Fréttablaðið - 05.10.2006, Síða 90
54 5. október 2006 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Roman Calderon, forseti
Real Madrid, sagði í samtali við
BBC að hann vissi ekki betur en að
David Beckham, leikmaður liðsins
og fyrrum fyrirliði enska lands-
liðsins, myndi leggja skóna á hill-
una vorið 2008. Talsmaður Beck-
hams sagði þetta ekki vera rétt en
mikið hefur verið rætt og ritað um
samningsmál Beckhams hjá Madr-
ídarfélaginu undanfarna daga og
vikur.
Beckham á ekki lengur víst
sæti í byrjunarliði Real Madrid
eftir að Fabio Capello tók við lið-
inu en hann hefur áður sagt að
hann vilji ljúka ferlinum í Madríd
og vill hann fá nýjan samning sem
gildir næstu þrjú árin. Núverandi
samningur hans rennur út í
sumar.
Calderon sagði í viðtalinu að
samkvæmt bestu vitund hans ætl-
aði Beckham að hætta árið 2008 og
vonaði hann til þess að Beckham
myndi vera hjá félaginu þann
tíma. En talsmaður Beckhams
kom af fjöllum. „Þetta kom okkur
algjörlega í opna skjöldu. Enginn
hefur nokkurn tímann rætt það
hvenær hann ætli hugsanlega að
hætta.“
Forseti Real sagði að Capello
væri hrifinn af Beckham og sjálf-
ur hefur kappinn sagt að hann
skilji það vel að það gengur eng-
inn að byrjunarliðssæti í jafn
stóru liði. Síðan Jose Antonio
Reyes kom til félagsins í haust
hefur Beckham mátt verma bekk-
inn.
„Við þurfum á honum að halda,“
sagði Calderon. „Hann hefur verið
að spila mjög vel. Stjórinn treystir
honum. Við vonumst til að gengi
verði frá þessu máli á næstu 15 til
20 dögum.“
Þegar hann var nánar spurður
um endalok knattspyrnuferils
Beckhams sagði forsetinn yfirlýs-
ingaglaði að hann hefði lesið ein-
hvers staðar að Beckham hygðist
enda sinn feril í Bandaríkjunum.
„Ég er handviss um að leikmenn
geti enn verið uppi á sitt besta við
35 ára aldur. Sérstaklega hann
sem hefur verið að þjálfa sig alla
sína ævi.“ - esá
GAMAN Ruud van Nistelrooy og David Beckham fagna marki þess fyrrnefnda fyrr í
haust. NORDIC PHOTOS/GETTY
Forseti Real Madrid er yfirlýsingaglaður hvað varðar framtíð Davids Beckham í knattspyrnunni:
Beckham ætlar ekki að hætta eftir tvö ár
FÓTBOLTI Í síðasta mánuði tryggði
ÍR sér sæti í efstu deild kvenna
með sigri á sameiginlegu liði Þór/
KA. Þór/KA kærði hins vegar
úrslitin þar sem Berglind Magn-
úsdóttir, markvörður ÍR í leikjun-
um tveimur, var að spila fyrir
hönd þriðja liðsins í sumar en í
reglum KSÍ segir að leikmaður
megi einungis leika fyrir tvö félög
á einu tímabili. Áður hafði Berg-
lind leikið með KR og Fjölni um
sumarið. Dómstólar dæmdu í mál-
inu á þriðjudaginn og dómurinn
féll Þór/KA í vil og í dómsorðum
segir: „Úrslit leiks Þórs/KA og ÍR
í aukakeppni Íslandsmóts mfl.
kvenna sem fram fór 9. september
2006 dæmast 3-0 Þór/KA í vil.
Kærði greiði kr. 5.000 í sekt til
KSÍ.“ KSÍ hafði áður viðurkennt
mistök sín í málinu og afturkallað
keppnisleyfi Berglindar.
ÍR-ingar eru vitanlega ekki
sáttir við niðurstöðu málsins og
halda því fram að KSÍ hafi í raun
ekki gert nein mistök, ÍR voru í
markmannsvandræðum og fóru
fram á undanþágu þar sem tími
félagaskipta var útrunninn, sem
þeir og fengu frá samninga- og
félagaskiptanefnd KSÍ. ÍR-ingar
vilja meina að nefndin hafi veitt
þeim undanþágu sem nái bæði yfir
þann tíma sem bann gildir við
félagaskiptum og ákvæði um
fjölda liða. ÍR-ingar segja jafn-
framt að hafi verið um mistök að
ræða hjá KSÍ, þá eigi þau ekki að
bitna á ÍR.
