Fréttablaðið - 05.10.2006, Blaðsíða 88
52 5. október 2006 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson er
fyrir margt löngu búinn að rita
nafn sitt í knattspyrnusögu
Íslands. Þessi magnaði miðjumað-
ur nálgast nú endalok ferils síns
en hann hefur leikið erlendis sem
atvinnumaður í tólf ár en hann lék
með KR þar til hann fór utan.
Rúnar varð á sínum tíma yngsti
landsliðsmaður Íslands er hann
kom af bekknum í landsleik gegn
Sovétríkjunum í Simferopol og
hann lauk gifturíkum landsliðs-
ferli með fleiri A-landsleiki á bak-
inu en nokkur annar Íslendingur.
„Ég er í fínu standi þessa dag-
ana og passa vel upp á mig. Ef ég
skammta æfingaálaginu rétt þá
held ég mér góðum,“ sagði Rúnar í
gær en hann hefur verið í byrjun-
arliði Lokeren í síðustu tveim
leikjum eftir að hafa byrjað tíma-
bilið á bekknum. Lokeren hefur
tapað síðustu þrem leikjum eftir
góða byrjun en Rúnar segist bjart-
sýnn á að liðið rífi sig upp fljót-
lega. Rúnar hefur verið að leika
sem framliggjandi miðjumaður í
síðustu leikjum en hann hefur
verið notaður víða á síðustu árum.
„Í fyrra var ég oft á kantinum
og á öllum stöðum á miðjunni. Nýi
þjálfarinn vill hafa mig fyrir aftan
senterana og þar kann ég líka best
við mig. Ég hef ekki enn verið
færður aftur í vörnina eins og ger-
ist gjarna með leikmenn sem eld-
ast enda er það ekkert fyrir mig.
Ég er sóknarþenkjandi leikmaður
og eftirlæt öðrum um varnarleik-
inn,“ sagði Rúnar sem hefur feng-
ið ágæta dóma fyrir frammistöðu
sína í síðustu leikjum.
Lokeren hefur verið mikið
Íslendingalið á síðustu árum en nú
er staðan sú að Rúnar er einn eftir
en hann lék með Marel Baldvins-
syni, Arnari Viðarssyni og Arnari
Grétarssyni hjá félaginu.
„Ég get ekki neitað því að það
er svolítið sérstakt og neita því
ekki heldur að ég sakna strákanna
frekar mikið. Við héldum hópinn,
spiluðum golf saman og annað
skemmtilegt. Það eru nokkur við-
brigði að vera eini Íslendingurinn
eftir að hafa haft strákana hérna
hjá mér,“ sagði Rúnar sem fer nú
oftast einn á golfvöllinn í dag en
þar finnur hann venjulega ein-
hverja til að spila með.
Rúnar og fjölskylda eru ákveð-
in í að flytja heim næsta sumar en
samningur Rúnars við Lokeren
rennur út í júní á næsta ári.
„Ég hef ekki gert það upp við
mig hvort ég ætli að spila fótbolta
þegar ég kem heim en ég geri ekki
ráð fyrir því. Það væri ágætt að
stoppa þegar maður kemur heim
og fara að huga að einhverju nýju.
ég held það væri ekki vitlaust að
þakka fyrir sig og setja skóna á
hilluna. Ég hef ekki enn ákveðið
hvað mig langar að gera en þjálf-
un er eitt af því sem ég hef áhuga
á. Ég ætla að skrá mig á þjálfara-
námskeið hér úti og ég finn von-
andi fljótlega hvort það eigi við
mig. Svo er ég opinn fyrir að prófa
eitthvað nýtt og gera eitthvað sem
tengist ekki fótbolta,“ sagði Rúnar
en hann segist bæði hlakka til og
kvíða fyrir því að koma heim.
„Það er mikil tilhlökkun að
koma heim og takast á við eitt-
hvað nýtt í lífinu. Maður þarf að
koma sér þaki yfir höfuðið og svo
eru það krakkarnir okkar en þau
hafa aldrei búið á Íslandi og það
verður væntanlega erfitt fyrir
þau að kveðja vini sína,“ sagði
Rúnar en hann á 12 ára son og
tvær dætur, fimm og tveggja ára.
