Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 86
50 5. október 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Árbæingurinn Gylfi Einarsson hefur ekki átt sjö dagana sæla undan-
farið en hann hefur ekkert getað leikið á yfirstandandi leiktíð í
Englandi vegna meiðsla. Hann er á mála hjá 1. deildarliðinu Leeds.
Gylfi gekkst nýverið undir aðgerð á mjöðm og er þessa dagana að
hefja endurhæfingu sína. „Þetta er allt á byrjunarstigi eins og er en
ég er byrjaður að framkvæma léttar æfingar, hjóla og fleira í þeim
dúr. Það var gott að komast í þessa aðgerð en mjöðmin hefur verið
að angra mig lengi. Meiðslin gerðu það að verkum að þau heftu
hreyfingar á hægri fætinum og undir rest var það komið á það stig
að ég gat ekki hlaupið. En þetta var lagað í aðgerðinni og horfir nú
til betri vegar.“
Gylfi sló í gegn hjá Lilleström í Noregi áður en hann fór til Leeds
þar sem hann hefur átt erfitt með að vinna sér sæti í liðinu. Ekki
bættu meiðslin úr skák en þegar hann var upp á sitt besta vann
hann sér sæti í íslenska landsliðinu og skoraði annað mark Íslands í
frægum 2-0 sigri á núverandi heimsmeisturum Ítala.
Hann er þó samningsbundinn Leeds til ársins 2007 og getur því
einbeitt sér að því að ná sér góðum. „Það liggur fyrst og fremst á
að ná mér eftir þessa aðgerð og fara að spila fótbolta á nýjan leik.
Ég er ekki búinn að hugsa dæmið lengra
enda einbeiti ég mér að því að bæta mig á
hverjum deginum sem líður.“
Hann er sem stendur eini Íslending-
urinn sem leikur í ensku 1. deildinni
en þeir voru mun fleiri í fyrra. Voru
aðrir Íslendingar annað hvort seldir
eða í liðum sem leika nú í úrvals-
deildinni.
„Já, það virðist hafa átt sér stað
Íslendingaflótti úr deildinni,“ segir
Gylfi og hlær. „En það eiga eflaust
einhverjir eftir að bætast við enda
hafa þeir Íslendingar sem eru
að spila í úrvalsdeildinni
verið að standa sig mjög
vel. Það er góð auglýsing
fyrir íslenska knattspyrnu-
menn.“
GYLFI EINARSSON: BYRJAÐUR AÐ ÆFA Á NÝJAN LEIK EFTIR ERFIÐ MEIÐSLI
Gætu orðið þrír mánuðir í viðbót
FÓTBOLTI Reynir Leósson er á leið-
inni heim til Íslands eftir tæplega
ársdvöl í Svíþjóð. Hann lék alla
sína tíð með ÍA þar til hann hélt
utan eftir síðasta sumar og samdi
við sænska 1. deildarliðið Trelle-
borg. Þar lenti hann í meiðslum í
upphafi tímabils og náði þess
vegna ekki að festa sig í sessi í
byrjunarliði félagsins. Af þeim
sökum ákvað hann að koma heim
og herma heimildir Fréttablaðsins
að líklegast sé að hann fari í ÍA á
nýjan leik.
KR hefur reyndar einnig sett
sig í samband við leikmanninn en
þar leikur hans gamli félagi úr ÍA,
Gunnlaugur Jónsson.