„Við lítum svo á að KSÍ hafi
ekki gert mistök. Í lögum segir að
KSÍ hafi leyfi til að veita undan-
þágu fyrir markverði, þannig að
við lítum þannig á málið að ekki sé
um mistök að ræða heldur sé þetta
þeirra túlkun, Við vorum ekkert
að velta því fyrir okkur hvað Berg-
lind hafi leikið fyrir mörg lið í
sumar. Markmaðurinn okkar
meiddist stuttu fyrir leikinn gegn
Þór/KA og við fórum í það að fá
undanþágu fyrir nýjan markmann
og við fengum þá heimild. Þjálfar-
inn okkar fór í málið og þá kom í
ljós að Berglind væri í raun eini
kosturinn. Við sendum umsóknina
um félagaskiptin til KSÍ tveimur
dögum fyrir fyrri leikinn gegn
Þór/KA,“ sagði Páll Kristjánsson,
formaður knattspyrnudeildar ÍR, í
samtali við Fréttablaðið og bætti
því við að honum fyndist eðlileg-
ast að úrslit leiksins yrðu látin
standa þar sem ÍR gerði ekkert
rangt í þessu máli og heldur ekki
KSÍ.
Málið virðist því snúast um
túlkun á upphafi 4. grein laga um
félagaskipti leikmanna sem er svo-
hljóðandi: „Hafi leikmaður leikið í
Íslandsmóti eða Bikarkeppni KSÍ
á almanaksárinu, getur hann
aðeins einu sinni farið fram á
félagaskipti innanlands til og með
31. júlí. Frá og með 1. ágúst til og
með 15. október eru félagaskipti
innanlands ekki heimil. Samninga-
og félagaskiptanefnd skal þó
heimilt að veita undanþágu frá því
fyrir félagaskipti markvarðar ef
ríkar ástæður eru til að mati
nefndarinnar.“
Páll segir að ÍR hafi hringt sér-
staklega í KSÍ fyrir leikinn til að
ganga úr skugga um að Berglind
hafi fengið keppnisleyfið. „Þegar
við fórum í leikinn fyrir norðan þá
var ekki komið skriflegt keppnis-
leyfi fyrir Berglindi þannig að við
hringjum í starfsmann KSÍ til að
tryggja að þetta sé allt rétt og að
hún hafi þetta leyfi. Þá er okkur
tilkynnt það að búið sé að senda
okkur keppnisleyfið í faxi og því
spilaði hún leikinn fyrir okkur. Við
ætlum að áfrýja málinu og við
munum fara með það eins langt og
hægt er, því okkur finnst gjörsam-
lega tekið niðrum okkur í þessu
máli,“ sagði Páll en stjórn ÍR er nú
að skoða hvort þurfi að skipta út
þjálfurunum og ráða lögfræðing
til félagsins í staðinn. Páll tók það
einnig fram að ekkert væri við
Þór/KA að sakast í þessu máli enda
gerðu þeir það sem flestir hefðu
eflaust gert.
Dómurinn segir því að samn-
inga- og félagaskiptanefnd KSÍ
sjái eingöngu um að framkvæma
félagaskiptin en ekki um að rann-
saka hvort leikmaðurinn sé lög-
legur með því félagi sem hann/hún
gengur í hverju sinni. Það sé því í
höndum félagsins sem er að fá
leikmanninn til sín að ganga úr
skugga um að hann/hún sé lögleg-
ur/lögleg. Eitt er þó ljóst að málið
er hvergi nærri búið því ÍR lætur
ekki hér við sitja.
dagur@frettabladid.is
Þór/KA heldur sæti sínu í efstu deild
ÍR-ingar eru allt annað en sáttir eftir að Þór/KA var dæmdur sigur í leik liðanna í síðasta mánuði en ÍR
vann leikinn og tryggði sér þar með sæti í efstu deild kvenna. ÍR-ingar ætla að áfrýja málinu.
ÓSÁTTUR Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Óvíst er hvort sænski
landsliðsmaðurinn Tobias
Linderoth getur leikið með Svíum
gegn Íslendingum í næstu viku.
Linderoth og kona hans eiga von á
barni og af þeim sökum gæti
hann misst af leiknum. „Ef barnið
verður ekki komið í heiminn fyrir
leikinn gegn Íslandi þá er líklegt
að hann verði ekki með í þeim
leik en við erum með stóran og
góðan hóp og ráðum við svona
áföll,“ sagði Lars Lagerback.
Tobias Linderoth er miðjumað-
ur sem leikur með danska liðinu
FC Kaupmannahöfn og hefur
verið lykilmaður í sænska
landsliðinu síðustu ár. - dsd
Sænska landsliðið:
Óvissa með To-
bias Linderoth
TOBIAS LINDEROTH Er hér með fyrirliða-
bandið í baráttu við Miroslav Klose á
HM í sumar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester Unit-
ed, segir að hroki og völd leik-
manna séu stærstu vandamálin
sem framkvæmdastjórar eiga
við í fótboltaheiminum. Fergu-
son á að baki langan og sigursæl-
an feril sem framkvæmdastjóri
og hann hefur aldrei veigrað sér
við að taka á málunum ef leik-
menn sínir eru farnir að líta of
stórt á sig. Nægir í þeim efnum
að benda á Roy Keane og David
Beckham sem báðir fengu að
taka pokann sinn þegar Ferguson
fannst þeir fara yfir strikið.
Ferguson segir það klárt að með
tilliti til þess álags sem fram-
kvæmdastjórar eru undir að
nauðsynlegt sé að halda uppi
miklum aga í sínu liði.
„Hroki leikmanna er stærsta
vandamálið sem þjálfari þarf að
eiga við. Agi er mjög mikilvægur
í þjálfun. Þú mátt ekki láta leik-
menn stjórna æfingum og það
verður að vera mikill agi á æfing-
um og í öllu sem félagið tekur sér
fyrir hendur. Einfaldar reglur
eins og t.d. stundvísi og einbeit-
ing á æfingum verða að vera við
lýði. Þjálfarar eru sífellt meira
að eiga við stjórnsemi leikmanna.
Ég er reyndur í þessu en ungir
stjórar þurfa að vera viðbúnir
þessu og þurfa að læra að taka á
þessu vandamáli. Fyrir utan
þetta er mikill þrýstingur á að ná
góðum árangri. Það er líka nauð-
synlegt fyrir framkvæmdastjóra
að stjórn félagsins sé vel mönn-
uð,“ sagði Ferguson.
Ferguson skorar á eigendur
félaga að sýna stjórum sínum
þolinmæði og segir að það að
reka framkvæmdastjórann sé
ekki alltaf besta lausnin.
- dsd
Ferguson segir að hroki og völd leikmanna séu stærstu vandamálin í boltanum:
Knattspyrnustjórum verður að sýna þolinmæði
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær á
hvaða völlum úrslitaleikir á
vegum sambandsins yrðu spilaðir,
á árunum 2008 og 2009. Nefnd á
vegum UEFA hafnaði Wembley
en enska knattspyrnusambandið
hafði sótt um að halda úrslitaleik-
ina annaðhvort árið 2008 eða
2009.
Úrslitaleikurinn í Meistara-
deild Evrópu árið 2008 fer fram á
Luzhniki-vellinum í Moskvu og á
Ólympíuleikvanginum í Róm árið
2009. Úrslitaleikurinn í Evrópu-
keppni félagsliða árið 2008
verður spilaður á The City of
Stadium, heimavelli Manchester
City, og á Sukru Saracoglu-
vellinum í Istanbul árið eftir.
- dsd
Knattspyrnusamband Evrópu:
Wembley
var hafnað
FÓTBOLTI Luke Moore, sóknarmað-
ur Aston Villa, er ekki eins mikið
meiddur og leit út fyrir í fyrstu.
Búist var við að Moore yrði frá út
þessa leiktíð en nú þykir ljóst að
hann verði klár í slaginn í byrjun
janúar. Moore meiddist á öxl í
leik Aston Villa og Chelsea um
síðustu helgi.
„Ég var hræddur um að Moore
yrði lengi frá keppni en sjúkra-
þjálfarinn hefur nú fullvissað
mig um að svo er ekki. Hann þarf
ekki að fara í aðgerð,“ sagði
Martin O‘Neill, framkvæmda-
stjóri Aston Villa.
Aston Villa fékk sóknarmann-
inn Chris Sutton til að fylla það
skarð sem Luke Moore skilur
eftir sig. - dsd
Meiðsli Luke Moore:
Verður klár í
byrjun janúar
FÓTBOLTI Luis Aragones tók
áhættusama ákvörðun í vali sínu
á landsliðinu á dögunum þegar
hann ákvað að velja ekki Raúl í
hópinn. Aragones hefur nú gefið í
skyn að breyttar áherslur verði í
leik Spánverja gegn Svíum á
laugardaginn.
„Við verðum að vinna þennan
leik, hvað sem það kostar.
Jafntefli eru ekki endalokin en
það eru ekki góð úrslit. Það er
mikilvægt að við höldum markinu
hreinu og við munum reyna að
beita skyndisóknum,“ sagði
Aragones sem er orðinn mjög
valtur í sessi. - dsd
Spænska landsliðið:
Aragones er
var um sig