jólagjafainnkaup
snemma því það endi með því að
hún bæti í jólapakkana á síðustu
stundu með tilheyrandi tilkostn-
aði.
NEYTANDINN: HILDUR DUNGAL FORSTJÓRI ÚTLENDINGASTOFNUNAR
Tekur gæði fram yfir magn
Sodastream tækin eru alltaf jafn vinsæl, en á síðustu árum hefur orðið sú breyting á að fólk vill ekki sjá
dísætu bragðefnin heldur notar tækin eingöngu til að búa til kolsýrt ropvatn. Nú er svo komið að söluaðili
tækjanna, Vífilfell, er hættur að selja bragðefni. „Því var hætt fyrir sirka ári. Það var bara enginn að kaupa
þetta lengur,“ segir Dísa Ólafsdóttir hjá Vífilfelli. Hún segir fyrirtækið þó vera að skoða hvort hefja eigi sölu
bragðefna á ný. „Ég veit af fólki sem hefur sett ótrúlegustu bragðefni út í þetta sjálft, en helst er Sodastream
þó notað í hollustuskyni. Ég hef líka heyrt af fólki sem vökvar blómin sín með kolsýrðu vatni. Það á að vera
ægilega gott,“ segir Dísa.
■ KOLSÝRÐ HOLLUSTA:
Sodastream-bragðefni hætt að fást
■ Hjól á góðu verði
Hægt að hjóla allan ársins hring
Húsaskiptasamtökunum
Intervac hefur vaxið mjög
ásmegin eftir að Internetið
kom til sögunnar. Þetta er
alþjóðlegur félagsskapur
fólks sem vill skipta á íbúð-
inni eða húsinu sínu fyrir
íbúð eða hús í öðru landi. Á
netsíðunni (www.intervac.
com) má sjá hvaða mögu-
leikar eru í boði og kennir
þar ýmissa grasa.
Elisa M. Kwaszenko hefur verið
umsjónarmaður Intervac á Íslandi
síðan 1982. Hún er pólsk að upp-
runa og býr á Kópaskeri. „Félags-
skapurinn byrjaði með kennurum í
Hollandi og Sviss árið 1953 og fyrst
í stað voru eingöngu kennarar í
þessu,“ segir Elisa. „Síðar var
ákveðið að allir sem eiga húsnæði
mættu vera með og í dag eru um
12.000-13.000 fjölskyldur í þessu
um allan heim. Þar af eru um 90
fjölskyldur á Íslandi.“
Fyrsta skrefið inn í félagsskap-
inn er að skrá sig og kostar það
5.000 kr á ári. Við skráningu fá hús-
eigendur sendan bækling um regl-
ur og hvernig á að undirbúa sig
fyrir skiptin. Sami bæklingur er í
umferð um allan heim svo allir
sitja við sama borð. Á netsíðunni er
síðan hægt að fletta í gegnum
skiptimöguleikana. Loks er áfanga-
staðurinn valinn og samið um tíma
og annað við eiganda skiptiíbúðar-
innar.
Elisa segir að fátítt sé að fólk
verði fyrir vonbrigðum með
skiptin. „Ég man eftir einu
dæmi hérlendis af fólki frá
Portúgal sem fékk að nota
jeppa fólksins sem það var
að skipta við. Þau fóru upp
á öræfi og sáu rútu
fara yfir straum-
harða á. Þegar
fólkið ætl-
aði að gera
eins sökk
jeppinn í
ána og
skemmd-
ist mikið. Portúgalarnir stóðu við
gerða samninga og borguðu skað-
ann upp í topp. Eins man ég eftir
Íslendingum sem fóru til Hollands
og fengu íbúð hjá læknum, nema
hvað þetta var einhver íbúð sem
læknarnir bjuggu ekki í. Íslending-
unum fannst íbúðin tómleg og
óspennandi og enduðu með því að
fara á hótel sem læknarnir þurftu
að borga fyrir.“
Elisa segir Íslendinga mest
skipta við fólk í Evrópu, og að
Frakkland og Norðurlöndin séu
vinsælust. „Svo er eitthvað skipt
við fólk í Bandaríkjunum og ég veit
af fólki sem skipti við húseigendur
í Afríku og Japan. En mest er skipt
við Evrópubúa. Fólk þaðan sækir í
náttúruna hér, víðátturnar og frið-
inn.“
Einn þeirra sem nýtt hafa þjón-
ustu Intervac er Felix Bergsson
leikari. „Ég hef alveg frábæra
reynslu af þessu. Þetta er mjög
einfalt og gott fyrir fólk með börn
því ferðirnar verða miklu ódýrari.
Þetta er miklu persónulegri ferða-
máti en að dvelja á hótelum. Þú
upplifir aðstæður og umhverfi
venjulegs fólks, lifir eins og heima-
maður og kynnist jafnvel nágrönn-
unum.“
Felix og fjölskylda hafa margoft
haft húsaskipti, mest í Frakklandi
en líka í Sevilla á Spáni og í Berlín.
„Ég hef aldrei orðið óánægður.
Einu sinni fengum við meira að
segja villu í Suður Frakklandi með
sundlaug og borðtennisborði. Við
höfum aldrei lent í veseni með fólk-
ið sem við skiptum við, en það er
misjafnt hvort maður hittir það
eða ekki. Maður lætur ætt-
ingja eða vini afhenda lykl-
ana og hafa svona auga
með þessu. Ísland er mjög
heitur staður í þessu núna.
Evrópubúar eru sérstak-
lega áhugasamir um að
koma hingað, enda dýrt að
gista á hótelum hér. Það er
því ekki erfitt að finna
spennandi skipti.“
Persónulegri
ferðamáti
FELIX BERGSSON Fékk
sundlaug í kaupbæti.��������������������������������������� ������������� ������������
���������� ��������
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
�����������������������������
���������� ����
��������������������
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
� ���������������������������������
�����������������������
����������������������������������������
���������������������������� �����������
��������������������������������������
��������������������
�������������������������
������������������������������������������������������� ���
�������������������� �������������������������������������������
���������������������������������������� �������� ���������
���������� ������������� ��������������������������
AFSLÁTTUR
35%
��
��
��
��
�
��
�
��
�
�
���
AMSTERDAM Í HOLLANDI Elisa segir Íslendinga mest skipta við fólk í Evrópu, og að
Frakkland og Norðurlöndin séu vinsælust.
Neysla
> Meðalneysla gosdrykkja
á hvern íbúa á Íslandi
71
,8
L
ÍT
R
AR
17
3,
6
LÍ
TR
AR
20
,6
L
ÍT
R
AR
1960
2004
1984
H
ei
m
ild
: H
ag
st
of
a
Ís
la
nd
s