„Við komust að þeirri niður-
stöðu að það væri við hæfi nú að
rifta samningi okkar,“ sagði Reyn-
ir um samkomulag sitt við forráða-
menn Trelleborg. „Við fjölskyldan
höfum ákveðið að flytja heim strax
í næstu viku og get ég staðfest það
að ég hef nánast gengið frá öllum
samningsatriðum við félag í efstu
deild á Íslandi. Ég vil hins vegar
ekki segja hvaða félag um ræðir
þar til ég er búinn að skrifa undir
samninginn.“
ÍA var lengi vel í harðri fallbar-
áttu í sumar en tókst með góðum
árangri í síðari hluta mótsins að
afstýra falli úr efstu deild. Varnar-
leikurinn var veiki hlekkur liðsins
en liðið átti erfitt með að fylla þau
skörð sem Gunnlaugur og Reynir
skildu eftir sig. Nú hefur Guðjón
Þórðarson tekið við liðinu og ný
rekstrarstjórn knattspyrnudeildar
verið skipuð. ÍA ætlar sér því að
gera betur á næstu árum.
Trelleborg hefur vegnað afar
vel í sænsku 1. deildinni og er
löngu búið að tryggja sér úrvals-
deildarsætið. Reynir segir það
svekkjandi hvernig fyrir honum
fór en smávægileg meiðsli skömmu
áður en leiktíðin hófst gerðu það
að verkum að hann fékk lítið að
spreyta sig.
„Ég spilaði hverja einustu mín-
útu á undirbúningstímabilinu en
tognaði svo lítillega aftan í læri
viku fyrir mót. Það var mikil
pressa á mér að jafna mig áður en
mótið hófst og því ákveðið að
sprauta mig sem gerði bara illt
verra. Í stað þess að leyfa þessu
bara að jafna sig í einhverjar tvær
vikur var ég frá í nokkra mánuði,“
sagði Reynir.
Liðinu gekk svo afar vel og er
nú með vænt forskot á toppi deild-
arinnar. „Liðið sló mörg met, fékk
ekki á sig mark í sex leikjum í röð
og aðeins fimm mörk í 24 leikjum.
Það er erfitt að breyta slíku liði
sem tryggði sig upp í úrvalsdeild-
ina á mettíma. En ég átti gott sam-
tal við þjálfarann og stóð mér til
boða að vera hér áfram og taka
slaginn í úrvalsdeildinni. En við
ákváðum frekar að halda heim á
leið.“
Gísli Gíslason, formaður rekstr-
arstjórnar knattspyrnudeildar ÍA,
vildi hvorki játa því né neita hvort
félagið hefði rætt við Reyni um að
ganga aftur til liðs við félagið.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
Reynir Leósson aftur á Skipaskaga?
Skagamaðurinn Reynir Leósson rifti í gær samningi sínum við sænska 1. deildarliðið Trelleborg og flytur
heim á næstunni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa ÍA og KR haft samband við Reyni.
REYNIR LEÓSSON Aftur á leið í Skagabúninginn? FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Chris Coleman, knatt-
spyrnustjóri Fulham, lofar Heiðar
Helguson í hástert í viðtali í bresk-
um fjölmiðlum í gær. Segir hann
að Heiðar sé afar mikilvægur
félaginu en í vikunni var greint frá
því að Fulham hefði hafnað tilboði
sem barst í Heiðar.
Í leik gegn sínu gamla félagi,
Watford, á mánudag skoraði Heið-
ar eitt mark í 3-3 jafnteflisleik og
átti ríkan þátt í öðru marki sem fór
langt með að tryggja Fulham sig-
urinn í leiknum. Var það fyrsti
leikur Heiðars gegn Watford síðan
hann fór þaðan í júní á síðasta ári.
Það tók Heiðar nokkurn tíma að
vinna sér sæti í byrjunarliði Ful-
ham en þegar hann fékk tækifærið
loksins nýtti hann það vel. Og í dag
lítur Coleman á Heiðar sem lykil-
mann í þeirri atlögu félagsins að
tryggja sig í sessi meðal bestu tíu
liða úrvalsdeildarinnar.