„Það er mest tilhlökkun en líka
smá kvíði líka en það er bara
gaman.“
henry@frettabladid.is
Geri ráð fyrir að hætta í
fótbolta er ég kem heim
Landsleikjahæsti leikmaður Íslands, Rúnar Kristinsson, er að spila sitt síðasta
tímabil sem atvinnumaður. Hann gerir ekki ráð fyrir því að spila fótbolta á
Íslandi næsta sumar. Fer hugsanlega í þjálfun.
RÚNAR KRISTINSSON Ætlar ekki að taka fram knattspyrnuskóna á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR ÞÓR
FÓTBOLTI Hafþór Ægir Vilhjálms-
son, leikmaður ÍA, hélt um helgina
til Svíþjóðar þar sem hann æfði
með sænska 1. deildarliðinu
Norrköping. Ekki fór eins og ætl-
ast var til því hann meiddist þegar
hálftími var liðinn af fyrstu æfing-
unni. En forráðamenn liðsins hafa
greinilega hrifist af því litla sem
þeir sáu til hans því þeir hafa
óskað eftir því að hann komi aftur
til Svíþjóðar þegar hann hefur
jafnað sig af meiðslunum.
Með Norrköping leika tveir
aðrir Skagamenn, þeir Stefán
Þórðarson og Garðar Gunnlaugs-
son. Liðið er í fjórða sæti deildar-
innar eins og er og eygir litla von
um að vinna sér inn úrvalsdeildar-
sæti.
En jafnvel þó að Hafþór gangi
ekki til liðs við Norrköping á nýju
ári herma heimildir blaðsins að
hann muni ekki spila með ÍA á
næsta tímabili. Þó nokkur lið hafa
mikinn hug á að klófesta leik-
manninn, svo sem KR, FH, Valur
og Grindavík.
- esá
HAFÞÓR ÆGIR
Stóð sig vel með liði ÍA í
sumar en hér á hann í höggi
við Árna Kristin Gunnarsson,
leikmann Breiðabliks.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hafþór Ægir Vilhjálmsson fór til Svíþjóðar og æfði með Norrköping:
Meiddist á fyrstu æfingunni
FÓTBOLTI Stan Collymore stefnir á
endurkomu í ensku úrvalsdeildina
en hann hefur ekki leikið knatt-
spyrnu í fimm ár. Collymore er 35
ára gamall og hefur ekkert spilað
frá því að hann yfirgaf spænska
félagið Real Oviedo í mars árið
2001. Collymore er þessa dagana í
æfingabúðum í Tenerife og verður
þar næstu þrjár vikurnar.
„Ég er búinn að fara í nokkur lík-
amspróf og er sannfærður um að
ég mun koma aftur fljótari, sterk-
ari og í betra formi en ég hef nokk-
urn tímann verið í,“ sagði Collym-
ore í samtali við breska blaðið
Daily Mirror á dögunum.
Persónuleg vandamál hafa
oftar en ekki komið Collymore í
koll á hans ferli og í einkalífinu en
Collymore er sannfærður um að
hann sé laus við öll vandamál.
„Þið munuð ekki sjá fréttir af mér
hent út af einhverjum bar og
dauðadrukknum einhvers staðar.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að
ég geti tekið fram skóna aftur.
Sem fótboltamaður á ég ekki mik-
inn tíma eftir en þegar ég hætti á
sínum tíma var það ekki vegna
þess að ég var í lélegu líkamlegu
ástandi.“
Það vantar greinilega ekkert
upp á sjálfstraustið hjá Collym-
ore. „Ég fór á HM í sumar sem
sérfræðingur fyrir sjónvarpstöð
og ég sá ekki marga leikmenn þar
sem fengu mig til að hugsa ¿ég
get þetta ekki‘. Það hljómar
kannski hrokafullt en ég trúi því
enn að ég sé bestur,“ sagði hinn
hógværi Stan Collymore. - dsd
Stan Collymore er ekki af baki dottinn og stefnir á endurkomu í enska boltann:
Stenst samanburð við alla sóknarmenn
STAN COLLYMORE Er hér í baráttu við Roy Keane í leik Liverpool og Man. United fyrir
níu árum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Lögreglan í Liverpool á
Englandi mun ekki leggja fram
kæru á hendur Joey Barton,
leikmanni Manchester City, sem
beraði á sér afturendann í leik
liðsins gegn Everton á laugardag-
inn en Manchester City jafnaði
metin í uppbótartíma í leiknum.
