Fréttablaðið - 25.10.2006, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 25. október 2006 3
Hugmyndir að tækjum og tól-
um til að lífga upp á bílinn og
gera ökuferðina skemmtilega.
Sumir eru þeirrar skoðunar að
bíllinn sé eingöngu samgöngu-
tæki sem kemur okkur á milli
staða. Þeir eru þó vafalaust fleiri
sem taka alls kyns þætti með í
reikninginn við val á ökutæki til
að tryggja að útkoman verði sem
best, svo sem hestöfl, eyðslu,
almenn þægindi, farangursrými,
ljósabúnað og ekki hvað síst hönn-
un. Hvað er annars gaman við það
að keyra góðan en forljótan bíl?
Bíllinn verður að vera glæsilegur
að utan sem innan. Vanti eitthvað
upp á síðastnefnda þáttinn er auð-
vitað alltaf hægt að velja um alls
kyns skemmtilega fylgihluti í bíl-
inn, bæði til að lífga upp á hann
og gera ökuferðina sem ánægju-
legasta.
- rve
Fylgihlutir í bílinn
Vasaljós frá Bílanausti.
Áttaviti frá Bílanausti.
Þráðlaust Sony heyrnar-
tól frá Bílanausti.
Teningar upp á punt frá Bílanausti.
Broskall frá Stillingu.
Ilmglös frá Stillingu.
Talstöð frá Bílanausti.
Radarvari frá Bílanausti.
36 Mercedes-Benz E320
díselbílar lögðu á laugardaginn
af stað í langferð frá París til
Peking.
Ferðinni er ætlað að vekja athygli á
sparneytni Benz-díselvéla en ferðin
er ekki kappakstur heldur sparakst-
urskeppni. Leiðin er 14.000 kíló-
metra löng en hún er í grófum drátt-
um sú sama og farin var þegar
Scipione Borghese sigraði í Beijing-
Paris trans-continental kappakstr-
inum fyrir 99 árum.
Áætlað er að það taki ökumenn-
ina 360, sem skiptast á að keyra
bílana, 28 daga að komast á leiðar-
enda. Það tók Borghese 52 daga að
fara sömu vegalengd og til gam-
ans má geta að bíll hans eyddi um
33 lítrum á hundraðið. - tg
Frá París til
Peking
Þrír bílanna notast við Bluetec tækni
sem á að gera þá enn sparneytnari.
4x4 specialist
Fáanleg í flestum stærðum fyrir
15,16,17 og 18” felgur
Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444
Jeppadekkin frá