Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 70

Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 70
 5. október 2006 FIMMTUDAGUR34 Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. VACLAV HAVEL ER SJÖTUGUR Í DAG „Von er ekki sama og bjartsýni, sú sannfæring að allt fari á endanum vel, heldur sú vissa að burtséð frá útkomunni sé alltaf regla á hlutunum.“ Tékkneski rithöfundurinn Vaclav Havel var einnig forseti Tékkóslóvakíu og Tékklands. Á þessum degi fyrir tveimur áratugum handsömuðu hermenn sandínista í Nikaragúa Bandaríkjamann, sem komst einn lífs af þegar flugvél hans var skotin niður. Við yfirheyrslur við- urkenndi hann að hann væri að flytja vopn til Kontra skæruliða, samtök sem Bandaríkjamenn höfðu stofnað og fjármagnað. Hann játaði enn fremur að bandaríska leyniþjónustan stæði á bak við aðgerðirnar. Tíðindin ollu fjaðrafoki í Bandaríkj- unum. Ronald Reagan leit á sandínista sem lepp Sovétríkjanna og tryggði Kontra-skæruliðum fjárstyrk árið 1981. Árið 1984 samþykkti Bandaríkjaþing hins vegar lög sem tóku fyrir alla fjárhagsaðstoð til Kontra-skæruliða af hálfu leyniþjónustunnar eða annarra ríkisstofnana. Ef játning Bandaríkja- mannsins var rétt þýddi það að banda- rísk stjórnvöld höfðu gerst brotleg við lög. Reagan þvertók fyrir að hann eða leyniþjónustan ættu hlut að máli. Þingið og blaðamenn fóru hins vegar á stúfana og smám saman komst upp um það sem kallað var Íran-Kontra hneykslið. Í ljós kom að Bandaríkja- menn höfðu selt Írönum vopn, að hluta til í skiptum fyrir frelsi banda- rískra gísla í Miðausturlöndum. Hluti af ágóða vopnasölunnar var hins vegar notaður til að styrkja Kontra-skæruliða í Nikaragúa. Hneykslið kom sér illa fyrir Reagan- stjórnina og rýrði traust almennings til stjórnvalda. Alls voru ellefu stjórnar- liðar kærðir og dæmdir fyrir hin ýmsu afbrot sem lutu að málinu. ÞETTA GERÐIST: 5. OKTÓBER 1986 Íran-Kontra hneykslið afhjúpað „Já, ég er mikið afmælis- barn,“ segir Þór Jakobsson veðurfræðingur, sem er sjö- tugur í dag. Í tilefni dagsins býður hann til stórrar veislu þar sem efsta hæð Perlunnar verður lögð undir. „Ég er búinn að smala saman samstarfsmönnum og samherjum af ýmsum svið- um og ættmennum. Við verð- um undir glerhjálminum í Perlunni. Ég hef alltaf haldið mikið upp á Öskjuhlíðina frá því ég var strákur í Hlíðun- um og lá þarna á björtum vetrarkvöldum og glápti á stjörnurnar.“ Spurður hvort hann reyni að nýta sér aðstöðu sína á Veðurstofunni til að tryggja sér heiðan himin, hlær Þór við og segist ekkert geta gert nema vonað það besta. „Mér sýnist alla- vega að það verði bjartara yfir en þegar borgin var myrkvuð um daginn, þannig að við fáum vonandi smá stjörnublik.“ Þór finnst að fólk eigi almennt að halda upp á afmælisdaginn sinn, sjálfur reyni hann alltaf að gera það. „Í minningunni standa sjálf- sagt stórafmælin upp úr og ætli þetta í kvöld verði ekki það allra stærsta. Ég býst allavega ekki við að það verði jafn stórt þegar ég verð áttræður. En þetta snýst auðvitað ekki endilega um fjölmennið. Ég minnist þess þegar ég var lítill og átti von á félögunum í afmæliskaffi, þá fylltist ég alltaf tilhlökk- unar.