Fréttablaðið - 05.10.2006, Qupperneq 78
5. október 2006 FIMMTUDAGUR42
Eftirlætis kvikmynd: Ég á erfitt með að gera upp á milli Magnoliu og
Big Lebowski og læt því báðar fljóta með.
Eftirminnilegasta atriðið: Úff – þegar Murtaugh festist á klósettinu í
Lethal Weapon 2?
Uppáhaldsleikstjóri: Þeir eru margir ansi góðir, Coen-bræður og P.T.
Anderson vitaskuld, en einnig Bahman Ghobadi, Dagur Kári, David
Lynch, o.fl. Daft Punk bræður eru einnig að klífa listann.
Mesta hetja hvíta tjaldsins: Fjalla-Eyvindur, þið getið fylgst
með þessari hvunndagshetju í Tjarnar-
bíói í kvöld.
Mesti skúrkurinn: Joker í fyrstu
Batman-mynd Tims Burton.
Hvaða persóna fer mest í taug-
arnar á þér? Natalie Portman
pirraði mig fremur mikið í
Garden State.
Ef þú fengir að velja þér
kvikmynd til að leika í,
hvernig væri söguþráðurinn, hver væri leik-
stjóri og hver myndi leika á móti þér?
Þetta væri einhver súrrealísk veisla þar
sem ég og Monica Bellucci festumst
í ljósaskilunum og myndum þurfa
að ráða fram úr þeim á djassklúbbi
eilífðarinnar. Ætli Lynch væri ekki á
bak við kameruna.
KVIKMYNDANJÖRÐURINN: ATLI BOLLASON HJÁ ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í REYKJAVÍK
Í súrrealískri veislu hjá David Lynch
bio@frettabladid.is
GOTT GLÁP
The Road to Guantanamo: Mögnuð frásögn tveggja manna
sem haldið var föngnum í Guantanamo án dóms og laga.
I‘m Your Man: Skemmtileg heimildarmynd um hinn djúp-
raddaða og ljóðelska Leonard Cohen.
The Queen: Skemmtileg mynd um það sem fór fram innan
veggja Buckingham-hallarinnar þegar Díana dó.
Volver: Góð mynd frá meistara Almodóvar með Penelope
Cruz í aðalhlutverki.
Zidane: Verður sýnd aftur á föstudaginn á RIFF. Ekki leiðinlegt
að vera Zidane í níutíu mínútur.
Þeir sem kunna að meta jaðar-
myndir og kynlega kvisti í kvik-
myndagerð ættu ekki að láta sig
vanta í B-mynda veislu Páls Óskars
í Tjarnarbíói í kvöld.
Páll Óskar ætlar að sýna samtín-
ing úr 8mm filmusafni sínu og þar
ægir saman hryllingi, „splatter“,
skrímslum, kung-fu, vísindaskáld-
skap og „blaxplotation“.
Fyrir daga myndbandsins
mátti fólk láta sér nægja að
horfa á klipptar eða styttar
útgáfur kvikmynda af súper
8mm kvikmyndaspólum þannig
að filmurnar eru í sjálfu sér forn-
leifar.
Páll Óskar ætlar að sýna safarík
atriði úr Destroy All Monsters,
Fists of the Double K, Squirm, The
Incredible Melting Man, Coffy og
fleiri slíkum myndum.
Veislunni lýkur hann svo með
Barbarellu sem hann mun sýna í
fullri lengd. Myndin er frá árinu
1968, eftir leikstjórann Roger
Vadim og er Jane Fonda í hlutverki
Barbarellu sem þvælist um geim-
inn með það fyrir augum að hand-
taka hinn illa Durand Durand.
8mm veisla Páls
Óskars
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON Blæs til
B-myndaveislu í Tjarnarbíói í kvöld þar
sem ægir saman hryllingi, vísindaskáld-
skap, „splatter“ og öllu þar á milli.
Til bókaútgefenda:
BÓKATÍÐINDI 2006
Skilafrestur vegna kynningar og
auglýsinga í Bókatíðindum 2006
er til 12. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift
á öll heimili á Íslandi
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
Netfang: baekur@simnet.is
————————————— —————————————
Frestur til að leggja fram
bækur vegna Íslensku
bókmennta verðlauna nna 2006
er til 13. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Ofurhetjur myndasagnanna
hafa hópast á hvíta tjaldið á
liðnum árum og ekkert lát
virðist vera á straumnum.
Spider-Man mun væntan-
lega verða plássfrekur á
næsta ári og nýjar og gaml-
ar hetjur munu svo fylgja í
kjölfar hans.
