Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 49
H A U S MARKAÐURINN þessa árs og verðbólgan stendur í 7,6 prósent- um. Hagkerfið er þannig langt frá því að vera í jafnvægi og því fullsnemmt að fagna sigri í baráttunni við þensluna,“ segir hann og telur að við ríkjandi aðstæður sé nauðsynlegt að bæði ríkið og Seðlabankinn beiti aðhaldi. „Það gildir bæði í orði og á borði. Það eitt að boða á næsta ári lækkun skatta og auknar fjárfestingar og þar með minna aðhald í ríkisfjármálum er til þess fallið að auka á spennuna í hagkerfinu í ár sem og á næsta ári. Því er ekki heppilegt að boða slíkar aðgerðir við núverandi aðstæður þó svo að hagspár segi að talsvert muni draga úr spennunni á næsta ári.“ AÐGERÐIRNAR AUKA NEYSLU Ingólfur segir eina hættuna við að fara út í ótímabærar aðgerðir til lækkunar skatta og auknar framkvæmda hins opinbera vera að með því sé grafið undan því trausti sem stöð- ugleikinn hvíli á að stórum hluta. „Mikið hefur verið lagt í það á undanförnum mánuðum að sýna, ekki síst erlendum aðilum, fram á að hér á landi sé hagstjórnin skynsöm og laus við taumleysi. Nokkuð hefur áunnist í því og ber gengisþróun undanfarinna vikna ásamt viðsnúningi á hlutabréfamarkaði og lánskjör- um bankanna erlendis meðal annars merki um það. Með því að gefa lausan tauminn nú er verið að bjóða heim hættunni á að fórna að minnsta kosti hluta þess ávinnings sem unnist hefur. Meðal annars er þarna ógnað stöðu krónunnar.“ Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar segir Ingólfur til þess fallnar að auka kaupmátt almennings í bráð. „Þær auka því neyslu og koma þau áhrif fram bæði í ár og á næsta ári þó svo að bæði skattalækkanirnar og þær aðgerðir í framkvæmdum sem um hefur verið rætt komi ekki til fyrr en á næsta ári. Þetta mun gera það að verkum að hægar og minna mun vinda ofan af þeirri spennu sem nú er í hagkerfinu,“ segir hann og telur að undirliggj- andi stærðir sem lýsi ójafnvæginu í hagkerf- inu, svo sem viðskiptahalli og verðbólga, komi til með að vara lengur en ella. Þó að hratt dragi úr innlendri eftirspurn á næstunni samhliða því að úr stóriðjufram- kvæmdum dregur telur Ingólfur þann sam- drátt í innlendri eftirspurn ekki verða nægan til að vinda alfarið ofan af þenslunni sem sé í hagkerfinu. „Aðhalds í fjármálum ríkissjóðs er því þörf á næsta ári til að ná hagkerfinu í jafnvægi og mynda grundvöll fyrir hjöðnun verðbólgunnar, viðunandi viðskiptahalla og lækkun stýrivaxta Seðlabankans.“ Hann segir áhrif af mögulegum frekari stóriðjufram- kvæmdum svo alfarið fara eftir tímasetn- ingum þeirra og umfangi. „Ljóst er að ekki er rými fyrir frekari framkvæmdir í bráð. Hagkerfið þarf einfaldlega tíma til að ná sér eftir hið mikla framkvæmdaskeið sem verð hefur undanfarið. Frekari framkvæmdir verð- ur síðan að skoða í ljósi reynslunnar sem við nú höfum. Miklar framkvæmdir á skömmum tíma eru ekki heppilegar fyrir svona lítið hag- kerfi. Þær valda mikilli röskun í framleiðslu- skilyrðum, á eignaverði og gera mikla kröfu til hagstjórnarinnar.“ Ingólfur segir betra að dreifa framkvæmdunum yfir lengri tíma og færast minna í fang. HEILDARMYNDINA VANTAR STUNDUM Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður grein- ingardeildar Landsbanka Íslands, segir ljóst að ákveðin aðlögun þurfi að fá að eiga sér stað í hagkerfinu, en væntingar um rýmri kjör og þensluhvetjandi aðgerðir hægi á þeirri aðlög- un. „Þarna skiptir máli hvort við erum að fara inn í stóriðjuframkvæmdir eða ekki. Ef við erum líka að fara inn í þær þá gæti þetta verið mjög óheppilegt, en ef ekki þá er skaðinn ekki sá sami. Stundum er eins og heildarmyndina vanti, en hún er gríðarlega mikilvæg inni í svona litlu hagkerfi þar sem allar aðgerðir vega svo þungt.“ Edda Rós segir Landsbankann hafa metið það svo að líklegra væri en ekki að ráðist verði í stóriðjuframkvæmdir strax á þarnæsta ári. „Við lögðum í töluverða vinnu við þetta mat á aðstæðum, töluðum við stjórnmálamenn úr öllum flokkum, við ál- og orkufyrirtækin. Við reyndum að átta okkur á hvernig leyfismál- um væri háttað og þar fram eftir götunum. Niðurstaða okkar var því að eðlilegra væri að gera ráð fyrir þessu en ekki,“ segir hún en áréttar um leið að í spá greiningardeildar bankans sé þó gert ráð fyrir mun minni fram- kvæmdum en til dæmis Kaupþing hafi spáð. Þannig segir Edda Rós ljóst að fari þær framkvæmdir í gang sem greiningardeildin geri ráð fyrir sé ekki skynsamlegt að þenja kerfið mikið meira. „En auðvitað er þarna óvissa á öllum stöðum og svo sem ekki hlut- verk bankanna að segja mönnum til heldur fremur að átta sig á afleiðingum ákvarðananna fyrir fjárfesta. Við erum ekki í hagstjórn.