Fréttablaðið - 11.10.2006, Síða 40

Fréttablaðið - 11.10.2006, Síða 40
MARKAÐURINN 11. OKTÓBER 2006 MIÐVIKUDAGUR10 Ú T T E K T Í þjóðhagsspám bankanna og fjármálaráðu- neytisins sem gefnar hafa verið út síðustu daga og vikur er gert ráð fyrir snörpum við- snúningi í viðskiptahalla við útlönd, samdrætti í efnahagslífinu á næsta ári með minni spennu og lokum stóriðjuframkvæmda á Austurlandi og svo vaxandi hagvexti frá og með árinu 2008. Atburðir síðustu daga kunna þó að setja eitthvert strik í síðustu spár, enda boða stjórn- völd að lagt verði í framkvæmdir á vegum hins opinbera auk þess sem aðgerðir til lækk- unar matvælaverðs taka gildi í mars. ÁHERSLUMUNUR Í SPÁM Spárnar eru ekki alveg samhljóða og í þeim nokkur áherslumunur. Fjármálaráðuneytið spáir 4,2 prósenta hagvexti á þessu ári, einu prósenti á því næsta og svo 2,6 prósenta hag- vexti árið 2008. Ekki er gert ráð fyrir frekari stóriðjuframkvæmdum í spá ráðuneytisins enda ekki búið að negla neitt slíkt niður. Greiningardeild Glitnis er samhljóma ráðu- neytinu um hagvöxt þessa árs en gerir ráð fyrir heldur meiri niðursveiflu á því næsta, eða 0,3 prósenta hagvexti. Síðan taki hag- kerfið við sér á ný árið 2008 með 2,3 prósenta hagvexti. Kaupþing spáir heldur snarpari sam- drætti strax á þessu ári, 3,5 prósenta hag- vöxtur nú, neikvæð- ur hagvöxtur um 0,2 prósent á næsta ári, en svo viðsnúning- ur árið 2008 með 3,1 prósents hagvexti. Landsbankinn sker sig svo nokkuð úr í þessari talnaleikfimi og tekur dálítið annan pól í hæðina, spáir minni hagvexti á þessu ári en hinir, 3,2 prósentum, svo 1,3 prósenta hagvexti á næsta ári og svo uppgangi með nýjum stóriðjuframkvæmdum og 6,0 prósenta hagvexti árið 2008. Greiningardeild Landsbankans er ein um að gera ráð fyrir frekari slíkum framkvæmdum í spá sinni, en uppi eru fyrirætlanir um slíkt þótt ekkert hafi verið fastsett enn. Bankinn spáir reyndar ámóta hagsveiflu og nú hefur átt sér stað með stóriðjuframkvæmdunum næstu sem standi til ársins 2010 þegar aftur verði samdráttur og gengisfall krónunnar, líkt og á þessu ári. Óvissuþættir eru nokkrir í spám bankanna, enda hefur engum tekist að spá nákvæmlega fyrir um gengisþróun, en hún er jú lykilatriði þegar kemur að þróun verðbólgu og viðskipta- halla. Allir eru þó sammála um í spám sínum að dragi úr þenslu á næstu misserum. FRAMKVÆMT Á NÝJU ÁRI Í stefnuræðu sinni á Alþingi í byrjun mán- aðarins fjallaði Geir H. Haarde forsætisráð- herra um þróunina í efnahagsmálum. Hann segir helsta verkefni ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans að undanförnu hafa verið að ná niður verðbólgu og útlit sé fyrir að hún verði komin niður að 2,5 prósentum, verðbólgu- markmiði Seðlabankans, um eða fyrir mitt næsta ár. Þá segir Geir að heildareftirspurn í hag- kerfinu muni minnka þegar dregur úr einka- neyslu og framkvæmdum við virkjanir og stóriðju fyrir austan ljúki. Hann segir því ljóst að þenslan sé á undanhaldi. „Af þessum sökum er nú óhætt að fella úr gildi fyrri ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að setja ekki af stað um ótiltekinn tíma ný útboð á framkvæmd- um. Þar með verður haldið áfram með þær samgöngubætur sem hafa verið undirbúnar að undanförnu, sem og aðrar framkvæmdir,“ sagði hann í ræðu sinni og kvað munu verða lagt til við Alþingi að þegar í stað