Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 53
5311
„Veiðihundum má skipta í tvo hópa,
annars vegar svokallaða sækihunda,
sem er aðeins ætlað að sækja bráð-
ina eftir að hún hefur verið felld,
og hins vegar fuglahunda, sem þefa
veiðina uppi, taka stand þegar lykt
fuglsins finnst, reka hann í loft-
ið þegar eigandinn kemur, fylgjast
með hvar hann lendir eftir skot og
sækja loks bráðina fyrir eigand-
ann,“ byrjar Pétur á að útskýra.
Hann bætir því við að veiðihundar
finni einnig særða fugla sem þá sé
hægt að aflífa.
Aðspurður segir Pétur enga
ákveðna hundategund henta best
við veiðar heldur sé það einfald-
lega smekksatriði eigendanna sem
ráði för, þótt vissar tegundir hafi
vissulega verið eftirsóttari í gegn-
um tíðina.
„Labrador og retriever-tegund-
ir hafa til að mynda verið vin-
sælir sækihundar, en snögghærði
Vorsteh-hundurinn er eftirsóttur
fuglahundur um þessar mundir, oft
kallaður meginlandshundur sem
bæði leitar og sækir,“ segir Pétur.
„Annars eru ýmsar gerðir seta og
pointerinn að sækja í sig veðrið.
Sömuleiðis Breton sem er fremur
lítill og sannar að stærð skiptir ekki
alltaf máli.“
Að sögn Péturs skiptir ræktun
og þjálfun öllu máli þegar veiði-
hundar eru annars vegar. „Það er
löng hefð fyrir ræktun veiðihunda,“
segir hann. „Tilgangurinn er að
vekja upp veiðieðlið og viðhalda
því. Öllum hundum verður síðan að
kenna grunnhlýðni. Þá eru líka sér-
stök veiðihundanámskeið þar sem
skerpt er á eiginleikum tegunda-
hópanna, fugla- eða sækihunda, en
ekki hundategunda. Samspil manns
og hunds skiptir því töluverðu máli
í þessu samhengi.“
Pétur segir þjálfunina vera mikla
vinnu. „Best er að hefja þjálfun
fyrr en seinna, þar sem erfiðara er
að gera gamlan hund að góðum
veiðihundi þótt allt sé hægt,“ segir
hann. „Þetta er spurning um hversu
vel hefur tekist að kenna hundin-
um grunnhlýðni. Einnig er áríðandi
hvort veiðieðlið hafi verið vakið í
upphafi.“
Félagsmönnum Hundaræktar-
félags Íslands er síðan boðið upp
á tveggja til þriggja daga veiðipróf
sniðið eftir ólíkum flokkum, ýmist
unghunda-, opnum eða keppnis-
flokkum, en það síðastnefnda er
ætlað hundum sem náð hafa fyrstu
einkunn í opnum flokki. Er ströng-
um stöðlum fylgt í hvívetna.
Sjálfur segist Pétur fá miklu
meira út úr veiðinni eftir að hann
fékk sér veiðihund, hundinn Ber-
etta sem er af tegundinni Vorsteh.
„Maður veiddi kannski meira áður
fyrr en leggur nú meiri vinnu í
samstarfið sem veitir mikla ánægju.
Segja má að fuglahundaveiði sé fyrir
okkur veiðimennina eins og flugu-
veiðin er fyrir stangveiðimennna,“
segir hann hress í bragði og mælir
með að sem flestir veiðimenn fái sér
hund. Þeir sem vilja afla sér frekari
upplýsingar geta farið http://deildir.
hrfi.is/vhd/ - rve
Veiðieðli vakið og viðhaldið
Því er oft fleygt fram að hundurinn sé besti vinur mannsins. Samkvæmt Pétri Alan
Guðmundssyni hjá fuglahundadeild Hundaræktarfélags Íslands geta það reynst orð að
sönnu þegar veiði er annars vegar.
Hundurinn er gjarnan kallaður besti vinur
mannsins og Pétur segir það orð að sönnu
hvað veiðinni víðvíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hundarnir fá það hlutverk að reka fuglinn
í lotfið eftir að hann hefur verið fundinn,
fylgjast með hvar hann lendir eftir skot og
sækja fyrir eigandann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONPétur er hér fyrir miðju í hópi veiðimanna og -hunda. Hann segir samstarf manns og hunds mikilvægan lið í veiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Veiðihundarnir þurfa að búa yfir mikilli sjálfstjórn og aga til að ná settum markmiðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hundarnir verða á köflum að vera grafkyrrir
svo fuglarnir verði þeirra ekki varir, eins og
hér sést þar sem hundurinn fellur nánast
inn í umhverfið. MYND/PÉTUR ALAN GUÐMUNDSSON
Hundarnir beita þefskyninu til að leita uppi
bráðina. MYND/PÉTUR ANTON GUÐMUNDSSON
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { útivist & hreyfing } ■■■■
www.bluelagoon.is
Líf