Þrátt fyrir að ofurhetjum hafi
gengið misvel að fóta sig á hvíta
tjaldinu sér ekki fyrir endann á
ásókn þeirra í kvikmyndahúsin.
X-Men og Superman skiptu sumr-
inu á milli sín en í fyrra var það
Batman sem kom, sá og sigraði.
Batman Begins þótti heppnast
ákaflega vel og Christian Bale, í
leðurblökubúningnum, tókst að
reisa hetjuna úr öskustó Batman
& Robin sem gerði nánast út af við
myndaflokkinn á sínum tíma.
Marvel-gengið enn á ferð
Hetjur Marvel-útgáfunnar; Spid-
er-Man, Daredevil, Elektra, The
Punisher og Hulk hafa allar fengið
að spreyta sig í bíói á undanförn-
um árum með misjöfnum árangri.
Fáum blandast hugur um að Spid-
er-Man myndirnar tvær sem Sam
Raimi hefur gert séu með bestu
aðlögunum myndasögu um ofur-
hetju að hvíta tjaldinu og að sama
skapi er það talið bókað að Spider-
Man 3 muni drottna yfir næsta
kvikmyndaári.
Köngulóarmaðurinn þarf að
kljást við nokkur illmenni að þessu
sinni og þar er Venom einna skæð-
astur. Sandman lætur einnig til sín
taka og Green Goblin rekur upp
sinn ljóta haus á ný.
Hver þorir í Lóa?
Joss Whedon, höfundur sjón-
varpsþáttanna um blóðsuguban-
ann Buffy, stefnir að því að koma
Wonder Woman í bíó árið 2007 en
hann er þó kominn skammt á veg.
Að öðru leyti munu sennilega
engar almennilegar ofurhetjur
reyna að skáka Köngulóarmann-
inum árið 2007. Þær bíða þó átekta
handan við hornið og þannig hefur
til dæmis Batman boðað endur-
komu sína árið 2008.
Christian Bale leikur Batman
aftur en Heath Ledger mun
spreyta sig á erkifjandanum The
Joker. Hugh Jackman hyggst
einnig mæta til leiks 2008 með
Wolverine, óbeinni og sjálfstæðri
framhaldsmynd X-Men flokks-
ins.
Spennandi frumraun
Járnkarlinn Iron Man er nýliði
ársins 2008 en leikarinn og leik-
stjórinn Jon Favreau (Swingers)
hefur tekið að sér að gera mynd
um þessa gömlu Marvel-hetju.
Maðurinn á bak við járnbrynjuna
í Iron Man-sögunum er drykkju-
sjúki milljónamæringurinn Tony
Stark. Þegar hann slasast lífs-
hættulega lætur hann hanna á sig
búning sem gerir honum kleift að
anda og hreyfa sig. Það kemur
svo á daginn að búningurinn gerir
hann nánast ósigrandi og hann
snýr sér að mestu að því að herja
á glæpahyski.
Favreau hefur nýlega ráðið
Robert Downey jr. til þess að
leika Járnkarlinn. Hann hefur
einnig lýst því yfir að hann muni
byrja á því að kynna persónuna
rækilega til leiks. Gangi vel og
verði farið út í framhald muni
hann líklega kafa dýpra í persón-
una og taka á alkóhólisma hetj-
unnar.
Þá er enn einn Marvel-gaur-
inn, Captain America, væntanleg-
ur í bíó árið 2009, byrjað er að
leggja drögin að nýrri mynd um
Hulk, auk þess sem Superman
mun áreiðanlega snúa aftur, aftur.
Ofurhetjur gömlu hasarblaðanna
eru því síður en svo á undanhaldi
og það eru bjartir tímar fram
undan hjá þeim sem setja allt sitt
traust á hetjur með ofurmannlega
krafta og hæfileika.
Ofurhetjurnar
gefa ekkert eftir
MARVEL-GENGIÐ Hetjur Marvel-útgáfunnar hafa verið aðsópsmiklar í bíói síðustu ár og allar eru þær væntanlegar á næstu árum
– Spider-Man, Wolverine, Hulk og Captan America.
PETER PARKER Það syrtir í álinn hjá
Peter Parker þegar hinn eitraði Venom
nær heljartökum á honum í Spider-Man
3.
ROBERT DOWNEY JR. Það fer vel á því
að þessi veðraði en geðþekki sukkari
taki að sér að leika drykkjumanninn
Tony Stark sem berst gegn glæpum
sem Járnkarlinn.