Fréttablaðið - 05.10.2006, Side 33
FIMMTUDAGUR 5. október 2006 3
Bókaútgáfa og diskókjólar á
tískuviku í Mílanó.
Diskóið sveif yfir vötnum á
nýlegri tískusýningu í Mílanó þar
sem sýnd voru föt úr vor og sumar-
línu Gucci. Stuttir beinir kjólar
með skemmtilegum mynstrum
voru áberandi í línunni og gætir
þar töluverðra áhrifa frá sjöunda
áratugnum. Maður gæti vel séð
fyrir sér Twiggy dansa um í hinum
fjólubláu og silfurlitu kjólum hér í
denn.
Á tískusýningunni var boðið
upp á súkkulaði og kampavín og
söngvarinn John Legend steig á
svið. Var þetta að nokkru leyti í til-
efni af útgáfu bókarinnar Gucci
by Gucci þar sem farið er yfir
sögu hönnuðarins og fyrirtækis-
ins. Bókin kemur í verslanir
Guccis síðar á árinu.
Gucci aftur til
fortíðar í Mílanó
Litríkt og ermalaust
Fjólublátt og flott
Módel sýnir fallegan kjól í anda sjöunda áratugarins úr vor og sumarlínu Gucci.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Stígvélaði kötturinn Raymond Massaro
Haustið er komið og nú nálgast
tími leðurstígvélana sem eiga
betur við í misjöfnu haustveðri,
meira að segja hér í París þar
sem haustrigningarnar standa
sem hæst. Reyndar eru stígvél í
tísku um þessar mundir, meira
en nokkru sinni fyrr. Skemmst
er að minnast þeirra úr sumar-
tískunni sem ekki er algengt. Í
vetrartískunni eru þau úr leðri,
krókódíla- og slönguskinni, með
loðfóðri og svo mætti áfram
telja. Stígvélunum hefur sömu-
leiðis bæst öflugur liðsauki,
reyndar ekki alveg nýr af nál-
inni, í fótabúnaði sem nær upp á
mið læri (cuissardes).
Áður var það ofureðlilegt að láta
smíða á sig skó. Þaðan kemur
orðið skósmiður að sjálfsögðu.
Nú heyrir það til undantekninga
enda verðið langt frá því að
keppa við fjöldaframleidda kín-
verska skó sem flæða um allt.
Raymond Massaro er sonur
og sonarsonur skósmiðs og án
þess að taka of sterkt til orða sá
besti í Frakklandi. Hann er sá
síðasti í röðinni því enginn úr
fjölskyldunni mun taka við eftir
hans dag. Tískuhúsið Chanel
hefur þó bjargað arfleiðinni og
er nú eigandi Massaro-skómíða-
stofunnar. Massaro smíðar fyrir
marga af frægustu tískuhönnuð-
um hér í landi, svo sem Christian
Lacroix, John Galliano, Gian-
franco Ferré og framleiðir skó
fyrir hátískusýningar Chanel.
Auk þess leita fjölmargir við-
skiptavinir beint til Massaros til
að láta smíða á sig skó eftir
máli.
Aðferðirnar hafa ekkert breyst
í gegnum árin. Skórinn er saum-
aður á trémót sem hefur verið
skorið út eins og skúlptúr, frum-
mynd sniðin úr afgangsleðri en
hinn eiginlegi skór er ekki fram-
leiddur úr hinu besta leðri fyrr en
eftir fyrstu mátun viðskiptavin-
arins á frumeintakinu. Heildar-
vinnutími við hvert skópar er um
fjörutíu stundir.
Um 1930 voru um 300 við-
skiptavinir hjá Lazare Massaro
sem oftast keyptu þrjú skópör á
ári. Meðal þeirra voru greifynj-
an af Windsor, Elizabeth Taylor,
Marlene Dietrich og Romy
Schneider svo nokkrir séu nefnd-
ir. Í dag hefur sonarsonurinn um
3000 viðskiptavini sem flestir
kaupa þó aðeins eitt par á ári.
Verkstæðið er við Rue de la Paix,
í göngufæri við tískuhús Chanel
við Cambon-götu. Þar hannaði
Massaro hinu frægu drapplituðu
skó með svörtu silkitánni 1958,
ásamt mademoiselle Chanel, skó
sem æ síðan hafa verið endur-
hannaðir í ýmsum myndum.
Massaro hannaði að vanda skó
fyrir hátískusýningu Chanel vet-
urinn 2006-7 í júlí síðastliðnum. Í
þetta sinn voru það stígvél upp á
mið læri sem fóru vel við stuttu
kjólana, meira að segja brúðurin
var í slíkum stígvélum, gerðum
af Raymond Massaro.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Hönnun frá níunda og tíunda
áratugnum nýtur vinsælda.
Þótt tískufrömuðurinn Hervé Léger
taki ef til vill ekki þátt í tískuvik-
unni í París að þessu sinni er hönn-
un hans aftur í sviðsljósinu.
Hönnuðir frá fatamerkjum á
borð við Proenza Schouler og
Christopher Kane hafa augljóslega
sótt í smiðju Léger með svokölluð-
um sáraumbúða-klæðnaði sem
Léger gerði meðal annarra frægan
á níund og tíunda áratugnum.
Ekki skemmir fyrir að stór-
stjörnur á borð við söngkonuna
Beyoncé sýnt línurnar í ósviknum
Hervé Léger-klæðnaði á rauða
dreglinum.
Sáraumbúða-
klæðnaður
Beyoncé er ein þeirra stjórstjarna
sem hafa látið sjá sig í „sáraumbúða-
klæðnaði“ að undanförnu.
Flatahrauni 5a
á móti Iðnskólanum
Opið 13-19 virka daga
og 13-17 laugardaga
og sunnudaga.
Aðeins 4 verð
500 1500 3000 og 5000
Lagersala
Euro sko
SPÖNGINNI S: 587 0740
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240