Barton hefur áður lent upp á
kant við Everton aðdáendur en í
æfingaferð með liði sínu fyrir
rúmu ári í Taílandi lenti Barton í
áflogum við einn aðdáanda
Everton og var sendur heim fyrir
vikið.
Að sögn manna var Barton
brosandi þegar hann sýndi
alheiminum afturendann á sér en
með þessu jafntefli batt City enda
á tíu leikja taphrinu á útivelli.
- dsd
Manchester City:
Barton verður
ekki ákærður
JOEY BARTON Er hér í baráttu við Tim
Cahill og er enn í buxunum.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sænska landsliðið
undirbýr sig nú af krafti fyrir
leiki sína gegn Spáni um helgina
og Íslandi á miðvikudaginn
kemur. Í gær gátu þeir Olof
Mellberg og Freddie Ljungberg
ekki æft með liðinu vegna
meiðsla en landsliðsþjálfari Svía
hefur ekki áhyggjur af þeim og
ætlar ekki að kalla inn aðra
leikmenn í hópinn.
Dómaratríó leiksins kemur frá
Póllandi en aðaldómarinn heitir
Grzegorz Gilewski. - esá
Ísland-Svíþjóð:
Pólskt dómara-
tríó dæmir
FÓTBOLTI Það virðist margt stefna
í að íranski viðskiptamaðurinn
Kia Joorabchian gangi frá
kaupum á enska knattspyrnulið-
inu West Ham á næstu dögum.
Stjórn félagsins boðaði til fundar
í gær til að ræða tilboð frá
Joorachian sem er sagt hljóða
upp á 70 milljónir punda.
Luis Felipe Scolari, landsliðs-
þjálfari Portúgals, sagði frá því á
dögunum að hann myndi alvar-
lega íhuga tilboð frá Joorachian
um að taka við West Ham ef það
myndi berast. „Kia er mjög góður
vinur minn og við tölum saman
nánast á hverjum degi. Við
ræðum oft um störf og ef eitthvað
myndi bjóðast þá væri ég til í
skoða það,“ sagði Scolari. - dsd
Yfirtökutilboð:
Kia að kaupa
West Ham?
LUIS FELIPE SCOLARI Er heitur fyrir því
að taka við West Ham ef Kia kaupir
félagið. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI KR hefur gengið frá
samningi við þýska bakvörðinn
Thomas Heizer en hann hefur æft
og spilað með liðinu upp á
síðkastið. Heizer er 192 senti-
metrar á hæð og kom til félagsins
fyrir tilstuðlan Fannars Ólafsson-
ar en þeir léku saman með þýska
félaginu Ulm á sínum tíma.
Heizer var með um 10 stig að
meðaltali í leik hjá Ulm en hann
lék síðasta vetur í Hollandi þar
sem hann var með um 4 stig að
meðaltali áður en félag hans lét
hann fara. Heizer hefur leikið tvo
leiki með KR og þótti standa sig
sérstaklega vel gegn Grindavík
þar sem hann skoraði 15 stig.
- hbg
Körfuboltalið KR:
Semur við
þýskan bakvörð
FÓTBOLTI Felix Magath, aðalþjálf-
ari Bayern München, gagnrýnir
sóknarmennina Roy Makaay og
Lukas Podolski harðlega fyrir
leik þeirra það sem af er tímabil-
inu og þá sérstaklega fyrir
frammistöðununa um síðastliðna
helgi þegar Bayern tapaði fyrir
Wolfsburg. Magath segir að
Claudio Pizarro sé miklu grimm-
ari en Makaay og Podolski.
„Það er greinilegt hvað vantar
í leik okkar. Sóknarmennirnir eru
ekki nógu grimmir. Pizarro er
miklu grimmari en hinir tveir,“
sagði Magath en Bayern hefur
aðeins skorað sex mörk í sjö
deildarleikjum á tímabilinu.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær er Barcelona með
augastað á Roy Makaay þessa
dagana til að fylla skarð Samuels
Eto‘o sem er meiddur. - dsd
Bayern München:
Stjórinn gagn-
rýnir leikmenn
MAKAAY OG PODOLSKI Eru harðlega
gagnrýndir af þjálfara sínum fyrir
frammistöðuna á leiktíðinni.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES