Fréttablaðið - 07.10.2006, Qupperneq 56
12
Ragnar, sem lenti reyndar í því
óhappi að fótbrotna illa í leik með
liði sínu Vængjum Júpiters í undan-
úrslitaleik utandeildarinnar um síð-
astliðna helgi, ber deildinni að öðru
leyti góða sögu. „Þetta snýst náttúr-
lega rosalega mikið um félagsskap-
inn, þarna eru komnir saman vinir
og kunningjar sem hafa áhuga á
fótbolta. Álagið er ekki eins mikið
og í deildakeppnum og menn þurfa
ekki að vera í eins góðu formi. Þetta
snýst meira um skemmtun,“ segir
Ragnar, sem lék áður með 1. deildar
liði Fjölnis.
„Auk þess að spila leiki æfum við
reglulega og maður reynir að vera
duglegur að fara út að hlaupa og
mæta í ræktina þess á milli. Þetta
er ágæt leið til þess að halda sér í
formi, en staðreyndin er hins vegar
sú að mikill getumunur er á liðun-
um. Það eru bæði menn þarna sem
hafa spilað í deildakeppnunum og
svo hálfgerðar fitubollur sem geta
lítið spilað fótbolta.“
Ragnar segir þó að margir góðir
leikmenn séu að spila í deildinni.
„Ef maður er með metnað til þess
að vinna þetta mót er nauðsynlegt
að vera í þokkalega góðu líkamlegu
ástandi en fyrst og fremst snýst
þetta þó um góðan félagsskap.“
-vör
Spriklar í utandeild
Ragnar Sverrisson er einn fjölmargra knattspyrnum-
áhugamann sem lagt hafa keppnisskóna formlega á
hilluna en leika þess í stað í utandeildinni í knattspyrnu.
Ragnar segir utandeildina ágætan vettvang til þess að
halda sér í formi í góðum félagsskap.
Ragnar Sverrisson í
leik með sínu gamla
liði Fjölni. Í dag spilar
hann í góðra vina hópi í
utandeildinni í fótbolta.
MYND/RAGNAR
„Ég hugsa oft um heilsuna þegar ég
er að elda og það er gaman að elda
léttan mat við og við,“ segir Valdi-
mar. Hann segist verða var við að
fólk hugsi meira um heilsuna nú
en áður þegar það fari út að borða.
„Fólk er að borða léttari mat, sér-
staklega á sumrin, en maður verður
ekki eins var við það á veturna,”
segir Valdimar Pálsson, kokkur á
Strikinu á Akureyri.
SESARSALAT DRESSING
Eggjarauður 1 stk.
Ólífuolía 250 g
Kjúklingasoð (vatn+ kraftur) 50 ml
Balsamedik 50 ml
Parmesan ostur 50 g
Ansjósur 2 flök
Salt og pipar
Eggjarauðurnar eru þeyttar og
olíunni er hellt mjög rólega út í,
ansjósur og rifinn parmesan ostur
er bætt út í og hrært vel saman við,
að lokum er balsamediki og kjúkl-
ingasoði bætt út í.
Má nota majónes í stað eggja-
rauðu og olíu, einnig má nota tofu.
Romain-salat er sett á disk ásamt
eldaðri kjúklingabringunni, brauð-
teningum og rifnum parmesanosti
er stráð yfir diskinn. Að lokum er
dressingunni hellt yfir salatið.
WOK-STEIKTAR RÆKJUNÚÐLUR
Traditional núðlur 200 g
Tígrisrækjur 150 g
Egg 2
Grænmeti eftir smekk
Sweet chili sósa
Mjög einfaldur réttur. Settu núð-
lurnar í heitt vatn og láttu standa
í 5 mínútur, á meðan skerðu niður
þitt uppáhaldsgrænmeti, hitaðu
stóra pönnu og steiktu grænmet-
ið og rækjurnar, kryddað salti og
pipar. Helltu vatninu af núðlunum
og bættu þeim á pönnuna ásamt
eggjunum, steikt í 2 mínútur og að
lokum er sósunni bætt út á.
