Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 82
 11. október 2006 MIÐVIKUDAGUR SENDU SMS BTC CFV Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! AÐALVINNINGUR ER PS2 TÖLVA + LEIKURINN VINNINGAR ERU: SCARFACE LEIKIR (PC OG PS2), PS2 STÝRIPINNAR, PS2 MINNISKORT, DVD MYNDIR, FULLT AF ÖðRUM TÖLVULEIKJUM OG MARGT FLEIRA LENDIR Í B T 6. OKTÓB ER VERTU TONY MONTANA Í EINUM SVALASTA LEIK ÁRSINS. BYGGÐU UPP GLÆPAVELDIÐ OG NÁÐU FRAM HEFNDUM. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið. FÓTBOLTI „Okkur hefur gengið vel. Við unnum Spán á laugardaginn, erum með fullt hús stiga og sjálfs- traustið er mikið,“ sagði Mikael Nilsson, leikmaður Panathinaikos og sænska landsliðsins, í samtali við Fréttablaðið á blaðamanna- fundi Svíanna í gær. Hann, eins og allir aðrir leikmenn sænska liðs- ins, segist búast við erfiðum leik í kvöld. „Ísland er gott lið og með duglega leikmenn. Við þurfum einnig að vera duglegir og ein- beittir að verkefninu í kvöld ef við ætlum okkur sigur, rétt eins og í öllum okkar leikjum.“ Spurður hvort sænsku lands- liðsmennirnir vanmeti ekki íslenska liðið örlítið segist hann vona að svo sé ekki. „Auðvitað búast bæði leikmenn og stuðnings- menn liðsins við því að við vinnum þennan leik. En þetta er fótbolta- leikur eins og hver annar og fyrst við gátum unnið Spánverja tel ég allt eins líklegt að Ísland geti unnið Svíþjóð. Og ef við ætlum okkur eitthvað úr þessum leik verðum við að spila jafn vel og við gerðum á laugardag. Og það er alveg ljóst að ef við vinnum ekki í dag verður sigurinn á Spánverjum fyrir vikið ekki alveg eins sætur.“ Nilsson segir að riðillinn sé skipaður mörgum sterkum liðum sem séu sérstaklega erfið við að eiga á sínum heimavelli og það sé tilfellið með lið eins og það íslenska og norður-írska. „Fyrir vikið verða allir leikir mikil- vægir.“ Hann segir að sú neikvæða umfjöllun sem verið hefur um sænska liðið undanfarið hafi ekki áhrif á liðsandann. „Það hefur verið mikið skrifað í blöðunum og flest neikvætt. En við látum það ekki hafa áhrif á okkur og það sást á laugardaginn. Það er allt í góðu lagi í okkar hópi.“ - esá MIKAEL NILSSON Tekur á Antonio Puerta í leiknum gegn Spáni um helg- ina. NORDIC PHOTOS/AFP Mikael Nilsson, leikmaður Panathinaikos, býst við erfiðum leik í kvöld: Sjálfstraustið er mikið í liðinu FÓTBOLTI Þó nokkur skörð hafa verið höggvin í bæði íslenska og sænska leikmannahópinn fyrir leik liðanna á Laugardalsvelli í kvöld. Lars Lagerbäck, landsliðs- þjálfari Svía, hefur þó ekki áhyggj- ur af forföllum þriggja miðvallar- leikmanna úr sínum hópi. „Ég myndi auðvitað vilja hafa alla mína menn heila en ég á góða leikmenn sem koma í liðið í stað- inn,“ sagði Lagerbäck við Frétta- blaðið í gær. Hann segir að íslenska liðið hafi á að skipa góðum leikmönn- um og að sigur Letta um síðustu helgi hafi verið of stór. „Kannski eins marks sigur hefði verið réttlát úrslit. En það er samt staðreynd að varnarleiknum hefur verið ábótavant. Danir skor- uðu tvö mörk úr skyndisóknum rétt eins og við gerðum hér í fyrra. Í Lettlandi fengu Íslendingar á sig mörk eftir einstaklingsmistök.