yrði ráðist í sérstakt átak til úrbóta á umferðaræðum út frá höfuðborginni. Að auki koma til framkvæmda eftir áramót skattalækkanir og í byrjun vikunnar upplýsti ríkisstjórnin svo um aðgerðir til að lækka matvælaverð, en þær felast í lækkun virðis- aukaskattsprósentu um helming, í 7,0 prósent, auk lækkunar á tollum og vörugjaldi. Allar ýta þessar aðgerðir fremur undir þenslu. AÐHALDS ER ENN ÞÖRF Kaupþing telur þó að lækkun virðisauka- skattsins muni flýta fyrir verðbólguhjöðnun til skamms tíma. „Ef miðað er við að vísitala lækki um 2,7 prósent á fyrri hluta næsta árs líkt og útreikningar forsætisráðuneytis- ins gera ráð fyrir mun það leiða til þess að verðbólga verður að meðaltali 3,5 prósent árið 2007 samkvæmt spá greiningardeildar í stað 5,4 prósenta. Auk þess sem Seðlabanki Íslands nær verðbólgumarkmiði undir lok árs 2007 í stað þess að ná því um mitt ár 2008 samkvæmt spá greiningardeildar. Hins vegar gæti þetta leitt til meiri verðbólgu árið 2008 vegna aukinnar einkaneyslu landans,“ segir greiningardeildin. Landsbankinn tekur í sama streng og segir aukinn kaupmátt heimilanna á næsta ári hljóta að leiða til þess að líkur á minnkandi einkaneyslu séu nú minni en áður og að sam- dráttur þjóðarútgjalda verði hægari en áður var reiknað með. Bankinn segir því ljóst að verðbólguþrýstingur verði meiri, sérstaklega þegar frá líður. „Að okkar mati er líklegast að Seðlabankinn bregðist við þessu með hægari lækkun stýrivaxta en áður var útlit fyrir.“ Ingólfur H. Bender, forstöðumaður grein- ingardeildar Glitnis, segir ljóst að enn sé talsverð spenna í hagkerfinu og fylgikvillar hennar meðal annars sýnilegir í verðbólgu og viðskiptahalla. „Viðskiptahallinn var um 23 prósent af landsframleiðslu á fyrri hluta VIRKJAÐ LAND Á HELLISHEIÐI Hagkerfið þarf ráðrúm til að jafna sig áður en kemur að frekari stórframkvæmdum í ætt við virkjanir eða ný álver að mati sérfræðinga. Þá þykir varhugavert að gefa undir fótinn vænting- um um miklar fram- kvæmdir eða aukin útgjöld hins opinbera á næsta ári því slíkt ýti undir þenslu og grafi undan trúverðugleika hagstjórnarinnar. Markaðurinn/GVA Ó L Í K A R H A G S P Á R G R E I N I N G A R D E I L D A B A N K A O G R Á Ð U N E Y T I S H A G V A X T A R S P Á R 2006 2007 2008 Fjármálaráðuneytið 4,2% 1,0% 2,6% Glitnir 4,2% 0,3% 2,3% Kaupþing 3,5% -0,2% 3,1% Landsbankinn 3,2% 1,3% 6,0%* *Landsbankinn gerir einn ráð fyrir nýjum stóriðjuframkvæmdum í spá sinni og telur hagvöxt árin 2008-2010 að meðaltali verða 5,0 prósent á ári. Varasamt er að fagna of snemma Stóru viðskipta- bankarnir hafa allir sett fram hagspár sínar. Í spám þeirra er einhver áherslu- munur þótt allar hafi þær gert ráð fyrir hraðri hjöðn- un þenslu í hag- kerfinu á næsta ári. Óli Kristján Ármannsson kynnti sér horfurnar og viðhorf forsvars- manna greiningar- deilda til fyrir- hugaðra fram- kvæmda og ann- arra ákvarðana. Forsætisráðherra segir þenslu á undanhaldi en sérfræðingar vara við of snemm- bærum fögnuði. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir helsta verkefni ríkis- stjórnarinnar og Seðlabankans að undanförnu hafa verið að ná niður verðbólgu og útlit sé fyrir að hún verði komin niður að 2,5 prósentum, verðbólgumarkmiði Seðlabankans, um eða fyrir mitt næsta ár.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.