Fólk hugar frekar að
heilsunni á sumrin
Valdimar Pálsson, kokkur á Strikinu á Akureyri, segir að fólk hugi að heilsunni þegar það fari út
að borða. Hann ætlar að deila með okkur uppskriftum að tveimur réttum sem auðvelt er að gera.
Valdimar segir fólk frekar hugsa um heils-
una á sumrin.
Wok-steiktar rækjunúðlur og sesarsalat.
■■■■ { heilsublaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Kvef
Upp á síðkastið hefur verið deilt
um gagnsemi C-vítamína við
kvefi. Menn eru hins vegar sam-
mála um að inntaka á C-vítam-
ínum getur dregið úr slæmum
áhrifum kvefpesta og stytt tímann
sem kvefið situr í okkur. C-vít-
amín hjálpar einnig líkamanum
að vinna sig betur út úr langtíma
nikótínneyslu.
Fyrirtíðarspenna
Fyrirtíðaspenna er ekki vinsælasta
ástandið á meðal kvenna. Magn-
esíum er það vítamín sem hjálpar
hvað best við að koma jafnvægi á
skapið og draga úr höfuðverkjum.
Kalsíum og sink hjálpa einnig til
við að koma jafnvægi á hormóna-
kerfið.
Húðin
A-vítamín gerir kraftaverk fyrir
húðina en hafa ber í huga að A-
vítamín getur haft skaðleg áhrif
sé það tekið í stórum skömmtum.
Reyndu að fá A-vítamínin úr nátt-
úrulegri fæðu eins og gulrótum,
fiski, gulum ávöxtum og græn-
meti. B-vítamín og kalsíumríkt
grænmeti geta hjálpað til við að
draga úr bólum og fílapenslum.
Streita
Til að hjálpa líkamanum að ná
tökum á streitu er gott að taka
B-vítamín. B1- og B5-vítamínin
hjálpa til við að draga úr stressi
og B6 er gott við mildum kvíða
og depurð. Ef þú veist að fljótlega
komi upp aðstæður sem reyna á
þig andlega er gott að byrja strax
að fá B-vítamín úr fæðunni.
Vítamín til bættrar heilsu
Öll þurfum við á vítamínum að halda en í sumum tilfellum henta ein-
staka vítamín betur en önnur.
Best er að borða fjölbreytta fæðu til að fá sem mest af vítamínum.
Námskeiðið Súperform á fjórum vikum hjá Goran
Kristófer, íþróttafræðingi, er hannað til að koma þér af
stað á mjög árangursríkan og einfaldan hátt. Tilgangur
námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Ef þú vilt:
Léttast
Styrkjast
Efla ónæmiskerfið
Bæta meltinguna
Hormóna jafnvægið
Andlega vellíðan
Auka minni og einbeitinguna
Auka orkuna
Komast í form
Bæta heilbrigði
Þú kynnist nýjum möguleikum í matarvali, mat sem örvar
fitubrennslu, hvernig þú átt að glíma við matar -og
sykurþörfina, hvernig þú ferð a því að brenna meira
og léttast.
Fimm tímar í viku – Brennsla, styrking og liðleiki
Takmarkaður fjöldi
Vikulegar mælingar
Eigið prógramm í tækjasal
Persónuleg næringarráðgjöf
Ráðgjöf við matarinnkaup
Fræðsla og eftirfylgni – 2 fyrirlestrar
Slökun og herð anudd í pottum að æfingu lokinni
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Karlar kl. 7:30
Konur kl. 6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Nýtt námskeið hefst 16. október nk.
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is. Námskeið greiðist við
skráningu – athugið síðast komust færri að en vildu.
Næstu námskeið 13. nóvember (6 vikur).
Nýtt námskeið kl.11.00 í 6 vikur – 2 hóptímar
í viku hjá Goran og 2 tímar í Rope Yoga með
Katrínu Sigurðardóttur
Ávextir og grænmeti 2