“ Hann hefur reyndar dálitlar áhyggjur af að hafa mögulega gleymt að bjóða gömlum samstarfsmönnum og félögum í veisluna og biður blaðamann kurteislega um að árétta að þeir séu auð- vitað guðvelkomnir í Perl- una í kvöld. Sjötugsafmælið er ekki einu tímamótin sem Þór stendur á því hann er að vinna síðasta mánuð sinn á Veðurstofu Íslands og í Sjón- varpinu, þar sem hann hefur kynnt landsmönnum veður- spána um árabil. Hann hlakk- ar mikið til að fá meiri ró og næði en hefur þó margt á prjónunum og óttast ekki að eiga eftir að leiðast. „Ég hverf ekki alveg sjónum. Ég hef mikinn áhuga á að skrifa bók um hafís. Við hjónin eigum líka lítinn skika aust- ur í Landsveit, skammt frá Heklu, og ætlum að einbeita okkur að skógrækt og öðrum skemmtilegheitum. Svo væri gaman að geta rifjað upp stærðfræðina sem ég hafði alltaf svo gaman af en hélt ekki við sem skyldi,“ segir Þór og bætir við að lokum að auðvitað ætli hann líka að huga að börnum og barna- börnum og „þessu klass- íska“. bergsteinn@frettabladid.is ÞÓR JAKOBSSON: FAGNAR SJÖTUGSAFMÆLI OG SEST Í HELGAN STEIN Fær vonandi smá stjörnublik Eyjólfur Jósep Jónsson frá Sámsstöðum, verður jarðsunginn frá Hjarðarholtskirkju í Dölum laugardaginn 7. október kl. 14. Sveinbjörg Ólöf Sigurðardóttir börn og fjölskyldur þeirra. Móðir okkar, Hanna Jónsdóttir í Stekkjardal, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 30. september. Hún verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 7. október klukkan 13.00. Jarðsett verður á Svínavatni. Synir hinnar látnu. ����������������������������������������� ����������������������� ������������� ���� �� ����� ��������� ����� ���������� LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Í MIKLU ÚRVALI 60 ára afmæli Hrafn B. Hauksson Lönguhlíð 9, 105 Reykjavík, verður 60 ára 9. október. Af því tilefni býður hann ætting jum, vinum og vandamönnum í hús Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ laugardaginn 7. október kl. 19.00. Okkar elskulegi Haukur D. Þórðarson fyrrverandi yfirlæknir Reykjalundar lést á heimili sínu 4. október. María Guðmundsdóttir Pétur Hauksson Anne Grethe Hansen Þórður Hauksson Kristjana Fenger Magnús Hauksson Hrafnhildur Guðmundsdóttir Gerður Sif Hauksdóttir Karl Benediktsson Dóra Guðrún Wild Árni Árnason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, unnusti, sonur, bróðir og mágur, Bragi Rúnar Hilmarsson Hlíðarvegi 74, Njarðvík, lést miðvikudaginn 27. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 6. október kl. 14.00. Andrea Lísa Bragadóttir Elísabet Kristín Bragadóttir Kristbjörg Lind Bragadóttir Birna Ýr Bragadóttir Thelma Sif Björnsdóttir Ólöf Sigfúsdóttir Hilmar Arason Brynja Hilmarsdóttir Anthony D’Onofrio Karen Hilmarsdóttir Einar Árnason og aðrir vandamenn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Guðmundsdóttir f. 19. desember 1926, andaðist á heimili sínu Skjóli, Kleppsvegi 64, laugardaginn 30. september. Sveinn Rúnar Hauksson Björk Vilhelmsdóttir Óttar Felix Hauksson Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir Sigríður G. Hauksdóttir Evald Sæmundsen Sigfús Guðfinnsson Andrea Henk Guðmundur Guðfinnsson Lena María Gústafsdóttir María Þ. Guðfinnsdóttir Hörður Hauksson barnabörn og barnabarnabarn. ÞÓR JAKOBSSON Fagnar sjötugsafmælinu á efstu hæð Perlunnar, enda finnst honum að fólk eigi að fagna afmælum sínum vel. timamot@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.