“ Hún segir svo virðast að sú ályktun bankans, að hvorki ríkisstjórn né sveitarfélögin verði virk í að tempra þenslu í hagkerfinu fari þjóð- in inn í annað þenslu- skeið, ætli að ganga eftir og því hvíli það líklega aftur á herðum Seðlabankans og pen- ingastefnunnar að vera á bremsunni. STYRKING KRÓNU SKEKKIR JÓLIN „Það er meðal annars út af þessu sem við í spá okkar gerum ráð fyrir að í lok næstu hagsveiflu fari þetta ekkert óskaplega vel. Við gerum bæði ráð fyrir verðbólguskoti og falli krónunnar.“ Þannig segir Edda Rós að þróun mála sé í takt við væntingar bankans sem geri ekki ráð fyrir því, hver sem væri við völd, að pólitískur vilji verði til aðhalds. „Við viljum fulla atvinnu, lága verðbólgu, litla vexti, stöðugt gengi og mikinn vöxt. Við viljum vera í svakalegum fjár- festingum þrátt fyrir að hér sé full atvinna og viljum að stjórnvöld greiði fyrir slíkum fjár- festingum. Meðal ann- ars viljum við tryggja vinnu um landið þó að full atvinna sé á lands- vísu. Svona eru hlutirn- ir bara og eitthvað verður undan að láta.“ Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar- deildar Kaupþings, segir sömuleiðis að of snemmt sé að hrósa sigri í slagnum við þensluna. Hann segir þá aðlögun í hagkerfinu sem komið hafi fram á þessu ári að stórum hluta skýrast af viðsnúningi í væntingum við gengisfall krónunnar og umræðu sem farið hafi í gang um efnahags- lífið. „Áhrifin voru þá mjög jákvæð á einka- neysluna. En við vilj- um sjá aðlögun og við viljum sjá einkaneysl- una ganga niður,“ segir hann, en bendir um leið á að burtséð frá öðru sé ljóst að gríðarleg þörf sé á fjárfestingum í umferðarmannvirkjum í kring um Reykjavík. „Þær framkvæmdir eru ábyggilega gríðarlega arðsamar. Svo er líka ljóst að á einhverjum tímapunkti þurfum við líka á þessum framkvæmdum að halda til að halda stöðugleikanum. En síðan, ef stóriðjan kæmi til skjalanna, þá myndi það náttúrulega þýða að ríkið þyrfti að fresta framkvæmdum enn frekar.“ Ásgeir segir að í síðustu hagspá sé ekki gert ráð fyrir stóriðju strax heldur að ríkið verði virkt í framkvæmdum á árinu 2008. Ásgeir segir vandamálin hins vegar felast í því að hagkerfið sé í raun samsafn af vænt- ingum þar sem einkaneysla vegi þyngst og sé langstærsti hlutinn í landsframleiðslunni. „Það er aldrei hægt að sjá nákvæmlega fyrir hvern- ig hún muni þróast. Það er nú samt miðað við stöðuna nú frekar líklegt að þrengst hafi um lántökumöguleika með hærri vöxtum. Þannig er varla hægt fyrir fólk að halda mikið lengur áfram í skuldsettri neyslu, en maður veit það þó aldrei nákvæmlega. Einkaneysla gæti eins dregist hraðar saman en við gerum ráð fyrir.“ Hann segir þó ákveðnar blikur á lofti í því að gengi krónunnar hafi styrkst nokkuð að undan- förnu. „Það er ekki sérstaklega heppilegt. Helst hefðum við viljað hafa gengisvísitöluna þar sem hún var, í kring um 125, hvorki veik- ari né sterkari. Ef gengið styrkist þá þýðir það að innflutningur verður ódýrari og jólin gætu orðið meiri neyslupakki en ráð er gert fyrir. Ég held því að veturinn verði tiltölulega viðburðaríkur,“ segir Ásgeir og ekki ólíklegt að þar verði hann sannspár. 11MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 Ú T T E K T FRAMKVÆMDIR Á MÓTUM SUÐURLANDS- OG VESTURLANDSVEGAR Forsætisráðherra boðaði nýverið í stefnuræðu sinni á Alþingi að opnað yrði á ný fyrir útboð á vegum hins opinbera og meðal annars yrði ráðist í langþráðar vegabætur við höfuðborgina. Sérfræðingar í efnahagsmálum vara við að ríkið fari of skarpt af stað í útgjöldum. Markaðurinn/GVA Varasamt er að fagna of snemma INGÓLFUR H. BENDER Ingólfur, sem er yfir greiningu Glitnis, telur að á næsta ári sé þörf á aðhaldi í fjármálum ríkisins til að ná hagkerfinu í jafnvægi og mynda grundvöll fyrir hjöðnun verð- bólgunnar. Markaðurinn/GVA EDDA RÓS KARLSDÓTTIR „Við viljum fulla atvinnu, lága verðbólgu, litla vexti, stöðugt gengi og mikinn vöxt,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Íslands og bendir á að stefnan samrýmist ekki endilega kröf- um um stöðugleika. Markaðurinn/GVA ÁSGEIR JÓNSSON Ásgeir, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, segir aðlögun í hagkerfinu sem komið hafi fram á þessu ári að stórum hluta skýrast af við- snúningi í væntingum við fall krónunnar og erfiðrar umræðu um efnahagslífið. Markaðurinn/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.