„Hann er afar harður af sér og
mjög góður leikmaður,“ sagði Col-
eman. Hann hefur bætt sig frá því
að hann kom hingað fyrst. Í hvert
skipti sem hann spilar gefur hann
sig allan í leikinn.“
Um tilboðið sem Fulham fékk
segir Coleman að það hafi verið
mjög stórt. „Ég hafnaði því hins
vegar umsvifalaust því hann er
félaginu afar mikilvægur. Hann er
á góðum aldri, meiriháttar í bún-
ingsklefanum með hinum strákan-
um og mikilvægur hlekkur í því
sem við ætlum okkur í þessari
deild.“
Heiðar hefur flakkað mikið á
milli byrjunarliðsins og vara-
mannabekkjarins enda er hart bar-
ist um hverja stöðu í liðinu. Hann
var þó fyrirliði þegar Fulham
mætti Wycombe í bikarnum og tap-
aði. „Heiðar veit að hann mun allt-
af fá leiki til að spreyta sig í þannig
að hann pirrast ekki mikið yfir því
að þurfa að sitja á bekknum. Og
það er annar kostur sem hann býr
yfir - hann skilur þarfir liðsins og
er þolinmóður.“
- esá
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, lofar Heiðar Helguson:
Heiðar er mikilvægur félaginu
MARKI FAGNAÐ Heiðar fagnar marki sínu sem hann skoraði gegn Watford á mánu-
dag. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
FÓTBOLTI Gísli Hjartarson, ritari
stjórnar knattspyrnudeildar ÍBV,
sagði í samtali við vefmiðilinn
fótbolti.net í gær að Víkingur og
KR hefðu brotið reglur KSÍ. Hann
sakar fulltrúa félagsins um að
hafa rætt við samningsbundna
leikmenn liðsins en samkvæmt
reglum KSÍ er það bannað.
Leikmönnum er reyndar
frjálst að ræða við önnur félög
eftir 15. október ef núverandi
samningur þeirra rennur út um
áramótin.
Gísli segir að bæði Víkingur og
KR hafi haft samband við
stjórnarmeðlimi með það fyrir
augum að fá að ræða við leik-
menn liðsins. Því hafi hins vegar
verið hafnað þar sem þeir eru
ekki sagðir falir.
Atli Jóhannsson og Andri
Ólafsson verða báðir samnings-
lausir um áramótin og eru
eftirsóttir hjá liðum í Lands-
bankadeildinni. - esá
Stjórnarmaður ÍBV:
KR og Víkingur
brutu reglur
Á LEIÐ FRÁ ÍBV? Atli Jóhannsson og Bo
Henriksen í baráttu við Bjarna Guðjóns-
son Skagamann. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
SENDU SMS BTC VFF
Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
AÐALVINNINGUR: PS2 TÖLVA + FIFA´07
AUKA VINNINGAR ERU:
FIFA´07 LEIKIR, PS2 STÝRIPINNAR, PS2 MINNISKORT,
DVD MYNDIR, FULLT AF ÖÐRUM TÖLVULEIKJUM
OG MARGT FLEIRA
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
1
49
k
r/
sk
ey
ti
ð
.
LENTUR
Í BT!
> Kvennalandsliðið heldur til Bandaríkjanna í dag
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu heldur í dag til Bandaríkj-
anna þar sem þær mæta heima-
mönnum í æfingaleik á Richmond
Stadium í Virginíufylki á sunnudag-
inn. Bandaríska liðið er eitt besta
landsliðið í heimi og er í öðru sæti
á styrkleikalista FIFA yfir kvenna-
landslið. Það verður því við ramman reip að draga fyrir Ísland í
leiknum en jafnframt skemmtilegt verkefni fyrir kvennalandslið-
ið. Í hópnum að þessu sinni er einn nýliði en það er Helga Sjöfn
Jóhannesdóttir, leikmaður Stjörnunnar. Valur á flesta leikmenn
í hópnum eða sjö en þeim næst kemur Breiðablik sem á sex
fulltrúa í hópnum. Það er þó skarð fyrir skildi í íslenska liðinu
að þær Ólína G. Viðarsdóttir og Guðrún S. Gunnarsdóttir eru
meiddar og eru því ekki með að þessu sinni.