“ Spurður um sóknarleikinn segir Lagerbäck að hann hafi skoð- að þann þátt vel en nú sé nokkur óvissa um hvernig Eyjólfur Sverr- isson muni stilla sínu liði upp. „Það er ómögulegt að segja hverjir munu spila þar sem marg- ir eru frá vegna meiðsla. Til að mynda hvort þeir spili með einn eða tvo framherja. En í íslenska liðinu eru margir góðir leikmenn og finnst mér Hannes Þ. Sigurðs- son og Veigar Páll Gunnarsson sterkir leikmenn sem myndu sóma sér vel í fremstu víglínu með Eiði Smára.“ Þegar viðtalið var tekið var enn óvitað að Veigar yrði frá vegna veikinda. Lagerbäck segir að sama hver spili leikinn þurfi sænska vörnin að vera á tánum. „Íslendingar eru þekktir fyrir að berjast vel hver fyrir annan og við þurfum að vera mjög einbeitt- ir allan leikinn.“ Það var svo tilkynnt í gær að Niclas Alexandersson, leikmaður IFK Gautaborgar, yrði fyrirliði Svíþjóðar á morgun en hann leik- ur sinn 95. landsleik í kvöld. Hann verður 35 ára í desember en Lager- bäck líkti honum við gott vín sem batnaði aðeins með aldrinum. Alexandersson verður væntan- lega við hlið Christian Wilhelms- son á miðjunni í kvöld og sagði „Chippen“, eins og hann er kallað- ur, að hann hlakkaði til leiksins í kvöld. „Ég er klár í slaginn og mjög spenntur. Það var ekki erfitt að gíra sig upp í þennan leik eftir leikinn um helgina og við hugsum ekki mikið um sigurinn gegn Spáni. Nú er nýr leikur á dagskrá.“ Chippen skoraði glæsilegt mark í 4-1 sigri Svía á Íslandi í fyrra og segir að hann verði ánægður ef honum takist að skora aftur. „Ég er alltaf ánægður þegar ég skora en markið í fyrra var vissulega fallegt.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is MEÐ FYRIRLIÐANUM Lars Lagerbäck og Niclas Alexandersson, fyrirliði Svía í kvöld, á blaðamannafundi Svía í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VIHELM Eiður Smári og Hannes yrðu gott sóknarpar Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Svía, segir að forföll íslenskra sóknarmanna í leiknum á morgun geri það að verkum að sóknarleikur íslenska liðsins geti orðið óútreiknanlegur. Sænska vörnin verði að vera á tánum í kvöld. FÓTBOLTI Rami Shaaban er mark- vörður sænska landsliðsins í fjar- veru Andreas Isaksson sem á við meiðsli að stríða. Hann átti stór- leik gegn Spánverjum um helg- ina þegar Svíar unnu 2-0. „Margir hafa spurt mig hvort þetta hafi verið stærsti leikur ferilsins en ég held að fyrsti leik- ur okkar á HM í sumar, gegn Trínidad og Tóbagó, hafi verið stærri hvað alla umgjörð varðar. Ég hef líka spilað nokkra stóra leiki með Arsenal, suma í Meist- aradeildinni. En leikurinn á laug- ardag kemst á topp fimm,“ sagði Shaaban sem leikur nú með Frederikstad í norsku úrvals- deildinni. Hann er nú í fyrsta sinn á Íslandi en hann segir að sínir menn séu undirbúnir fyrir hvers kyns veðráttu. „Það verður ekk- ert vandamál,“ sagði hann glað- beittur. Shaaban þekkir nokkra leik- menn íslenska liðsins úr norsku deildinni, þeirra á meðal Árna Gaut Arason, enda hafa þeir margsinnis mæst á vellinum. „Annars er ég ekki þessi dæmigerði fótboltafíkill sem þekkir leikmenn um allar trissur. En við förum vel yfir leikmenn íslenska liðsins í kvöld.“ - esá Rami Shaaban, markvörður Svía, er í sinni fyrstu Íslandsferð: Erum undirbúnir fyrir veðrið RAMI SHAABAN Grípur boltann á HM í sumar. NORDIC PHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.