Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 31

Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 31
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Arnheiður Rós Ásgeirsdóttir eignaðist langþráðan kímónó í London. „Ég fékk þennan kímónó í „vintage“-deild- inni í Top Shop á Oxford stræti í London, en þar er öll neðsta hæðin undirlögð í deildum frá „second hand“-fyrirtækjum,“ segir Arn- heiður, eða Heiða eins og hún er vanalega kölluð, um kímónóinn sinn fína, en hún vann í mjög stuttan tíma í þeirri verslun þegar hún var búsett í London. „Leiðir okkar lágu saman í fyrsta sinn daginn sem ég vann í þessari búð. Sá starfs- ferill var mjög stuttur enda launin ekkert til að hrópa húrra fyrir. Ég stalst til að máta svarta kímónóinn og féll gersamlega fyrir honum, en málið var að hann kostaði þá 85 pund og ég var bara með „heil“ fimm pund á tímann. Dæmið segir sig sjálft. Ég hafði ekki efni á honum og þessvegna lá það fyrir að hann yrði ekki minn, Ekki strax allavega. Ég lagði hann frá mér hnuggin og var alveg miður mín yfir þessu, en gat samt ekki hætt að hugsa um hann.“ segir Heiða og hlær. „Stuttu síðar komu jólin og mamma kom út til London að hitta mig. Þegar hún innti mig eftir því hvað ég vildi fá í jóla- gjöf þá hrópaði ég náttúrlega „Kímónó! Kímónó!“ og við mæðgurnar þustum af stað niður á Oxford-stræti. En þegar þangað kom var ekki bara kímónóinn minn farinn, heldur öll sláin frá fyrir- tækinu sem hafði haft þá til sölu,“ segir Heiða. „Tæplega hálfu ári síðar ákvað ég að flytja aftur heim, en vildi hafa með mér einhverja góða flík frá stórborginni. Ég gekk inn í Top Shop til að kaupa mér kápu og byrjaði að spjalla við afgreiðslustelpu sem ég þekkti þarna. Ég fór vitanlega að röfla yfir þessum kímónó og þá sagði hún mér áköf að þeir væru komnir aftur. Ég kastaði frá mér kápunni, hljóp upp á fyrstu hæð og þar blasti hann við mér þessi elska! Ekki nóg með það, heldur var líka búið að lækka hann um tuttugu pund. Við féllumst í faðma og höfum ekki verið aðskilin síðan, kímónóinn minn og ég.“ margret.hugrun@frettabladid.is Kímónó! Kímónó! Arnheiður Rós Ásgeirsdóttir og kímónóinn langþráði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SJALDAN ER EIN TÝPAN STÖK Verslunarstjórar klæða hver annan upp. TÍSKA 4 GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 5. október, 278. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 7.47 13.16 18.43 Akureyri 7.34 13.01 18.26 Herragarðurinn stækkar NÚ ER BÚIÐ AÐ OPNA HERRAGARÐINN Í KRINGLUNNI AFTUR EFTIR GAGNGERAR ENDURBÆTUR OG STÆKKUN. Breytingarnar tóku fimm vikur og var verslunin opnuð aftur í síðustu viku. Auk þess sem innréttingum hefur verið breytt hefur gólfplássið stækkað um 80 fermetra. Vegna stækkunarinnar gafst kostur á að taka inn nýtt merki og fyrir valinu varð Mabrun. Þar eru á ferð ítalskar yfirhafnir en auk þess hefur úrval annarra merkja, og þá sérstaklega Armani og Canali, verið aukið. Í Herragarðinum er bæði að finna föt fyrir fínni tilefni, jakka- föt fyrir hvunndaginn sem og sportlegri klæðnað hvort sem það eru gallabuxur eða jakkar. Herragarðurinn stækkaði um 80 fermetra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM B-vítamín eru bráðnauðsynleg heilsunni þegar sólin fer að lækka á lofti. B-vítamín virka hressandi fyrir miðtaugakerfið og þannig reynist það okkur auðveldara að fara fram úr rúm- inu á morgnana ef við höfum nægilegt magn af B-vítamíni í blóðinu. Best er að taka blöndu af B-vítamíni, t.d. B-stress eða B-súper. Glingur og glys getur lífgað verulega upp á einfalda flík. Nú til dags er algengt að hægt sé að kaupa ódýra skartgripi í annarri hverri versl- un, hvort sem er matvöruverslun- um, apótekum sem tískubúðum. Að eiga arm- band í stíl við bol eða skó getur gert gæfumuninn fyrir heildar- svipinn. Láttu það eftir þér. Skildu vetrarfatnaðinn frá sumar- fötunum og settu sumarfötin í geymslu yfir veturinn. Kápur, úlpur, húfur og vettlingar fá nú sinn stað í fatahenginu en léttir sumarjakkar og derhúfur fá að bíða síns tíma inni í geymslu. ALLT HITT [ TÍSKA HEILSA HEIMILI ] LÍFSSTÍLL Á ÞREMUR HÆÐUM Ný verslun var nýlega opnuð á Laugavegi. HEIMILI 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.